Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2000, Qupperneq 16
Bland í noka
David Moyes, knattspymustjóri hjá
Preston, ætlar að reyna fresta fór
Bjarka Gunnlaugssonar með ís-
lenska landsliðinu til Spánar um
einn sólarhring svo hann geti verið
með liðinu í bikarleiknum gegn Ev-
erton á laugardaginn.
Norski knattspymumaðurinn Frode
Kippe, sem Stoke er með í láni frá
Liverpool, hefur fariö fram á það við
Gerard Houllier, stjóra Liverpool,
að leika með Stoke út leiktíðina en
Liverpool framlengdi dvöl hans hjá
Stoke um mánuð á dögunum. Kippe
telur betra fyrir sig aö spila með
Stoke heldur en æfa með varaliðinu
Liverpool.
Hermann Hreiöarsson fær mjög
góða dóma í breskum fjölmiðlum fyr-
ir frammistöðu sína gegn NewcasÚe.
The Sun valdi Hermann mann leiks-
ins og sagði hann hafa stolið senunni
af Alan Shearer og Duncan Fergu-
son. Blaðið sagði „ismanninn" hafa
saltað framhetja Newcastle og gaf
honum 9 í einkunn.
Rivaldo, leikmaður með Barcelona
og brasilíska landsliðinu, var kosinn
besti knattspymumaður heims 1999
af FIFA-landsliðsþjálfumm en til-
kynnt var um valið í gær. Rivaldo,
sem einnig er knattspymumaður
Evrópu 1999, fékk atkvæði 91 þjálfara
af 140 í efsta sætið en David Beck-
ham hjá Manchester United varð
annar og Gabriel Batistuta, Fiorent-
ina, þriðji. Sá sem vann 1998, Zinedi-
ne Zidane, endaði í fjóröa sæti vals-
ins.
-GH/ÓÓJ
Njarðvík (49) 80 - KR (43) 84
Áfall fyrir KR:
Bow úr leik
Það er orðið ljóst að Jónatan
Bow, leikmaður KR, leikur ekk-
ert meira með í vetur. Jónatan
meiddist á ökkla á æfingu fyrir
leikinn á móti Tindastóli og var
haldið í fyrstu að hann yrði frá í
2 vikur, en hann þarf að fara í
uppskurö og verður ekki klár í
slaginn fyrr en næsta vetur.
Þetta er mikið áfall fyrir KR-
inga en Jónatan hefur leikið
mjög vel það sem af er vetri og
verið þeirra einn besti maður.
-BG
Undirbúningurinn í ólagi
Dy Króatiu:
Nú, þegar íslenska landsliðið í
handknatleik hefur lokið þremur
leikjum á Evrópumótinu, spyrja
margir sig þeirrar spumingu hvort
frammistaðan sé ásættanleg. Liðið
hefur tapað öllum leikjum sínum en
þó mátti sjá góð batamerki á liðinu í
leiknum gegn Rússum sem hefði með
smáheppni getað endað með jafntefli.
Ósigurinn gegn Svíum átti svo sem
ekki að koma á óvart enda hafa þeir
á að skipa besta liði heims í dag.
Óásættanlegt tap
Tapið gegn Portúgölum var með
öllu óásættanlegt því undir venjuleg-
um kringumstæðum á íslenska liðið
að vinna þá. Portúgalar hafa ekki
verið nein hindrun á síðustu árum
en því miður voru þeir það í riðla-
keppni. Hver er ástæðan fyrir því og
í kjölfarið vakna nokkrar spuming-
ur. Svo virtist sem liðið væri ekki
komið í gang í leikjunum við Svía og
Portúgali og í þeim vantaði alla bar-
áttu og hina sönnu leikgleði sem ein-
kennt hefur Islenska landsliðið í
gegnum árin á stórmótum.
Ekki tilbúið andlega
Ég held að stóra ástæðan fyrir tap-
inu, þá sérstaklega gegn Portú-
gölum, hafi verið sú að liðið
hafi einfaldlega ekki verið
tilbúið andlega. Tapið
gegn þeim getur hins
vegar vegið þungt og
orðið liðinu dýrkeypt
þegar riðlakeppninni
lýkur. Fyrir mótið
gengu flestir út frá að ís-
land myndi vinna Portú-
gal en nú em þau stig ekki
fyrir hendi. Portúgölum hef-
ur fleygt fram á síðustu misser-
um og segir frammistaða þeirra í
riðlakeppninni til þessa sína sögu í
þeim efnum. Framfarir þeirra em þó
engin afsökun fyrir tapinu gegn
þeim.
Undirbúningur landsliðsins hefði í
öllu falli getað verið betri en ef til vill
var ramman reip að draga í þeim efn-
um. Nokkrir leikmenn áttu við
meiðsli að stríða í undirbúningnum
sjálfum, sumir náðu sér fyrir mótið
en Bjarki Sigurðsson varð eftir vegna
þeirra og var það súrt í broti. í öðm
lagi reyndist mjög erfítt
að fá landsleiki en
síðustu tíu daga
fyrir Evrópumót-
ið stóð yfir for-
keppni fyrir
heimsmeistara-
mótið í Frakk-
landi.
Vantaði
samæfingu
Flest landslið Evr-
ópu voru því of upp-
tekin til æfingaleikja. Að-
eins vom leiknir tveir leikir við
Frakka ytra auka nokkurra æfinga-
leikja við innlend félagslið. Þorbjöm
Jensson, landsliðsþjálfari, var ekki
öfundsverður frammi fyrir þessu
vandamáli. Reynt var að gera sem
minnst úr hlutunum en ekki er nein-
um vafa undirorpið að liðið beið
skaða af þessu og sýpur seyðið af því
á Evrópumótinu. Liðið vantaði meiri
samæfingu því langt var um liðið
þegar hópurinn kom saman eftir ára-
mótin.
Vantar baráttujaxla
Því er ekki leyna að upp í hugann
hefur komið að það vanti baráttu-
jaxla á borð við Geir Sveinsson og
Júlíus Jónasson. Geir var drif-
krafturinn i liðinu þegar hans naut
við og Júlíus var geysilega mikilvæg-
ur liðinu í vamarleik þess. Fleiri
nöfii væri hægt að nefna og sannast
hið fomkveöa að enginn veit hvað átt
hefur fyrr en misst hefur.
Það er að sjá á liðinu að það vaxi
með hverri raun þótt engin sigur hafi
unnist. Þau batamerki sáust gegn
Rússum, baráttan skein úr hverju
andliti og svo virtist sem leikmenn
væm famir að þekkja betur inn á
hver annan. Þennan meðbyr nýta
strákamir sér vonandi í leikjunum
við Dani í dag og gegn Slóvenum á
frmmtudag. Það er mikið í húfi þvi
með sigri i þeim vakna vonir um
þátttöku i heimsmeistarakeppninni í
Frakklandi á næsta ári. Ef það geng-
ur upp verða Svíar og Frakkar að
verða í fimm efstu sætunum. Ef HM-
sætið næst ekki hér verður íslenska
liðið að fara í sérstaka útsláttar-
keppni en ljóst verður síðar hvaða
mótherja liðið fær í þeirri keppni.
Ólympíusætið í Sydney er alveg fok-
ið út í veður og vind.
Bjarga því sem bjargað verður
Baráttan getur stundum borið
menn langt en hún var ekki fyrir
hendi gegn Svíum og Portúgölum og
er það bagalegt og getur ráðið úrslit-
um. í heild séð er útkoman ekki góð
til þessa, allir hefðu viljaö sjá hana
betri, í það minnsta að vera komnir
tvö stig i safnið fyrir leikinn gegn
Dönum í dag. Liðið verður úr þessu
að bjarga því sem bjargað verður og
það næst með því að sigra Dani og
Slóvena i næstum leikjum.
+-
16 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
Sport
Sport
Spennan magnast
- eftir jafntefli United og Arsenal í gær
Manchester United og Arsenal
gerðu stórmeistarajafntefli, 1-1, í
toppslag ensku A-deildarinnar í
knattspymu á Old Trafford í gær.
Arsenal var betri aðilinn í fyrri
hálfleik og mark Svíans Fredrik
Ljungberg á 12. mínútu, sem kom
eftir slæm mistök Jaap Stam, var
sem köld vatngusa framan í leik-
menn United. Thierry Henry fékk
svo gullið færi til að bæta við öðru
marki en Mark Bosnich varði með
frábærum hætti.
Sókn United þyngdist í síðari
hálfleik en liðið uppskar þó ekki
jöfnunarmarkið fyrr en á 74. mín-
útu en þá skoraði varamaðurinn
Teddy Sheringham af stuttu færi
eftir undirbúning Ryan Giggs og
Davids Beckham.
„Aðalmálið var ekki að tapa ekki
leiknum en auðvitað dreymdi mig
um að ná í 3 stig þegar við komumst
yfir. Ég get ekki annað en hrósað
mínum mönnum. Þeir börðust vel í
90 mínútur og sýndu mikinn
karakter," sagði Arsene Wenger,
stjóri Arsenal, eftir leikinn en í lið
hans vantaði menn á borð við Tony
Adams, Dennis Bergkamp, Marc
Overmars, Kanu og Davor Suker.
Leeds er með 47 stig eftir 22 leiki,
United 44 eftir 20 leiki og Arsenal 44
stig eftir 23 leiki.
Teddy Sheringham kom United til bjargar í gær þegar hann jafnaði metin
gegn Arsenal. Hér þakkar hann David Beckham fyrir sendinguna.
Herbert með 13
Herbert Amarson skoraði 13
stig fyrir Donar í hollensku
úrvalsdeildinni í körfubolta þegar
Donar tapaði, 52-60, fyrir Gunco
Rotterdam í síðasta leik fyrsta
hluta mótsins um helgina.
Donar var þegar búið að
tryggja sér sæti meðal sex efstu
liða, sem nú beijast um sæti í
úrslitakeppninni. Herbert hitti úr
3 af 7 3ja stiga skotum sínum í
leiknum og stal auk þess 3 boltum
af Gunco-mönnum. -ÓÓJ
Frakkinn Bruno Martini er með
langbestu markvörsluna á mótinu til
þessa. Hann hefur varið 28 skot af 57
eða rétt tæplega helming þeirra skota
sem hann hefur fengið á sig. Svíinn
Tomas Svensson er i öðru sæti með
33 skot varin af 77 eða 42,86%.
Patrekur Jóhannesson nýtur þess
vafasama heiðurs að hafa forystu á
listanum yfir gefin refsistig vegna
brottvísana og rauðra og gulra
spjalda. Patrekur er með 15 stig.
Hann hefur fjórum sinnum verið rek-
inn af velli í 2 mínútur, einu sinni
fengið rautt spjald (3x2 mín.) og tví-
vegis fengið að líta gula spjaldið, sam-
tals 15 stig. -SK
Valdimar Grímsson er í þriðja sæti á
listnum yfir markahæstu leikmenn
Evrópumótsins. Oleg Velykyy, sem
leikur með liði Úkrainu, er marka-
hæstur en hann hefur skorað 30 mörk.
í öðru sæti er Svíinn Stefan Lövgren
með 23 mörk og Valdimar Grimsson
er í þriðja sæti með 19 mörk.
Af markahæstu leikmönnum keppn-
innar er Valdimar með langbesta
skotnýtingu, 73,08%. Hann hefur hins
veagr skorað flest mörk ailra leik-
manna mótsins úr vítum, 12 talsins
úr 15 tilraunum.
Guömundur Hrafnkelsson er i 13.
sæti á listanum yfir þá markverði
mótsins sem flest skot hafa varið.
Guðmundur hefrn- varið 29,69%
þeirra skota sem komið hafa á mark
Islands þegar hann hefur staðið í
markinu, 19 skot varin af 64.
Upp á líf og dauða
- segir Þorbjöm Jensson um leikinn gegn Dönum i kvöld
sterkan vamarleik eins og við náðum gegn Rúss-
um. Það er mikill og góður hugur að gera sitt besta
í leiknum gegn Dönum. Allir verða að fóma sér i
þennan leik og reyna að ná þeim fjórum stigum
sem eftir em í boði í riðlinum og við verðum síð-
an að sjá hvað það dugar. Það er engin spuming að
þetta er leikur upp á líf og dauða,“ sagði Þorbjöm.
Danska hðið er i sömu í sömu sporum og það
íslenska að hafa ekki unnið leik til þessa í riðlin-
um. Danska liðið sterkt og hefur verið frekar
óheppið í leikjum sinum. Leif Mikkelsen, þjálfari
Dana, hefur náð góðum árangri með liðið og er því
að vonum ekki ánægður með uppskeruna til þessa
í mótinu.
„Ég var mjög óánægður eftir tapið gegn Slóven-
um. Við lentum undir snemma í leiknum og við
náðum aldrei að brúa það bil. Leikurinn við íslend-
inga í kvöld verður mjög erfiður og spennandi eins
og reynar alltaf þegar þjóðimar mætast," sagði
Leif Mikkelsen. -JKS
DV Króatiu:
íslenska landsliðið kom til Zagreb eftir hádegið
í gær eftir að hafa leikið þrjá fyrstu leikina sína í
riðlinum i Rijeka. Síðustu tveir leikir Uðsins i riðl-
inum verða í Zagreb gegn Dönum í kvöld og síðan
gegn Slóvenum á fimmtudag. Liðið tók æfingu i
gærkvöld í sal við hliðina á Sportova Dom íþrótta-
höllinni sem rúmar 12 þúsund áhorfendur. Danir
vom á æfingu á sama tíma og fengu inni í aðalsal
hallarinnar.
Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálfari, ætlar að
hafa sama háttinn á og áður - hann tilkynnir ekki
liðið sem leikur í kvöld fyrr en eftir fúnd siðdegis.
I morgun tók liðið létta æfingu fyrir átök kvölds-
ins. Þorbjöm sagði í samtali við DV eftir æfinguna
í gærkvöld að sér litist bara vel á viðureigina við
Dani en ljóst væri að strákarnir þyrftu að taka á
Bandaríkjamaðurinn Keith Vassell var sterkur í liði KR-inga gegn Njarðvíkingum í Ljónagryfjunni í Njarðvík í gær og skoraði 21 stig. Á minni sulu nu tram hagstæðum úrslihim.
myndinni er Teitur Örlygsson en hann lék mjög vel með Njarðvíkingum og skoraði 22 stig. DV-myndir Hilmar Þór ”Vlð verðum að lelka agaðan sóknarleik og
NBA-DEILDIN
Urslitin í nótt
New York Knicks-Seattle .112-106
Houston 27, Sprewell 24, Ewing 18 -
Williams 22, Barry 21, Baker 21.
Utah Jazz-Lakers.........105-101
Malone 31, Stockton 18, Russel 13 -
O'Neal 36, Bryant 26, Rice 20.
Chicago-Indiana ...........83-82
Brand 28, Artest 17, Kukoc 15 -
Rose 18, Jackson 13, Perkins 13.
Denver-Vancouver..........110-98
Mercer 24, Van Exel 18, LaFrentz 17 -
Rahim 24, Bibby 18, Harrington 15.
Portland-NJ Nets..........101-87
Sabonis 21, Wallace 17, Smith 16 -
Marbury 21, Van Hom 17 GiU 14.
Úrslit í fyrrinótt
Toronto-Seattle............94-77
Davis 17, McGrady 17, Oakley 15,
Carter 13, Willis 12, Christie 10 -
Payton 29, Baker 11, Barry 9.
Detroit-Dallas ............99-91
Stackhouse 36, Buechler 12, Williams
11, Laettner 10, Crotty 10 - Ceballos
22, Finley 18, Strickland 16, Nowitzki
14, Bradley 14.
Houston-Miami ............101-88
Bullard 24, Mobley 18, Williams 13,
Francis 10 - Mouming 23, Lenard 20,
Marhburn 17.
Golden State-Minnesota . . . 81-99
Blaylock 14, Cafféy 13, Cummings 10
- Gamett 22, Mitchell 15, Brandon 15,
Nesterovic 14.
LA Clippers-Orlando .... 89-102
Anderson 20, Taylor 19, Odom 18,
Olowokandi 12 - Armstrong 17,
Wahad 15, Outlaw 14, Amaechi 12,
Gatling 11.
. Undanúrslitin í bikarkeppninni í körfuknattleik:
Otrúlega Ijúft
- sagði Ólafur J. Ormsson, fyrirliði KR, eftir sigurinn á Njarðvík
„Það var ótrúlega ljúft að vinna þennan
leik og fara í Höllina og vera án Jónatans
Bow. Svo til að bæta gráu ofan á svart þá
komst Ingi Þór þjálfari ekki í leikinn þannig
að við leikmennimir urðum að þjappa okk-
ur saman og gera þetta sjálfir, sem við svo
sannarlega gerðum. Löngunin að fara í úr-
slitin var svo sterk og allir leikmenn liðsins
lögðu sig þvílíkt fram. Fram að þessum leik
höfðum verið í mikilli lægð og spilað ftmm
slæma leiki en með þessum sigri á sjálfs-
traustið eftir að koma aftur,“ sagði KR-ing-
urinn Ólafur J. Ormsson, fyrirliði, við DV
eftir sigur á Njarðvíkingum, 80-84, í undan-
úrslitum bikarkeppni KKÍ í körfúknattleik í
Njarðvík í gærkvöld.
Fyrir leikinn var einnar mínútu þögn til
að minnast Örlygs Sturlusonar, leikmanns
Njarðvíkur og landsliðsins, sem lést af slys-
forum á dögunum.
Leikurinn fór rólega af stað og jafnræði
var með liðinum. Njarðvík náði góðum
kafla og komst 10 stigum yfir þar sem Her-
mann Hauksson og Teitur örlygsson fóru
fremstir i flokki. í hálfleik var staðan, 49-43,
Njarðvík i vil.
KR-ingar byrjuðu seinni hálfleikinn af
krafti og skoruðu 12 fyrstu stigin en heima-
menn skoruðu ekki fýrr en 5 mínútur voru
liðnar af hálfleiknum. Njarðvík svaraði með
8 stigum og komst aftur yfir, 57-55. Þá skor-
uðu KR-ingar næstu 9 stig og voru komnir
með þægilega stöðu um hálfleikinn miðjan.
Teitur Örlygsson skoraði mikilvæga 3ja
stiga körfu þegar 2,50 mínútur voru eftir og
minnkaði muninn í sex stig, 72-78. Njarðvík-
ingar náðu svo að jafha metin, 78-78, þegar
Friðrik Stefánsson fékk villu og körfu góða
þegar 1,50 mínútur voru til leiksloka. Óiafur
Ormsson skoraði úr tveimur vítaskotum eft-
ir að Teitur hafði brotið á honum og það var
fimmta villa Teits. Keith Veney tók næstu
þrjú skot Njarövíkinga sem öfl geiguðu og
það var svo Daninn Jesper Sörensen sem
tryggði KR sigurinn af vítalínunni.
Teits sárt sakanð á
lokasekúndunum
Hjá heimamönnum var Teitur bestur en
hans var sárt saknað á lokasekúndum leiks-
ins. Hermann Hauksson átti frábæran fyrri
hálfleik og Friðrik Stefánsson var mikilvæg-
ur hlekkur í vöminni að vanda.
Hjá KR var Keith Vassell mjög traustur
og Ölafur J. Ormsson undirstrikaði getu
sína sem leikmaður með mjög góðum leik.
Jesper Sörensen var mikilvægur í vöm og
sókn og stáltaugar hans á vítalinunni í lok
leiksins vora KR-ignum ómetanlegar. Ólaf-
ur Ægisson átti góða innkomu Eif bekknum
og Guðmundur Magnússon lagði sitt af
mörkum með baráttu og vamarleik.
Stöðva Birmingham og Bjarna
„Þetta verður erfitt á móti Grindavík en
ég er nokkuð viss um að við vmnum. Þetta
er í annað sinn sem ég fer í úrslit og ég er
virkilega bjartsýnn fyrir þennan leik. Við
þurfum að stöðva tvo leikmenn, Brenton
Birmingham og Bjama Magnússon, og þá
erum við i góðum málum," sagði Ólafúr, fyr-
irhði KR, við DV eftir leikinn.
-BG
115. sinn hjá KR
KR komst í bikarúrslitaleikinn í
körfubolta í 15. sinn en ekkert félag hefur
leikið eins oft um bikarinn og
Vesturbæingar. Um leið urðu KR-ingar
aðeins þriðja liðiö í 13 undan-
úrslitaleikjum Njarðvíkur frá 1981 til að
koma í veg fyrir að Njarðvíkingar færa
alla leið í Höflina. Mótherjar KR-inga í
Höllinni 5. febrúar verða Grindvíkingar
sem spfla sinn þriðja bikarúrslitaleik en
þetta verður fjórði innbyrðisleikur liöanna
í vetur. -ÓÓJ
4-4, 11-11,16-16, 24-24, 27-30, 36-30, 44-34, (49-43), 49-55, 57-55, 57-66, 63-70, 67-75,
72-76, 78-78, 80-82, 80-84.
Fráköst: Njarðvík 28, KR
3ja stiga: Njarðvík 11/30,
KR 8/27.
Teitur örlygsson
Hermann Hauksson
Keith Veney
Friörik Stefánsson
Friðrik Ragnarsson
Páfl Kristinsson
22
19
19
9
9
4
Dómarar (1-10): Jón
Bender og Kristinn
Óskarsson 8.
Gceöi leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: Um 600.
Ólafur J.Ormsson 22
Keith Vassell 21
Jesper Sörensen 17
Steinar Kaldal 6
Atli Einarsson 6
Ólafur Ægisson 6
Guðmundur Magnússon 8
Jakob Sigurösson 2
Maður leiksins: Keith Vassell, KR.
Árshátíð Q
verður haldin laugardaginn
29. janúar í Digranesi.
( Húsið opnað kl. 19. )
Miðasala í Digranesi til 26. jan.
Miðaverð kr. 2.900.
V/SA
Viggo næsti
þjálfari Hauka
Samkvæmt öraggum heimild-
um DV verður Viggó Sigurðsson
næsti þjálfari Hauka í
Nissandeildinni í handknattleik.
Tekur hann við af Guðmundi
Karlssyni sem þjálfar
Haukaliðið út þetta leik-
tímabil.
„Þetta mál er ekki
komið það langt að það
sé frágengið en það er
rétt að það hafa átt sér
stað verulegar þreiftng-
ar. Báðir aðilar hafa
áhuga,“ sagði Viggó í
samtali við DV í gær.
- Ég hef öruggar
heimildir fyrir því að
þetta sé frágengið.
„Það má eiginlega segja að
þetta sé svo til frágengið en það
er enginn samningur kominn á
boröið.“
- Það á sem sagt eftir að
setja hlutina á blaö og skrifa
undir?
„Já, ætli það ekki“
Reikningi Wuppertal lokað
á föstudag?
Viggó fór i mál við
Wuppertal eftir að fé-
lagið sagði honum
upp störfúm og hætti
að greiða honum laun
samkvæmt samningi.
Viggó vann fúllnaðar-
sigur i málinu fyrir
þýskum dómstólum.
„Ég vonast til þess að
fá greiðsluna frá
Wuppertal á morgun.
Við erum komin með lögtaksúr-
skurð á Wuppertal og ef félagiö
gengur ekki frá greiðslunni verð-
ur reikningi þess lokað á föstu-
daginn. Nú þarf liðið að sækja
um leyfi til að keppa í deildinni á
ný eftfr að slitnaði upp úr við-
ræðunum við Gummersbach um
sameiningu. Því þarf það að
ljúka fyrir 1. febrúar og ég get
varla ímyndað mér að það vilji
hafa reikninginn sinn lokaðan
því á sama tíma þarf það að sýna
sterka fjárhagsstöðu. Það lítur
því allt út fyrir að ég fari að fá
þessa peninga þótt of snemmt sé
að fagna. Ég átti satt að segja von
á öllu frá þeim og þess vegna að
þeir myndu tilkynna sig gjald-
þrota til að komast hjá að gera
máliö upp við mig. Þetta er al-
gjört rugl. Þetta er ekkert felag.
Þetta era bara businesskarlar að
leika sér. Ég náði ágætum ár-
angri með liðið á sínum tima.
Síðan var mér sparkað og Þjóð-
verjinn Stefan Shöne tók við.
Hann skilaði fjóram sigrum á
einu ári og það virðist vera í lagi.
Áhorfendafjöldinn hefur hrapað
úr 2800 manns í 700 manns á leik
hjá liðinu og það segir meira en
mörg orð um áht stuðnings-
manna hðsins á þeim aðgerðum
að reka mig á sínum tíma. Því
miður er þetta mál aht hluti af
ákveðnu útlendingahatri sem er
til staðar hjá vissum aðilum,"
sagði Viggó Sigurðsson.
„Ekkert frágengið"
„Það er ekki búið að ganga frá
neinu. Það hafa átt sér stað við-
ræður á mifli okkar og Viggós en
það hefúr ekkert komið út úr
þeim enn þá sem hægt er að bera
á torg. Hlutimir eru ekki komn-
ir það langt að hægt sé að segja
að þetta mál sé frágengið," sagði
Þorgeir Haraldsson, formaður
handknattleiksdeildar Hauka, í
samtah við DV í gær.
-SK