Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 Viðskipti Þetta helst: Viðskipti á VÞÍ, alls 684 m.kr. ... Mest með hlutabréf, 476 m.kr. ... 111 m.kr. viðskipti með Flug- leiðir og hækkuðu bréfin um 5,43% ... Haraldur Böðvarsson hækkaði um 5,9% ... Grandi, Tangi og Nýherji hækk- uðu um 5% ... Hampiðjan lækkaði um 2,56% ... Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,33% og er nú 1.677 stig ... Bylting í póstþjón ustu á Islandi Hraun kærir Eignarhaldsfélagið Hraun lagði í gær fram kæru til um- hverfisráðherra vegna úr- skurðar skipulagsstjóra ríkis- ins um umhverfisáhrif álvers í Reyðarfirði. Þá hefur nýlega stofnað hlutafélag íslenskra fjármálafyrirtækja og Norsk Hydro, Reyðarál, lagt fram í dag umsókn til Hollustuvemd- ar rikisins um starfsleyfi fyrir 120 þúsund tonna álver í Reyð- arfirði. Sú umsókn er liður í nauðsynlegri undirbúnings- vinnu sem miðar að því að hægt verði að taka lokaákvörð- un um. byggingu álversins i júní nk. Skjalaskópar í miklu úrvali Bresk hágæðavara Verð frá kr. 16.808 H. Ólafsson og Bernhöft ehf. Kaplahrauni 1, 220 HafnarfirSi Sími 555 6600, fax 555 6606, netfang hob@hob.is - íslandspóstur keyrir alla pakka heim í gær urðu ákveðin tímamót í póst- þjónustu á íslandi er Islandspóstur tók formlega upp heimakstur á pökkum og ábyrgðarbréfúm án aukagjalds. Send- ingum verður ekið til fyrirtækja á dag- inn og einstaklinga á kvöldin en með þessari þjónustu ryður Islandspóstur brautina fyrir nýjum viðskiptaháttum á 21. öldinni. öm V. Skúlason, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs íslandspósts, segir það vera íslandspósti sérstök ánægja að geta boðið upp á heimakst- ur til u.þ.b. 95% þjóðarinnar í fyrsta áfanga. Um 85% heimila í landinu munu njóta heimakstursþjónustu fimm sinnum í viku, um 5% þrisvar til fimm sinnum í viku og um 5% einu sinni í viku. „Heimakstursþjónusta ís- landspósts verður í stöðugri þróun, allt eftir þörfum og aðstæðum á hverjum stað. Heimaksturinn verður með því sniði að ekið er með pakka og ábyrgð- arbréf til fyrirtækja á daginn en al- mennt til einstaklinga á kvöldin, frá kl. 17 til 22. Ef enginn er heima þegar pósturinn ber að dyr- um er skilin eftir til- kynning um á hvaða pósthúsi hægt sé að nálgast sendinguna," segir Öm. Svipaö verö „Við höfúm vandað til allrar umgjarðar þessarar þjónustu, s.s. möguleika á stað- greiðslu fyrir vöru- sendingu, hvort sem greitt er með pening- um eða debetkorti, en flest starfsfólk í útkeyrslu er með GSM-posa meðferðis til þæginda fyrir viðtakendur. Þá hafa skráning og rekjanleiki sendinga verið bætt. Á næstunni verður sendendum boðið upp á að „rekja og fmna“ send- ingu á heimasíðu Islandspósts. Þannig verður hægt að fylgjast nákvæmlega með hvar sendingin er stödd hveiju sinni. Verðlagning þessarar breyttu pakkaþjónustu verður sambærileg við þá sem áður var. Þannig lækkar t.d. verð ef miðað er við hvað áður kostaði að fá pakk- ann heim að dyrum en hækkar lítil- lega ef miðað er við að pakkinn sé af- hentur á næsta póst- húsi. Þess má geta að þrátt Hús íslandspósts hf. í Pósthússtræti. ustubót er verðið lægra á pakkaþjón- ustu Islandspósts en hjá öðrum póst- fyrirtækjum á Norðurlöndum." Breyttir viöskiptahættir „Með þessari djörfu breytingu erum við að ryðja veginn fyrir breytta viðskiptahætti. Með uppbygg- ingu á nýju grunnkerfi fyrir dreif- ingu á stærri vörusendingum opnast fleiri möguleikar til að þróa hefð- bundna heimaverslun, sem og vef- verslun. Hér á íslandi er mikil gróska í vefverslun og styður hún allar spár um öran vöxt netviðskipta. íslending- ar eru nýjungagjamir og er aðgengi þeirra að Internetinu með því mesta sem gerist í heiminum. Það segir meira en mörg orð um framtíðarþró- un þessara mála hér á landi. Islend- ingar eru greinilega tilbúnir í nýjung af því tagi sem netverslun er. Margar metnaðarfullar og traustar netversl- anir eru að líta dagsins ljós. Fyrir- tæki vilja taka þátt í þeirri grundvall- arbreytingu sem er að verða á við- skiptaháttum, bæði með nýjum teg- undum verslana og nýjum samskipta- leiðum fyrirtækja við birgja og við- skiptavini. Öflugt dreifikerfi er lykil- atriði í vefverslun og með heimakstri er Pósturinn leiðandi í dreifingu á pökkum og vörum til heimila og fyr- irtækja á íslandi. Fyrirtæki hafa hér tækifæri til að nýta dreifikerfi Pósts- ins sem hluta af vöruferli sinu og geta t.d. minnkað lagerhald, stækkað markaðssvæði sitt og fjölgaö söluleið- um,“ segir Örn að lokum. Afengissala eykst um 7,9% milli ára Eins og fyrri ár eykst sala á áfengi nokkuð. Milli áranna 1998 og 1999 jókst heildarsala á áfengi í lítr- um talið um 10,64% en ef miöað er við aukningu í alkóhóllítrum er aukningin 7,90%. Munurinn liggur í því að neysla á bjór og léttvínum eykst mun meira en á sterkum vín- um sem í sumum tilfellum dregst saman. Sem fyrr er Egils Gull mest seldi bjórinn á landinu en Viking kemur fast á hæla Gullsins. I þriðja sæti er Tuborg, Thule í því fjórða og Carls- berg i því fimmta. Smimoff var vin- sælasti vodkinn á síðasta ári, The Famouse Grouse var vinsælasta viskíið og Beefeater var vinsælsta gintegundin. Bacardi var mest selda rommið og Bailey’s mest seldi líkjörinn. Freyðivíniö vinsælt Það er hins vegar áhugavert að skoða hvar aukning í áfengissölu er mest. Sala á freyðivíni jókst um tæp 25% frá árinu 1998 og kom langmest af þessari aukningu fram í desember. Líklegt er að lands- menn hafi birgt sig vel upp af freyðivíni til að fagna árþúsunda- mótum. Hins vegar er það bjórinn sem ber höfuð og herðar yfir aðrar áfengistegundir. Tæpur helmingur af öllu því áfengi sem um æðar landsmanna rennur er vegna neyslu á bjór. Vodka er í öðru sæti en 14% af drukknum áfengislitrum eru vodka. Rauðvín er í þriðja sæti með um 10% en aðrar víntegundir mun minna. 1999 1999 1998 Lrtrar Alklítrar Alklítmr Br.m. ára Rauðvín 826.815 100.172 84.662 18,32% Hvítvín 307.675 34.657 31.275 10,81% Rósavín 125.846 11.443 11.942 -4.18% Freyðivín 139.270 13.396 10.727 24.88% Portvín 19.869 3.899 3.737 4,34% Sérri 55.971 9.577 9.603 -0.27% Madeira 792 138 259 -46.72% Vermútar 30.694 4.598 4.962 -7,34% Aperitífar 4.286 764 925 -17,41% Koníak 60.394 24.118 22.731 6,10% Viskí 102.507 41.106 41.186 -0,19% Brennivín 40.905 16.477 16.915 -2,59% Vodka 352.522 137.862 139.567 -1,22% Gin 62.869 24.964 23.677 5,44% Séniver 6.529 2.408 2.693 -10,58% Romm 36.825 13.883 12.159 14,18% Ukjörar 100.029 25.398 24.232 4,81% Bitterar 40.064 11.193 10.468 6,93% Annað 213.265 36.918 35.963 2,66% Bjór 9.092.368 466.433 419.999 11,06% Samtals 11.619.495 979.404 907.681 7,90% Skýrr og Tæknival í sam- starf Skýrr hf. og Tæknival hf. hafa gert með sér samstarfs- og viðskipta- samning sem felur m.a. í sér að Tæknival selur aðgang að LoftNeti Árni Sigfússon. Skýrr. Einnig er ákvæði í samningnum um að Tæknival veiti Skýrr tæknilega ráðgjöf varðandi uppbyggingu LoftNets- ins, Skýrr kaupi ýmsan búnað sem þarf til við uppbyggingu á LoftNetinu af Tæknivali, gerður verði þjónustusamningur milli fyrirtækjanna vegna búnaðar sem er hluti af LoftNeti Skýrr og enn fremur að Skýrr selji viðskipta- vinum búnað frá Tæknivali þar sem það á við. Minnsta atvinnuleysi í 20 ár Atvinnuleysi í Bretlandi féll niður í aðeins 4% af vinnuafli í desember sl. Þetta er tíundi mán- uðurinn í röð sem atvinnuleysi minnkar. Alls fjölgaði þeim um 22 þúsund sem fengu vinnu í desem- ber en alls eru 1,16 milljónir Breta án vinnu. Samt er búist við um 5% atvinnuleysi á árinu. Financi- al Times greindi frá. Methagnaöur hjá Citicorp Citicorp, sem er stærsta fjár- málasamsteypa Bandaríkjanna, kynnti í gær metafkomu á fjórða ársfjórðungi 1999. Hagnaður tíma- bilsins var 2,62 milljarðar Banda- ríkjadala og er það 287% meiri hagnaður en á sama timabili árið á undan. Hagnaður Citicorp á áir- inu öllu var 9,87 milljarðar Banda- ríkjadala, eða liðlega 700 milljarð- ar króna, og er það 70% meiri' hagnaður er árið áður. Dow Jones lækkar I fyrradag birtu yfir 100 banda- rísk fyrirtæki afkomutilkynning- ar og sýndu mörg fyrirtæki betri afkomu en spáð hafði verið. Engu að síður lækkaði Dow Jones- hlutabréfavísitalan um 1,4% og var lokagildi hennar 11.560,72 stig. Nasdaq-hlutabréfavísitalan hækk- aði aftur á móti um 1,6% og var lokagildi hennar 4.130,81 stig. Aukinn hagnaöur Microsoft Afkoma Microsoft á öðrum árs- fjórðungi reikningsárs félagsins var heldur betri en spáð hafði ver- ið. Hagnaður tímabilsins var 2,44 milljarðar dollara eða 0,44 sent á hvern hlut. Spáð hafði verið 42 senta hagnaði á hvem hlut. Betri afkoma er einkum þökkuð góðri sölu á tímabilinu en velta Microsoft á öðrum ársfjórðungi 15.364 fólksbílar seldust árið 1999 - mesta salan er yfir sumartímann Fólksbilasalan á síðasta ári var góð og seldust alls 15.364 bílar. Töl- umar hafa ekki verið endanlega staðfestar en Skráningarstofan, sem heldur utan um sölutölurnar, á ekki von á því að neinar breytingar að ráði verði á tölunum. Sem fyrr selj- ast bílar best yfir sumartímann og var júní söluhæsti mánuðurinn á síðasta ári en þá seldist 1971nýr bíll. Eftir mitt árið minnkar bílasalan jafnt og þétt út árið og aðeins seld- ust 759 bílar i desember sl. Með nýju ári og hækkandi sól ætti bíla- sala að glæðast á ný. Athuga ber þó að í þessum tölum eru eingöngu nýir innfluttir bílar en ekki þeir bíl- ar sem fluttir eru inn notaðir til landsins. Toyota er sem fyrr söluhæsta bíl- Suzuki 599 3,90% Fiat 78 0,51% tegundin á íslandi og alls seldi Daewoo 591 3,85% Audi 64 0,42% Toyota 2.802 bíla og var með 18,24% Hyundai 588 3,83% Jeep 62 0,40% markaðshlutdeild. Hins vegar hafa Ford 562 3,66% Chrysler 35 0,23% bílafyrirtækin Hekla og Ingvar Honda 556 3,62% Saab 21 0,14% Helgason svipaða markaðshlutdeild Isuzu 502 3,27% Dodge 12 0,08% og Toyota því þau fyrirtæki eru með Peugeot 496 3,23% Chevrolet 5 0,03% margar gerðir bifreiða a sinum Skoda 406 2,64% Porsche 3 0,02% snæmm. Daihatsu 330 2,15% Lincoln 2 0,01% Kia 310 2,02% Pontiac 2 0,01% Fjöldi Hlutdeild Land Rover 211 1,37% Cadillac 1 0,01% Toyota 2802 18,24% Mazda 202 1,31% GEO 1 0,01% Volkswagen 1500 9,76% Galloper 148 0,96% GMC 1 0,01% Nissan 1398 9,10% SsangYong 137 0,89% Oldsmobile 1 0,01% Mitsubishi 952 6,20% Volvo 133 0,87% Rover 1 0,01% Subaru 920 5,99% BMW 119 0,77% Seat 1 0,01% Opel 785 5,11% Mercedes Benz 89 0,58% Samtals 15.364 100% Renault 659 4,29% Alfa Romeo 79 0,51% Heimild: Skráningarstofan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.