Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Síða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
Spurningin
Hvernig finnst þér
Kastljósið?
Harpa Haraldsdóttir sölumaður:
Ég horfi bara á Tomma og Jenna.
Pálmi Stefánsson verslimarmað-
ur: Fínt, það sem ég hef séð af því.
Ragnheiður Aradóttir arkitekt:
Ég sé það mjög sjaldan.
Rósa Bjarnadóttir nemi: Allt í
lagi, þau eru einum of áköf.
Árni Sæmundsson.verkfræðing-
ur: Mjög gott.
Modi Thorsson skylmingamaður:
Gott.
Lesendur______
Samræmum
dagsetningar
Óhæfa er að stofnanir eins og Ríkissjónvarpiö (stillimynd) og ríkislögreglu-
stjóri (ökuskírteini) skulu þverbrjóta gildandi þjóðarstaðla um rithátt dagsetn-
inga, segir m.a. í bréfinu. Fyrrv. dómsmálaráðherra kynnir nýtt ökuskírteini.
St. í. skrifar:
Carl J. Eiriksson rafmagnsverk-
fræðingur á lof skilið fyrir áskorun
sína í DV-grein á þrettándanum árið
2000 um að samræma tímatalið. Þann
dag má líka tákna svo einhlítt sé með
rithættinum fimmtudaginn í 11. viku
vetrar árið 2000, eða 6. janúar 2000,
eða 2000-01-06, eða þá 2000-W01-4.
Rithátturinn 6.1.2000, eða
06.01.2000, svo ekki sé minnst á
06/01/00 eða jafnvel 06-01-00 eða þá
06-01-2000, getur hins vegar hæglega
misskilist. Víðast á íslandi er átt við
6. janúar ‘00. Innan girðingar á Mið-
nesheiði hins vegar tákna þessar
dagsetningar 1. júní ‘00. Bandaríkja-
menn nota nefnilega röðina mánuð-
ur, dagur, ár. Skiltákn eru ýmiss
konar, / ,. eða -.
Komi þessi dagsetning fyrir í
ensku ritmáli er útilokað að sjá á dag-
setningunni sjálfri hvort átt er við 6.
janúar ‘00 eða 1. júní ‘00. En tveimur
fyrstu tölustöfum úr ártali ætti helst
ekki að sleppa. Ef við rekumst á gam-
alt bréf sem er dagsett 6. janúar ‘00
sjáum við alls ekki á dagsetningunni
frá hvaða aldamótaári það er.
Lausn Carls á vandanum er hug-
vitssamleg en hætt er við að erfitt
reynist að vinna henni fylgi. 1 hart-
nær mannsaldur hefur verið í gildi
íslenskur staðall, fyrst ÍST 8 (gekk í
gildi 1974-05-01) og síðan ÍST EN
28601 (gildistaka 1993-07-01), sem
kveður svo á, að séu dagsetningar rit-
aðar með tölustöfum skuli röðin vera
ár-mánuður-dagur og bandstrik á
milli. í forstaðli FS 130:1997 er að
visu talin íslensk hefð að nota röðina
dagur, mánuður, ár en þá ber að
skilja tölurnar að með punkti.
Hið algera öngþveiti sem ríkir
hér um rithátt dagsetninga má sjálf-
sagt kenna tölvusmiðum en ekki
síður dugleysi stjórnvalda við að
kynna þær reglur sem færðar eru í
staðla. Óhæfa er að stofnanir eins
og Ríkissjónvarpið (stillimynd) og
ríkislögreglustjóri (ökuskírteini)
skulu þverbrjóta gildandi þjóðar-
staðla um rithátt dagsetninga.
Staðallinn ÍST EN 28601 og sam-
svarandi Evrópustaðall EN 28601 og
alþjóðlegur staðall ISO 8601, taka
einnig til þess hvernig tölusetja
skuli vikur og vikudaga. Runan
2000-W01-4 táknar: fjórði dagur 1.
viku ársins 2000. Mánudagur telst
fyrsti dagur vikunnar, fimmtudagur
er í miöri viku, áramótavikan telst
til þess ársins sem fimmtudagurinn
tilheyrir. Þetta vikutal er mikið not-
að í viðskiptum og verktakastarf-
semi. Eimskipafélagið sem starfar á
alþjóðavettvangi gefur árum saman
út veglegt dagatal þar sem vikur eru
kirfilega tölusettar - en allir sunnu-
dagar settir í ranga viku! Flugleiða-
menn mega þó eiga það að þeir nota
rétta töluröð á vikudögum í milli-
landaáætlun sinni, þótt flugfélagið
sé enn þá að keppa um athygli við
sendibílastöðvar með rithætti síma-
númers: 50 50 710 í stað 505 0710.
Staðal ÍST EN 28601 má nálgast hjá
Staðlaráði íslands, www.stri.is.
Peningabrennsla - al-
menningur borgar
Gísli Ólafsson hringdi:
Mikið get ég verið sammála leið-
aranum í DV í dag (21. jan.) þar sem
fjallað er um hina vonlausu pen-
ingabrennslu sem felst í því að
Byggðastofnun heldur áfram - og
nú undir nýju ráðuneyti - að styðja
vonlausa baráttu gegn flóttanum af
landsbyggðinni. Nýr formaður
Byggðastofnunar, framsóknarþing-
maðurinn Kristinn H. Gunnarsson,
ætlar ekki upp úr hjólfarinu þar
sem stofnunin hefur setið fost und-
anfarin ár. Það á enn að reyna að
koma því inn hjá fólki, að uppbygg-
ing ákveðinna svæða landsins geri
þau samkeppnishæf við þéttbýlis-
svæðið við Reykjavík. Hann vill
þóknast dreifbýlisfólkinu við ysta
haf með því að lofa borun i gegnum
fjöll, og áframhaldandi innspýtingu
fjár úr vösum skattborgaranna.
Þetta gengur einfaldlega ekki leng-
ur. - Það verður að fara að koma til
móts við meirihluta landsmanna
sem vill þjappa sér saman í þéttbýl-
inu suðvestanlands eins og segir í
DV. Hvenær ætla ráðamenn að
skilja þetta?
Fortíðarfjötrar Samfylkingarinnar
- mega ekki veikja stöðu Jóhönnu
Eiríkur Sigurðsson skrifar:
Samkvæmt fréttum úr pólitíkinni
sýnist manni að skipulagt val full-
trúa á stofnfund Samfylkingarinnar
kunni að leiða til þess að hugmynd-
ir Jóhönnu Sigurðardóttur alþingis-
manns um að óháðir fái aðgang að
fundinum verði látnar víkja. Það er
ekki til framdráttar nýjum flokki
sem rísa á úr Samfylkingunni. Eins
og mörgum þeim sem gáfu Samfylk-
ingunni atkvæði sitt í kosningunum
þótti mér fullvíst, að Þjóðvaki Jó-
hönnu og almennt persónufylgi við
hana myndi fá að njóta sín í hinni
lýðræðislegu fjöldahreyfingu sem
fylkingin átti að standa fyrir.
Ef svo fer, að þeir sem andæfa því
þjónusta
allan sólarhringinn
ént mynd af
br rnea bréfum sínum sem
: verða á lesendasíðu
Guðmundur Árni Stefánsson ásamt Jóhönnu væri
vænlegt og sigurstranglegt „teymi“ ef sletta má
síðusta orðaleppnum í framboðsmálum, segir í lok
bréfs Eiríks.
að fylgi Jóhönnu sem stjórnmála-
manns fái inni á stofnfundinum
væntanlega, t. d. með því að skerða
þátttökufjölda verulega og horfa
e.t.v. einungis til gömlu flokkana,
Alþýðubandalags og Alþýðuflokks,
þá er brautargengi hins nýja flokks
í verulegri hættu. Fjöldahreyfing
þessi sem einn flokkur (stór eða
smár) verður að brjóta að fullu þá
fortíðaríjötra sem
Samfylkingin hefur
verið bundin við
allt til þessa, líkt og
Jóhanna segir sjálf.
Mín skoðun er sú,
að Jóhanna þurfi
að nota alla sína
stjómmálalegu
kænsku til að ná
því markmiði að
verða leiðandi í
hinum nýju sam-
tökum. Hún á víð-
tækan stuðning,
m.a. hjá stórum
hluta launþega í
landinu og hún
verður þá að láta
hart mæta hörðu, verði hún vör við
andóf eða laumuspil í vali fulltrúa á
stofnfund Samfylkingarinnar. -
Samspil með einum og sérstökum
aðila er vænlegt til að vinna sér
stöðu í þessu efni. Guðmundur Árni
Stefánsson ásamt Jóhönnu væri
vænlegt og sigurstranglegt „teymi“
ef sletta má síðusta orðaleppnum í
framboðsmálum.
DV
Launahækkun
í fiskvinnslu
Þórdis Guðjónsdóttir skrifar:
Það er rétt sem fram hefur
komið að laun á almennum
markaði hækkuðu ekkert á sl.
ári umfram verðbólguna á því
ári og því hefur kaupmáttur alls
ekkert aukist. Það á hins vegar
ekki við um opinbera starfs-
menn sem hækkuðu verulega í
öllum greinum. Það þýðir því lít-
ið fyrir formann fiskvinnslunn-
ar að tala eins og hann talaði i
morgunútvarpi Rásar 2 sl. fóstu-
dag, en þar sagði hann að laun
fiskvinnslufólks væru fyllilega
sambærileg við aðrar stéttir á
vinnumarkaði. Þetta er auðvitað
flarri lagi og hann og aðrir sem
svona tala skulu ekki halda að
gefið verði eftir baráttulaust að
ná þeirri launahækkun t.d. í
fiskvinnslunni sem runnið hefur
til opinberra starfsmanna. Það
verður ekki liðið.
Prestar geta
líka verið
hættulegir
Ólafur Þórðarson skrifar:
Óhugnanlegt er að lesa um
kæru konu einnar um líkams-
árás prests á hana í sumarhúsi í
Borgarfirði. Að prestur skuli
vera ákærður fyrir að sparka ít-
rekað í liggjandi konu og lemja
höfði hennar í gólfið er með ólík-
indum, og hér er um alveg nýjan
flöt að ræða í sögu ofbeldisverka
á þessum síðustu og verstu tím-
um misþynninga og árásar-
hneigðar íslendinga. Og svo var
fólk sem ekki þekkti til aö undr-
ast kvartanir sóknarbarna þessa
prests í sóknum hans! Þetta sýn-
ir manni að ekki er hægt að for-
taka að prestar, líkt og aðrir
þjóðfélagsþegnar, geti verið
hættulegir ef sá gállinn er á
þeim. Og því finnst mér að harð-
ar verði að refsa hinum andlegu
leiðtogum en öðrum.
Hvað varð
um Reykholt?
Ásta skrifar:
Ég er búin að vera ansi lengi
að reyna að finna hvað varð um
bókaforlagið Reykholt. Það gaf
út ísfólkið og fleiri bækur eftir
Margit Sandemo. Ég þekki
marga sem voru áskrifendur að
Galdrameistaranum eftir
Sandemo og þeir hafa ekki feng-
iö bók í eina 6-8 mánuði. Þeir
hafa heldur ekki fengið neins
konar tilkynningu um að Reyk-
holt hafi flutt eða hætt starfsemi.
En hvar er þá hægt aö fá bæk-
urnar, mér er spurn? - Ef ein-
hver er þess umkominn að Upp-
lýsa eitthvað um málið þá láti
hann endilega vita, kannski á
þessum sama vettvangi. - Takk
fyrir hjálpina .
Stutt í spun-
ann, breytt til
batnaðar
Freysteinn hringdi:
í þættinum Stutt í spunann,
sem sýndur hefur verið í vetur,
hefur verið fátt um fina drætti
og þátturinn nánast svipur hjá
sjón frá því í fyrra. Þátturinn
siðasta laugardag, 15. janúar, var
þó gjörbreyttur og mikið til batn-
aðar. Þama var fjölmenni á ferð
og uppbyggingin var sniðug og
lífleg. Að láta þekkt tónlistarfólk
1 dægurlagaheiminum keppa um
að flnna út eitt og annað í lögum
fyrri ára og áratuga kom vel út
og gerði þáttinn líflegan og
hvatti áhorfendur til að taka þátt
í að geta sér til um svörin jafn-
framt. Það er eitthvað í þessa átt
sem sjónvarpsþættir höfða til
áhorfenda. Þessu mætti vel
halda áfram í þáttunum án þess
að þeir létu á sjá.