Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
Fréttir
Niðurstöður skoðanakannana DV
- til samanburöar eru niöurstööur fyrri kannana DV og úrslit þingkosninga -
I ■
9/l'99
Kosningar 8/5 '99
I
28-29/1 2 '99
9/199 28-29/1 2'99 9/l'99 28-29/1 2'99
I ------------------------► I
9/1'" 28-29/1 2 '99
SKOÐANAKÖNNUN
DV
VINSTRIHREYFiNGIN
grœnt framboð
Skoðanakönnun DV um fylgi stjórnmálaflokkanna:
Framsóknarflokkur
minnstur fjórflokkanna
- Sjálfstæðisflokkur með hreinan meirihluta - Vinstri-grænir næststærstir
Fylgið heldur áfram að tínast af
Framsókn og Samfylkingunni en
Vinstri-grænir sækja í sig veðrið og
eru næststærsti stjórnmálaflokkurinn
á eftir Sjálfstæðisflokknum sem fær
hreinan þingmeirihluta. Þetta eru
helstu niðurstöður skoðanakönnunar
DV um fylgi stjórnmálaflokkanna sem
gerð var þriðjudaginn 28. og miðviku-
daginn 29. desember. Þá var þegar
ljóst að Finnur Ingólfsson færi i Seðla-
bankann og að Valgerður Sverrisdótt-
ir tæki við stöðu iðnaðar- og við-
skiptaráðherra.
Úrtakið var 600 manns, jafnt skipt á
milli höfuðborgarsvæðis og lands-
byggðar, sem og kynja. Hringt var í
kjósendur og þeir spurðir: Hvaða lista
mundir þú kjósa ef þingkosningar
færu fram núna?
Óákveðnir reyndust 33,1% eða
vildu ekki svara sem þýðir að 66,9%
tóku afstöðu í könnuninni. Er það
svipað hlutfall og í síðustu könnun
DV sem gerð var síðari hluta október.
Þegar svör allra í könnuninni eru
skoðuð fær Framsóknarflokkurinn
stuðning 8,8% þátttakenda, Sjálfstæð-
isflokkur 34,5%, Frjálslyndi flokkur-
inn 1,7%, Samfylkingin 10,3%,
Vinstrihreyfmgin - grænt framboö
11,2%, Húmanistar og Anarkistar á ís-
landi 0,2% hvor. Enginn styður Kristi-
legt framboð. Óákveðnir reyndust
25,7% og 7,4 neituðu að svara.
Ef einungis er litið til þeirra sem af-
stöðu tóku skiptist stuðningur við
flokkana sem nú hafa fulltrúa á þingi
þannig: Framsóknarflokkur 13,2%,
Sjálfstæðisflokkur 51,6%, Frjálslyndi
flokkurinn 2,5%, Samfylkingin 15,5%
og Vinstrihreyfingin - grænt framboð
16,8%.
Framsóknarhrun
Sjálfstæðisflokkurinn hefur bætt
stöðugt við fylgi sitt frá kosningunum
þegar hann fékk 40,7% atkvæða. Fylg-
ið hefur hins vegar hrunið af sam-
starfsflokknum í ríkisstjóm, Fram-
sóknarflokknum sem nú er orðinn
langminnsti stjórnmálaflokkurinn á
Alþingi með stuðning 13,2% kjósenda.
Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokk-
anna nú er 64,8% samanborðið við
59,1% í kosningunum. Skrifast fylgis-
aukningin á Sjálfstæðisflokkinn.
Þróun á fylgi flokkanna á þingi frá
kosningunum má sjá á meðfylgjandi
grafi. Þar sést greinilega fylgistap
Framsóknar og Samfylkingar og fylg-
isaukning Sjálfstæðisflokks og
Vinstri-grænna.
Skipting þingsæta
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 33 þing-
menn kjörna samkvæmt þessari skoð-
anakönnun, bætti 7 þingmönnum við
sig frá kosningunum. Framsókn fengi
ekki nema 8 þingmenn, tapaði 4 frá
kosningunum. Saman fengju stjómar-
flokkarnir nú 41 þingmann samanbor-
ið við 38 í kosningum. Er sú viðbót
eingöngu að þakka fylgisaukningu
Sjálfstæðisflokks.
Vinstrigrænir fengju 11 þingmenn
samkvæmt könnun DV, hafa nú 9
menn á þingi, Samfylking fengi 10
menn, hefur nú 17 og Frjálslyndir
fengju 1 í stað tveggja.
Karlar vilja Sverri
7 af hverjum 10 stuðningsmönnum
Frjálslynda flokksins em karlar og
búa 9 af hverjum 10 þeirra á lands-
byggðinni. Allar konur sem styðja
flokk Sverris em af landsbyggðinni.
Jafn mikiO munur eftir stuðningi
kynja sést ekki í fylgi við hina flokk-
ana, er ekki marktækur.
Sem fyrr er meirihluti stuðnings-
manna Framsóknar af landsbyggðinni
eða 68%. Ívíð fleiri á landsbyggðinni
en á höfuðborgarsvæöinu styðja
Vinstri-græna og eru karlar þar i af-
gerandi meirihluta eða 62%. -hlh
50%
45
40
35
30
25
20
15
10
5
0
Fylgi flokka
- rniðaö viö þá sem tóku afstööu -
DV 28-29/12 '99
DV 20/10 '99
DV 13/09 '99
Kosningar
40,7
Skipan þingsæta
— samkvæmt atkvæðafjölda —
SKOÐANAKÖNNUN
DV
DV 28-29/12 '99
| DV 20/10 '99
HDV 13/09 '99
K
j Kosnlngar
©
Samfylklngin
rf
rfjUx*
38.
S>
Finnur byrjaður í
Seðlabankanum
Finnur Ingólfsson, fyrrum iönaö-
ar- og viöskiptaráöherra, mætti
til vinnu í fyrsta sinn í gær á sín-
um nýja vinnustaö. Hann varö,
sem kunnugt er, seölabanka-
stjóri um áramót.
Finnur tekur stööu Steingríms
Hermannssonar, sem var laus í
hálft annaö ár, eöa frá því aö
Steingrímur lét af störfum fyrir
aldurs sakir.
Paö bregst ekki aö fyrrum
bankastjórar fá málverk af sér
upp á vegg. Steingrímur er þar
engin undantekning. Hér horfir
nýi bankastjórinn á forvera sinn
og flokksbróöur.
DV-mynd GVA
Stuttar fréttir i>v
Ákvæði nægir ekki
Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður segir að
undanþáguá-
kvæðið sem rík-
islögreglustjóri
beitir til að ráða
fólk sem ekki
hefur tilskylda
lögi-eglumennt-
un nægi ekki til
að gera slíkar
ráðningar löglegar. Stöð 2 greindi
frá.
Fangi fundinn
Um hálfellefuleytið í gærkvöld
fann lögreglan í Reykjavík átján
ára strokufanga sem leitað hafði
verið að frá því fyrir áramót.
Bíða hækkana
Lítil hreyfing er á fasteigna-
markaði á Austurlandi og ljóst að
margir bíða þess hvað verður
með stóriðjuframkvæmdir þar og
telja að þá muni eftirspum aukast
og fasteignaverð hækka umtals-
vert. Dagur greindi frá.
Siv staðfestir
Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra hefur staðfest úrskurð
skipulagsstjóra um mat á um-
hverfisáhrifuní, vegna áforma um
lagningu nýs vegar yflr Vatna-
heiði í staö Kerlingarskarðs á
Snæfellsnesi, með ákveðnum skil-
yrðum.
Út um þúfur
Viðræður um sameiningu slát-
urleyfishafa á svæði allt frá Höfn
í Hornafirði, vestur um Norður-
land og í Búðardal ásamt Kjötum-
boðinu í Reykjavík eru farnar út
um þúfur. Dagur greindi frá.
Vill birta nöfnin
Þrif og hreinlæti er ófullnægj-
andi í meirihluta veitingastaða,
mötuneyta og kjötvinnsla, sam-
kvæmt könnim
heilbrigðiseftir-
lits sveitarfé-
laga og Holl-
ustuverndar
ríkisins. Jó-
hannes Gunn-
arsson, formað-
ur Neytenda-
samtakanna, vill að nöfn viðkom-
andi fyrirtækja verði birt.
Lítil löggæsla
Félagsmálayfirvöld í MosfeOs-
bæ segja að löggæsla sé í lág-
marki í sveitarfélaginu og það
hafi leitt til fleiri afbrota meðal
barna og unglinga. RÚV greindi
frá.
10 ára afmæli
Sjávarútvegsdeild Háskólans á
Akureyri fagnar þessa dagana tíu
ára afmæli sínu en hún tók til
starfa þann 4. janúar 1990.
Garðar forseti
Á fundi dómara Hæstaréttar
þann 16. desember sl. fór fram
kosning forseta og varaforseta
Hæstaréttar árin 2000 og 2001.
Forseti réttarins var kjörinn
Garðar Gíslason og varaforseti
Guðrún Erlendsdóttir.
Mengun og slys
Loftmengun fór langt fram úr
viðmiöunarmörkum skömmu eft-
ir miðnætti á gamlárskvöld. Slys
á augum af völdum öflugra skot-
elda voru þau verstu í rúman ára-
tug að mati lækna. Mbl. greindi
frá.
Vilja virkjun
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, telur að
mikill meirihluti þjóðarinnar sé í
raun fylgjandi
áformum um
virkjun og ál-
ver á Austur-
landi, en krafan
um lögformlegt
umhverfismat
hafi flækt fram-
setningu máls-
ins. RÚV greindi frá. -hlh
Tiilitssamara