Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Síða 10
10 wnnmg ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000 Kaldhæðnin á undanhaldi - en tilfinningin leyfð Listin er dauð er setning sem reglulega heyrist þegar rætt er um listir á 20. öldinni, og margir halda fram að tækni, iðnaður og afþreying hafi stuðlað að andlát- inu með því að þurrka út mörk hámenningar og lágmenningar. En Helgi Þorgils Friðjónsson myndlistarmaður, sem í nær þrjá áratugi hefur fengist við að mála eins og ekkert hafi í skorist, virðist ekki hafa miklar áhyggjur af þessum andláts- fregnum, allra síst nú þegar hann er beðinn um að horfa inn í nýja öld. „Auðvitað hefur listin að ein- hverju leyti færst nær afþreying- unni. Hún notar líka meðul af- þreyingarinnar og ekkert óeðli- legt við það. Eflaust á eftir að verða enn harðari samkeppni um peninga og athygli varðandi list og afþreyingu, en málið er að listin er ekkert um þetta, hún á ekkert að keppa um fjöldahylli. Hún fjallar um frumspurningar sem menn eiga alltaf eftir að spyrja sig. Þess vegna er ég bjartsýnn á framtíð hennar.“ Tæki til frásagnar „Listin hefur liklega sjaldan verið jafnfjölskrúðug og nú,“ heldur Helgi áfram. „Myndlistar- menn nota öll efni. Mér þykir sjálfum jafngaman að góðri ljós- mynd og málverki og finnst að við eigum að skoða listaverkið sjálft en ekki einblína á efnið sem það er gert úr. Samt er ekki hægt að bera þetta tvennt sam- an, á þann hátt sem oft er gert, að ljósmynd komi í staðinn fyrir málverk og öfugt. Fyrsta stig málverksins er teikningin eða skipulagningin. Með henni er hægt að segja sögu eða framkvæma eitthvað, ekki ósvipað vísindalegu ferli sem tekur lang- an tíma að þjáifa til að framsetningin sé ná- kvæmlega eins og hún þarf til að gera mynd- verkið heilt. í upphafi líkti ljósmyndin eftir málverkinu en á allra síðustu árum hefur hún þróast í þá átt að vera tekin sem sjálfstætt efni. Þegar ég var í skóla var ljósmyndin fyrst og fremst frásögn til að styðja við ákveðinn gjöm- ing líkt og Sigurður Guðmundsson gerði. Nú sýnist mér sem menn vilji þekkja efnið og láta miðilinn vera hluta af hugmyndinni. Það sama má segja um teikninguna; ef hún er tæknilega röng og ekki eins og hún á að vera eyðileggur það hugmyndina á bak við verkið. Kosturinn við að mála er að því fylgir ein- hvers konar íhugun. Það er hægt að sitja fyrir framan málverk og tæma hugann. Maður vinn- ur sleitulaust og sá langi tími sem fer í að búa til verkið, sem er hægur og að því er virðist ómögulegur, verður hluti af sköpuninni. Þeir sem hafa þekkingu á þessu verða að einhverju Helgi Þorgils Friðjónsson myndlistarmaöur hefur tekið eftir ákveönum breytingum á myndlist undanfarið. Hann tengir þær nýjum viðhorfum sem hafna módernismanum og þá um leið póstmódernismanum. leyti skapendur líka. Þannig skynjar maður t.d. að einhverju leyti mannkynssöguna í gegn- um skoðun á verkinu. Þetta er gerólíkt því að horfa á kvikmynd sem er alltaf á hreyfmgu. Ég allavega kemst ekki í þetta hugleiðsluástand." - Hvað heldurðu að verði um málverkið nú þegar sumir eru farnir að sjá fyrir sér að þeir geti haft tölvuskjái upp á vegg með mynd af málverki sem þeir skipta út ef þeir fá leiða á myndinni? „Fólk sem ekki vinnur með málverk finnur eflaust ekki muninn. Samt gildir það sama um málara og trésmið. Góður trésmiður þarf að skynja viöinn sem hann vinnur með ef hann ætlar að ná út úr honum góðum hlut. Ég held að þessi hæga skynjun verði bráðum endur- metin og að þessi harði módemismi, sem hef- ur verið ríkjandi alla öldina, sé á undanhaldi." Myndband í stað túpu - Þú hefur engar áhyggjur af tölvunni sem nýjum tjáningarmiðli? „I framtíðinni munu menn ör- ugglega nota það efni sem er nær- tækast til að skapa þann hlut sem þeir eru að velta fyrir sér. Mér sýn- ist að myndlistarmenn sem nota tölvur og myndbönd séu þegar farnir að nota þau meira sem efni. Þeir eru ekki eins uppteknir af miðlinum sem slíkum og þeir voru fyrir þrjátíu árum. Dæmi um þetta er vídeólistamaðurinn Bill Viola. Hann byrjaði á tilraunum en í dag eru verkin hans meira í ætt við monumental skúlptúrverk. Hann er ekkert að fást við ólíka hluti í sjálfu sér. Munurinn er sá að hann einblínir ekki jafnmikið á hug- myndina. Síðasta verk Viola sem ég sá var þrír risastórir skjáir með myndum þar sem hann heldur niðri í sér andanum þangað til hann missir hann út úr sér og þá kemur alveg rosalegur hávaði. Ég man eftir að hafa séð hugmyndina áður í verki eftir annan listamann en hún var notuð á allt annan hátt. Viola er farinn að nota miðilinn svipað og ég nota málaratúpuna." Einlægari myndlist - Fagurfræðin er kannski meira áberandi í myndlist í dag en hún var fyrir þrjátíu árum. Sjálf fram- setningin er farin að skipta meira máli en hún gerði á tímum konseptsins. „Á þann hátt kannski að efnið sjálft og hugmyndin eru að verða heildstæðari. Þau renna saman í heild," segir Helgi. „Ég tók eftir því síðast þegar ég var í New York að galleríin sýndu ekki aðeins fleiri málverk en þau hafa gert lengi heldur voru þetta verk eftir lista- menn sem eru að vinna mjög fína vinnu. John Currin, sem er mjög vinsæll um þessar mundir, er einmitt gott dæmi um þetta. Einnig mætti nefna Odd Ner- drum. Þetta held ég að sé merki um að kald- hæðnislega hliðin á póstmódemismanum sé búin að bíta í skottið á sér. Menn eru farnir að sækja fyrirmyndir tæknilega lengra aftur en í módemismann. Þeir eru líka farnir að leggja meiri áherslu á kunnáttu í efnismeðferð án þess að verkin séu um sjálft efnið og sagan sé samhljómur en ekki eilíf leit að einhverju óvæntu, bara fyrir þá uppákomu í sjálfu sér. Núna nálgast myndlistarmenn viðfangsefnið á dýpri hátt og af meiri tilfinningu en sleppa agressjóninni sem jafnvel veldur þá aftur agressjón þvi þrátt fyrir allt þá er það nýtt og óvænt. Ég myndi vilja taka fram líkingu af módernismanum og virkjunum og taka nær- tækt dæmi í þjóðfélaginu, Eyjabakka. Þar virðast menn vilja virkja virkjunarinnar vegna. Pennastrikið hefur verið sett á blað og allir hlutir í kringum það virðast afstrakt." -MEÓ Rifrildi flaututóna og kraftmikið logn Mörgum finnst nútímatónlist óskiljanleg. Sumum finnst meira að segja öll „sígild" tón- list vera óskiljanleg og leiðinleg eftir því. Til að upplýsa sauðsvartan almúgann reyna mörg tónskáld því að útskýra verk sín í stað þess að láta verkin tala. Þá er tónsmíðunum lýst, hvernig þær byrja, hver framvindan er, and- stæðumar tíundaðar og endirinn upplýstur. Þetta getur verið fróðlegt, en dulúðinni er svipt af tónlistinni í leiðinni og þá er ekkert gaman lengur. Það er eins og þegar einhver leiðinda- náungi segir manni allt um bíómyndina sem maður er að fara að sjá. Stundum er samt gagn- legt að lesa svona útskýringartexta, því ef hann er vel gerður getur hann komið manni í réttu stemninguna til að meðtaka tónlistina. Hljómplötur Jónas Sen Mér varð hugsað til þessa þegar ég setti geisladisk með verkum eftir Karólínu Eiríks- dóttur á fóninn og gluggaði i meðfylgjandi bækling. Textinn er eftir Hjálmar H. Ragnars- son og er hann svo skáldlegur og magnaður að stundum er hann miklu betri en tónlistin. Hér er dæmi: „í upphafi þriðja kafl- ans [á verki sem heitir Spil og er fyrir tvær flautur] liggja flautumar í efsta tónsviði. Langar yfirtónalínur, oft í óm- stríðum tónbilum, mynda eins og þunna slæðu sem svífur yfir. Smám saman kvarnast úr lfnunum, brotin leita niður á við, og raðast saman að nýju, en nú á neðsta sviði. Aftur leysist úr samfellunni, tónlist- in verður kvik á ný og leikur- inn berst um allt sviðið. Ör- stutt stefjabrot eflast að magni, skarast í fyrstu en falla saman er líður á. Brotin mynda kraft- mikla bálka sem leiða verkið til loka.“ Á geisladiskinum eru nokkur verk eftir Kar- ólínu og eru þau misgóð. Tónsmíðin sem Hjálmar lýsir svo fjálglega og er leikin af flautuleikurunum Martial Nardeau og Guð- rúnu S. Birgisdóttur er óskaplega óaðgengileg. Hún byrjar að vísu á fallegri laglínu sem leik- in er á altflautu, en þegar hin flautan kemur inn í fer tónlistin að minna á tvö illfygli i hörkurifrildi. Á endanum er maður goggaður til blóös af ómstriðum hljómum og óþægilegum Karólína Eiríksdóttir. tónbilum. Annað á geisladiskinum er betra, Skýin, sem leikið er af Gunnari Kvaran selló- leikara, er gott verk, dreym- andi og frjálslegt og er prýðilega flutt. Hvaðan kemur lognið? er dulúðug og kraftmikil tónlist sem er glæsilega flutt af Einari Kristjáni Einarssyni gítar- leikara. Best er samt Heim- kynni við sjó við ljóð eftir Hannes Pétursson í ágætum flutningi Ingibjargar Guð- jónsdóttur sópran og Tinnu Þorsteinsdóttur píanóleik- ara. Þar er tónmálið svo myndrænt að það liggur við að manni finnist hinn sungni texti vera óþarf- ur. í heild er þetta ágætis geisladiskur, verk Karólínu flokkast að vísu seint sem einhver skemmtitónlist, en þau eru vel unnin og oft áheyrileg. Verk eftir Karólínu Eiríksdóttur Ýmsir flytjendur Smekkleysa 1999 Jesús með Rómverjum á Mokka Bjarni Þór Júlíusson hefur opnað sýningu á koparstungum á Mokka. Bjarni tileinkar sýninguna Jesú Kristi sem hann telur vera upphafsmann upplýsingabyltingarinnar. Hann þakk- ar honum allar þær framfarir og þróun sem orðið hefur í tækni og vísindum undanfarin tvö þúsund ár enda kannski erfitt að ímynda sér meiri hugsjónamann. Bjami segist einnig hafa orðið fyrir áhrifum frá byggingar- list Rómverja og Grikkja og ber sýn- ingin merki þess. Henni lýkur 9. janú- ar. Sólskinsstund með Signýju og Bergþóri Bergþór Pálsson og Signý Sæ- mundsdóttir syngja saman lög eftir Jóhann Helgason á geisla- disknum Sólskins- stundir sem ný- lega kom út. Lögin eru gerð við ljóð Þorsteins Erlingssonar og Margrétar Jónsdóttur sem líklega er þekktust fyr- ir að hafa ort ísland er land þitt. Und- irleikinn annast tíu manna hljómsveit en útsending og upptaka var í höndum Áma Harðarsonar. Útgefandi er Tóna- flóð. Póstkort á undan bók Ljósmyndabók eftir Guðmund Pál Ólafsson um Hálendið í náttúru ís- lands er væntanleg í bókabúðir með vorinu. Þeir fjöl- mörgu aðdáendur mynda Guðmund- ar sem ekki hafa þolinmæði til að bíða geta nú þegar orðið sér úti um átta mismunandi póstkort með ljós- myndum hans af náttúru Islands. Á hverju korti eru hugleiðingar og til- vitnamir í skáldskap tengt myndefn- inu. Mál og menning gefur út. Söngbræður syngja inn á disk Karlakórinn Söngbræður frá Borg- arfirði hefur sent frá sér geisladisk með þekktum sönglögum á borð við Hrausta menn og Kvöldblíðuna lognværa. Þetta er i fyrsta skipti sem kórinn sendir frá sér hljóðritun en hann hefur nú starfað í rúm 20 ár. Lengi vel var stjómandi hans Sigurður Guðmundsson bóndi á Kirkjubóli en það er einmitt honum að þakka að þessi diskur skuli nú vera kominn út. Síðustu fjögur árin hefur Jacek Tosik- Warzawiak stýrt Söngbræðrum. Japis sér um dreifingu. Skólahald á Sigló í eina öld Margir eru vísdóms vegir eftir Þ. Ragnar Jónsson er ijórða bókin í bóka- flokknum Úr Siglufjaröarbyggð. í bók- inni er greint frá skólastarfi á Siglu- firði í hundrað ár, aðdragandanum að stofnun skólans og starfinu allt fram á níunda áratug þessarar aldar. Ragnar hefur ekki látið sér nægja aö afla efnis með því að fletta skjölum og fundabók- um heldur tekið nokkur viðtöl við gamla nemendur og kennara skólans. Bókin er gefln út af Grunnskóla Siglu- íjarðar og fæst í helstu bókaverslun- um. Umsjón Margrát Elísabet Ólafsdátdr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.