Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 iz m ■ w wnning 11 í heljargreipum Ungversk-ættaði píanóleikarinn Miklós Dalmay vakti fyrst verulega athygli hér á landi þegar hann sigraði í Tónvakakeppni Ríkisútvarpsins árið 1996. Orðinn þekktur af góðu fyrir löngu var því ekkert undrunarefni að hann trekkti að fullt hús eftirvæntingar- fullra áheyrenda á tónleika sína í Salnum á sunnudagskvöld. Efnisskráin var líka spenn- andi, samansett af verkum eftir tvö af höfuð- skáldum rómantískrar píanótónlistar, Chop- in og Rachmaninov. Chopin samdi 24 prelúdíur sem fengu ópus- númerið 28. Þar fá meistaralegar laglinur hans notið sín í vef sem oft er einfaldur og gegnsær og áhrifin eru ólýsanleg. Þannig var það með prelúdíumar sex á efnisskrá tónleik- anna. Sú fyrsta í h moll, viðkvæm og ein- manaleg, leikin af algerri ró og yflrvegun; sömuleiðis sú í A dúr sem fylgdi á eftir, íhug- ul í óvenjuhægu tempói, tvær næstu í cís moll og H dúr flugu framhjá ömggar og fínar. Des dúr prelúdían, sem er sú lengsta af þeim, var leikin af djúpu innsæi og sömu sögu er að segja af þeirri í E dúr sem fylgdi á eftir. Tónlist Amdís Björk Ásgeirsdóttir Tónn Miklósar er áberandi mjúkur og fal- legur, aldrei harður, og tæknin afbragðsfin eins og hann sýndi í sónötunni í b moll ópus 35. Þessi sónata sem Chopin samdi sumarið 1839 er sennilega best þekkt fyrir þriðja þátt sinn, hinn fræga sorgarmars sem hafði legið ókláraður frá því tveimur árum áður. Heilsu Chopins hafði hrakað þennan vetur og vin- kona hans, George Sand, lýsir í bréfum áhyggjum sínum af sívaxandi þunglyndi hans og endurómar það vissulega í þessu verki. Miklós lék verkið af miklum þunga og hélt snilldarlega utan um það. 1. þátturinn ákafur, þó aldrei yfirkeyrður, kraftmikill og flottur, skertsóþátturinn snarpur og hittnin ágæt og millikafli hans dúnmjúkur og fallegur. Sorg- armarsinn var leikinn með áhrifamikilli dynamík og drama og hinn undurfagri milli- kafli hans sérlega vel leikinn og naut sín vel Miklós Dalmay: Leikur hans var í einu orði sagt brilljant. DV-mynd E.ÓI. í einfaldleika sínum. Hinn draugalegi loka- þáttur var eins og vindgustur leikinn af al- gjöru öryggi. Óneitanlega hafði Chopin mikil áhrif á önnur tónskáld með verkum sínum og það langt fram á 20 öld. Má þar nefna meistarana Fauré og Debussy, Scriabin og Rachmaninov. Sá síðastnefndi samdi likt og Chopin 24 prelúdíur; sú fyrsta þeirra, ópus 3 nr. 2, sem hann samdi þegar hann var 19 ára, varð til þess að koma honum á blað. Þessi prelúdía og einnig sú í h moll ópus 32 nr. 10 voru á efnis- skrá Miklósar eftir hlé og voru þær báðar feikivel leiknar af miklum tilflnningaþunga. Sónata Rachmaninovs nr. 2 í b moll ópus 36 er afar lýsandi fyrir stíl hans. Afgerandi safa- ríkir hljómar, þykkur vefur og svifandi lag- línur með nostalgískri og tilfinningaþrung- inni stemningu, svo ekki sé talað um notkun hans á hljóðfærinu sem hann hafði svo full- komið vald á. Áhrif annarra verka sem hann var með í kollinum á svipuðum tíma eru þar líka áberandi en þessi sónata var samin á frjóasta tímabili hans, árið 1913, og endur- skoðuð 1931. Flott verk sem á alveg skilið að heyrast oftar. Leikur Miklósar var i einu orði sagt brilljant og stóðst hann allar þær ofur- mannlegu kröfur sem gerðar eru til flytjand- ans. Túlkunin var í heild djúp og innihalds- rík og hélt manni í heljargreipum allt verkið í gegn. Þetta voru glæsilegir og eftirminnileg- ir tónleikar og vonandi þurfum við ekki að bíða allt of lengi eftir þeim næstu. Aldarafmæli rithöfundarins sem frábað sér nóbelsverðlaunin: Sandkorn í stækkunargleri Fjœrsí útí kvikasilfursbjarma hafauönar- innar rís pínulítið, einmana, blýgrátt land. Borið samanvið ógnarvíðerni þessa hafs virð- ist svona klettótt landkríli naumast umfangs- meira en sandkorniö á samkomuhúsgólfinu. Bregðum við hinsvegar á það stœkkunargleri verður sandkornið óðara heimur fyrir sig meó fjöll og dali, sund og firði og hús þarsem ör- smáar mannverur hírast. Meiraðsegja leynist þarna smálegt aldurhnigið þorp í heilu lagi með bryggjum, vöruskemmum, götum, stígum og snarbröttum troðningum, garðholum, torg- bleðlum og grafreitum. Þar er líka forn kirkja uppá hœóinni sem úr turni hennar má horfa yfir þökin í bænum og langt útá voldugt haf- ið. Glataðir snillingar. Þýðing Þorgeir Þorgeir- son (1984, bls. 13) Einn af risum norrænna bókmennta, Willi- am Heinesen, fæddist 15. janúar árið 1900 og er aldarafmælis hans nú minnst víða mn Norðurlönd. Hann var alhliða listamaður af guðs náð, teiknari og málari, tónlistarmaður og rithöfundur, hóf feril sinn 21 árs sem ljóð- skáld; en þekktastur er harm fyrir skáldsögur sínar og smásögur sem birta lesendum ein- stakt mannlíf og náttúru Færeyja, einkum frá þeim árum þegar hann var að alast þar upp. Heinesen hlaut Bókmenntaverðlaun Norð- urlandaráðs árið 1965 fyrir bók sína Det gode háb (Vonin blið, íslensk þýðing 1970, Elias Mar). Það bregður þó skugga á þann heiður að hann deildi verðlaununum með sænska rithöfundinum Olof Lagercrantz og er það í eina skiptið sem þessum verðlaunum hefur verið skipt á milli tveggja. Árum saman voru sögusagnir á kreiki um að hann myndi hljóta nóbelsverðlaunin, og þegar Svenska Dag- bladet nefndi hann meðal þeirra fjögurra rit- höfunda sem líklegastir væru til að fá verð- launin árið 1977 skrifaði Heinesen skáldinu Artur Lundkvist, meðlimi í Sænsku akadem- íunni, bréf þar sem hann frábað sér verðlaun- in. Rök hans voru þau að það jafnaðist á við bókmenntalegt réttarmorð að veita Færey- Færeyski sagnameistarinn William Heinesen. ingi sem skrifaði á dönsku alþjóðlega viður- kenningu af þessu tagi. Þremur árum seinna tók Heinesen orð sín aftur í bréfi til Sænsku akademíunnar og fékk þá sérstök norræn verðlaun akademíunnar eða „litla nóbelinn". Heinesen lést 9Í árs. . Ekki spámaður í sínu föðurlandi William Heinesen tók virkan þátt í fær- eysku listalífi, hannaði leikmyndir, stóð fyrir myndlistarsýningum og tónleikum og skrif- aði greinar í blöð og tímarit. Sem rithöfund- ur var hann hins vegar utangarðs í færeysku samfélagi og til dæmis voru bækur hans ekki lesnar í skólum. Færeyski bók- menntafræðingurinn Jógvan Isaksen telur ýmsar ástæður til þess, meðal annars þá að Heinesen var vinstrisinnaður og auðvitað heyrðust þær raddir eins og um kollega hans og nærri jafnaldra, Halldór Laxness, að hann hefði það markmið helst með verkum sínum að gera landa sína að athlægi um vfða veröld. Aðalástæðan var þó líklega sú að hann skrifaði á dönsku. En móð- ir hans var dönsk svo að danska var í raun og sann „móðurmál" hans þó að hann talaði auðvitað færeysku utan heimilisins. Bæk- ur hans hafa verið þýddar á fær- eysku, en þetta hefur gert Færey- ingum erfitt um vik að meta hann til fullnustu eða taka hann að hjarta sínu sem sinn eiginn höfund. William Heinesen hefur verið vel sinnt á íslensku eins og verð- ugt er. Margir ágætir þýðendur hafa snúið sögum hans á fs- lensku, meðal þeirra Hannes Sig- fússon og Úlfur Hjörvar, og kvik- mynd Ágústs Guðmundssonar, Dansinn, er byggð á einni smásögu hans. Fyrst og fremst eigum við þó Þorgeiri Þorgeirsyni að þakka hve veröld hans hefur orðið lifandi og að- gengileg á okkar tungu. Meðal stórvirkja Heinesens í þýðingu Þorgeirs má nefna skáld- sögurnar Turninn á heimsenda og Glataða snillinga sem eru skyldulesning allra bók- menntaáhugamanna. Þessi pistill hefst á upp- hafslínunum úr þýðingu Þorgeirs á Glötuðum snillingum þar sem Heinesen lýsir list sinni með eigin orðum betur en nokkur utanað- komandi gæti gert. í bókum sínum ber hann einmitt stækkunargler að sandkorninu í hafauðninni og uppgötvar þar iðandi líf með öllu sem því fylgir, þjáningu, sorgum, ástum og heitri gleði. Á afmælisdegi Mozarts Á fimmtudaginn eru 244 ár síðan Wolf- gang Amadeus Mozart fæddist, og við kyrrðarstund í Hallgríms- kirkju á hádegi þann dag verða af því tilefni fluttar fjórar kirkjusónötur eftir Mozart. Á eftir er boðið upp á léttar veitingar í safnaðar- sal kirkjunnar. Kirkjusónöturnar samdi Mozart fyrir tvær fiðluradd- ir, selló og orgel og voru þær notaðar í helgihaldi í Salzburg á árunum 1772-1780. Hver sónata er í einum þætti og var ætlað að brúa bilið á milli ritningar- lestranna í messunni. Flytjendur eru Lauf- ey Sigurðardóttir (á mynd) og Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðluleikarar, Bryndís Björg- vinsdóttir sellóleikari og Hörður Áskelsson orgelleikari. Allir eru velkomnir til kyrrð- arstundar á afmælisdegi Mozarts og aö sjálfsögðu er enginn aðgangseyrir. Perlan fær samastað Því var fagnað í Iðnó á sunnudaginn að leikhópurinn Perlan hefur nú fengið þar fastan samastað og verður framvegis með reglulegar sýningar þar. Perlan er virtur og víðkunnur leikhópur skipaður fullorðnu þroskaheftu fólki. Hann kom fyrst fram árið 1982 og hefur komið ótal sinnum fram siðan, meðal annars í sjónvarpi og á listahátíðum, og farið fjöl- margar leikferðir til útlanda. Hópurinn hefur hvarvetna vakið athygli fyrir hríf- andi einlægni í leik. Umsjónarmaður Perlunnar og listrænn leiðbeinandi er Sigríöur Eyþórsdóttir leik- kona og kennari en sérlegur verndari Perlunnar er Björk Guðmundsdóttir og mun hún stíga á svið með Perlunni á ár- inu. Sýningar Perlunnar í Iðnó í ár verða í maí og september og eru þær hluti af dag- skrá Reykjavíkur 2000. Fundur um Harry Potter Á fimmtudagskvöldið ki. 20 verður hald- ið sérstakt bókakaffi á vegum IBBY og Sí- ung (félags barna- og unglinga- bókahöfunda í Rithöfundasam- bandi íslands) í Súfistanum, Laugavegi 18, þar sem viðfangs- efnið er meðal annars útgáfuæv- intýrið um Harry Potter - töfra- manninn töfrandi sem veldur , því að böm um allan heim kasta tölvuleikjunum út í horn, slökkva á sjónvarpinu og grúfa sig yfir bækumar. Þar flytur Andri Snær Magna- son rithöfundur erindið „Leitin aö týnda markhópnum. Hugleiðing um unglinga- bækur og þá sem lesa þær ekki.“ Anna Heiða Pálsdóttir, sem um þessar mundir leggur stund á doktorsnám í Bretlandi í bamabókmenntum, flytur fyrirlestur um viðtökur á Harry Potter bókunum og fjall- ar um þær efnislega. Loks kemur fulltrúi frá bókaútgáfunni Bjarti sem gefúr Potter út hjá okkur, og reifar þessa merkilegu út- gáfusögu, allt frá atvinnulausu, einstæðu móðurinni yfir í heimsdreifingu og kvik- myndasamninga. Bækur um sjálfsvíg í tilefni af umræðunni í samfélaginu nú um þunglyndi og sjálfsvíg vill Fræðslu- og þjónustudeild kirkjunnar vekja athygli á tveimur nýlegum bókum sem geta komið að gagni. „Um sjálfsvíg" kom út 1997 á veg- um Þjóðmálanefhdar kirkjunnar. Þar fjalla dr. Pétur Pétursson, sr. Árni Pálsson og sr. Jón Bjarman um trúarlega og siðferðislega afstöðu til sjálfsvíga og hlutverk kirkjunn- ar gagnvart sjálfsvígum. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson fjallar um sjálfsvíg í ljósi fimmta boðorðsins og sr. Sigurður Pálsson ritar hvatningu til skólayfirvalda. Þá er í bókinni erindi sem Guðrún Eggertsdóttir djákni flutti í apríl 1997 sem nefnist „Sjálfs- vígL.hvað svo?“ Guðrún hefur einnig gefið út sjálfstæða bók með þessum sama titli. Þar fjallar hún um líf ættingja þess sem fallið hefur fyrir eigin hendi og veltir fyrir sér hvað sé til ráða fyrir þá sem eru í þeirri erfiðu og oft vonlausu aðstöðu. Þá er einnig rætt um í hverju stuðningur vina og ættinga getur falist. Bækurnar fást í flestum bókabúðum en „Sjálfsvíg!...hvað svo?“ má einnig panta í síma 898 5868. Umsjón

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.