Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Blaðsíða 36
NÝR SUBARU 'ACY FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið t hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 Ólga vegna nýs launakerfis bæjarstarfsmanna: Stóðumælaverðir hærri en vagnstjórar - óþolandi, segir Kristján Guömundsson, stjórnarmaður SVR Bílstjórar Strætisvagna Reykjavík- ur eru ævareiðir eftir að þeim var kynnt nýtt launakerfi bæjarstarfs- manna. í launatöflu sem tók gildi þann 1. janúar sl. má sjá það svart á hvítu að bílstjórar eru nokkrum launaflokkum neðar en stöðumæla- verðir. Vagnstjórar eru í flokki 104 og 106 en stöðumælavörðum er skipað í flokka 119 og 120. Samkvæmt 7. þrepi 'v fá stöðumælaverðimir annars vegar rúmar 113 þúsund í mánaðarlaun og hins vegar tæplega 115 þúsund krón- ur. Vagnstjórar í sömu þrepum fá í laun rúmlega 90 þúsund krónur og tæplega 92 þúsund krónur. Þykir bíl- stjórunum að starfsheiðri sínum og afkomu vegið þar sem ekki sé saman að jafna ábyrgð þeirra og stöðumæla- varða. Marías Sveinsson, trúnaðar- maður bílstjóra, segir vagnstjómm mjög brugðið. Nýja launakerfið sé illa kynnt og hafi komið flatt upp á þá. „Að stöðumælavörðum ólöstuðum íl er ekki saman að jafna ábyrgð þeirra ástarleikir í Fókusi, sem fylgir DV á morgun, eru taldir upp spennandi staðir í Reykjavík þar sem pör í léit að til- breytingu geta notist. Einnig er fjallað um hösl og Fókus gefur miða á hina tælandi kvikmynd Romance sem sýnd er í Bíóborginni. Leikkon- an Jóhanna Vigdís léttir á sér og ör- (| yggismyndavélar borgarinnar eru ■* til umfjöllunar. Lífið eftir vinnu, leiðarvísir um skemmtanalífið, er svo að sjálfsögðu á sínum stað. Tælandi 80.000 80.000 90.424 kr. og okkar. Það er því mjög undarlegt að laun þeirra skuli vera hærri. Þá höfum við einnig bent á að bókabíl- stjórar eru hærra metnir til launa en við eða sem nemur 10 flokkum. Fyrir- fram hefði ég talið að því fylgdi meiri ábyrgð að aka lifandi fólki en bókum. Því hefur verið svarað til að þeir sem aki bókabílum séu jafnframt bóka- safnsfræðingar. Strákar frá okkur eru að aka bókabilunum þannig að þetta stenst ekki,“ segir Marías. Boðað hefur verið til fundar vagn- stjóra í tilefni þessa í dag. „Við enim undir mikilli pressu i starfi okkar vegna leiðakerfisins og knappra tímaáætlana. Við erum alltaf á útopnu og það eru mörg dæmi um að lögreglan sekti bflstjóra og sumir eru komnir nærri því í punktafjölda að verða sviptir akstursleyfi. Það er mjög ólíkt því sem gerist hjá stöðu- mælavörðum sem eru á hægu rölti um bæinn. Við verðum að bregðast við þessari aðfór að kjörum okkar,“ segir hann. Marías segist fá þær skýringar á ör- lögum bílstjóra í nýju launakerfi að það sé vegna þrýstings SVR sem leggi ofurkapp á að halda niðri launum. „Við spurðum formann Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar hvemig stæði á þessu og svarið var að það væri SVR sem héldi okkur svona niðri í launum," segir hann. „Strætisvagnabílstjórar hafa miklu meiri ábyrgð í starfi sínu en stöðu- mælaverðir. Það er fráleitt að þeir séu undir í launum og ég mun að sjálf- sögðu taka þetta mál upp innan stjómar," segir Kristján Guðmunds- son, stjómarmaður í SVR. -rt London á þriöjudag: Tyson reyndi viö íslenska Hnefaleikarinn Mike Tyson reyndi að fá is- lenska stúlku tfl við sig í tískuvöruverslun Gucchi’s í London siðast- liðinn þriðjudag. Tyson er sem kunnugt er stadd- ur i London til að berjast og hefur vakið óskipta at- hygli heimamanna hvar sem hann fer. Meðal annars leit hnefaleikarinn inn í verslun Gucchi’s í Sloan Street þar sem Díana Bjamadóttir hefur starfað sem afgreiðslustúlka undanfarin ár. Versluninni var lokað á meðan Tyson valdi sér klæði til kaups og af- greiddi Díana hann af kunnáttusemi, enda með reynslu úr verslun Armani þar sem hún starfaði áður. Að sögn kunnugra var engu líkara en Tyson skipti um ham er hann sá Diönu og hafði ekki af henni augun á með- an á viðdvöl hans stóð. Gerðist hann ágengari eftir því sem minút- urnar liðu og undir lokin var hann farinn að bjóða hinni ís- lensku afgreiðslustúlku út með mikl- tun þjósti. Var hann líkastur nauti í flagi er hann reyndi að koma á stefnu- móti sem átti helst að hefjast strax. Linnti Tyson ekki látum fyrr en um- boðsmaður hans gekk á milli og hafði hnefaleikarann á brott með sér. Díana hefur verið búsett í London um árabfl, er rúmlega þrítug og hvers manns hugljúfi. Eftir henni var haft að Tyson kynni ekki mannasiði. -EIR Mike Tyson í London i gær. ijanuar i A > I l' 1 ‘ i t, ! L t1** j/ & 3 i Ý t’i l i \ ÍA.i! V' ! . Það er heldur betur vorhugur í mörgum þessa dagana enda veðrið með ein- dæmum þægilegt. Anna Bjarnadóttir, garðyrkjufræöingur á Neskaupstað, tók sig til í gær og hlúði að vorlaukunum sem hún setti niður í nóvember, sem er ekki í frásögur færandi nema að það gerir hún venjulega í mars eöa apríl. DV-mynd Reynir Neil Veðrið á morgun: Bjart sunn- anlands Á morgun verður suðvestan- átt, 18-23 m/s og dálítil slydduél norðanlands en 10-15 m/s og bjart veður sunnanlands. Hiti verður á bilinu 1 til 6 stig og fer kólnandi. Veðrið í dag er á bls. 37. • * v 1 r r jz* -> y ^ brother P-touch 9200PC Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni Samhæft Windows 95, 98 og NT4.0 360 dpi prentun 1 til 27 mm letur Strikamerki Bafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.