Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Blaðsíða 2
2 FTMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 Préttir Fáheyrð ákæra á hendur knattspymumanni á íslandsmóti i innanhússknattspymu: Stórfelld líkamsárásar- ákæra lyrir „tæklingu" - þetta var aldrei líkamsárás, ég fór í manninn til að verja markið, segir ákærði Sá fáheyrði atburður hefur gerst að ríkissaksóknari hefur gefið út ákæm á hendur 18 ára knattspymumanni fyrir að hafa orðiö til þess að beinbrjóta andstæðing sinn á íslandsmótinu í innanhússknattspymu sem fór fram í upphafi síðasta árs. Knattspymumað- urinn, sem var markmaður, er - með því að hafa farið í „tæklingu“ - ákærð- ur fyrir stórfellda líkamsárás. „Þetta var aldrei líkamsárás. Ég fór 7 metra út úr markinu til að veija það. Þetta var bara hluti af leiknum,“ sagði Gunnar Bergur Runólfsson þegar hér- aðsdómari baö hann við þingfestingu málsins í gær um að gera grein fyrir afstöðu sinni til ákærunnar - þ.e. hvort hann viðurkenndi það sem hon- um er gefið að sök eða neitaði sakar- giftum. Fótleggur þverbrotnaöi í lok janúar í fyrra var Gunnar Bergur að leika með ÍBV-íþróttafélagi gegn HK í íslandsmótinu innanhúss sem fór fram í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Hann var í marki og fór út á móti sóknarmanni HK sem lék í átt að honum. Gunnari Bergi er gefið að sök að hafa rennt sér harkalega í fæt- uma á sóknarmanninum - Villy Þór Ólafssyni - komið höggi á hægri sköfl- ung með þeim afleiðingum að fótlegg- urinn þverbrotnaði. „Ég fór í boltann fyrst sem barst fram að miðju,“ sagði Gunnar. „Ég lenti svo á honum. Ég vissi ekki fyrr en eftir á að hann hefði meiðst.“ Gunnar Bergur Runólfsson knattspyrnumaður úr Vestmannaeyjum, til hægri ásamt verjanda sínum í Héraösdómi Reykjaness í gær. DV-mynd E.OI. Knattspyrnusér- fræðingar veröa meödómendur „Ég er nú ekki sérfræðingur í þess- um leik,“ sagði Finnbogi Alexand- ersson héraðsdóm- ari sem þingfesti málið í Héraðsdómi Úttar Sveinsson Reykjaness í gær. Hann gerði verj- anda og sækjanda grein fyrir því að hann hygðist fá sér- fróða meödómendur með sér, tvo aðila, áður en aðalmeðferð málsins hefst með tilheyrandi vitna- leiðslum, væntanlega í febrúar. Dómarinn lét fyllilega í það skína að hér væri einstakt mál á ferðinni. Mál þar sem dómur þarf að skera úr um það hvort að einhverju leyti „hafi verið fariö út fyrir hinn hefðbundna leik“. Bæði dómari og veijandi munu leita til Knattspymusambands ís- lands þar sem óskað verður eftir gögnum og jafnvel framburði vitna fyrir dómi. Skaöabótakrafa upp á 1,1 milljón í ákæru kemur fram að Villy Þór Ólafsson krefst þess að Gunnar Bergur greiði honum 1,1 milljón króna í skaðabætur. Þolandinn áskilur sér rétt á að krefjast hærri bóta komi til varan- legrar örokru og/eða miska. Krafan byggist á að beint tekjutap vegna fjai'- vista frá vinnu hafi numið 364 þúsund krónum, atvinnumissir 200 þúsund krónum, miski 500 þúsund krónum og lögmannsþóknun 35 þúsund krónum. Embætti ríkissaksóknara gefúr út ákæruna á hendur knattspymumann- inum eins og fyrr segir - fyrir stór- fellda líkamsárás. Sama embætti sótti nýlega fyrir sama dómstóli árásarmál á hendur 18 ára pilti sem stakk tvo fé- laga sina og lögreglumann meö hnífi með sönnuðum ásetningi og henti hnefastórum grjóthnullungi í höfúð lögreglukonu - þar var ákært fyrir minni háttar líkamsárás. Tekinn á flótfa Brotist var inn í kaupfélagið á Stokkseyri í nótt. Aðvörunarkerfi á staðnum fór hins vegar í gang og lagði innbrotsþjófurinn á flótta áður en hann gat látið greipar sópa á staðnum. Þjófnum var veitt eftirfór, en hann ók bifreið í átt til höfúðborgarinnar. Flóttanum lauk hins vegar í Svína- hrauni þar sem maðurinn var stöðvað- ur og handtekinn. Hann gisti í morgun fangageymslu á Selfossi, en í þau húsa- kynni hefúr hann komið áður. -gk Ekið á bíl hjálpar- mannsins Bíll valt út af Suðurlandsveginum í Hraungerðishreppi í gærkvöldi. Öku- maðurinn var fluttur til aðhlynningar á heilsugæslustöð á Selfossi en var ekki alvarlega slasaður. Skömmu eftir að bíllinn valt bar að annan bfl, og fór ökumaöur hans til að- stoðar þeim sem hafði lent í veltunni. Vildi þá ekki betur til en þriðji bíllinn kom þar að og var honum ekið aftan á bifreið hjálparmannsins. Sá bíll skemmdist mikið og farþegi í honum kvartaði undan eymslum í hálsi. -gk Kópavogur: Lögreglan á fleygiferð Lögreglan í Kópavogi hafði af- skipti af um tug ökumanna í gær- kvöld sem óku um með ljós á öflug- um kösturum framan á bílum sín- um, en slík notkun er óheimil i þétt- býli nema við sérstakar aðstæður. Þá voru um 10 ökumenn teknir vegna hraðaksturs en lögreglan tal- aði um að „einhver vorflðringur" væri í mönnum. Sérstakt umferðarátak stendur yfir hjá lögreglu á suðvesturhomi landsins, frá Keflavik til Selfoss, og mega ökumenn eiga von á að verða undir sérstakri „smásjá" lögregl- unnar næstu daga .-gk Agnes Löve, nýráöinn skólastjóri Tónlistarskólans í Garöabæ, viö skúlptúra á skrifstofu sinni. DV-mynd GVA Málefni Tónlistarskólans í Garðabæ enn í uppnámi: Það er logandi reiði - foreldrar skólabarna senda bréf í hvert hús „Það er logandi reiði meðal fólks vegna þess að bæjaryfirvöld skuli hunsa þetta svo gjörsamlega. Þetta á ekki einungis við um foreldra bcuna í tónlistarskólanum heldur einnig hinn almenna bæjarbúa," segir Kristin Kvaran, talsmaður hóps foreldra sem mótmælt hefúr aðferðum bæjaryfir- valda við ráðningu Agnesar Löve, nýs skólastjóra við Tónlistarskólann í Garðabæ. Hópurinn, sem em 85-90 prósent for- sjármanna nemenda við skólann, hef- ur borið bréf í hvert hús í Garðabæ. Þar em bæjarbúar hvattir til að mæta á fund bæjarstjómar í kvöld þar sem ráðningarmálið verður tekið fyrir. í bréfmu er farið yfir málið í mjög stór- um dráttum. Er átalið að bæjarstjóm láti ekki svo lítið að svara áskorun for- eldra um að taka málið upp að nýju og auglýsa stöðu skólastjóra. Einnig segir að foreldrum hafi að vísu borist bréf frá bæjarstjóm á dögunum en það hafi reynst innihalda gamla fréttatilkynn- ingu sem geti með engu móti kallast svar við kröfú foreldra. Með bréfinu sendu foreldrar með- mæli sem Smári Ólason yfirkennari hafði fengið frá skólastjóra Tónskóla þjóðkirkjunnar. Meðmælin hafði yfir- kennarinn þáverandi látið fylgja um- sókn sinni en eins og DV hefúr greint frá var fylgigögnum Smára ekki dreift með umsókn hans. Hins vegar vom gögn Agnesar Löve, núverandi skóla- stjóra, ljósrituð og þeim dreift með um- sókn hennar. í bréfi foreldranna til íbúa Garðabæjar segir að hvorki þessi meðmæli né önnur, sem fylgdu um- sókn Smára, hafi komið fyrir augu bæjarstjómarfulltrúa, „þeirra sem „faglega" tóku að sér að ráða skóla- stjóra Tónlistarskólans í Garðabæ". -JSS Stuttar fréttir r>v Ein framkvæmdastjórn Ein fram- kvæmdastjóm verður sett yfir Landsspítala og Sjúkrahús Reykjavíkur sam- kvæmt skipuriti sem heilbrigðis- ráðherra bað stjómarnefnd spítalanna að semja. RÚV greindi frá. Samkeppni um orku Bæjarstjóm Reykjanesbæjar hef- ur hafið samkeppni við Hitaveitu Suðumesja og Orkuveitu Reykja- víkur með ákvörðun sinni um að breyta Hitaveitu Suðurnesja í hlutafélag. Bylgjan greindi frá. Mislæg gatnamót Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík vilja að gert verði ráð fyrir mislægum gatna- mótum á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. MBA-nám við HÍ Ákveðið hefur verið að taka upp svokallað MBA-nám við viðskipta- deild Hl frá og með næsta hausti. Heróín hérlendis Þórarinn Tyrf- ingsson, yfir- læknir sjúkra- stoðvar SÁÁ á Vogi, telur að allar forsendur séu fyrir hendi til að heróín nái varanlegri fót- festu á íslandi. Útiloki ekki Meirihlutinn í bæjarstjóm Húsa- víkur segir það ekki á verkefna- sviði bæjarstjórnar að útiloka ein- stök fyrirtæki frá samrana við Fiskiðjusamlag Húsavíkur. Mbl. greindi frá. Ferðaverðstríð Verðstríð er hafið á ferðamark- aðnum. Úrval-Útsýn auglýsti í gær ferðir til níu erlendra borga á sér- stöku tilboðsverði en um helgina auglýstu Samvinnuferðir-Landsýn tilboðsferðir til tíu borga. Mbl. greindi frá. Úr BSRB Leikarafélag íslands samþykkti á fundi skömmu fyrir áramót að ganga úr Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. RÚV greindi frá. Dýrt kjöt Allt að 80% hærra verð fæst fyr- ir íslenskt lambakjöt á erlendum mörkuðum heldur en fyrir kjöt frá öðrum löndum. Bylgjan greindi frá. Mikið um falsanir Umfang falsaðra málverka hér á landi er að líkindum meira en áður var talið. Stöð 2 greindi frá. Steingrímur ósáttur Steingrímur J. Sigfússon, for- maður vinstrihreyfmgarinnar Grænt framboð, segist ósáttur við að flokkurinn á ekki lengur fúll- trúa í stjórn Byggðastofnunar. RÚV greindi frá. Jóhann Páll hættir Jóhann Páll Valdimarsson lætur af störfum markaðsstjóra hjá Máli og menningu en hann hefur auk þess verið fram- kvæmdastjóri Forlagsins. Jóhann Páll hverfur til annarra starfa. Hann mun þó áfram starfa innan vébanda For- lagsins. Tómas umboösmaöur í frétt DV í gær um smygl og brask með vélsleða er ranglega vís- að í yfirfyrirsögn til umboðsmanns Polaris á íslandi. Eins og réttilega kemur fram í fréttinni sjálfri er viömælandinn Halldór Jóhannes- son, starfsmaður fyrirtækisins. Hann er hins vegar ekki umboðs- maður því sá heitir Tómas Eiríks- son sem er jafnframt eigandi Polar- is ehf. Fyrirtækið er með aðsetur á Akureyri og einnig með verslun og þjónustu að Smiðjuvegi 4a í Kópa- vogi. Beðist er velvirðingar á þessu. -hlh/-HKr. 4 m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.