Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Side 29
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
33
Myndasögur
Fréttir
~voff( ^ I1// TlFlfer3 ©
æiæS*.
Atvinnumál í Stykkishólmi
Enginn atvinnu-
laus frá því á
síöasta vori
DV, Vesturlandi:
Mjög bjart er fram undan í at-
vinnumálum í Stykkishólmi, að
sögn Einars Karlssonar, formanns
Verkalýðsfélags
Stykkishólms. Þar
hefur enginn verið
á atvinnuleysis-
skrá síðan í fyrra-
vor.
„Atvinnuástandið
hér í Stykkishólmi
hefur verið gott í
_. ,, . haust og vetur og
Einar Karlsson. -g sé ekki fram |
annað en það verði gott áfram. Ég
er ekki frá því aö atvinnuástandið
sé betra en það hefur verið undan-
farin ár. Hörpudiskurinn klárast r
um miðjan febrúar og þá tekur bol-
fiskurinn viö og þetta er það sem er
hvað sveiflukenndast, sjávarútveg-
urinn og svo framkvæmdirnar,"
sagði Einar.
Einar segir ástæðuna fyrir því að
ástandið er orðið svona gott að
menn séu orðnir stöðugir í bolfisk-
inum og svo er einnig verið að huga
aftur að rækju eins og var. „Við vor-
um með rækjuverksmiðju héma og
hún fer vonandi í gang þegar líður á
veturinn. Ég veit ekki hvort fram-
kvæmdir verða eins miklar og í
fyrra en þá voru miklar fram-
kvæmdir við hitaveituna." -DVÓ
Stöövarhreppur:
Fyrsta íslenska
íþróttahússgólfið
Fyrir rúmu ári ákvað sveitar-
stjórn Stöðvarhrepps að byggt
skyldi íþróttahús. í dag stendur
það fullbúið til notkunar og bæt-
ir úr brýnni þörf. Gólf hússins,
sem er úr hlyni, mun vera fyrsta
íslenska íþróttagólfið og kemur
frá Parket og gólf f Reykjavík en
er framleitt af Aldin á Húsavík.
Kristmann Jónsson, fyrsti
íþróttakennari Stöðfirðinga, tók
fyrstu skóflustunguna fyrir 9
mánuðum.
Ákveðið var að láta fara fram
svokallað alútboð, en þar er
hönnun og bygging hússins frá
grunni innifalin. Nokkur tilboð
bárust og átti Ævar Ármannsson,
húsasmiðameistari á Stöðvar-
firði, lægsta tilboðið og var því
tekið. Arkitektastofan Arktís
teiknaði húsið og Örvar Ár-
mannsson hannaði raf-
magnsteikningar en Jóhann Pét-
ur Jóhanns lagði rafmagnið. Við-
ar Jónsson gróf fyrir húsinu.
Lars Gunnarsson múraði og Véla-
verkstæði KFFB sá um pípulagn-
ir. Útboðsgerð og umsjón með
byggingu hússins hafði Valgeir
Kjartansson frá Hönnun og Ráð- ^
gjöf á Reyðarfirði. Húsið er lím-
tréshús frá Flúðum, klætt ylein-
ingum og er salur hússins 31 x 17
metrar, eða um 527 fermetrar. Þá
er þjónusturými um 110 fermetr-
ar og á lofti þjónusturýmis er um
100 fermetra ófrágengið rými, þar
sem fyrirhugað er að hafa þrek-
sal, ljós og gufu í náinni framtíð.
Húsið bætir úr brýnni þörf þar
sem inniaðstaða til íþróttaiðkana
hefur verið léleg, en kennt hefur
verið í Samkomuhúsi Stöðvar-
fjarðar þegar veður hefur hamlað
útiíþróttaiðkunum.
Sveitarstjórn lagði þau rök til
grundvallar að þetta myndi gera
staðinn byggilegri og einnig blása
nýju lífi í íþróttaiðkun í þorpinu. '
Af því tilefni hafa sveitastjóri og
oddviti ákveðið að sýna gott for-
dæmi og báðir pantað fasta tíma í
húsinu og hyggjast minnka um-
fang sitt og ummál til muna.
-GH
'&
•H
m
□
f Nei. eíginlega ekki. Rúna. Hann ^
var í vinnu einu sinni, en hann var J
^rekinn eftir tvo daga! Hann bölvaói
svo s.vakalega!
c
Ertu frá DV? Það hlýtur að vera einhver
misskilningur því við báöum ekki
um Ijósmyndara.
Síðustu
dagar!
Lane
Mörkinni 4 • 108 Rcykjavík
Siini: 533 3500 • Fax: 533 3510 • www.marco.is
Við styðjum við bakið á þár!