Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Page 4
Hinn rétti Brandur hnipraði sig sam- Bílstjórinn setti kattakassann .«1*^ i sendibílinn og víð brunuðum w aftur í bæinn með Brand Fimm þúsund króna lausnargjald fýrir Brand Kattafangarar hrella unga sem aldna þessa dagana og kettirnir fara í tugatali upp í Kattholt og bíða þess að vera leystir út fyrir nokkur þúsund krónur. Sumir fara þangað oftar en einu sinni eins og Doktor Jón meðan eigendur þeirra horfa örvænt- ingarfullir á pyngjuna. Auður Jónsdóttir varð fyrir því að kattafangarar tóku köttinn Brand sem hún er að passa - og peningabuddan hennar dróst óneitanlega mikið saman. Brandur er feitur og geðillur köttur sem ég passa fyrir leigusal- ann minn. Hann má þó eiga það að manni verður hlýtt til hans eftir smátíma þótt ég hafi ekki minnstu hugmynd um hvers vegna og aðrir Sigríður Heiðberg: „Hingað kom kattaelgandi í gær og hann var svo reiður að ég hélt að hann væri geð- veikur." íbúar hússins séu fyUiiega ósam- mála mér. Enda á Brandur til að míga í stigaganginn og klóra böm sem kássast utan í honum. Síðan ég flutti í íbúðina hafa nágrannam- ir kvartað út í hið óendanlega vegna kattarins og vilja hann út úr húsinu med det samme. Leigusal- inn, sem er erlendis, vill þó halda kettinum og lofar að ástandið lagist þegar réttur eigandi komi heim og kötturinn fái betri aðhlynningu en hjá mér. Það getur svo sem vel ver- ið þar sem ég er enginn sérstakur kattavinur en nágrannar mínir trúa þvi ekki svo glatt. Þvert á móti hringdu þeir í kattafangarana og klöguðu Brand. Hreinar klósettskálar Þegar ég kom heim til mín síð- astliðið flmmtudagskvöld beið mín tómur kofinn og Brandur var hvergi sjáanlegur. Mig grunaði (s)M Brandur neitar að koma heim Kona að nafni Sigríður Heiðberg rétti mér skýrslu um kattahandtök- una og sagði: „Hingað kom katta- eigandi í gær og hann var svo reið- ur að ég hélt að hann væri geðveik- ur.“ „Já, er það?“ tafsaði ég áhuga- söm og leit á á skýrsluna sem sagði. að Brandur væri merktur í eyra, hann hefði verið handsamaður klukkan 18.30 á fimmtudaginn o.s.frv. í dálki sem hét aðrar upp- lýsingar stóð: Handsamaður inni. Eigandi sagður fluttur úr landi. Ég ætlaði að tuða yfir seinni at- hugasemdinni þegar annar kattafangarinn sagði: „Kötturinn meig í ganginn og var þama í hálf- gerðu reiðileysi þegar við komum." Þá kinkaði ég bara skömmustulega kolli, sleppti meinfýsinni athuga- semd um nágrannana og borgaði fimm þúsund króna lausnargjald án þess að segja múkk; velti samt fyrir mér hvað kötturinn hefði eig- inlega étið á flmm dögum. Því næst fórum við inn í kattafangaherberg- ið þar sem kattaaugu gláptu hvar- vetna á mann og viti menn! Þama var Brandur, óvenju ljúfur á svip- inn og virtist bara glaður að sjá mig. Hjarta mitt tók óvæntan kipp og ég sagði: „Brandur minn...“ en komst ekki lengra því Pemille nokkur Matthisson tilkynnti sköru- lega að Brandur væri í næsta her- bergi og vísaði okkur áfram. Ég kvaddi góðlega köttinn og komst fljótlega að því að Brandur hugsar ekki jafnhlýlega til mín og þessi köttur. Hinn rétti Brandur hnipraði sig nefnilega saman og neitaði að fara úr búrinu. Brunað með Brand Pernille náði Brandi þó út úr búrinu og hann rak strax upp sker- andi væl sem minnti frekar á aftur- gengna bamssál en heimiliskött. Vælið varð frekar neyðarlegt fyrir framan kattavinina í Kattholti sem hugsuðu eflaust sitt um sambýli okkar Brands. Þeir lánuðu mér þó kassa undir köttinn gegn því skil- yrði að honum yrði skilað strax aft- ur. Ég jánkaði þvi, kvaddi í flýti þegar kötturinn var kominn í kass- ann og hélt út í rokið sem dempaði skerandi vælið til muna. Bílstjór- inn setti kattakassann inn í sendi- bílinn og við brunuðum aftur í bæ- inn með Brand sem hætti smám saman að barma sér og lokaði aug- unum letilega. Mig langaði hins vegar að vera með lokuð augu næstu þijár vikur því samtals kost- aði þessi ferð 8600 krónur sem þýð- ir að ég verð að skrimta á reikn- ingnum hjá kaupmanninum á hominu fram að næstu mánaða- mótum. strax að hann væri í Kattholti og fékk staðfestingu á því þegar sím- inn þar svaraði loks. Þá var ekki annað að gera en að fara upp i Katt- holt og sækja köttinn. Ég er ekki með bílpróf svo ég hringdi á Greiðabíl, vitandi að Brandur myndi skandalisera í venjulegum leigubíl, og hljóp úr vinnunni við litlar vinsældir. Bíllinn kom fljót- lega og ég klöngraðist inn um leið og ég reyndi að passa að hurðin fyki ekki upp. Eftir smábíltúr hringdi farsími bílstjórans löngu stefi sem minnti á mið-evrópska pí- anómelódíu og ég horfði þreyttum augum á brúna skaflana úti. Skyndilega langaði mig til Spánar þar sem allt er fullt af hundaskít eftir flækingshunda og þunglyndis- tiðni er lægri en á íslandi. Ég mundi eftir orðum mæts manns sem sagði aö hérlendis ríkti lá- deyða í listum vegna þess að ís- lendingar eyddu öllu hugarfluginu í aö þrífa klósettskálar. „Eða skammast út í ketti,“ hugsaði ég glottandi og sá Brand fyrir mér al- sælan á Costa del Sol. í Kattholti sátu tveir kátir kattafangarar sem neituðu ljós- myndatöku. Eflaust sitja þeir undir miklu aðkasti frá fólki sem þarf að hlaupa úr vinnunni og borga stórfé uppi á Höfða. Þetta voru þó hinir gæðalegustu menn og eflaust mikl- ir kattavinir því þeir tóku Brand í góðri trú eftir samtalið við ná- grannann. Litill svartur hundur trítlaði um og það hvarflaði að mér að líklega væri skemmtilegra að taka hann heim heldur en Brand skapfúla. Ég mundi eftir orð- um mæts manns sem sagði að hér- lendis ríkti ládeyða í listum vegna þess að íslendingar eyddu öllu hugar- fluginu í að þrífa klósettskálar. an og neitaöi aö fara úr búrinu. 4 f Ó k U S 10. mars 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.