Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 2000 15 Ríkasta konan og allar hinar Menntunin skilar sér ekki Konur hafa samt alltaf verið bjartsýnar og lifað í von um breyt- ingar. Trú þeirra sem nú nálgast miðjan aldur byggðist á því að meiri menntun skilaði sér í launa- umslagið. Upp úr 1960 flykktust konur þess vegna í háskóla. í því ljósi er athyglisvert að lesa nýlega fmnska rannsókn, er sýnir svart á hvítu að launabiiið hefur frekar aukist en hitt. Nú er þannig að karl með grunnskólamenntun fær oft sömu laun og kona með há- skólamenntun. Við gætum því jafnvel haldið því fram að staða konunnar færi versnandi. Hver fer meö völdin? Nú gæti einhver ef tii vill mót- mælt og bent á fjölgun kvenna í ráðherraliði. En jafnvel þetta virð- ist vera blekking ein: Raunveru- Nýleg bresk könnun: Konur eru ef til vill sjálfstæöari en ömmur þeirra, en hamingjusamari eru þær ekki, þvert á móti. - Fjórðungur þó ánægöur í starfi sínu. Samkvæmt útreikn- ingum viðskiptablaðs- ins Eurobusiness er franska konan Liiiane Bettencourt, eigandi L’Oreal-fyrirtækisins, ríkasti einstaklingur Evrópu. Af þessu mætti álykta að staða konunn- ar hafi batnað allveru-' lega siðan amma var ung. En nýleg bresk könnun kemst að annarri niðurstöðu: Konur eru ef til vill sjáifstæðari en ömmur þeirra, en hamingju- samari eru þær ekki, þvert á móti. Samkvæmt könnun- inni telja 84% kvenna sig þurfa að gegna of mörgum hlutverkum og ekki geta uppfyllt allar þær kröfur sem til þeirra eru gerðar. Aðeins tæpur fjórðungur er ánægður í starfi sínu. Konur hafa farið út á vinnu- markaðinn en þeim hefur ekki tekist að draga nægilega úr álag- inu heima fyrir. Þess vegna hafa þær ekki getað keppt um starfs- frama til jafns við karla og finnst þær vera hlunnfarnar. legt vald er nú á dögum sjaldnast i höndum ráðherra og þingmanna, heldur snýst heim- urinn um peninga. Stjórnmálamenn eru oftar en ekki bara strengjabrúð- ur þeirra sem vald- ið (peninga) hafa. Og nú er gott að líta aftur á lista Eurobusiness: Lili- ane Bettencourt er mjög einmana í karlahópnum, enda eru konur sjaldséð- ir hrafnar innan um iðnjöfra og kaupsýslumenn, jafnvel sjaldséð- ari en í ráðherraliði. Börn til jafns viö vísindarannsóknir En af hverju flölgar konum í stjórnmálum en ekki í fésýslu? Norskir rannsakendur þykjast hafa fundið einfaida skýringu á því: Mun auðveldara er að sætta Kjallarinn Marjatta ísberg fil.mag. og kennari íjöldskyldulif og stjómmái en fjöl- skyldulíf og fyrirtækjarekstur. En samt má gera ráð fyrir því að mun erfiðara sé fyrir konur að byggja sér framtíð innan stjórnmála en fyrir karla. Menn þurfa að vera lengi virkir og undirbúa jarðveg- inn, en einmitt þessi viðkvæmu árin eru flestar konur bundnar við börnin sín, jafnvel í meira mæli en fyrir 20-30 árum. Sama gildir um frama í vísind- um. Menn keppa um stöður við háskóla og sá sem mestan árangur getur sýnt hreppir hnossið. Árangrn- vísindamanna er yflr- leitt metinn í fjölda rannsókna og þeirra greina sem niðurstöðumar eru birtar í. Danskar feminístar reiknuðu fyrir nokkrum árum að hvert barn samsvaraði þremur vísindagreinum og vildu í alvöru að tekið yrði tillit til barnafjölda, þegar ráðið er í háskólastöður. Erfitt er að sjá að slíkt muni nokkurn tíma gerast. Nýtt hlutverk í boði? Ef til vill býður nýja öldin okk- ur konum öðruvisi starfsframa. Vísir að honum birtist í frétta- skeyti frá Bret- landi: Tveir sam- kynhneigðir millj- ónamæringar leigðu konu til að bera þeim barn. „Er þetta ekki 21. öldin?“ spurðu þeir. „Það eina sem við viljum er að verða foreldr- ar“. í framtíðinni mun hugsanlega verða mikil eftirspurn eftir slíkum útungunarvélum. Marjatta ísberg „Konur hafa farið út á vinnumark- aðinn en þeim hefur ekki tekist að draga nægilega úr álaginu heima fyrir. Þess vegna hafa þær ekki getað keppt um starfsframa til jafns við karla og finnst þær vera hiunnfarnar.u Enn um sögu og sjálfsmynd Fyrir nokkru (4/12 1999) ritaði sr. Heimir Steinsson grein í Les- bók Mbl. um „samhengið í sögu- skoðun íslendinga." Þar teygði hann lopa sem spunninn var hér á liðnu sumri (m.a. 31/8.) Grein Heimis fjallar raunar aðeins að litlu leyti um söguskoðun. Aðal- efni hennar er sjálfsmynd þjóðar- innar en þar telur Heimir að greina megi rauðan þráð sem hægt sé að rekja eftir sögu okkar endilangri. * Mismunandi þættir Ugglaust hefur Heimir á réttu að standa um það að sjálfsmynd Islendinga hef- ur frá upphafi byggt á hugmyndum okkar um landið, þjóðina, söguna og tunguna. Um hitt fjallar hann ekki að mjög hefur verið misjafht hver þess- ara þátta hefur verið drottnandi. Fyrrum - t.d. á tímum Amgríms lærða sem mjög kemur við sögu í grein Heimis - var sagan drottnandi þáttur. Síðan þá hefur stórlega dregið úr vægi hennar. Til skamms tíma var afstaðan til tungunnar tvímælalaust sterkasti þáttur sjáifsmyndarinn- ar. Nú bendir margt til að tilfinn- ingin til landsins og náttúru þess sé tekin að keppa við hina „tungu- málsbundnu" sjálfsmynd. í því ijósi ber t. d. að skoða umræðuna um Eyjabakkana og aðrar nátt- úruperlur. Óljóst er á hverju öðru sjálfsmynd þjóðar getur hvUt en fyrrnefndum höfuðþáttum. Þegar meta skal samhengi i sjálfsmynd- inni verður hins vegar að greina samspU þeirra og breytingar á því. rauði þráður" sé jafn gUdur og Heimir gerir ráð fyrir. Sterkt samhengi Heimir ræðir einnig sagnaritun íslendinga og gerir þar ráð fyrir órofa samhengi frá Ara fróða tU Snorra Sturlusonar. Þar sakna ég að hann getur ekki hins mikla starfs Gunnlaugs Leifs- sonar og fleiri norð- lenskra sagnaritara sem störfuðu í miUitíð- inni. Óljóst er hvort um þá er þagað sökum þess að Heimir telji verk þeirra litlu skipta eða vegna þess að þeir passa ekki inn í þá samfellu sem hann kýs að leggja áherslu á. Ekki kemur á óvart að sterks samhengis gætir í sögutúlkun Heimis sjálfs. Kemur það best fram í því að í skrifmn hans virðist gert ráð fyrir sterkri samsvörun mUli stjórnskipunar okkar nú á dögum og hins foma þjóð- veldis en hann notar hugtakið lýð- veldi um hvort tveggja. Slík orð- notkun virðist vissulega krefjast rökstuðnings sem ekki er að finna í greininni. í versta falli sögufölsun Loks er á það að benda að mik- U1 munur er á þeirri átthagaást sem al- geng var víða um lönd fyrr á tið - m. a. um daga Arn- gríms lærða og löngu fyrir þann tíma - og þjóðernis- kenndar 19. aldar. GUdir þá einu hvort um er að ræða menningarbaráttu Jónasar HaUgríms- sonar eða stjórn- málastefnu Jóns Sigurðssonar. Þá var einnig mik- U1 munur á sögu- skoðun Arngrims Jónssonar, Jóns Sig- urðssonar og Björns Þorsteinssonar þótt aUir þessir menn leituðst við hver með sínu móti að draga lærdóma af sögunni sem gUdi höfðu fyrir samtíð þeirra. Sannleikurinn er sá að þegar færa skal rök fyrir órofa samhengi eða rauðum þráðum neyðast menn tU að einfalda þá mynd sem þeir draga upp. Það er síðan vafamál hvenær einfóldunin hættir að vera alhæfíng sem stenst gagnrýni og verður að einhverju öðru og verra - í versta faUi sögufólsun. Hjalti Hugason „Sannleikurinn er sá að þegar færa skal rök fyrir órofa samhengi eða rauðum þráðum neyðast menn til að einfalda þá mynd sem þeir draga upp. Það er síðan vafa- mál hvenær einföldunin hættir að vera alhæfíng sem stenst gagn- rýni og verður að einhverju öðru og verra...u Sé þess gætt efast ég um að „hinn Kjallarinn Hjalti Hugason prófessor Með og á móti Níubíó verður áttabíó Félag kvikmyndahúsa áformar að breyta sýningartíma kvikmynda- húsanna þannig að níusýningar færast fram til klukkan átta og ell- efusýningar fram til klukkan tíu. Aðrar sýningar yrðu þá klukkan fjögur og sex og jafnvel klukkan tólf um helgar. Þorvaldur Arnason, framkvæmdastjíri Sambíóanna og formaöur Félags kvikmyndahúsa. Betri þjónusta „Við höfum lengi heyrt þær skoð- anir meðal gesta kvikmyndahús- anna að þeim þætti of seint að fara á bíó klukkan niu og eUefu, sérstak- lega í miðri viku. Myndir eru yfir- leitt um og yfir tveir tímar að lengd þannig að fólk kemur ekki heim af níusýningum fyrr en klukkan er langt gengin tólf og eUefusýningar byrja stundum ekki fyrr en korter yfir og eru langt fram á nótt. Fjölskyldu- fólki finnst erfitt að fá barnapíu þegar það er ekki komið heim fyrr en korter yfir eUefu eða hálftólf, finnst of áliðið fyrir barnapiu sem þarf kannski að mæta í skóla dag- inn eftir. Með tilfærslu sýningar- tímanna erum við að veita bíógest- um betri þjónustu, ekki síst fjöl- skyldufólki með ung böm. í dag er mikið að gera á níusýningum, raðir og troðningur en mun minna áiag á eUefusýningum, aUa vega virka daga. En við breytinguna mun álag- ið jafhast miUi átta- og tíusýninga sem báðar verða vel sóttar en með minni troðningi og biðröðum. Um helgar verður gamla þijúbíóið tvö- bíó. Bömin eru þá fyrr búin í bíó sem gefur fjölskyldunni meira svig- rúm tU að nota eftirmiðdaginn sam- an. Við sjáum því marga jákvæðar hliðar við þessa breytingu og hún er studd af könnun Gallups um sýning- artimana. Við erum að færa okkur nær því sem gengur og gerist er- lendis auk þess sem fólk virðist vera farið fyrr að sofa og vaknar fyrr. Það mælir því aUt með þessu.“ Vil ellefubíó „Ég get út af fyrir sig skUið rök kvikmyndahúsanna fyrir þessum breytingum. Það eru aUir að flýta sér í dag og verið að flytja svo margt fram, t.d. fréttatíma Ríkisút- varpsins og Sjónvarpsins. Þá er al- mennur vUji fyrir að fá krakkana fyrr heim úr bíó. Kvikmyndahús- in vUja eðlUega laga sig að breyttum að- stæðum. En mér líst sjáifum ekk- ert aUt of vel á þetta. Ég er kannski sérvitur en þannig er að ég fer bara í eU- efubíó og geri mikið af því. Það er stórkostlegur tími tU að sitja í bíó og hentar mér mjög vel þar sem ég fer sjaldnast að sofa fyrr en langt er liðiö á nótt. Ég þekki marga sem fara á eUefubíó og kunna vel við aö koma út um eittieytið. Ég fer hins vegar aldrei á bíó um helgar þannig að tólfsýningar munu ekki nýtast mér. Ég þekki marga sem eru á svipaöri skoðun, eru kannski orðnir íhaldsamir. Tíusýningar falla mér ekki í geð þar sem þá verður of mikU örtröð og hún leið- ist mér. Mér finnst best að fara í bíó þegar fáir eru eins og á eUefu- sýningum. Þá nýtur maður mynd- anna miklu betur. Þetta eru kannski ekki stórkostleg rök gegn nýju fyrirkomulagi en núverandi sýningartímar henta einfaldlega mörgum kvikmyndaáhugamönn- um mjög vel og þeir eru ekki verri bíógestir en aðrir.“ -hlh Karl Geírsson, Hreyfimyndafélag-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.