Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2000, Side 36
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
f hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
slenski varamannabekkurinn hélt niöri i sér andanum undir lok leiks íslend-
inga og Rússa á Evrópumeistaramótinu í handknattleik en minnstu munaöi
aö okkar mönnum tækist aö jafna metin. Einar Þorvarðarson aöstoöarlands-
liösþjálfari er grimmur á svip og fyrir aftan má sjá nokkra leikmenn lands-
liösins ásamt Þorbirni Jenssyni landsliösþjálfara.
DV-mynd Silvans Sezina
Herskár forsætisráðherra í símanum árla sunnudagsmorguns:
Heimtaði að
Bandaríkjaher
sprengdi Breta
- ella væri áframhaldandi vera varnarliðsins í hættu
Ólafur Jóhannesson, fyrrum for-
sætisráðherra, hringdi i bandaríska
sendiherrann hér á landi klukkan 7
að morgni, snemma árs 1973 og
krafðist þess að bandarískar herþot-
ur á Keflavíkurflugvelli yrðu tafar-
laust sendar af stað og látnar varpa
sprengjum á bresk herskip í þorska-
stríðinu þegar íslendingar færðu
landhelgina út í 50 mílur. Þetta
kemur fram í nýrri sjónvarpsþátta-
röð um þorskastríðiö sem sýnd
verður á Stöð 2 i næsta mánuði.
Símtaliö
„Við gerð þáttanna ræddum við
meðal annars við Frederich Irving
sem var sendiherra Bandaríkjanna
á íslandi 1972-76. Hann staðhæfir að
Ólafur Jóhannesson, sem þá var for-
sætisráðherra, hafi vakið sig með
símtali klukkan 7 að morgni og sett
fram þessa kröfu. Sendiherrann seg-
ist hafa tilkynnt forsætisráðherran-
um að slíkt kæmi aldrei til greina
en þá hafi Ólafur Jóhannesson látið
hann vita að ef ekkert yrði aðhafst í
þessa veruna gæti það haft óheppi-
leg áhrif á umræður og samninga-
viðræður sem þá stóðu yfir um
áframhaldandi veru varnarliðsins
hér á landi,“ sagði Margrét Jónas-
dóttir, sagnfræðingur og handrits-
Ólafur Matthías
Johannesson. Bjarnason.
höfundur sjónvarpsþáttanna sem
hafa hlotið nafnið „Síðasti valsinn".
Allir ráðherrar í vinstri stjórn
Ólafs Jóhannessonar á þessum tíma
eru nú látnir, nema Halidór E. Sig-
urðsson, en stjórn Ólafs var við völd
frá miðju sumri 1971 fram á haust-
daga 1974. Þá tók við stjóm Geirs
Hallgrímssonar sem leiddi þorska-
stríðið tii lykta en í þeirri stjóm var
Ólafur Jóhannesson dómsmálaráð-
herra og Matthías Bjamason sjávar-
útvegsráðherra.
Vildi ekki lausn
„Þetta hef ég aldrei heyrt og trúi
þessu einfaldiega ekki,“ sagði Matthí-
as Bjamason, þegar hann var inntur
eflir þessu óvenjulega símtali forsæt-
isráðherrans fyrrverandi. „Hins vegar
hafði ég það alltaf á tilfinningunni að
Hross í Leifsstöð
„Við erum að fara að
skoða aðstöðuna í Leifsstöð
með tiiliti til þess hvemig
koma megi hrossum þar við
þegar erlenda gesti ber að
garði,“ sagði Hjálmar Áma-
son, aiþingismaður og for-
maður nefndar sem skipuð
var í kjölfar þingsályktunar-
tillögu um hvernig nýta
megi íslenska hestinn við op-
inberar móttökur. „Þetta er
Hjálmar
Árnason.
aðeins einn þáttur af mörgum sem að garði,
nefndin er að skoða,“ sagði Hjálm- ir fimm
ar. * ferðinni
Ekki er ráð fyrir þvi
gert að byggt verði hesthús
við Leifsstöð vegna þessa,
enda ekki langt að fara í
næstu hesthúsabyggð:
„Það þarf ekki að fara
nema um tvo kílómetra til
að komast í hross. Athug-
un okkar beinist frekar að
því hvemig koma megi
hrossum að við flugbraut-
imar þegar tigna gesti ber
“ sagði Hjálmar sem fer fyr-
manna nefnd í skoðunar-
í dag. -EIR
Ólafi Jóhannessyni væri það ekkert
kappsmál að landhelgisdeilan leystist
undir forsæti Geirs Hallgrímssonar.
Ég man að hann vildi oft grípa til ann-
arra aðgerða en við hinir. Sem yfir-
maður Landhelgisgæslunnar lét hann
til dæmis varðskip klippa aftan úr
breskum togara á sama tíma og Geir
Haligrímsson var að setjast að samn-
ingaborði á sveitasetri Harold Wilson,
forsætisráðherra Breta, þegar deilan
var á á mjög viðkvæmu stigi. Þá fór
allt i uppnám og við skildum aldrei
hvers vegna Ólafur lét þetta gerast,"
sagði Matthías Bjamason.
Aldrei drukkinn
Er sá möguleiki fyrir hendi að
Ólafur Jóhannesson hafi hringt í
sendiherrann undir áhrifum
áfengis? „Ég sá Ólaf Jóhannesson
aldrei drukkinn öll þau ár sem við
áttum samskipti. Hins vegar er ekki
útilokað að bandaríski sendiherr-
ann hafi verið drukkinn og dreymt
þetta símtal sem hann vitnar til í
þessum sjónvarpsþætti," sagði
Matthías Bjamason. -EIR
Tíu dagar
með Dorrit
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti íslands, kom til landsins
skömmu fyrir síðustu helgi eftir
að hafa dvalið í 10 daga í Lundún-
um. Um var að ræða einkaheim-
sókn og dvaldi forsetinn á heim-
ili vinkonu sinnar, Dorrit
Moussaieff, á meðan á dvöl hans
stóð. -EIR
Veður á þriðjudag:
Kólnandi
veður
Á morgun verður suðvestanátt,
10-15 m/s. Skýjað með köflum
norðan- og austanlands en rign-
ing og síðan skúrir eða él annars
staðar.
Veðrið í dag er á bls. 45.
txother P-touch 9400
Stóra merkivélin sem þolir álagið
10 leturgerðir
margar leturstærðir
16 leturstillingar
prentar í 10 línur
borði 6 til 36 mm
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport