Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Síða 23
FTMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
1
27
DV
Sviðsljós
Drottningar-
maður kaupir
rosalegan Benz
Hinrik prins, eiginmaður Mar-
grétar okkar Þórhildar Dana-
drottningar, féll bókstaflega í
stafi þegar hann fékk auglýsinga-
bæklinginn um lúxuskaggann
Mercedes Benz
500 S inn um
bréfalúguna á
höllinni i kóngs-
ins Kaupinhöfn.
Þennan bil varð
hann að eignast
og þegar maður
er mægður
kóngaslektinu,
og franskur
greifi þar aö auki, leggur maður
bara inn pöntim og hefur áhyggj-
ur af reikningnum síðar.
Kannski. Bíllinn kostaði litlar
tuttugu milljónir íslenskra
króna, að sögn danskra blaða. Og
ekki þarf lykla til að gangsetja.
Hinrik er annars þekktur fyrir
áhuga sinn á góðum bílum. Næst
á undan Benzinum átti hann for-
láta Rolls Royce en þar áður
hafði hann leitað til heimalands-
ins og keypt sér Peugeot.
Sharon Stone
ekki hrædd við
að leika lesbíu
Sharon Stone, sú ágæta leikkona,
hefur aldrei verið feimin að taka að
sér hættuleg hlutverk, ef svo má að
orði komast. Þar nægir að nefna
hlutverk morðkvendisins ógurlega í
Ógnareðli og hlutverk lesbíu í vænt-
anlegri kvikmynd kapalstöðvarinn-
ar HBO. Þar leikur sjónvarpsleik-
konan Ellen DeGeneres ástkonu
hennar.
Nú herma fréttir að vestan að
Sharon íhugi að taka að sér hlut-
verk á Broadway þar sem hún hefur
ekki leikið áður. Ekki ætlar hún nú
að leika í hvaða stykki sem er, held-
ur Hjónabandi í Boston eftir hinn
víðfræga og virta David Mamet.
Leikritið fjallar um tvær lesbiur við
aldamótin síðustu.
Sharon fundar með leikstjóran-
um, Howard Davies, einhvem tíma
í vikunni. Sá stjómaði nýlega því
góða stykki ísmaðurinn kemur þar
sem stórleikarinn Kevin Spacey
leikur aðathlutverkið.
Prinsarnir samþykkja
minnismerki um Díönu
Vilhjálmur og Harry styðja áætl-
un um að reistur verði gosbrunnur
til minningar imi móður þeirra,
Díönu prinsessu. Voru prinsamir
spurðir álits i tengslum við herferð
breska blaðsins The Mirror um að
reist verði varanlegt minnismerki
um prinsessuna.
Fjölskylda Díönu, þar á meðal
móðir hennar, Frances Shand
Kydd, og bróðir hennar, Spencer
jarl, eru einnig hlynnt minnis-
merki.
Gert er ráð fyrir að minnismerkið
verði reist á svokallaðri Díönugöngu-
leið, sérstakri gönguleið tileinkaðri
prinsessunni, í London sem opnuð
verður 1. júlí næstkomandi.
Leiðin mun liggja framhjá Kens-
ingtonhöll, sem var heimili Díönu
í 15 ár, Buckinghamhöll, þar sem
hún bjó eftir trúlofun sina, Clar-
encehúsi, heimili drottningarmóð-
ur þaðan sem hún hélt til brúð-
kaups síns, St. Jameshöll, þar sem
lik hennar lá í konunglegu kapell-
unni, og Spencerhúsi, fyrrverandi
heimili fjölskyldu Díönu.
í Kensingtongarði á að byggja
skemmtisvæði fyrir börn með
Pétri Pan og félögum hans. Með
því er verið að minnast ástar
Díönu á bömum.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Albert prins í hópi gesta á dönskum veitingastað:
Fóru án þess að
borga fyrir sig
Albert prins af Mónakó gekk
ásamt fleiri gestum, þar á meðal
dönsku tískudrottningunni Isabell
Kristensen, út af veitingastað í
Kaupmannahöfn án þess að greiða
reikninginn.
Albert hafði verið ásamt fleirum í
Kaupmannahöfn í tilefni árþús-
undatískusýningar Isabell. Eftir að
hafa snætt kvöldverð á Hotel Phon-
ix fór sjö manna hópur, þar á meðal
Albert og Isabell, á veitingastaðinn
Konrad til þess að fá sér nokkra
drykki og kaffi.
En þegar reikningurinn kom, upp
á sem svarar 80 þúsundum ís-
lenskra króna, var hópurinn á leið
út um dyrnar. Og þegar þjónn á
veitingastaðnum sneri sér að prins-
inum til að fá greitt fékk hann
Albert Mónakóprins.
skammir af skipuleggjanda veisl-
unnar.
„Vilji maður reka fyrsta flokks
veitingastað snýr maður sér ekki aö
konunglegu fólki á þennan hátt. Það
er ekki góður siður. Maður verður
að kveðja og þakka fyrir komuna og
sjá svo til að fá greitt á fínlegan hátt
þegar fræga fólkið er farið,“ sagði
skipuleggjandinn í viðtali við
danska blaðið Billedbladet.
Eigandi veitingastaðarins veltir
því fyrir sér hvers vegna enginn
hafi beðið um að fá reikninginn þeg-
ar hópurinn var að undirbúa brott-
for. „Þegar stórar stjömur eru í
bænum er samið um greiðslu fyrir-
fram eða sagt hvert eigi að senda
reikninginn,“ segir eigandinn, Jac-
ob Blom.
Hattar breska tískuhönnuðarins Philips Treacys vöktu óskipta athygli þegar þeir voru sýndir í París í vikunni. Þar á
meöal var þetta risastóra brönugras sem ofurfyrirsætan Naomi Campbell setti upp. Glæsilegra verður það ekki.
0] Electrolux
• Eldavél
• Með grilli
• Barnalæsing
á rofum og hurð
• Hraðhitun á
bökunarofni
• Stór
geymsluskúffa
Victoriu kryddi
boðið mikið fé
Victoria Kryddpía Adams, eða
Beckham ef menn vilja það frek-
ar, hefur fengið tilboö sem venju-
legt dauðlegt fólk gæti ekki hafn-
að: Tvær milljónir króna á viku,
og riflega það, fyrir að leysa af
annan stjórnanda morgunþáttar
sjónvarpsstöðvarinnar Stöðvar 4 í
Bretlandi. Þegar Victoriu var
fyrst boðið það sagðist hún ekki
geta farið svona snemma á fætur.
Forráðamenn stöðvarinnar voru
þó ekki á því að gefast upp og þeg-
ar þeir urðu vitni að frammistööu
Victoriu í hennar eigin þætti á
þriðjudagskvöld ítrekuðu þeir til-
boðið og sendu með faxi. Stúlkan
hefur ekki gefið endanlegt svar.
En varla þarf hún peningana.
Orðið við kröfu
Leos um kynlíf
Hjartaknúsarinn Leonardo
DiCaprio krafðist þess að fleiri'
kynlífsatriði yrðu í kvikmyndinni
Ströndinni þar
sem hann lék aðal-
hlutverkið, á móti
hinni frönsku
Virginie Ledoyen.
Og framleiðendiu-
myndarinnar urðu
við kröfum hans.
„í bókinni var
þetta bara endalaus forleikur en
það gerðist aldrei neitt," segir
Leo. Og svoleiðis gengur ekki,
sérstaklega ekki þegar maður
leikur á móti glæsilegri, ungri
konu.
á heima
Electrolux
í Húsasmiðjuimi