Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Page 19
ÍTMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
27
Fréttir
Stúlkan sem kæröi líkamsárás dyravarðar:
Varanlega sjónskert
- lá á spítala í fjóra daga
„Ég fór með hana til augnlæknis á
laugardaginn og hún verður veru-
lega sjónskert. Læknirinn gaf henni
enga von,“ segir Kristbjörg Magnús-
dóttir, móðir Söru Lífar Stefánsdótt-
ur, sautján ára stúlku úr Keflavík,
sem kært hefur meintar misþyrm-
ingar dyravarðar á Café Amsterdam.
Sara Líf mun því bíða alvarlegt og
varanlegt tión á sjón sinni vegna
áverka sem hún segist hafa hlotið í
Kýr slapp
Sá spaugilegi atburður átti sér
staö á Hvammstanga í fyrradag að
kýr slapp þegar flytja átti hana í
sláturhúsið og þurfti íjölda manns
til að elta hana og koma henni til
slátrara. Sjónarvottar á staðnum
voru á því að um mjög skondna
sjón hefði verið að ræða. Að sögn
Guðmundar Gíslasonar sláturhús-
stjóra slapp beljan af kerrunni sem
hún var flutt á og hljóp inn í þorp-
ið og tók um tíu mínútur að ná
henni. „Þetta er í fyrsta skipti sem
þetta kemur fyrir hjá okkur en hjá
öðrum hér í bænum fór káifur eitt
sinn í sjóinn og synti fram í fjörð."
Kýrin var leidd til slátrunar eftir
flóttann.
Það varð heimsfrétt fyrir mörg-
um árum þegar kýrin Sæunn synti
yfir Önundarfjörð á flótta undan
slátrara. Sæunn var heppnari en
Hvammstangakusa því bóndinn að
Kirkjubóli í Önundarfirði gaf
henni lif og ól hana árum saman.
-hdm
samskiptum við dyravörð-
inn.
Kristbjörg segir augnbotn
hafa brotnað og sjóntaug
farið mjög illa í Söru Lif
auk þess sem augasteinn
hennar sé og muni verða
óeðlilega stór. „Hún sér að-
eins útlínur og ekkert ann-
að með hægra auganu,“ seg-
ir hún. Þá fóru sundur taug-
ar í andliti og stúlkan verð-
ur lömuð að hluta til við
munnvik.
Sara Líf var á ferð í höf-
uðborginni ásamt unnusta
sinum og fleira fólki laugar-
dagskvöldið 20. nóvember (ekki
fóstudagskvöldið 19. eins og missagt
var í frétt DV af málinu) en atburð-
urinn átti sér stað klukkan tvö eftir
Sara Líf Stefáns-
dóttir var illa út-
leikin eftir heim-
sókn á Café
Amsterdam.
miðnætti aðfaranótt
sunnudagsins. Hún hlaut
slæmt spark í andlit og
mikið glóðarauga en þegar
blæða tók inn á augað var
hún lögð inn á sjúkrahús á
þriðjudag þar sem hún
dvaldi i fjóra daga.
Kristbjörg segir dóttur
sína nýverið hafa látið
draum ræstast og keypt
sér mótorhjól en hún aki
því ekki framar. „Ég skil
ekki hvemig fullorðinn
karlmaður getur ráðist
svona á litla písl eins og
Sara er, bara 47 kíló,“ seg-
ir Kristbjörg.
Lögreglan í Reykjavik mun hafa
sett rannsókn málsins í forgang.
-GAR
Sveitarfélög og Háskólinn á Akureyri:
Víðtæk samvinna
Nýlega var undirritaður ramma-
samningur Dalvíkurbyggðar, Ólafs-
fjarðarbæjar og Hríseyjarhrepps ann-
ars vegar og Háskólans á Akureyri
hins vegar um sérfræðiþjónustu á
sviði skólamála og ýmsum samstarfs-
verkefnum.
I samningnum er kveðið á um að
hann tryggi sveitarfélögunum aðgang
að sérfræðibókasöfnum og kennslu-
gagnasafni. Einnig er í samningnum
kveðið á um að endurmenntun kenn-
ara og símenntun verði efld og rann-
sóknir í uppeldis- og kennslufræðum
auknar verulega. Á móti kemur að
sveitarfélögin skuldbinda sig til að
taka á móti kennaranemum, bæði á
leikskóla- og grunnskólastigi, er
stunda nám við Háskólann á Akureyri
og veita þeim starfsþjálfun. Samning-
urinn tekur ekki til þeirra þátta sér-
fræðiþjónustu er lúta að sálfræðilegri
og læknisfræðilegri greiningu náms-
þroska og samskiptavandamála ein-
stakra bama og verður leitast við að
fullnægja skyldum í þeim efnum með
því að efla félagsþjónustu í Dalvíkur-
byggð og Ólafsfirði. -hiá.
Samfylkingarfélagið f Reykjaneskjördæmi var stofnað í fyrrakvöld og var
Ásta Richardsdóttir kjörin formaður þess. Á myndinni sjást gamalreyndir
kratar, Guðmundur Oddsson og Rannveig Guðmundsdóttir, stinga saman
nefjum á stofnfundinum. Einungis er eftir að stofna samfylkingarfélag í
Reykjavík en það verður gert á laugardag. DV-mynd Teitur
6cfty+öld'>tf'
bíl'Jf*1'
netfang: planið.is
MMC Pajero 28 TDi, árg. '96,
ek. 109 þús. km, ssk.
Verð 2.760.000
VW Passat, árg. '98,
ek. 42 þús. km, ssk., álfelgur.
Verð 1.870.000
Missan Micra, árg. '97,
ek. 33 þús. km, álfelgur o.fl.
Verð 870.000
✓I? ttol'hgdKÍPa,
Cherokee Grand Orvis, árg. '97,
ek. 70 þús. km.
Verð 3.990.000
Toyota Land Cruiser 90 GX, árg.'98,
ek. 28 þús. km, ssk.
Verð 3.190.000
Opel Vectra CD 2,0, árg. '98,
ek. 25 þús. km, ssk., álfelgur,
topplúga. Verð 1.970.000
VW Polo, árg. '95,
ek. 47 þús. km, CD o.fl.
Verð 730.000
Tilboð 630.000
Kia Grand Sportage,
31“ álfelgur, ssk.
Verð 2.150.000
M. Benz E230, árg. '96,
ek. 56 þús. km, ssk., o.fl.
Verð 3.390.000
Opel Corsa, árg. '98,
ek. 16 þús. km, álfelgur o.fl.
Verð 980.000
Honda CRV, árg. '98,
ek. 19 þús. km, ssk., m/öllu.
Verð 2.190.000
VW Golf Comfortline, árg. '99,
ek. 10 þús. kcn, álfelgur.
Verð 1.700.000
Kia Grand Sportage, árg. '98, ek.
31 þús. km, álfelgur, 5 g.
Verð 1.850.000
Tilboð 1.650.000
Cherokee Grand LTD, árg. ‘99,
ek. 5 þús. km, topplúga.
Verð 5.500.000 Tilboð 4.800.000
MMC Spacewagon, árg. '98,
ssk., 4,0 vél.
Verð 1.350.000
Peugeot 406 st., árg. '99,
ek. 3 þús. km, 7 manna.
Verð 1.590.000
Planið er afgirt og vaktað allan sólarhringinn og á Planinu er hliðinu lokað milli kl. 22 og 07,