Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Síða 15
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
15
Verðkönnun á matvöru:
Bónus lægstur
en Nóatún hæst
- grænmetið mun ódýrara en í sumar
Hvað kostar matarkarfan?
1.886
2500
2000
1500
1000
500 3
Krónur
2.031
pg LJS íj
Mikið hefur verið rætt um hækk-
anir á matvöru að undanfómu og
sýnist sitt hverjum um . þessar
hækkanir.
Hagsýni ákvað að kanna verð á
matarkörfu með 14 vörum i sjö stór-
mörkuðum á höfuðborgarsvæðinu,
sömu vörum og verðkönnun fór
fram á um mitt síðastliðið sumar til
að sjá hvaða breytingar hefðu orðið.
Verslanimar eru: Bónus, Fjarðar-
kaup, Hagkaup, Nettó, Nýkaup,
Nóatún og 10-11.
Verð var kannað samtimis í öll-
um verslununum og nákvæmlega
sömu vörar keyptar.
Vörurnar sem kannaðar voru
eru: 1 kg af rauðri papriku, 1 pakki
af Homeblest súkkulaðikexi*, 1/2
lítri af Egils appelsini í flösku, 1
lítri af Brazzi appelsínusafa, 1 lítri
af súrmjólk, 567 g Cheerios, 1 kg af
tómötum, 1 kg af appelsínum, 1
pakki af Frón mjólkurkexi, 2 kg af
Kornax hveiti, einn pakki af
Ritzkexi, sveppaostur í öskju (250 g),
1 staukur Pringles kartöfluflögur
með salti og Dansukker púðursykur
(500 g).
Skýrt skal tekið fram að hér er
einungis um verðkönnun að ræða
og því ekkert tillit tekið til mismun-
andi gæða og þjónustu verslananna.
Einnig skal tekið fram að sveppa-
osturinn fékkst ekki á tveimur stöð-
um og að Egils appelsin i hálfs lítra
flöskum fékkst ekki í Bónusi. Því
var tekið meðaltalsverð í þessum
tilfellum.
* Homeblest súkklaðikexið er í
örlítið stærri pakkningum i Nettó
og Bónusi en annars staðar.
Sumargrænmetið dýrt
Eins og áður er matarkarfan
ódýrust í Bónusi. Þar kostar karfan
nú 1886 krónur en kostaði síðastlið-
ið sumar 2480 krónur.
Næstódýrust reyndist karfan í
Nettó þar sem hún kostar 2031
krónu en kostaði siðastliöið sumar
2713 krónur. Þar á eftir koma þrjár
verslanir á svipuðu róli. Það eru
Fjarðarkaup í Hafnarflrði með körf-
una á 2221
krónu en þar
kostaði hún síð-
astliðið sumar
2805 krónur, 10-
11 með körfuna
á 2266 krónur
en þar kostaði
hún síðastliðið
sumar 2855
krónur og Hag-
kaup með körf-
una á 2299
krónur en sama
karfa kostaði
þar síðastliðið
sumar 2821
krónu.
Dýrustu búðimar í könnuninni,
Nýkaup og Nóatún, hafa einnig
lækkað verð á þessum ákveðnu vör-
um síðan í sumar. Nýkaup selur
körfuna nú á 2562 krónur en seldi
hana síðastliðið sumar á 3134 krón-
ur og Nóatún selur körfuna nú á
2580 krónur en seldi hana síðstalið-
ið sumar á 3079 krónur.
Munurinn á ódýrustu og dýrustu
körfunni er þvf tæplega 37%. Mun-
urinn hefur aukist talsvert frá því í
könnunni siðastliðið sumar er mun-
urinn var 26% á
Bónusi sem þá
var einnig
lægstu og Ný-
kaupi sem þá
var hæst.
Athygli vekur
að verð matar-
körfunnar hef-
ur lækkað í öll-
um verslunun-
um sem tóku
þátt í könnun-
inni frá því síð-
astliðið sumar.
Þegar einstakir
vöruflokkar eru
skoðaðir kemur hins vegar í ljós að
ekki er raunhæft að ætla að Qestar
vörumar í körfunni hafi lækkað í
verslunum þótt þær komi betur út
nú heldur en síðastliðið sumar. í
fiestum tilfellum er það nefnilega
grænmetið í körfunni sem hefur
lækkað mikið frá því í sumar en
aðrar vörur hafa staðið í stað eða
hækkað. Sem dæmi má nefna að
rauð paprika kostaði 575 krónur í
Bónusi síðastliðið sumar en aðeins
239 krónur nú en aðrar vörur í körf-
unni, eins og appelsínur, súrmjólk,
appelsínusafi, Egils appelsín, Pring-
les snakk, Cheerios og púðursykur,
hafa hækkað. Hjá tveimur dýrustu
verslununum kostaði paprikan t.d.
698 krónur síðastliðið sumar en
kostar nú 459 krónur á báðum stöð-
um en aðrar vörur hafa hækkað eða
staðið í stað.
í raun má segja að skýringin á
þessu háa grænmetisverði, sem hef-
ur mikil áhrif á matarútgjöld heim-
ilisins, sé einföld. Á þessum árstíma
er nánast eingöngu innflutt græn-
meti á markaðnum en er sumarið
nálgast og íslenskt grænmeti kemur
á markað eru settir háir tollar á
innflutta grænmetið tfl að vemda
hina dýru fslensku framleiðslu. Því
bera sjálfsagt margir þá von í
brjósti að reglum verði breytt svo
hægt verði að kaupa grænmeti á
skaplegu verði allan ársins hring.
-GLM
Bónus heldur stöðu sinni sem ódýrasta matvöruverslunin á höfuöborgar-
svæðinu en Nóatún er dýrasta verslunin samkvæmt könnun DV.
Spamaður í
þvottahúsinu
Það er af sem áður var er erlend-
ir ferðalangar furðuðu sig á óþrifn-
aði íslenskrar alþýðu. í dag em ís-
lendingar kattþrifnir og þykir sum-
um nóg um. Ástæða er til að ætla að
íslendingar noti, líkt og margar
vestrænar þjóðir, alltof mikið af alls
kyns hreinsiefnum og þvottaefnum.
í þvottaefnum eru ýmis efni sem
eru óæskileg fyrir lífrikið. Sumir
ganga jafnvel svo langt að segja að
þvottur með of miklu þvottaefni sé
sú athöfn sem valdi einna mestum
skaða á umhverfinu.
Þeir sem hugsa vilja um umhverf-
ið ættu því að hafa þá gullnu reglu
í huga að best er að nota sem
minnst af þvottaefni.
Villandi leiðbeiningar
Ofnotkun þvottaefha og mýking-
arefna er býsna almenn hérlendis
enda mæla framleiðendur sumra
efna með of drjúgum skammti fyrir
hvert kíló af fatnaði. Yfirleitt má
reikna með að 10 g af þvottaefni
nægi á hvert kíló af þurrum þvotti
eða u.þ.b. 40-50 g í fulla þvottavél.
Dæmi eru um að framleiðendur
mæli með tvöföldu því magni eða
meira.
íslenskar aðstæður
Skömmtun þvottaefnis er oft mið-
uð við hart vatn, sérstaklega ef
þvottaefnið er erlent. Hart vatn er
kalkríkt. Islenska vatnið er hins
vegar mjúkt og því er okkur óhætt
að nota mun minna þvottaefni en
sumir framleiðendur mæla með.
Með því að minnka notkun þvotta-
efnis leggjum við okkar af mörkum
í umhverfisvernd og drögum jafn-
framt úr sóun.
Umhverfisvæn efni
Framleiðsla umhverfisvæns
þvottaefnis hefur verið blómleg á
undanförnum árum. Þegar metið er
hvort þvottaefni verðskuldi um-
hverfismerki er m.a. tekið tillit til
þess af hvaða tegund yfirborðsvirk
sápuefni þess eru. Þau eiga að
brotna hratt niður og mega ekki
mynda önnur skaðleg efnið við nið-
urbrotið. Notkun fosfats á lika að
vera takmörkuð, sem og notkun
Gullna reglan við þvott er að nota sem minnst af þvottaefni.
bleikiefha, ilmefna og litarefna.
Ofnæmissjúklingar ættu að gæta
vel að því að þau þvottaefni sem
þeir nota innhaldi ekki efni sem
valdið geta ofnæmiseinkennum, s.s.
hvata, ilmefni, ljósvirk bleikefni og
litarefni.
ast notuð ýmis efni sem eru um-
hverfinu óholl, t.d. klór. Neytendur
ættu einnig aö skoða hvaða efni eru
notuð í hinum mismunandi fata-
hreinsunum og hver þeirra valda
minnstum skaða á umhverfinu.
-GLM
(M.a. byggt á Grænu bókinni)
Efnalaugar
Sum föt má ekki þvo með venju-
legum hætti heldur verður að senda
þau í efnahreinsun. Þeir sem vilja
vera sérstaklega umhverfisvænir
ættu að hafa það í huga við val á
fatnaði að við efnahreinsun eru oft-
Sparn-
aðarráð
Við íslendingar njótum þess að
íslensk orka er að miklu leyti hrein
orka. Slíku er því miður ekki að
heilsa víða erlendis. Þar er orkan
t.d. framleidd með kolum, olíu eða
jarðgasi sem veldur mengun.
Flestir geta þó dregið eitthvað úr
orkunotkuninni, sama hvort þeir
búa hérlendis eða erlendis.
Matséld er ein
orkufrekasta að-
gerðin á heimil-
unum. Þess
vegna er áríð-
andi að orka sé
spömð við
matseld. Kveikið
ekki á ofninum
fyrr en sett hef-
ur verið inn í
hann.
Þíðið frystar vörur í kæliskáp, þá
nýtist kuldinn fiá þeim til orku-
spamaðar.
Notið eins lítið vatn i pottana og
þið komist af með.
Hafið Ijósin slökkt í herbergjum
þar sem enginn er.
Hafið glugga ekki opna nema
þess sé þörf. Best er að lofta út með
þvf að galopna gluggana í dálítla
stund en loka þeim svo aftur áður
en kólnar í íbúðinni.
Þegar við erum stödd erlendis
megum við yfirleitt búast við þvi að
talsverð mengandi orka hafi farið í
að hita upp vatnið sem við notum.
Þess vegna er til dæmis ráðlegt að
fara frekar í stutta sturtu en bað.
Heitt vatn á alls ekki að renna að
óþörfu, t.d. við uppþvott.
Æskilegt er að þvottur sé þurrk-
aður utandyra sé það hægt.
Tauþurrkari gleypir nefnilega
mikla orku.
Umhverflsvæn á
ferðalaginu
Mikilvægt að hafa í huga
þegar ferðast en
Skiljum aldrei eftir rusl á víða-
vangi.
Förum variega með eld úti í nátt-
úrunni. Eldur í gróðurlendi getur
valdið óbætanlegu tjóni. Einkum
er ástæða til að fara varlega
með sígarettur og grillkol.
Ökum aldrei utan vega.
Skemmdir á gróðri vegna akst-
urs utan vega er erfitt að bæta.
Fylgjum merktum stígum og
gönguleiðum þar sem um slíkt
er að ræða.
Þegar farið er í ferðalög reynum
við að takmarka notkun einnota
umbúða og áhalda. -glm
(Heimild: Græna bókin)
vísir.is