Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Blaðsíða 22
26
FMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
Fréttir
Sjómenn segja útlit fyrir mikla loönuveiði:
Það þarf að bæta 200-300
þúsund tonnum við kvótann
- segir Bjarni Bjarnason, skipstjóri á Súlunni frá Akureyri
DV, Akureyri:
„Við erum á miðunum, um 80 míl-
ur suðaustur af Norðfjarðarhomi, og
emm að nudda þetta. Við emm
komnir með um 650 tonn í bátinn eft-
ir tveggja nátta veiði,“ sagði Bjami
Bjamason, skipstjóri á nótaskipinu
Súlunni frá Akureyri, í gær, en Súlan
var þá á loðnumiðunum austur af
landinu.
Bjami segir að ekki sé hægt að tala
um neina mokveiði á loðnunni enn
sem komið er og sérstaklega gangi
erfiðlega hjá nótabátunum enn þá þar
sem loðnan sé bæði dreifð og fari
djúpt. „Það er ekki hægt að tala um
að það sé neinn kraftur í þessu enn
Héraðsdómur Norðurlands eystra:
Fangelsisdómur
vegna áreksturs
DV, Akureyri:
Nítján ára stúlka hefur í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra verið
dæmd í 30 daga fangelsi og svipt
ökuleyfi vegna árekstrar sem varð
á mótum Hafnarstrætis og Drottn-
ingarbrautar á Akureyri i júlí á
síðasta ári.
Stúlkan ók bifreið austur Hafn-
arstræti og beygði inn á Drottning-
arbraut. Þar skall bifreið hennar á
bifreið sem ekið var suður Drottn-
ingarbraut en biðskylda er þegar
ekið er inn á Drottningarbrautina.
Ökumaður biíreiðarinnar sem ekið
var eftir Drottningarbrautinni slas-
aðist talsvert og einnig missti hann
minnið og man hvorki eftir aðdrag-
anda árekstursins eða árekstrinum
sjáifum. Fyrir dómi þótti sannað að
orsakir árekstursins mætti setja á
reikning stúlkunnar. Hún var
dæmd í 30 daga fangelsi en með
hliðsjón af ungum aldri hennar var
refsingu frestað í tvö ár haldi stúlk-
an almennt skilorð. Stúikan var
með ökuskírteini til bráðabirgða og
hafði einungis haft það í einn mán-
uð. Hún var svipt ökuleyfi í 4 mán-
uði og einnig gert að greiða allan
sakarkostnað. -gk
þá því það tekur bátana 2-3 sólar-
hringa að fá í sig. Loðnan er ekki
komin í stand enn þá.
Hún fer núna að ganga upp á kant-
ana en þá týnist hún og skilar sér ekki
fyrr en í lok mánaðarins eða í byrjun
febrúar einhvers staðar nálægt Homa-
firði. Þetta er það munstur sem hún
hefur verið í undanfarin ár og mér
sýnist ekki ætla að verða á því nein
breyting núna. En það er allavega
hægt að fullyrða að þetta litur ekkert
verr út núna miðað við árstíma en
venjulega og loðnan virðist vera stór
og vel á sig komin,“ segir Bjami.
Hann segir skipin sem nota
flottroll við veiðamar standa mun
betur að vígi, ekki hvað síst vegna
þess að þau geti togað á daginn þegar
loðnan fer allt niður á 100 faðma dýpi.
Nótaskipin komast hins vegar ekki
með nætur sínar neðar en á 40-50
faðma. En hvemig metur Bjarni
ástandið - enn er eftir að veiða um
440 þúsund tonn af útgefnum upphafs-
kvóta, tekst það?
„Já, það næst, það er engin spum-
ing að þetta er of lítið fyrir okkur.
Það þarf að bæta við þetta 200-300
þúsund tonnum, við munum ná því.
Það er mikið af loðnu, hvaðan í
andsk... sem hún hefur komið, og
ekki nein ástæða til annars en bjart-
sýni. Það era hins vegar verðlagsmál-
in sem era stóra vandamálið," segir
Bjami. -gk
Bjarni Bjarnason skipstjóri: „Það er
mikiö af loðnu í sjónum."
Mest loöna til Eskifjaröar
- tæplega 450 þúsund tonn eftir af kvótanum
DV, Akureyri:
Eskifjörður er hæsti löndunar-
staður loðnu á vetrarvertíðinni sem
hefur staðið yfir frá áramótum.
Þangað höfðu í fyrradag borist
13.573 tonn samkvæmt upplýsingum
frá Samtökum fiskvinnslustöðva.
Næstmest var komið til Neskaup-
staðar, 12.031 tonn. Næstu staðir
hvað aflamagn varðar voru Seyðis-
fjörður með 7:716 tonn, Fáskrúðs-
fjörður, 5.176 tonn, Grindavík, 3.805
tonn, Vopnafjörður, 3.213 tonn, og
Raufarhöfn, 2.150 tonn.
Vetrarvertíð frá áramótum hafði
skilað tæplega 50 þúsund tonnum.
Vonbrigðin eru fyrst og fremst með
sumar- og haustvertíð en þá veiddust
ekki nema rúmlega 80 þúsund tonn
sem er það lélegasta sem menn
þekkja undanfarin ár. Upphafskvóti
samkvæmt tillögu Fiskistofu nam 576
þúsund tonnum og era óveidd rúm-
lega 440 þúsund tonn af þeim kvóta á
vertið sem stendur að öllum líkindum
ekki nema fram í mars. gk
rft
8
wjg
mwÆ- WÉ gM
ri i fe ® .fi
áHí&m
ls M w?.m Ö'W
■mS' ■40N kkti
3 ^«1
frSI
ifey Me f
sí Æ jfö. Cjí Jgír '’matr
Fylgist með umfjöllun um
holla lifnaðarhætti í DV,
á Bylgjunni og Stöð 2.
Leiðbeiningar:
Fáðu þér stimpilkort í næstu
sundlaug eða líkamsræktarstöð sem
er í samstarfi við okkur eða verslun
Nanoq í Kringlunni. Mættu fimmtán
sinnum í holla hreyfingu eða
verslaðu í Nanoq og fáðu stimpil í
hvert skipti. Þeir sem skila kortinu
inn til DV fyrir 29. janúar lenda í
glæsilegum heilsupotti þar sem
veglegir vinningar eru í boði. Svo
verða 50 heppnir aðilar sem senda
inn 5 tappa af Egils Kristal dregnir
út og fá kippu af Egils Kristal.
989
LYFJA
Lyl á lágmarkavarði
Hr**?ÍÍH? HAKOqV