Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
9
DV
Utlönd
Flokkur Tudjmans sáluga í Króatíu tapar þingkosningum:
Fyrrum kommúnisti til-
búinn að mynda stjórn
Stjómarandstæðingar í mið- og
vinstriflokkum í Króatíu tryggðu
sér öruggan sigur á HDZ, flokki
Franjos Tudjmans heitins, fyrrum
forseta, í þingkosningunum þar í
gær, að því er fyrstu kosningatölur
benda til.
Þegar búið var að telja 27 prósent
atkvæða var helsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn, undir forystu
Ivica Racans, fyrrum leiðtoga
kommúnistaflokksins, með örugga
forystu í níu kjördæmum af tíu
sem eiga fleiri en einn fulltrúa á
þingi.
Racan er mikið í mun að endur-
heimta traust Vesturlanda sem
hafa sniðgengið Króatíu í mót-
mælaskyni við einræðistilburði
Tudjmans heitins. Racan sagðist
þess fullviss að hann gæti myndað
trausta meirihlutastjórn. Kosið
verður um eftirmann Tudjmans 24.
janúar.
„Eins og málum er háttað nú
náðum við betri árangri en skoð-
anakannanir spáðu fyrir um. Það
er sönnun þess að þjóðin vill breyt-
ingar og viðurkennir að við getum
komið þeim til leiðar," sagði hinn
55 ára gamli Racan. „Ég er reiðubú-
inn að verða forsætisráðherra og
veit að það verður ekki auðvelt."
Hinn þjóðemissinnaði HDZ, sem
hefur stjórnað Króatíu frá árinu
1990 og ekki tapað kosningum til
þessa, beið ekki eftir endanlegmn
úrslitum til að játa sig sigraðan.
Ivica Racan, sem er til hægri á myndinni, fagnar kosningasigri stjórnarandstöðuflokkanna í Króatíu með Drazen Bu-
disa. Nýs þingmeirihluta í Króatíu bíða mörg erfið verkefni. Efnahagslífið er í molum, atvinnuleysi er 20 prósent, sí-
fellt minna er um fjárfestingar og meðalmánaðarlaun eru ekki nema sem svarar 30 þúsund krónum.
í megrun til að
geta borgað
reikningana
Monica Lewinsky, fyrrverandi
lærlingur í Hvíta húsinu, viður-
kenndi í sjónvarpsþætti Larrys
Kings í gærkvöld að það væri svo-
lítið skrýtið af henni að auglýsa
megrunarkúr samtímis því sem
hún reyndi að forðast sviðsljósið i
kjölfar uppljóstrananna um sam-
band hennar og Bills Clintons
Bandarikjaforseta. Að sögn Mon-
icu ákvað hún hins vegar að ger-
ast talsmaður megrunarkúrs
Jenny Craig þar sem henni fannst
það þess virði og þar sem hún
þurfti að greiða reikninga frá lög-
mönnum.
Samkvæmt talsmönnum megr-
unaraðferðarinnar hefur Monica
lést um 15 kiló frá því síðastliðið
sumar. Talsmennirnir hafa ekki
viljað staðfesta fregnir um að
Monica fái 1 milljón dollara í
þóknun léttist hún um 30 kíló.
Myndir birtast nú af Monicu fyr-
ir og eftir kúrinn.
Óskar landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs
með þökk fyrir viðskiptin og viðtökur á nýliðnu ári
Otsalan hefst
5. janúar í Reykjavík
6. janúar á Akureyri
108 Reykjavík
Faxafeni 8 sími: 533 1555