Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000 Spurningin Áttu GSM-síma Eyþór Ægisson, 13 ára nemi: Já, hann er nauðsynlegur og ég nota hann mjög mikið. Örlygur Viðarsson stuðningsfull- tr.: Já, og hann er mikið þarfaþing. Tryggvi Viðarsson vaktstjóri: Já, og hann er sko alveg nauðsynlegur. Hallgrímur P. Sigurbjörnsson verktaki: Já, og ég nota hann allt of mikið. Guðjón Jónsson, starfsmaður Stöðvar 2: Já, og ég nota hann mjög mikið. Lnga Dögg Ólafsdóttir forritari: Já, en nota hann ekki mikiö. Lesendur Aldamótin á risaolíuskipi - frá Karíbahafinu til Höfðaborgar Þórarinn Magnússon stýrimaður og Anna Ólafsdóttir skrifa frá skipinu „Chevron South Amer- ica“: Okkur hjónunum datt í hug, í til- efni árþúsundamótanna, að segja aðeins frá okkar högum. - Þegar þetta er skrifað, 28 desember, erum við á siglingu í Karíbahafínu á leið til Höfðaborgar í Suður-Afriku. Á gamlárskvöld reiknast mér til að við verðum undan norðurströnd Brasilíu, um 300 mílur norðaustur af ósum Amasonfljótsins. Klukkan hér um borð verður þá þremur tím- um á eftir ykkar heima, svo að um klukkan þrjú að íslenskum tíma höldum við upp á okkar aldamót. Þetta skip er bandarískt oliu- flutningaskip og heitir „Chevron South America" og er eitt tíunda stærsta skip veraldar en fulllestað- ir flytjum við um íjögur hundruð og átta þúsund tonn af hráolíu en þessi olía er lestuð í Sádi-Arabíu í Persaflóanum. Svona til að gefa að- eins smáhugmynd um stærð þessa skips er það um þrjú hundruð og sjötíu metrar á lengd og um sjötíu metrar á breidd, en ef menn ímynda sér fjóra fótboltavelli setta saman þá er það ekki ósvipað flat- armáli þessa ferlíkis. Fulllestað ristir það rúma 23 metra í sjó, en það svarar til níu til tíu hæða húss en þetta er það sem er undir sjávar- máli. Ég kom um borð undan strönd Los Angeles, um miðjan september, en þar var verið að losa farminn um borð í minni skip um tvö- hundruð mílur undan strönd Kali- forníu. Síðan var siglt þvert yfir Kyrrahafið til Filippseyja og þar á Þórarinn Magnússon og Anna Ólafsdóttir. Myndin er tekin um borð í olíu- skipinu „Chevron South America" á leið til Suður-Afríku. milli eyjanna til Singapore þar sem teknar voru vistir og síðan lá leið suður fyrir Indland eða Sri Lanka og inn í Persaflóann til Sádi-Arabíu þar sem við lestuðum. Fulllestaðir sigldum við siðan suður fyrir Afr- íku með viðkomu í Höfðaborg þar sem þyrlur komu með vistir meðan við sigldum hjá. Þaðan lá leiðin til Mexikóflóans þar sem við losuðum olíuna í minni skip og tók það tvær vikur. Þar kom konan mín, Anna Ólafs- dóttir, um borð. Meiningin er að við forum í frí um miðjan janúar, eða þegar við komum til Höfðaborg- ar aftur. Við erum annars 4 mánuði um borð í senn og fáum 19 daga frí fyrir hvem mánuð um borð. Við viljum biðja fyrir aldamóta- kveðjur til sonar okkar Ólafs og tengdadóttur okkar Evu, svo og til foreldra okkar, Magnúsar Þórarins- sonar og Vilborgar Guðbergsdóttur í Reykjavík. Einnig til systkina okk- ar, ættingja og vina heima á Fróni. Ég sendi þetta ásamt mynd sem tekin var í gær, með tölvupósti í gegnum gervihnött, en slíkt er mik- ið notað hér um borð. Við viljum einnig nota tækifærið til að óska ykkur öllum á blaðinu gleðilegs og ábatasams árs. - Með fyrirfram þakklæti og bestu kveðjum. Þingmenn Framsóknar í Reykjavík - eiga að vera úr Reykjavík Halldór Jónsson sendi þennan pistil úr héraði: Ég hef ávallt fylgt Framsóknar- flokknum að málum og fylgist enn vel með hvað á seyði er á hinum pólitíska vettvangi. Ég var að lesa fyrirsögn í blaðinu Degi þar sem stendur að framsókn- armenn í Reykjavík vilji fá formann flokksins, Halldór Ásgrímsson, til Reykjavíkur. Ekki tel ég það góða latínu pólitískt séð fyrir Framsókn- arflokkinn. Halldór á að vera á sín- um stað sem utanbæjarþingmaður sem hingað til. Hann er góður og fastur fyrir sem formaður og á ekki að tefla í tvísýnu með fylgi sitt ann- ars staðar. Sérhvert kjördæmi á að geta skaff- að þingmannsefni og í Reykjavík ætti flokknum ekki að vera skota- skuld úr að finna fólk. Mér líst t.d. vel á Jónínu Bjartmarz, hún er glað- leg og greind og býður af sér góðan þokka. Hún er verðugur fulltrúi sem 1. þingmaður Reykvíkinga fyrir Framsóknarflokkinn. Aðrir þing- menn utan af landsbyggðinni eiga ekki að sækjast eftir þingsæti í Reykjavík. Þeir eiga að fylla það tómarúm sem flokkurinn býr við, hver í sínu kjördæmi. - Áfram Fram- sókn, og hver maður á sinum stað. Skrýtið val á íþróttamanni ársins Hallgrímur Jóhannesson skrifar: Við dagskrárliðinn „Val á íþrótta- manni ársins“ settust áreiðanlega margir hestamenn við sjónvarpið með eftirvæntingu í huga. Fulltrúi hestaíþróttarinnar hafði unnið til afreka sem trúlega verða seint jöfn- uð. Þessi fulltrúi var síðan valinn í 9. sætið með 48 stig. Fulltrúi sundí- þróttarinnar sem sigraði i þessu vali hafði hlotið 347 stig. Sá er til- kynnti valið tjáði viðstöddum og áhorfendum um sigra og afrek þess er valinn var. Var þar um að ræða tvo Evrópumeistaratitla og samtals 14 gullverðlaun. Fulltrúi hestaiþróttarinnar hafði sett heimsmet í 250 m skeiði á tím- anum 21,6 sek. á Heimsmeistara- rur^@[iríyirp)Æ\ þjónusta allan sólarhringinn H H H r\-r) H Lesendur geta sent mynd af sér með bréfum sínum sem btrt verða á lesendasíðu gæðingaskeiði og 150 m skeiði í keppnum á íslenska hestinum og hampar einnig 2. sæti í tölti á sama heimslista. Hann hefur og unnið, í hinum ýmsu keppn- um, til 42 gullverð- launa, 18 silfurverð- launa og 3 brons- verðlauna 1999. Ekki er veriö með þessu að kasta rýrð á ár- angur fulltrúa sundí- þróttarinnar, hann er raunar sá fulltrúi Sitja íþróttirnar ekki við sama borð þegar að vali og viöurkenningum kemur fyrir besta árangur? móti íslenska hestsins í Rieden í Þýskalandi sl. sumar og hafði jafn- framt orðið heimsmeistari í tveim- ur öðrum greinum og hlotið gull- verðlaun fyrir sem samanlagður sigurvegari mótsins. Einnig fyrir 250 metra skeið sem var jafnframt heimsmet hvað tíma varðar. Þessi fulltrúi hestaíþróttarinnar er efstur á heimslista í tveimur greinum; sem er vel verður allra þeirra viður- kenninga er hann hefur hlotið og er í mínum huga sannur íþrótta- og afreksmaður. Ég er fyrst og fremst að leiða hugann að því, hvort íþróttirnar yfirleitt sitji ekki við sama borð þegar að svona vali kemur og því, hvaða kerfi er notað við val á íþrótta- manni ársins. Varla er það bara geðþóttaákvörðun íþróttafrétta- manna? I>V Heilsuvernd starfsfólks Guðbjörn Guðmundsson hringdi: Ég sá frétt um að nú ætti að skylda atvinnurekendur til að taka upp starfsmannaheilsuvernd með öryggi starfsmanna á vinnu- stað að leiðarljósi. Þarna er víst aðallega átt við að fylgjast með ástandi og aðstæðum vinnustað- arins og því sem gæti leitt til heilsubrests starfsfólks. Ég undr- ast að sú heilsugæsla gagnvart starfsfólki sem fólst í árlegum heimsóknum starfsfólks fyrir- tækja á Heilsuvemdarstöðina t.d. hér í Reykjavík hefur lagst af. Þetta var mikið öryggisatriði fyr- ir bæði starfsfólk og vinnuveit- endur. Ég skora á landlækni að kanna hvort þetta trausta kerfi mætti ekki endurlífga. Ný póstnúmer, sífellt hringl Trausti hringdi: Búið er að ákveða að gera breytingar á póstnúmerum í borginni og víðar frá og með næstu áramótum. Þetta er afar bagalegt fyrir okkur íbúana og ekki bara á þeim svæðum sem breytt númer gilda, heldur líka hinum sem þurfa að nota þessi nýju númer. Það er einkennilegt að í ríkisgeiranum hér er engu að treysta, sífelldar breytingar frá ári til árs. Nú eru það póstnúmer, það eru nýjar reglur varðandi skattafslátt vegna hlutabréfa- kaupa, bréfin þarf nú að eiga í 5 ár, áður 3 ár. Maður talar nú ekki um vextina, þeir eru síbreytilegir og ótryggir og skaöa efnahagslíflð veralega. Og allt er eftir þessu. Það stendur nánast ekki steinn yfir steini. Þessu verður að linna eigum við að geta tekið mark á kerfinu. Þjóðaratkvæða- greiðslur Tómas Tómasson skrifar: Ég verð að taka undir með þeim sem nú reyna að koma vit- inu fyrir ráðamenn og krefjast þess að þeir leyfi þjóðinni að ákvarða mál sín með þjóðarat- kvæðagreiðslu í jafnríkum mæli a.m.k. og gert er sums staðar. Maður minnist nú ekki á lýðræð- isríkið Sviss, þar sem flest stór- mál eru sett undir dóm kjósenda með þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég hvet fólk til að lesa athyglisverð leiðaraskrif í Morgunbiaðinu miðvikud. 29. desember, þar sem um þetta er fjallað í skýru máli. Þaö er sannarlega ástæða til að Alþingi Islendinga hugi að nýjum starfsháttum. Þjóðaratkvæði myndi líka létta á störfum þings- ins og það er einnig á það lítandi. Hin pólitísku öfl mega ekki yfir- keyra vilja og skoðanir fólksins í landinu. Skortur á þátta- stjórnendum Margeir skrifar: Mér finnst vanta tilfinnanlega færa þáttastjórnendu í umræðu- þætti í sjónvarpi hér á landi. Nýja sjónvarpsstöðin Skjár einn flaggar einum skemmtilegasta og afslappaðasta stjómanda um- ræðna. Ég myndi ekki vilja að Egill Helgason flytti sig um set t.d. á Ríkissjónvarpið eða á Stöð 2, hann myndi koðna þar niður í því niðurdrepandi andrúmslofti sem þar í sölum. Fréttamenn Sjónvarps eða Stöðvar 2 eru ekki endilega best fallnir til að stjóma umræðum um dægur- eða hita- mál þjóðarinnar. Svona umræður verða að vera rétt eins og þegar við tölum saman heima eða í kaffitímum á vinnustöðunum. Engin formfesta, samt regla en umfram allt óþvingað, og ekki „ríkissvipur" eða „strikmunnur" á stjórnendum þáttanna. Burt með depurðina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.