Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
Fréttir
Magnús L. Sveinsson, formaðm- Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, i DV-yfirheyrslu:
Miðstýrðir samningar að baki
Magnús L. Sveinsson segir verðbólguna, sem komin er á fulla ferð, vera stærsta áhyggjuefni launþega. Á sínum ferli er hann stoltastur af því að hafa samið
um markaðslaun.
Verzlunarmannafélag Reykjavík-
ur hefur tekið upp nýjar baráttuaö-
ferðir og semur um markaðslaun.
Þýðir það að þið hafnió öllu sam-
floti?
„Ég geri frekar ráð fyrir þvi að
með þessu fjarlægjumst við samn-
ingaferli og samningaform sem gilt
hefur hér um áratugi. Það er nauð-
synlegt að verkalýðshreyfingin geri
sér grein fyrir því að tími hinna
miðstýrðu samninga er runninn á
enda. Það hefur lengst af verið
þannig að tveir eða þrír hagfræðing-
ar hafa sest niður og fundið út hvað
fiskvinnslan þolir. Niðurstaðan hef-
ur svo ráðið kjörum alls almenn-
ings og ekkert tillit hefur verið tek-
ið til annarra starfsgreina. Þetta
gengur ekki og er ástæða hinna
lágu launataxta sem hér gilda. En
sagan er ekki öll því eftir að samið
hefur verið um lága taxta hefur fisk-
vinnslan farið í næsta herbergi og
samið um bónus og eftir sitja aðrir
á botninum og það er fólk innan VR.
Ertu þar með að segja að gamla
samningakerfið sé úrelt?
„Við unum ekki lengur við þetta
einstigi og einstefnu í samninga-
gerðinni, að eitt og það sama gangi
yfir alla.“
Hefuróu stuðning kollega innan
verkalýóshreyfingarinnar við þessi
sjónarmið?
„Já, mér hefur fundist að eftir að
við fórum fram með kröfuna um
markaðslaun hafi menn sýnt þessu
skilning. Þar er aðeins Ögmundur
Jónason, formaður BSRB, undan-
skilinn."
En dugir þessu skilningur til
þess aó þeirfeti sömu slóð?
„Ég hygg að markaöslaun eigi
ekki endilega við í öllum tilfellum. í
öðrum félögum eru launin gjarnan
nær umsömdum launatöxtum en
gerist hjá okkur.
Hvaó felst í orðinu markaðs-
laun?
„Það eru þau laun sem raunveru-
lega eru greidd á hverjum tíma. Við
viljum gera þau sýnileg svo launa-
fólk geti skoðað hvaða laun eru
greidd í einstökum starfsgreinum
og gert samanburð við sín eigin
laun.“
Eru kjör starfsfólksins á kössum
stórmarkaöanna boðleg?
„Laun starfsfólks sem er á lág-
markaslaunum eða 67 til 70 þúsund
krónum á mánuði er neðan þess að
hægt sé að lifa af þeim. Við höfum
fundið út hvaða fyrirtæki greiða
lægstu launin. Það eru stórmarkað-
imir. Matvöruverslanirnar borga
lægstu launin og það er athyglisvert
að þessi sömu fyrirtæki eru sífellt
að lengja opnunartima sinn og þá er
nógur peningur til að greiða 80 pró-
sent hærri laun.“
Hvaóa verslanir eru þetta?
„Þetta er þorri þeirra en ég vil
ekki nefna neina sérstaklega."
Nœr góóœrió inn í raðir þíns
fólks?
„Já. Það merkilega er að sam-
kvæmt launakönnun VR á síöasta ári
kemur fram að launataxtar sem sam-
tök atvinnulífsins neyddu okkur til
að samþykkja spegla ekki raunveru-
leg laun. Meðallaun okkar fólks eru
nefnilega 161 þúsund krónur á mán-
uði fyrir dagvinnu og 183 þúsund fyr-
h yfirvinnu. Þetta táknar að einstak-
ir vinnuveitendur hafa hafnaö launa-
stefnu samtaka vinnuveitenda. Skila-
boðin til vinnuveitenda eru: Launa-
taxtar ykkar eru ónýtir og við förum
ekki efth þeim.“
Hvað gerist þegar þensluskeiðinu
lýkur. Missir fólk ekki kjarabœturn-
ar?
„Markaðslaunin eru þegar til
staðar. Launaþróunin í landinu fer
eftir því hvernig árar í efnahagslíf-
inu. Vinnuveitendur hafa stýrt
þessu einhliða en nú viljum við
hafa áhrif á það hvernig þetta dreif-
ist til okkar félagsmanna þannig að
sem fæstir verði efth. Auðvitað er
það svo þegar illa árar að menn
mega þakka fyrh ef laun standa í
stað og þau geta farið niður. Það er
reynsla undanfarinna áratuga og
kaupmáttur hefur hrapað niður þó
verkalýðshreyfingin hafi samið um
launahækkanir.
Getur ekki vinnuveitandi lagst á
einstaklinga og lækkað laun ein-
hliða?
„Þá verður vinnuveitandinn að
segja viðkomandi starfsmanni upp.
Öryggi launþegans felst í því að
ráðningarsamningur gildir. Vilji
vinnuveitandi einhliða breyta hon-
um þá gildir ekkert annað en upp-
sögn.“
Má ekki reikna með að launþeg-
ar sem þannig ná kjarabótum missi
ábatann þegar kreppir að?
„Við teljum að markaðslauna-
kerfið taki mið af getu atvinnulifs-
ins á hverjum tíma og fyrhbyggi
stökkbreytingar. Þá eru þau líklegri
til að tryggja stöðugri kjarabætur.“
Hvað viltu segja um þá sam-
þjöppun sem oróiö hefur í verslun-
inni. Er hún til góðs fyrir þittfólk?
„Þetta á að leiða til hagræðingar
sem gerir fyrirtækjum kleift að
greiða hærri laun. Þessi þróun er
alls staðar í heiminum og er að
mörgu leyti góð. Auðvitað þarf að
gæta þess að ekki verði einokun
með því að eitthvert eitt fyrirtæki
nái yfirburðastöðu á markaðnum.
Hvaö meö neytendur?
„Það er mjög þýðingarmikið að
neytendur séu á hverjum tíma vak-
andi yfir verðþróun. VR og fleiri
verkalýðsfélög hafa stutt Neytenda-
samtökin til að halda uppi vhkri
verðkönnun. DV hefur verið mjög
duglegt við þetta og þetta heldur
neytendum vakandi auk þess að
veita fyrirtækjum aðhald."
Þú ert yfirlýstur sjálfstœðismaó-
ur. Háir það þér ekkert í barátt-
unni?
„Nei. Stærsta fylgið innan verka-
lýðshreyfingarinnar er við Sjálf-
stæðisflokkinn þannig að ekki þarf
að koma á óvart þó einn og einn
sjálfstæðismaður veljist til forystu."
Verður þú aldrei einmana innan
um alla vinstrimennina í foryst-
unni?
„Nei, það hressir bara upp á til-
veruna. Sannleikurinn er sá að það
hefur orðið mikil og jákvæð breyt-
ing innan verkalýðshreyflngarinnar
frá því að hörð flokkspólítísk bar-
átta var. Nú taka menn faglega á
1 feynir Traustason
málum og hagsmunir félagsmanna
eru í öndvegi."
Hvaö flnnst þér þá um nýlega
inngöngu ASÍ í SAMAK þar sem
innan borðs eru sósíaldemókratar á
Norðurlöndum auk verkalýösfélaga?
„Ég vara mjög við því ef ASÍ ætlar
að fara að vinna flokkspólítískt. Það
er þvert á þá stefnu sem verið hefur á
undanförnum árum. Fólkið í verka-
lýðshreyfmgunni tilheyrir ýmsum
flokkum og það er veikleikamerki ef
hreyfmgin límir sig á einn flokk."
Fer saman þátttaka í stjórnmál-
um og forysta í verkalýðsmálum?
„Tvímælalaust. Það er ekki að-
eins samið um kaup og kjör við
samningaborð. Það er verið að taka
ákvarðanir sem snerta fólk á Al-
þingi og í sveitarstjómum. Það er af
hinu góða að verkalýðshreyfingin
eigi talsmenn á þessum stöðum.“
Hafa aldrei komið þeir tímar
sem þú hefur sem borgarfulltrúi eða
varaþingmaður þurft aó gera upp
við þig hvort þú eigir að taka af-
stöðu meö flokknum eðafélaginu?
„Nei, aldrei. Ég hef stundum
þurft að taka afstöðu gegn því sem
Sjálfstæðisflokkurinn sem slíkur
hefur talið bestu ákvörðunina.
Hagsmunir minna félagsmanna
hafa ævinlega ráðið en það hefur
aldrei skorist í odda við forystu
flokksins vegna þessa.“
Hvenœr hyggst þú hœtta semfor-
maður VR?
„Ég hef geflð kost á mér til for-
manns næstu stjórnar sem sitja
mun i tvö ár.“
Ertu fylgjandi beinu lýðrœði inn-
an lífeyrissjóðanna og aó sjóöfélag-
arfái sjálfir aó greiöa atkvœði um
störf og stefnu þeirra?
„Það er svokallað fulltrúalýðræði
innan sjóðanna. Það er erfitt að
koma því við aö allir sjóðfélagar
eigi að kjósa stjórn en slíkt er
óframkvæmanlegt. í okkar sjóði em
80 þúsund félagar vítt og breitt um
landið sem eiga mismunandi háar
inneignh. Það þyrfti væntanlega að
skipta þessu upp þannig að sá sem
greitt hefur 10 milljónh í sjóðinn
hafi meha vægi en sá sem borgað
hefur þúsund krónur. Slík útfærsla
er vart framkvæmanleg."
Er ekki óeðlilegt aó atvinnurek-
endur skiptu völdum til helminga
með verkalýösleiótogum?
„Menn þurfa að horfa á þetta í
sögulegu samhengi. Þegar samið
var um Lífeyrissjóð verslunar-
manna 1955 var niðurstaðan sú að
báðh aðilar ættu aðild að stjóm-
inni. Það hefur ríkt mikil sátt um
reksturinn sem er mikilvægt.
Vinnuveitendur hafa hvergi sýnt
tilhneigingu til yfirgangs."
Finnst þér ríkisstjórnin hafa náð
vióunandi árangri í ríkisfjármál-
um?
„Viðskiptahallinn er ískyggilegur
og mikið áhyggjuefni. Hins vegar
hefur ríkisstjómin greitt niður er-
lend lán og skilað afgangi á fjárlög-
um. Það er mjög brýnt að taka á
málum. Verðbólgan er komin úr
böndunum og brýnt að ná á henni
tökum. Verðbólgan er mesta
áhyggjuefni launþega við upphaf
samningagerðar. Það eru miklar
verðhækkanir í gangi á innfluttum
vörum á sama tíma og sú vara
lækkar erlendis. Þama er eitthvað
að gerast og ljóst að fleiri þurfa að
taka í taumana en rikisvaldið."
Hvaðflnnst þér um frammistöóu
Davíðs Oddssonar á valdatíó hans?
„Ég hef lengi þekkt Davíð mjög
vel efth að hafa unnið með honum
fyrst í borgarstjórn. Hann er einn
mesti stjómmálaskörungur sem ís-
lendingar hafa átt. Það er gæfa þjóð-
arinnar að hafa notið krafta hans.“
Nú ert þú búinn að standa í
fremstu víglínu verkalýðsbaráttunn-
ar um áratugi. Hvaða máli ertu
stoltastur af?
„Með markaðslaunum bijótum
við blað í samningagerð. Það er mitt
stærsta mál.“
Og hvar liggja stœrstu mistökin
áferlinum?
„Þau eru eflaust víða og það er
auðvelt að verða vitur eftir á. Ég tel
að engin stórslys hafi orðið.“
Hver eru mestu vonbrigóin?
„Þau eru að við skulum í áratugi
hafa setið eftir með launataxta sem
enginn getur lifað af. Við höfum
verið knúnh til þeirra samninga af
samtökum vinnuveitenda en síðan
kemur á daginn að almennir at-
vinnurekendur taka ekkert mark á
þessu og greiða helmingi hærri
laun.“