Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
11
I>V
Fréttir
Hugaö að stóriðjuframkvæmdum á Eyjafjarðarsvæðinu:
Við viljum spila með
- segir framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar
DV, Akureyri:
„Við viljum spila með í þessari
leit þar sem menn eru að velta
upp ýmsum valkostum varðandi
stóriðju hér á landi. Þess vegna.
erum við að ganga frá ýmsum
málum sem þurfa að vera frágeng-
in ef til þess kemur að eitthvað fer
að gerast í þessum málum,“ segir
Hólmar Svansson, framkvæmda-
stjóri Atvinnuþróunarfélags Eyja-
fjarðar, en samstarfssamningur fé-
lagsins, Akureyrarbæjar og orku-
sviðs Fjárfestingarskrifstofunnar,
um framhald vinnu við staðar-
valsathuganir og undirbúning á
mögulegri uppsetningu á stóriðju
á Eyjafjarðarsvæðinu, hefur verið
undirritaður.
Með samkomulaginu er með
formlegum hætti sett niður hvern-
ig vinna skal að þáttum sem nauð-
synlegt er að liggi ljósir fyrir ef
skapast tækifæri til uppbyggingar
stóriðju á Eyjafjarðarsvæðinu.
Með þeirri vinnu sem fram undan
er verður tímafrekum undirbún-
ingsaðgerðum komið á það stig að
hægt verður með stuttum fyrir-
vara að gera stóriðjulóð tilbúna til
framkvæmda fyrir áhugasama að-
ila, innlenda eða erlenda. Aðilar
samningsins eru sammála um að
á þann hátt standi Eyfirðingar
betur að vígi gagnvart staðsetn-
ingu stóriðjukosta og hugsanlegri
erlendri fjárfestingu þegar tæki-
færi gefist.
Verkefnisstjóm sem skipuð
verður mun vinna að lóðamálum,
hafnarmálum, samfélagsmálum,
umhverfismálum, kynningarstarfi,
iðjukostum og gagnagrunni.
Aðilar samningsins eru sam-
mála um að sú vinna sem fram
undan er miði ekki að þvi að horfa
eingöngu til möguleika á álvers-
byggingu heldur ekki siður til ann-
arra fjármagns- og orkufrekra
starfsgreina sem hægt er að skapa
hagstæð ytri skilyrði. Fyrst og
fremst sé horft til þess að skapa
skilyrði til að við Eyjafjörð geti
byggst upp iðnaður sem sameini
mikla mannaflaþörf, hátækni,
mannvirkjauppbyggingu, aðlað-
andi vinnuumhverfi fyrir starfs-
menn, sem og þörf fyrir faglært og
ófaglært starfsfólk. -gk
Aöalsteinn Baldursson, formaöur fiskvinnsludeildar VMSÍ:
Kröfur okkar
verða ekki á
lágu nótunum
Eftir að vinnuveitendur höfnuðu
tillögu VMSÍ um frestun samnings-
gerðar í eitt ár gegn 11 þúsund
króna hækkun mánaðarlauna og
sögðust ekki geta samið um helm-
ing þeirrar hækkunar er ljóst að
stálin stinn munu mætast þegar
þessir aðilar setjast að samninga-
horðinu. Verkamannasambandið á
að hafa skilað kröfugerð sinni upp
úr miðjum janúar.
„Það verður að koma til umtals-
verð launahækkun. Sumir í þjóðfé-
laginu hafa tekið sér ansi ríflegar
hækkanir og forsætisráðherra,
sem fékk vist um 135 þúsund króna
hækkirn á sín laun, segir nú að um
mistök hafi verið að ræða sem ekki
megi endurtaka sig. Svo er talað
um aðhald og þess háttar og það er
engin tilviljun að þessi söngur
upphefst einmitt þegar við erum
að fara í samningaviðræður.
Eftir að mjög hógværri kröfu
okkar um 11 þúsund króna hækk- i
un lægstu launanna var hafnað er
ljóst að það verður látið sverfa til
stáls.
Launaliðurinn er bara einn af
liðum kröfugerðar okkar og menn
vilja sjá ýmsar breytingar á ýms-
um hlutum. Þetta kemur hins veg-
ar allt í ljós snemma á þessu ári
þegar við leggjum fram kröfur okk-
ar,“ segir Aðalsteinn. -gk
Hálf öld frá kaupstaðarréttindum Húsavíkur:
Stanslaus veislu-
höld allt árið
DV, Akureyri:
„Kröfugerð okkar er í mótun og
því of snemmt að tjá sig um ein-
stök atriði hennar. Mér er þó eng-
in launung á því að kröfur okkar
verða ekki á lágu nótunum, það
skulu menn hafa á hreinu,“ segir
Aðalsteinn Baldursson, formaður
fiskvinnsludeildar Verkamanna-
sambands íslands.
Aðalsteinn Baldursson: „Veröum
ekki á lágu nótunum."
Fyrirhugað er að reisa sex hæða skrifstofubyggingu á lóð Skeljungs við Laugaveg.
ístak kaupir sig fyrir 105 milljónir króna inn í byggingaráform Skeljungs:
Nýtt háhýsi við
Laugaveg
Byggingarfyrirtækið ístak hefur
gengið til samstarfs við Skeljung
um að reisa 4229 fermetra skrif-
stofuhús á sex hæðum á lóð Skelj-
ungs á mótum Laugavegar og
Kringlumýrarbrautar. Húsið mun
standa á þeim hluta lóðarinnar þar
sem nú er þvottastöð og þvottaplan
en bensínstöðin sjálf verður rekin
áfram á sínum stað.
Páll Sigurjónsson, framkvæmda-
stjóri ístaks, segir fyrirtæki sitt
hafa komið að málinu í september
síðastliðnum en þá hafi Skeljungs-
menn komið að máli við forsvars-
menn ístaks.
„Skeljungur hafði teiknað á lóð-
ina skrifstofuhúsnæði upp á 4229
fermetra. Það hefur þegar farið í
grenndarkynningu og verið sam-
þykkt," segir Páll.
ístak og Skeljungur munu hvort
fyrirtæki um sig eiga helming í þvi
verkefni sem bygging hússins er.
„Við greiddum 105,7 milljónir
fyrir að komast inn í þetta með
þeim,“ segir Páll. Hann telur að
húsið muni rísa fyrr en síðar. „Við
erum búnir að binda pening í þessu
verkefni og langar vitanlega til að
það gefi eitthvað í aðra hönd. En
við erum að velta því fyrir okkur
hvern byggingin á að hýsa. Það hef-
ur ekki verið ákveðið hvort það
verðum við sjálfir eða einhverjir
aðrir. Ef einhver vill kaupa er ekk-
ert því til fyrirstöðu að hefjast
handa.“
-GAR
DV, Akureyri:
„Það verður mikið um dýrðir hér
allt árið og við stefnum að því að
kynna bæinn okkar vel út á við á
mjög jákvæðan hátt. Þá eigum við
von á að fá hingað mikinn fjölda
fólks,“ segir Ásbjörn Björgvinsson
sem verður framkvæmdastjóri af-
mælisárs Húsavíkur en Húsavík á
hálfrar aldar kaupstaðarafmæli á
nýbyrjuðu ári.
Húsvíkingar hófu veisluhöldin
strax á miðnætti þegar nýtt ár heils-
aði en þá var haldin geysistór flug-
eldasýning af hálfu bæjarins. Strax
2. janúar bauð Húsavíkurbær svo
öllum bæjarbúum til veislu í
íþróttahöll bæjarins þar sem veit-
ingar voru á boðstólum og afmælis-
árið var nánar kynnt og sú dagskrá
sem í boði verður.
“Síðan mun hver viðburðurinn
reka annan. Við ætlum að vera með
eitt „þema“ fyrir hvem mánuð árs-
ins og má sem dæmi nefna að i jan-
úar leggjum við áherslu á Húsavík
sem menningarbæ, einn mánuðinn
verður Húsavík skólabær, annan
mánuðinn umhverfisbær, einn
mánuðinn leggjum við áherslu á
matvælabæinn Húsavík og fáum
fyrirtækin í lið með okkur og í júni
verður Húsavík öllu meiri hvala-
bær en venjulega. Þá munum við
t.d. opna erlenda sýningu á
nokkrum tugum uppblásinna hvala,
sem við fyllum að sjálfsögðu með
þingeysku lofti, en þessi sýning
mun siðan fara m.a. til Reykjavíkur
og Vestmannaeyja," segir Ásbjörn.
Hann segir aðalhátiðardaginn
verða 22. júlí en þá kemur forseti ís-
lands í opinbera heimsókn og mikið
verður um dýrðir í bænum. Annars
mun hver viðburðurinn reka annan
allt árið með tilheyrandi uppákom-
um og veisluhöldum. -gk
Brú yfir Kolgrafafjörð
- og endurgerð vegar um Norðurárdal og Fróðárheiði, segir samgönguráðherra
DV.Vesturlandi:
Á Vesturlandi hillir undir mikl-
ar framfarir í vegamálum á næstu
árum, að sögn Sturlu Böðvarsson-
ar samgönguráðherra á þingi
Sambands sveitarfélaga á Vestur-
landi. í kjölfar Hvalfjarðargang-
anna, með tilheyrandi tengingum
við höfuðvegakerfið, er merkum
áfanga náð i Búlandshöfða og á
Borgarfjaröarbraut sem sér nú
fyrir endann á.
Endurbætur eru á Uxahryggja-
leið og á Lundarreykjadalsvegi,
framkvæmdir við Bröttubrekku eru
að hefjast, Vatnaheiðin á Snæfells-
nesi verður vonandi boðin út að ári,
sem og vegurinn um Breiðuvík að
Hellnum og upp í Fróðárheiði.
„Þau vegagerðarverkefni sem
ég tel að verði að takast á við á
Vesturlandi á næstunni er brú
yfír Kolgrafafjörö sem Grundfirð-
ingar hafa barist fyrir, ferða-
mannaleiðirnar að Húsafelli, Út-
nesvegur fyrir Jökul og endurbæt-
ur á Kaldadalsveginum og Uxa-
hryggjum," sagði ráðherrann sem
er vel kunnugur vegamálum Vest-
urlands. Hann sagði að auk þess
þyrfti verulegt átak á þeim vegum
sem flokkast undir innansveitar-
vegi. Þá yrði ekki undan því vik-
ist að hefja endurgerð vegarins um
Norðurárdal og Fróðárheiði. -DVÓ