Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 Tilboðsverð Utlönd á fjölda bifreiða Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E j v/Reykjanesbraut. Kopavogi, sími 567-1800 —... Löggild bílasala VW Polo 1,01 '99, 5 g„ ek. 4 þús. km. Tilboðsverð 890 þús. MMC Lancer stw 4x4 '99, 5 g„ ek. 16 þús. km, dökkblár, rafdr. rúður, fjarst. samlæs., ABS o.fl. V. 1.630 þús. Toyota RAV-4 '96, ssk., ek. 42 þús. km, rauður, 31Í álf„ brettakantar, spoil- er, rafdr. rúður, samlæs. o.fl. V. 1.680 þús. Toyota Corolla 1300 XLi st. '94, 5 g„ ek. 81 þús. km. V. 810 þús. Tilboðsverð 710 þús. Toyota Luna Liftback 1600 '99, ek. 6 þús. km, ssk., rafdr. rúður, samlæs., cd. Vill skipti á 400-600 þús. kr. bíll. V. 1.490 þús. Einnig: Toyota Corolla Luna sedan '98, 5 g„ ek. 23 þús. km, rafdr. rúður, saml. o.fl. Bilalán ca 800 þús. V. 1.190 þús. Nissan Almera GX '97, 5 g„ ek. 58 þús. km, samlæs., rafdr. speglar o.fl. V. 880 þús. Einnig: Nissan Almera SCX sedan '97, 5 g„ grænn, ek. 71 þús. km, rafdr. rúður, samlæs. o.fl. V. 950 þús. Daewoo Lanos SX '98, rauður, ek. 12 þús. km, 5 g„ rafdr. rúður, þjófav. (bílalán ca 930 þús.). V. 1.090 þús. Toyota HiAce turbo dísil 4x4 '98, rauður, 16", álfelgur, krókuro.fl. V. 2.400 þús. Daihatsu Applause LTD '98, ssk„ ek. 13 þús. km, vel búinn. V. 1.320 þús. Tilboðsverð 1.090 þús. Ath. skipti. Opel Corsa '98, ek. 55 þús. km, 5 g„ rauður, góður og sparneytinn bíll. Gott bílalán getur fylgt. V. 790 þús. MMC L-200 d. cab dísil '93, ek. 147 þús. km, 5 g„ rauður, krókur, bret- takantar o.fl. V. 890 þús. Einnig: Nissan d. cab '96 m/húsi, disil, 5 g„ ek. 185 þús. km, hvítur, álf„ stigbretti, 31" o.fl. Bilalán 1.100 þús. V. 1.350 þús. MMC Eclipse GS '96, grænn, ssk„ ek. 60 þús. km, rafdr. rúður, samlæs., CD o.fl. V, 1.590 þús. Staðgrtilboð. Bílalán 1.030 þús. V. 1.190 þús. Einnig: MMC Eclipse GSX túrbó 4x4 '95, 5 g„ rauður, ek. 80 þús. km, leður, topplúga, álf. o.fl. V. 1.690 þús. Tilboð 1.400 þús. Nissan Sunny stw 4x4 SLX '93, hvítur, 5 g„ ek. 97 þús. km, rafdr. rúður, hiti í sætum, samlæs. o.fl. V. 670 þús. Toyota Carina 1,8 XLi '97, hvítur, 5 g„ ek. 67 þús. km, sumar- og vetrardekk, samlæs., rafdr. rúður o.fl. V. 1.150 þús. Tilboðsverð 1.040 Primera station dísil '92, 5 g„ ek. 256 þús. km, samlæs., hiti í sætum, álf. o.fl. V. 620 þús. Tilboðsverð 490 þús. Nissan Micra LSi '97, hvitur, 5 g„ ek. 35 þús. km. V. 830 þús„ tilboðsbíll. Einnig: Peugeot 106 '92, rauður, ek. 115 þús. km, CD, góður og spar- neytinn. Tilboð 325 þús. Opel Astra GL station '96, grænn, 5 g„ ek. 65 þús. km, samlæs. Einn eigandi. V. 830 þús. Tiiboð 740 þús. Toyota d. cab '95, rauður, 5 g„ ek. 47 þús. km. V. 1.450 þús. Tilboðsverð 1.320 þús. Cherokee Grand Limited V8 '97, silfurgr., ssk„ ek. 38 þús. km, álf„ ieðurinnr., toppl. o.fl. Einn m/öliu. Stórglæsilegur bíll. V. 3.300 þús. Einnig: Grand Cherokee Laredo, 4,0 I, '96, ek. 88 þús. km, rafdr. rúður, saml., álf„ ssk„ aksturstölva o.fl. Bllalán 1.300 þús. V. 2750 þús. Tilboð 2.490 þús. Forkosningar í Iowa: Bush og Gore sigurvegarar A1 Gore, varaforseti Bandaríkj- anna, og George Bush, ríkisstjóri í Texas, sigruðu keppi- nauta sína í forkosning- unum í Iowa í gær- kvöld. Gore, sem keppir að þvi að verða forseta- efni demókrata, sigraði Bill Bradley, fyrrver- andi öldungadeildar- þingmann, með 63 pró- sentum atkvæða á móti 35 prósentum. Bill Clinton Bandaríkjafor- seti hringdi í Gore í gærkvöld til að óska honum til hamingju með sigurinn. Forsetinn hyggst gefa Gore gott orð í stefnuræðu sinni síðar í vikunni. Stjórnmálafræðing- ar sögðu að úrslitanna í Iowa yrði minnst sem atburðarins þegar Gore tókst að komast úr pólitiskum skugga Clintons. Bush, sem vill verða forsetaefni repúblikana, hlaut flest atkvæði þeirra sex sem repúblikanar kusu um eða 41 prósent. Útgefandinn Steve Forbes hlaut annað sæti með 30 prósent atkvæða. Er það miklu betri árangur en fylgiskannanir höfðu gefið í skyn. Útvarps- þáttastjórnandinn Alan Keyes varð þriðji með 14 prósent atkvæða en öldungadeildarþingmað- urinn John McCain, sem ekki háði kosninga- baráttu í Iowa, varð fjórði með 5 prósent at- kvæða. Núna eru allir fram- bjóðendurnir komnir til New Hampshire þar sem fyrstu alvöru for- kosningarnar verða haldnar 1. febrúar. Úr- slitin þar eru talin verða til marks um hvernig ganga muni í sjálfum forsetakosningunum. Erfiðir dagar eru fram undan hjá frambjóðendun- um. Þeir þurfa að taka i hendur eins margra kjósenda og þeir hafa þrek til og faðma mörg börn auk þess sem þeir þurfa að halda margar kosningaræður. Gore fagnar sigri í gær- kvöld. Símamynd Reuter Hun Sen, forsætisráðherra Kambódíu, brá sér á fílsbak í morgun í tilefni þess aö fyrsti dýragarðurinn í landinu var opnaður í Phnom Tamao, um þrjá- tíu kílómetra suður af höfuðborginni Phnom Penh. Leiðtogar kristilegra demókrata: Láta Kohl eiga sig af ótta við klofning CDU Leiðtogar kristilegra demókrata í Þýskalandi (CDU) hafa horfið frá því að höfða mál á hendur Helmut Kohl, fyrrum kanslara, og þvinga hann þannig til að greina frá vit- neskju sinni um ólögleg fjárframlög til flokksins. Leiðtogamir óttast að flokkurinn geti hreinlega klofnað ef hart verður tekið á gamla foringjan- um. Þess í stað ætla leiðtogar CDU að sauma að Horst Weyrauch, endur- skoðanda og skattaráðgjafa, sem grunaður er um að hafa séð um leynisjóðina sem ólöglegu greiðsl- urnar fóru inn á. Ákvörðun um að þjarma að Weyrauch, sem var náinn sam- starfsmaður Kohls, var tekin eftir að endurskoðendur fundu að minnsta kosti rúmar fjögur hundruð milljónir króna á leyni- reikningum sem ekki er hægt að gera grein fyrir. Kohl hefur til þessa harðneitað að skýra frá því hverjir greiddu fé inn á leynireikninga flokksins á sextán ára valdaferli hans. Lög sem Kohl mælti sjálfur fyrir á sinum tíma kveöa hins vegar svo á að reikning- ar stjórnmálaflokkanna eigi að vera opnir. Rannsóknarnefnd þýska þingsins ákvað í gær að auka umfang rann- sóknar sinnar og kanna hvort eitt- hvað væri hæft í staðhæfingum um að Francois Mitterrand, fyrrum Frakklandsforseti, hefði fyrirskipað franska ríkisolíufélaginu Elf Aquitaine að greiða stórfé í kosn- ingasjóði kristilegar demókrata fyr- ir kosningarnar 1994. Stuttar fréttir dv Gíslar frelsaðir Sérsveitir taílenska hersins frelsuðu sjö hundruð gísla sem skæruliðaflokkur frá Burma hélt fóngnum á sjúkrahúsi. Að minnsta kosti níu skæruliðar féllu. Þeir voru félagar í samtökum sem lúta stjórn 12 ára tvíbura. Hittu ekki Elian Ömmur Elians Gonzalez, kúbverska drengsins sem var bjarg- að undan strönd- um Flórída í nóv- ember, héldu burt frá Miami í nótt, án þess að hafa fengið að hitta drenginn. Ömm- urnar héldu til Washington þar sem þær munu hitta stjómmála- menn. Deilan um Elian litía er orð- in að heitu milliríkjamáli. Faðir drengsins vill fá hann til Kúbu en ættingjar i Bandaríkjunum vilja halda í hann. Vopn frá Rússum „Utanríkisráðherra" Tsjetsjeníu sagði í gær að uppreisnarmenn múslíma í lýðveldinu fengju öO vopn sín frá Rússum. Ýmist dauð- um hermönnum eða þeir keyptu þau af einstaklingum eða hetíu her- fylkjunum. Meira mannfall Tveir áhrifamestu fjölmiðlar Rússlands, fréttastofan Interfax og sjónvarpsstöðin NTV, sögðu í gær að mannfaO í liði Rússa í Tsjetjeníu væri meira á nýbyrjuðu ári en yfir- völd vOdu viðurkenna. TW og EMI í eina sæng Tónlistardeild bandaríska fjöl- miðarisans Time Warner og breska hljómplötufyrirtækið EMI ætla að sameinast og mynda þannig stærsta tónlistarfyrirtæki heimsins. Serbar og lýðrædi Madeleine Albright, utanrikisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að bandarísk stjóm- völd ættu ekki í deOu við serbnesku þjóðina sem ætti það skilið að fá að búa við lýðræðis- legt stjómarfar. Al- bright lét orð um þetta faOa við frétta- menn hjá Sameinuðu þjóðunum. Vilja nýja skoðun Sex mannréttindasamtök ætla að reyna að fá breskan dómstól tO að úrskurða að endurskoða beri lækn- isskoðun á Augusto Pinochet, fyrr- um harðstjóra í ChOe. Niðurstaða hennar var sú að Pinochet væri of heOsuveiO tO aö koma fyrir rétt. Barnsfeður í dagsljósið Nýtt frumvarp, sem danska stjóm- in leggur brátt fram, getur neytt ein- stæðar mæður tO að greina frá bólfé- lögum sínum um það leyti sem getn- aður varö. Neiti mæðurnar eiga þær fangelsisvist á hættu. Frumvarpið hefur vakið hörð viðbrögð. Magaveira í mjólk Magaveira, sem veldur niður- gangi og slæmum verkjum, hefur fundist í gerOsneyddri mjólk í Bret- landi. Veiran getur einnig valdið magasári og átt þátt í myndun æxla. Situr sem fastast Ezer Weizman, forseti ísraels, settist í heiðurssæti sitt á ísraelska þinginu í gær þrátt fyrir kröfur rnn að hann dragi sig í hlé vegna rannsóknar á fjármálahneyksli sem hann tengist. Weizman, sem tók viö hundruðum þús- unda doOara frá frönskum kaupsýslumanni, kveðst ekki hafa gert neitt rangt. Konur á suðurpólinn Fimm breskar konur komust í gær á suðurpólinn eftir 1110 kOó- metra göngu um suðurskautið. 28 stiga frost var á pólnum í gær. Ferð- in tók 62 daga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.