Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 Fréttir DeCode 145 miUjarða króna virði eða 600 þúsund á hvem mann í gagnagrunninum: Frámunalega lág leiga - segir Margrét Frímannsdóttir en heilbrigðisráðherra segir leiguna sanngjarna Markaðsverðmæti DeCode genetics, móðurfélags ís- lenskrar erfðagreiningar (ÍE), er nú 145 milljarðar króna miðað við gengi hluta- bréfa í fyrirtækinu á mark- aði í gær. Ekki eru allir sér- fræðingar á markaöinum sannfærðir um að að félagið standi undir þessu verðmati og lýsti einn þeirra þvi sem „geðveikislegu". Engar stað- festar upplýsingar eru fáan- legar um hverjir eiga fyrir- tækið, hversu margir hlutir eru í fyrirtækinu eða hver velta þess og afkoma er. Árni Sigurjónsson, starfs- maður upplýsingadeildar ÍE, sagði því miður ekki hægt að veita slíkar upplýsingar þar sem fyrirtækið væri óskráð og því þar með óskylt að láta þær af hendi. 570 þúsund á hvern Óstaðfest tala yfir fjölda hluta í DeCode er 31 milljón. Hluturinn var seldur á markaði i gær á 65 dollara stykkið og verðmæti fyrirtækisins samkvæmt því áðurnefndir 145 milljarðar króna. Stór hluti þess verðmats byggist á 12 ára einkaleyfi ÍE á rekstri miðlægs gagnagrunns um heilsufar íslendinga. Um 17 þús- und manns hafa sagt sig úr gagna- grunninum en honum standa enn til reiðu um 255 þúsund núlifandi ís- lendingar. Væri núverandi mark- aðsverðmæti DeCode eingöngu byggt á þessum einstaklingum væri tilvist hvers og eins þeirra í gagna- grunninum metin á 570 þúsund krónur. ÍE mun greiða ríkinu 70 miUjónir króna á ári vegna rekstrarleyfisins og allt að 70 milljónir árlega að auki af hagnaði fyrirtækisins Bara orö ráðherra „Miðað við virðismat fyrirtækis- ins, og ekki síður aö þama er um mjög verðmætar upplýsingar að ræða, er leigan frámunalega lág, en hún hlýtur að verða endurskoðuð í ljósi reynslunnar. Það er mjög sér- kennileg ákvörðun af íslenska rík- inu að afhenda þetta leyfi til ein- staklingsfyrirtækis. Ríkið hefði átt að byggja gagnagrunninn upp sjálft og eiga fyrst vilji er fyrir því að Kári Stefánsson og starfsmenn hans hjá Islenskri erfðagreiningu geta nú tekið til óspilltra mál- anna. Margrét Frímannsdóttir: „Ráöherra segir að persónuverndin sé tryggö en við höfum ekkert annað en henn- ar orö fyrir því.“ gera hann að veruleika,“ segir Mar- grét. Margrét segir þingmenn Samfylk- ingarinnar hafa gert miklar athuga- semdir við gagnagrunnsfrumvarpið á sinum tíma. „í mörgum tilvikum var þvi svarað að tekið yrði á þeim málum við gerð rekstrarleyfis og í reglugerð. Við hljótum því að gera Ingibjörg Pálmadóttir: „Ég tel að persónuverndin sé eins tryggð og hún getur orðiö.“ kröfur um að það verði farið yfir samninginn og reglugerðir með heilbrigðis- og trygginganefnd Al- þingis. Þá sjáum við hvort og hvem- ig brugðist er við athugasemdun- um,“ segir hún. Margrét er ekki sannfærð um að persónuvemd sé tryggð í gagna- gmnninum. „Ráðherra segir að per- sónuverndin sé tryggð en við höfum ekkert annað en henn- ar orð fyrir því. Þegar okkur gefst loks tækifæri til að kaUa til sérfræðinga, til dæmis frá Háskóla íslands, til að upplýsa Alþingi um það hvort það sé rétt, er þetta gerður hlutur sem við höfrnn enga möguleika til að breyta.“ Eins tryggt og hægt er „Ég vil ekki tjá mig um markaðsvirði íslenskrar erfðagreiningar frekar en annarra fyrirtækja. En ég tel að upphæðin sem þetta fyrir- tæki greiðir samkvæmt starfsleyfinu sé sanngjörn og ásættanleg," segir Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra. Gagnrýnendur segja per- sónuvemd sjúklinga í gagna- grunninum ekki tryggða en því vísar Ingibjörg á bug: „Við höfum aldrei gengið lengra varðandi persónu- vemd en í þessu tilviki. Tölvunefnd hefur unnið geysilega gott starf sem einnig mun nýtast til að tryggja öryggi sjúklinga almennt varðandi sjúkraskrár.“ Ingibjörg telur einnig að fullyrð- ingar um að gagnagrunnurinn og starfsleyfi ÍE standist ekki lög og al- þjóðasáttmála séu rangar. „Okkar sérfræðingar hafa farið í gegnum alla alþjóðasamninga sem við höfum gert og þetta er í sam- ræmi við þá alla. Við höfum farið eins varlega og unnið þetta eins vandlega og hægt er og það er ekki hægt að ganga lengra hvað öryggis- þáttinn varðar. Eftirlitið er margfalt og við höfum til þess tölvunefnd, þverfaglega siðanefnd og starf- rækslunefnd sem mun hafa umsjón með samningunum sem gerðir verða við einstakar heilbrigðisstofn- anir.“ Þannig að almenningur hefur ekkert að óttast: „Ég tel að persónuvemdin sé eins tryggð og hún getur orðið,“ segir heilbrigðisráðherra sem væntir mikils af gagnagrunninum: „Ég tel aö þetta mál geti haft geysilega mikla þýðingu fyrir íslenskt heil- brigðiskerfi og vænti góðs af því.“ -GAR / eðlilegum farvegi Strákarnir okkar eru ekki að standa sig. Þeir hafa tapað öllum þrem- ur leikjum sínum á EM í Króatiu. Fyrst gegn Svíum. Það þurfti ekki að koma á óvart enda leika Sviar sér alltaf að því að vinna íslend- inga. í þetta skipti voru íslendingar leiknir sundur og saman í öll- um köflum beggja hálf- leikja. Síðan tapaðist öruggi leikurinn, gegn Portúgal. Þar var það slæmi kaflinn í seinni hálfleik sem gerði út um leikinn. Og loks kom tap gegn Rússum. Þar gerði slæmur kafli í síðari hálfleik einnig útslagið. Og misnotaö hraðaupphlaup á lokamínútunni. Það er huggun harmi gegn að íslendingar hafa aldrei verið jafnnálægt þvi að ná stigi gegn Rússum. En uppskeran er ekkert stig eins og úr hinum leikj- unum. Heppnin var kannski ekki með okkur eins og aðstoðarþjálfarinn sagði eftir leikinn. Og kannski hafa drengimir verið svolitið þreyttir eins og svo oft áður, enda á fullu með félagsliðum sínum heima og heiman allan veturinn. Ólíkt leikmönnum í liðum mótherjanna. Já, það er erfitt í Króatíu. Dagfari hefur staðið í þeirri trú að þegar íþróttamenn fara í kappleik reyni þeir allt hvað þeir geta til að sigra. Séu sem sagt eðlilegir og leiki eðlilega. Að öðrum kosti tapi þeir. En strákamir okkar þurfa bara ekkert að sanna fyrir þjóðinni eins og einn leikmanna komst að orði. Þjóðin veit nefnilega hvað þeir geta og hvers þeir eru megnugir þegar þeir leika eðlilega. íslenska þjóðin hefur séð strákana sína leika eðlilega og veit að þá verður eðlileg niður- staða úr leikjum. Þetta vita strákamir okkar. Og þeir vita að þjóðin veit það og þjóðin veit aö strákamir vita að hún veit það. Þess vegna er allt i lagi þótt liðið hafi ekki leikið eðlilega í fyrstu þremur leikjunum. Stákamir okkar þurfa ekki að sanna eitt né neitt fyrir þjóð sem veit að þeir vita að þjóðin veit að þeir geta leikiö eðlilega og sigrað. Þess vegna gerir ekkert til þótt þrír fyrstu leikirnir tapist. Þar var liðið ekki að leika eðli- lega, eins og þjóðin veit. Þess vegna er ekkert eðlOegra en að búast við tapi gegn Svium, Portú- gölum og Rússum. En þjóðin getur sest róleg framan við sjónvarpsskjáinn í kvöld. Því íslend- ingum er ekkert eðlilegra en að leika eðlilega gegn Dönum. Danir taka því sem eðlilegum hlut að íslendingar leiki eðlilegan handknattleik gegn þeim í kvöld og þar sem íslendingar hafa sannað ágæti sitt með eðlilegum leik ætti sigur að vera vís. Strákamir okkar þurfa ekkert að sanna fyrir þjóðinni sem veit fullkomlega hvemig í málum liggur. Þjóðin veit hvað þeir geta þegar þeir leika eðlilega og getur verið róleg. Hún veit aö það er ekkert óeðlilegt við úrslitin í Króatíu. Dagfari Athyglissýki Nú eru þorrablotin í algleymingi. Vinsælustu menn og félags- málatröll eru yfirbókuð og verða sum hver að velja á milli tveggja eða þriggja blóta sama kvöldið. Er vit- að að skorist hefúr í odda á sumum heimilum þar sem húsfrúnni er boöið í eitt blót en hús- bóndanum annað. Guðlaugur Þór Þórðarson borg- arfúlltrúi hefur kynnst þessum vanda en hann var veislustjóri á þorrablóti KR-inga um helgina með- an Ágústa blótaði þorra með sjálf- stæðisfólki í Valhöll. Eyjakratinn Lúðvík Bergvinsson var einnig hjá KR-ingum, flutti ræðu og þótti fara á kostum. Sagði hann gestum m.a. frá því að ein helsta ástæða þess að hann væri í pólitík væri at- hyglissýki á háu stigi. Ætti honum þá ekki að leiðast að vera nefndur hér til sögunnar... Suðurljós Prestssonurinn og fjölmiðlamó- gúllinn Ámi Þór Vigfiísson er á fljúgandi ferð með Skjá einn en stöðin sú hefur náð töluverðum vinsæld- um. Er það ekki síst að þakka viðleitni tO innlendrar dag- skrárgerðar, nokk- uð sem aðrar ónefndar stöðvar mættu taka sér tO fyrirmyndar. Fjöl- miðlaveldi Áma var í Lögbirt- ingablaðinu á dögunum, ekki vegna neinna leiðinda heldur var þar á ferðinni nýskráning í hlutafélaga- skrá. Athugulir menn tóku eftir því að fyrirtæki Áma Þórs um rekstur sjónvarps og útvarpsstöðva, fram- leiðslu, kaupa og sölu á fjölmiðla- efni m.m. heitir Suðurljós. Má auð- veldlega skoða nafngiftina sem mót- ledí gegn veldi fjölmiðlarisa, Jóns Ólafssonar, Norðurljósa... Gaf Löduna í tímariti Hjartaverndar frá í des- ember má lesa lifla grein eftir Baldur Hafstað kennara þar sem hann hvetur lesendur tíl að hreyfa sig daglega. Hann er óhress með að hafa á dög- unum einung- is talið 12 reiðbjól fram- an við þrjá stóra skóla í Reykja- vík en hvert bOastæði hafi hins vegar verið skipað. Þá segir af því að vinnufélagar hans hafi gefið honum reiðhjól þegar hann varð fimmtugur. Ritara er tjáð að slík samgöngutæki gangi undir nafninu fimmtugsfákar. Lofar Baldur tO- komu reiðhjólsins i daglegu lífi sínu og ráðleggur öOum sem geta að hjóla tO og frá vinnu þegar veð- ur og árstimi leyfir. En þar með er sagan ekki öO. Hamingja Baldurs var slík að hann gaf Löduna sína skömmu eftir afmælið. Og segist auðvitað aOur annar maður ... reykjavik.is Islendingar verða netvæddari með hverjum deginum sem líður. Nýir miðlar á þessum vaxandi markaði spretta upp sem gorkúlur. Sumir eru þó seinni tO að átta sig á þessu og þar á meðal Reykja- víkurborg. Þar á bæ eru menn enn að reyna að átta sig á því hvað gera eigi í netmálum borgar- innar enda fjallar vefúr borgarinnar aðaOega um nefndarsetu borg- arfuOtrúa og pólitíkusa. Virkni vefsins er með því versta sem hefur sést og því ekki laust við að borgin verði að bæta úr þessum vanda áður en hátíðarhöld vegna menningarborgarinnar heijast... Umsjón: Haukur L. Hauksson Netfang: sandkorn @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.