Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR. 4 JANÚAR S2000
Fréttir
scmdkorn
Kolbrún Sverrisdóttir var kjörin maður ársins af þremur fjölmiðlum:
DV fylgdi máli
mínu fast eftir
- segir Kolbrún sem vaktar alþingismenn
„Ég er auðvitað mjög stolt af
þessum titlum. Þetta er mikill
heiður fyrir mig og þá sem studdu
baráttu mína fyrir bættum örygg-
ismálum sjómanna. Málið vakti
fyrst og fremst athygli vegna þess
að barátta mín varð sýnileg. Fjöl-
miðlar hjálpuðu mér mikið og þá
sérstaklega DV sem fylgdi málinu
fast eftir og sýndi fólki fram á all-
ar þær brotalamir sem voru í ör-
yggismálum sjómanna," segir Kol-
brún Sverrisdóttir á ísafirði sem
sópaði aö sér titlum vegna baráttu
sinnar í Æsumálinu. Eins og DV
hefur sagt frá fór Kolbrún í mál
við útgerð skelfiskbátsins Æsu
sem fórst 25. júlí 1996 og með skip-
inu eiginmaður Kolbrúnar og fað-
ir hennar. Kolbrún sótti málið fyr-
ir sina hönd og þriggja barna
hennar og Harðar Bjarnasonar.
Málinu lauk fyrir héraðsdómi sl.
haust með því að henni og böm-
um hennar voru dæmdar tæplega
sjö milljónir króna í bætur. Þrír
fjölmiðlar útneöidu Kolbrúnu sem
mann ársins 1999. Nýtt líf reið á
vaðið í upphafl desembermánaðar
þegar tímaritið útnefndi Kolbrúnu
sem mann ársins. Síðan fylgdu
Rás 2 og fréttastofa Stöðvar 2 í kjöl-
farið á gamlársdag. Á Rás tvö var
Kolbrún kosin með yfirburðum þeg-
ar hátt á þriðja hundrað manns
hringdu inn til að kjósa hana. Langt
á hæla hennar komu öm Amarson
Kolbrún Sverrisdóttir er ekkja vestur á ísafiröi sem neitaöi aö gefast upp. Hún missti
eiginmann og fööur í sjóslysi og fór í mál viö útgeröina. Hér er hún ásamt börnum sín-
um. DV-mynd Rögnvaldur
fólks aö þetta eru mál sem brenna á
almenningi. Ég hef fengið ijölda
heillaskeyta og upphringinga, svo
ekki sé talað um alla blómvendina.
Þetta er fyrst og fremst upphefð fyr-
ir alla þá sem láta sig slysavamir
sundkappi og Finnur Ingólfsson
seðlabankastjóri. Kolbrún segir
ánægjulegt að almenningur hafl átt-
að sig á mikilvægi slysavamamála
sjómanna.
„Það sést á þessum viðbrögðum
sjómanna einhverju varða,“ segir
hún.
„Þó Æsumálinu sé lokið þá er
baráttunni alls ekki lokið. Ég vil
sjá að öryggismálum sjómanna
verði betur sinnt og þar er víða
brotalöm. Það þarf að sýna störf-
um sjómanna meiri virðingu en
gert hefur verið. Það er ekkert
sjálfsagt að skip sökkvi án þess að
rannsakað sé til hlítar hvað bar út
af. Menn komast ekki lengur upp
með að yppta öxlum,“ segir Kol-
brún sem segist ekki vera hætt að
berjast fyrir bættum öryggismál-
um.
„Næstu skref em þau að gera
alþingismönnum ljóst með skýr-
um hætti að breyta þurfl lögum
og hækka lífbætur sjómanna. Mér
koma mál þessi við, einfaldlega
vegna þess að fjöldi ættingja
minna stundar sjómennsku og ég
á mér þann draum að starf þeirra
verði eins öruggt og í mannlegu
valdi stendur," segir Kolbrún.
Hún segist ekki hafa nein
áform um að taka beinan þátt í
pólítík til að fylgja sínum málum
eftir. Það sé þó aldrei að vita og
ráðist af frammistöðu þingmanna.
„Það getur vel verið að ég fari í
pólitík ef önnur úrræði þrýtur. Ég
skora á alþingismenn að taka til
hendinni, annars mega þeir eiga von
á því að ég birtist í þingsölum til að
hressa þá við,“ segir Kolbrún. -rt
Kærumál á Netinu í vinnslu hjá lögreglunni:
Kærufyrirmynd frá Madrid
Lögregluembætti landsins
munu, væntanlega á fyrstu mán-
uöum ársins, taka í þjónustu sína
nýtt fyrirkomulag í sakamálum og
öðrum málum þar sem hægt verð-
ur að leggja fram kærur á Netinu.
Innan 24 klukkustunda verður
kærandi síðan að koma á næstu
lögreglustöð, gera grein fyrir sjálf-
um sér og undirrita kæruna.
í sumum flóknari málum er eðli
málsins samkvæmt hins vegar
gert ráð fyrir frekari skýrslutök-
um.
Að sögn Jónmundar Kjartans-
sonar, yflrlögregluþjóns hjá ríkis-
lögreglustjóra, fór lögreglan nýlega
á ráðstefnu á Spáni þar sem menn
kynntu sér fyrirkomulag Internets-
ins hjá lögreglu í öðrum löndum.
Jónmundur kveðst eiga von á að ís-
lenska lögreglan muni taka upp hlið-
stæð vinnubrögð hvað varðar kærur
á Netinu og lögreglan í Madrid. -Ótt
Vísindamenn og sprengilægðir m
Veðurfræðingar boðuðu skömmu fyrir
meint aldamót að þess væri að vænta að
sprengilægð ein ógurleg kæmi upp að
ströndum íslands og gerði allar flugelda-
sýningar óþarfar. Þetta fór mjög fyrir
brjóst rakettusala sem töldu Veðurstofuna
þannig komna í beina samkeppni við þá
um ljósasjóv á himnum.
Fyrstu merki um yfirvofandi geimstríð
var þegar vísndamenn á Veöurstofunni
gerðu stórmerka veðurfræðilega uppgötv-
un eftir ítarlegar rannsóknir. Uppgötvun-
inni var lekið út til fjölmiðla og djúp-
hyggnir veðurfræðingar sögðu stoltir frá
því að aldamótalægð sem nálgaðist væri
ekkert venjuleg. Þama var um að ræða
sprengilægð sem áþreifanleg yrði á vest-
anverðu landinu um sama leyti og klukk-
an slægi 12 á miðnætti með þeim afleiö-
ingum að árið 2000 gengi í garð. Svo var
að skilja að sprengilægðin tæki ómakiö af
sprengióðum íslendingum og legði undir
sig himinhvolflð. Þannig yrði ekki aðeins óþarft
heldur beinlínis hættulegt að skjóta upp flugeld-
um eða tendra tívolíbombur sem hefur um hver
áramót verið hjartans mál íslendinga. Yfirlýsing
veðurfræðinga um sprengilægð sprakk þvi eins
og öflug tívolíbomba í andlit rakettusalanna sem
fram að hinni stórmerku uppgötvun höfðu séð
fram á metsölu. Talið var gulltryggt að sprengju-
fíklar myndu kaupa sem aldrei fyrr dót til að
sprengja sjálfum sér til gleði en öörum til ama.
AUt þetta fór á annan veg því væntanlegir kaup-
endur hrukku tU baka og ákváðu að bíða
sprengilægðarinnar ógurlegu sem þeir töldu að
leggja myndi undir sig himinhvolfið. Það fór því
svo aö aldamóta- og árþúsundaflugeldamir lágu
óhreyfðir í hiUum flugeldasalanna sem hugsuöu
sitt mál í kreppunni. Þegar nálgaðist árþúsunda-
mótin dró af vísindamönnum Veðurstofunnar
sem ýjuðu að því að sprengUægðin væri líklega
ekki eins öflug og áður var ætlaö. Var svo að
skUja aö þessi mesta tívolíbomba aUra tima
myndi springa yfir hafi áður en strönd hinnar
sprengjuglöðu þjóðar yrði náð. Flugelda-
salar íhuguðu um hrið að kæra Veðurstof-
una tU Samkeppnisstofnunar vegna krepp-
unnar sem skaU á þeim í stað lægðarinnar
ógurlegu.
Þegar árþúsundamótin gengu í garð var
fast að því heiðskír himinn og þeir sem
sterkustu sjónina höfðu sáu fleiri stjömur
en þeir kærðu sig um. Ein og ein ýlurak-
etta skaust á ská örfáa metra tU himins en
aldamótaflugeldamir hvíldu makindalega
í hiUum púðursalanna. Það var ljóst að
sprengilægðin hafði brugðist og líklega
spmngið með fllheyrandi látum á haf-
svæðinu suður af íslandi - engum til
ánægju eða hreUingar. Nú eru veðurfræð-
ingar og rakettusalar komnir í hár saman
og ekki sér fyrir endann á þeim ósköpum.
Búist er við nýrri sprengUægð á þrettánd-
anum. Sjálfur veðurstofustjóri hefur risið
tU vamar sínum vísindamönnmn og er
ekki tilbúinn að kyngja því að merkasta
uppgötvun seinni tíma, sjálf sprengUægðin, hafi
verið blöff. Hans skýring er einfóld. Stöð 2 og aðr-
ir fjölmiðlar sprengdu lægðina áður en hún
komst tU íslands. Hún þoldi ekki álagið og spenn-
una sem varð af ákafri umfjöUun um uppgötvun-
ina og svo fór sem fór. Það er því ekki við veður-
fræðingana að sakast heldur fjölmiðla sem engu
eira og em með nefið ofan í því sem þeim kemur
ekki við. Þaö er huggun harmi gegn að aldamót-
in em ekki fyrr en næst og enn hafa veöurfræð-
ingar ekki séð fyrir aöra sprengUægð. Dagfari
Vigdís verndari
Innan Reykjavíkurlistans er lítil
ánægja með að bæði forseti Islands og
Davið Oddsson höfnuðu boði um að
mæta í snobbveislu ald-
arinnar í Perlunni þeg-
ar Reykjavík tók við á
gamlárskvöld sem ein
af menningarborgum
Evrópu árið 2000. Vig-
dis Finnbogadóttir
hljóp í skarðið fyrir
Ólaf Ragnar með mik-
Uli ánægju. Ríflega 300 opnan-
ir munu verða í tengslum við árið og
í Ráðhúsinu tala menn nú fuUum fet-
um um að réttast sé að fá bara Vigdísi
tU að verða hinn raunverulegi vernd-
ari menningarborgarinnar fyrst for-
setinn brást svona við. Vopn voru þó
borin á klæðin þegar Þórunn Sig-
urðardóttir, framkvæmdastjóri
menningarborgarinnar, fékk fálka-
orðuna á nýársdag...
Prímadonnur
Á hátíðardagskránni í Perlunni,
þar sem mættir voru aUir fiUltrúar
menningarborga Evrópu, átti Vigdis
Finnbogadóttir að færa þehn öUum
blóm. Hún gerði það svo sannarlega
en tveir aðrir blómvendir voru æflað-
ir stjómanda kórsins
Raddir Evrópu, Þor-
gerði Ingólfsdóttur,
og söngkonunni Björk
Guðmimdsdóttur
sem stuttu áður hafði
sungið með kórnum.
Þegar Vigdís æflaði
að færa Björk blómin
var hún horfin út í buskann. Einhver
kom og sagði að hún væri að skipta
um fót. Nokkrar mínútur liðu en ekk-
ert bólaði á Björk. Vigdís lét ekki á
neinu bera þar tU hún var komin nið-
ur af sviðinu. Þá gat hún ekki leynt
óánægju sinni yfir framkomunni.
Hafði einhver á oröi að skrattinn
hefði þarna hitt ömmu sína, ekki
hefði verið pláss fyrir nema eina
prímadonnu á sviðinu...
Silfurglit Egils
Flestum þótti Silfur Egils Helga-
sonar baka hina afdönkuðu Krydd-
sUd Stöðvar 2 á gamlársdag. Þar sátu
þreyttir flokksformenn og drógu
ýsur meðan EgUl fiskaði tU sín frísk-
ustu stjórnmálamenn
dagsins. Guðlaugur
Þór Þórðarson
skylmdist við Ingi-
björgu borgarstjóra
og virðist vera að
styrkja sig sem leið-
togaefni, Össur
Skarphéðinsson
deUdi að vanda við umhverfisráð-
herra á meðan Bjöm Bjamason
brosti út að eyrum enda á leið í stór-
veislu Perlunnar. Stjama þáttarins
var þó EgUl sjálfur sem í lokin vipp-
aði sér upp á svið og tók tvö lög með
Geirfuglunum sem léku miUi atriða.
Gamlir bítlaaðdáendur fengu næst-
um tár í augun þegar EgUl söng af
innlifim Please please me...
Kristinn í slaginn
Innan Framsóknar fjölgar þeim
óðum sem vUja verða varaformenn
eftir Finn Ingólfsson. Valgerður
Sverrisdóttur hefur fiUlan hug á
framboði en margir
telja hana ekki anna
því með erfiðum ráðu-
neytum. Menn líta
einnig tU Hjálmars
Árnasonar sem
kandídats.
Sterkasti
kandídatinn er talinn
Ágústsson sem þó er sagður skorta
áhuga. Óvæntur kandídat er þó að
sögn farinn að kanna baklandið. Það
er Kristinn H. Gunnarsson, for-
maður þingflokksins, sem gekk til
liðs við Framsókn úr Alþýðubanda-
laginu fyrir kosningar...
Umsjón: Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is