Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
7
dv____________________________________________Fréttír
Ættfræðigrunnur á Netinu opnaður almenningi i fyrsta lagi i febrúar:
Viðþolslausir sendi bréf
- segir Friðrik Skúlason. Hægt að skrifa strax eftir ókeypis upplýsingum
„Það eru ýmis tæknileg atriði enn
ófrágengin en við stefnum að því að
þetta verði opnað eins fljótt og
nokkur kostur er,“ segir Friðrik
Skúlason tölvufræðingur um það
hvenær ættfræðigagnagrunnur fyr-
irtækis hans og íslenskrar erfða-
greiningar verður opnaður almenn-
ingi á Internetinu. „Þetta tekur að
minnsta kosti mánuð, jafnvel tvo
eða þrjá mánuði, og ef illa gengur
verður þetta ekki opnað fyrr en 17.
júní.“
Friðrik segir vel geta verið að að-
gangur að grunninum verði opnað-
ur að takmörkuð leyti áður en end-
anleg mynd verður komin á vefsíð-
una.
Aftur til þjóðarinnar
„Þangað til bjóðum við þeim sem
geta ekki beðið að senda okkur bréf
og fá þeir þá sent til baka útprent
með upplýsingum um sig. Það þarf
að merkja bréfið íslendingabók og
senda í pósthólf 7180,127 Reykjavík.
Þannig getur það flett upp sjálfu sér
en þegar þetta verður komið getur
það flett upp hverjum sem er og rak-
ið ættir sínar saman við ættir ann-
arra,“ segir Friðrik.
Aðspurður játar Friðrik að ætt-
fræðigrunnurinn sé rándýr. Hann
bendir þó á að ekki verði hægt að
keyra ókeypis út úr honum hvað
sem er, t.d. niðjatöl, og því ýmsir
möguleikar eftir fyrir eigendurnar
að fénýta sér grunninn.
“En ættfræðigrunnurinn er auð-
vitað byggður á beinu og óbeinu
framlagi gifurlegs fjölda manna í
Friörik Skúlason: „Fyrr eða síðar
verðum við komin með allar hand-
bærar upplýsingar og eina vinnan
sem þá er eftir er að bæta við ný-
fæddum og nýlátnum."
80 þúsund
vegna
hasskaupa
DV, Akureyri:
Átján ára Akureyringur hefur
verið dæmdur til greiðslu 80 þúsund
króna sektar vegna hasskaupa
ásamt tveimur öörum piltum. Þeir
höfðu keypt tæp 8 g af hassi frá
Reykjavík og fjórði pilturinn var
sendur á Umferðarmiðstöðina á Ak-
ureyri til að sækja hassiö. Sá var
handtekinn á staðnum og hald lagt
á efnið.
Máli þriggja piltanna lauk án
dóms en fjórði pilturinn var dæmd-
ur. Hann hefur fengið 4 aðra dóma á
tveimur árum fyrir ýmis afbrot, m.a.
2 mánaða skilorðsbundinn fangelsis-
dóm sl. sumar. Þrátt fyrir aíbrotið
nú var fullnustu refsingar frestað en
pilturinn var sem fyrr sagði dæmdur
til greiðslu sektar og til greiðslu alls
sakarkostnaðar. -gk
gegnum tíðina. Við notum sem
heimildir ýmis ættfræðirit sem síð-
an byggjast aftur á enn þá eldri rit-
um. Maður er því að taka við arf-
leifð um ættir annarra og nýta sér
annarra verk með því að safna öllu
sem er til á einn stað. Við erum ein-
faldlega skila þessu til baka - gefa
þetta aftur til þjóðarinnar,“ segir
Friðrik.
Ættfræöi er alvörumál
Nú sér fyrir endann á skráningu
nafna þeirra um það bil 600 þús-
und íslendinga sem heimildir eru
til um af þeim á að giska 1.500
mönnum sem talið er að hér hafi
lifað. Mjög margir þeirra sem
vantar eru reyndar börn sem dóu
í æsku, eiga sér því enga afkom-
endur og setja því ekki mikið strik
í reikninginn. Nær allir íslending-
ar síðustu tvö hundruð árin eru
þekktir en mikil gloppa er um
tímabilið 1250 til 1400. „Um 1250
datt þjóðin niður í það að hætta að
skrifa en eftir 1400 þurftu menn
aftur að fara að vesenast í ætt-
fræði. Þá var svartidauði genginn
yfir og ættfræðin aftur orðin al-
vörumál því þá var spurningin
hver átti að erfa hvað eftir hvern,"
segir Friðrik. „Fyrr eða síðar verð-
um við komin með allar handbær-
ar upplýsingar og eina vinnan sem
þá er eftir er að bæta við nýfædd-
um og nýlátnum. En við erum
komin með nógu mikið til þess að
það sé gaman og gagn af því að
hleypa fólki í þetta.“
-GAR
Nú rýmum við til fyrir nýjum vörum:
Ötrúlegt verð á heimilistækjum
SINGER • VCaravell • PFAFF • HOOVER, • Cjaiidif
Dæmi um verð:
UPPÞVOmVÉLAR SAUMAVÉLAR
47.905. -
Verð áður 55.385-
KÆIISKÁPAR
37.905. -
Verð áður 43.605.-
ÞVOmVÉLAR
Verð áður 49-970,-
Verðáður 45.505.-
BAKAROFN
28.405."
Verð áður 34.865.-
HELLUBORÐ
28.405. "
Verð áður 43.605.-
FRYSHKISTUR
28.405. -
Verðáður 33.820.-
RYKSUGUR
7.980.-
Verð áður 9-975.-
Mikiðúrval.
Góð þjónusta, góð vörumerki.
Nú er tækifærið, -verið velkomin.
P
*Q
xo
V
XO
*2
!>
^Heimilistœkjaverslun
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 333 2222