Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2000, Side 16
* Ý 1 krypplingur ...og mig hefur alltaf langað alveg rosalega að komast að 1 hljóm- sveita- eða skemmtibransanum. Mér er nákvæmleg sama hvort heldur er. Ég veit að ég er fyndinn og ég hef mjög failega rödd (ekki ósvipaða og Björgvin Halldórsson), það eina sem vantar upp á er að komast að. í raun og veru að... ...verða uppgötvaður. Lengi vel reyndi ég að troða upp með stand-up. Ég tók þátt í Fyndnasti maður íslands en fólk fékk það ekki af sér að hlæja að mér. Út af kryppunni auðvitað. Ég sagði þeim að horfa fram hjá henni en ég býst við að það sé hæg- ara sagt en gert. Hún er auðvitað sérstaklega áberandi frá hlið og það er nánast vonlaust aö snúa... ..alltaf beint fram. Þá fór ég á stúfana, náði mér f símanúmerin hjá ýmsum hljóm- sveitum og fékk að prufa. Sumir voru hreinskilnir við mig og sögðu mér að þeir væru hrifnir af söngn- um en að þeir gætu bara ekki notað mig af þvl að ég er krypplingur (þetta sögðu þeir í Maus og þeir eru desperat að finna einhvem sem heldur lagi). Aörir reyndu að Ijúga sig út úr þessu og sögðu að ég hefði ekki hæfileika og að ég... ..syngi of hátt. Það er auðvitað lygi. Ef ég syng of hátt þá er ekkert auöveldara en að lækka í mér. Eftir mikla erfið- leika tókst mér samt loksins að landa góðu jobbi. Þeir i Hagkaupi, Smáranum, réðu mig til þess að syngja í hljóðnemann f búöinni. Þannig sleppa þeir við að borga STEF-gjöld en geta samt boðið við- skiptavinum sínum upp á tónlist. Þetta hentar mér... ..sérstaklega vel. Ég syng fyrir fólkið sem er að versla en það þarf hins vegar ekki að horfa á mig og kryppuna. Mig langar að benda þeim sem koma f Hagkaup, Smáranum, að hlusta sér- staklega vel eftir tónlistinni. Besta númerið mitt er: „Sendu nú gull- vagninn I t.£)Ti;iTT, Það er ekki svo langt síðan það var aðeins um þrjá staði að velja ætlaði maður út á Akureyri: Sjallann, Hótel Kea og H-100. í dag er öldin önnur og úrvalið af skemmtistöðunum orðið þvílíkt að maður kemst varla yfir alla staðina á einu kvöldi. Snæfríður Ingadóttir gerði þó heiðarlega tilraun og kíkti á djammið á Akureyri um síðustu helgi. Hemitii fefti, dagsktttrgfcrftarrnabiir á X-inu. o vinur hflm Síggt voru komnir noröur til þess taro A urfctti enftoru heltíur betur fýluferb þar sem Hl<barfialiiö var iokob vtfcria veburs. IVIitt á milli og Reykjavíkur Leiðinlegur dyravörður og ælulykt Það er ekki hægt að fara út á Ak- ureyri án þess að kíkja í Sjallann. Staðurinn er einfaldlega klassísk- ur og stendur alltaf fyrir sínu. Heimsóknin þangað byrjar reynd- ar ekki vel. í dyrunum stendur hinn fúli dyravörður Fúsi sem staðurinn ætti fyrir löngu að vera búinn að losa sig við. Hann er ein- faldlega fúll á móti númer eitt og afskaplega óvingjarnlegur. Ekki tekur betra við í fatahenginu en þar afgreiðir maður að nafni Ólaf- ur sem búinn er að vinna í fata- henginu i 18 ár og er því orðinn nokkuð hægur í hreyfingum. Hljómsveitin Sóldögg á staðinn í kvöld og húsið er fullt. „Sjallinn er svona mitt á milli Skuggabarsins og Kaffi Reykjavíkur," segir grinistinn Sveinn Waage sem sit- ur og sötrar bjór við eitt borðið. Hann var að skemmta á Dalvík fyrr um kvöldið en er mættur til að sjá Sóldögg. Hljómsveitin er í roknastuði og stemningin á dans- gólfinu er heit. Gestir kvöldsins eru 30 ára og yngri. Ég furða mig á því hversu mikið vín fólki hefur tekist að lauma með sér inn. Ein stúikan er meira að segja með vodkapela í eins konar sokk hang- andi um hálsinn á sér og var ekki stoppuð í dyrunum. Inn á kvennaklósettinu liggur tómur rommpeli og einhver er líka búinn að æla, ekki í klósettið og ælufylan er megn. Runturinn og pylsa Djammkvöld á Akureyri er ekki fullkomnað fyrr en maður er búinn að fá sér pylsu. Grindvíkingamir Palli og Kiddi frá Vélsmiðju Þor- steins hafa áttað sig á því og eru mættir i Borgarsöluna eftir að hafa eytt kvöldinu og aurunum sínum á Venus. Þessir drengir kunna svo sannarlega að njóta lífsins því þrátt fyrir að Hlíðarfjalliö hafi ver- ið lokað lögðust þeir ekki í fýlu heldur skelltu sér bara í nudd á Fosshótelinu. Það eru tveir kostir ætli maður sér ekki að ganga til síns heima. Það er að taka leigara eða reyna að húkka einhvem sem er á rúntinu, því þrátt fyrir enda- lausar breytingar á skipulagi bæj- arins lifir rúnturinn enn góðu lífi. Hlynur, Elmar og Steini eru komnir með aldur á skemmtistað- ina en eru of broke til þess að fara á ball og því keyra þeir hring eftir hring með bangsann Gústa á mæla- borðinu. Kvöldið fer i það að taka upp stelpur og skutla þeim heim. Þeir bjóðast þó ekki til þess að skutla mér heim, finnst ég líklega of gömul þannig aö það eru tveir jafnfljótir sem fá að duga enda all- ar vegalengdir innan við Glerá Frtbflnnur og tfotfí fcifc plötu- flruifiar ö Wiaílhoust, Við Pollinn finnast bændumir sem stelpurnar voru að tala um. Gunnar Guðmundsson og Óskar Grétarsson búa hvor á sínum bænum i Þingeyjarsýslunni og eru komnir til Akureyrar í menningar- ferð eins og þeir sjálfir oröa það og menninguna hafa þeir fundið í jóla- ljósaskreyttum pöbbinum. Þar rík- ir ekta sveitaballastemning undir tónum frá tveggja manna hljómsveit frá Ólafsfirði. Nakin nekt Einhvern veginn hélt maður samt að það væru nektarstaðimir, sem orðnir eru þrír á Akureyri og bjóða upp á listrænan dans, sem trekktu hvað mest að. En ekki bænduma tvo. Það er ekki heldur mannmargt á nektarklúbbnum Venusi, enda kannski klukkan ekki orðin nógu margt. Á þessum kolsvarta stað sitja þó þrír ungir drengir, rétt komnir með aldur tii þess að fara inn á svona stað. Þeir eru úr Reykjavík og eru komnir keyrandi norður til þess að taka þátt í snjóbrettamóti á vegum út- varpsstöðvarinnar X-ins. Mótinu var hins vegar frestað þar sem Hlíðarfjallið var lokað vegna veð- urs. „Við fórum til Dalvikur í stað- inn en færðin var ekkert sérstak- lega góð,“segja þeir Hreinn Heið- ar, Snorri og Sigurður sem ætla að bæta sér upp vonbrigði dagsins með erótiskum dansi. Þeim líst ágætlega á staðinn miðað við álíka staði sem þeir hafa farið á fyrir sunnan en persónulega er ég ekki sammála. Það vantar allan stíl og klassa en útskýringvma á þvi fæ ég frá einni innfæddri konu: „Við hér á Akiu-eyri þurfum ekkert að vera að fegra þetta eins og fyrir sunnan. Við þurfum enga spegla með gullrömmum og yfirdekkta sófa. Þetta er bara nekt í sinni nöktustu mynd“. Enn þá fleiri snjóbrettagæja að sunnan er að finna á Club 13. „Við eyddum deg- inum í bíó og fórum að sjá Toy story,“ segir Hemmi feiti sem er dagskrárgerðarmaður á X-inu og ábyrgur fyrir því að tæplega 30 snjóbrettafiklar eru komnir norð- ur. Fíklarnir eru frekar svekktir en hugsanlega gæti helgin bjarg- ast á góðu djammi og Club 13 virð- ist tilvalinn staður fyrir það. Stað- urinn er annar af tveimur klúbb- um bæjarins en hinn heitir Mad- house. Báðir staðimir eru sóttir af ungu fólki en það er meiri klassi yfir Club 13 og hann minn- ir óneitanlega á Astró hvað inn- réttingar varðar. Á meðan flestir staðir bæjarins loka klukkan þrjú eru Madhouse og Club 13 opnir lengur. Þeir eru því vinsælir við- komustaðir hjá þeim sem þá eru ekki tilbúnir að fara strax heim að sofa. „Það er ekkert úrval af karl- mönnum hér á Akureyri," segir Sofíia Guðmimdsdóttir þar sem hún situr ásamt þremur vinkon- um sínum á Kaffi Akureyri í dúndrandi diskótónlist og bætir við: „Ekki nema maður viiji gerast bóndakona." Vinkonumar, sem all- ar eru á fertugsaldri, hiæja og segja frá bændum sem koma í bæinn til þess að versla og eru voða sveitó. Þær eru sko ekkert fyrir þá enda eru þær löngu búnar að gefa upp von- ina um að þær hitti einhverja gæja á djamminu. Þær eru heldur ekkert á veiðum heldur eru þær úti til þess að skemmta sjálfum sér eins og sést á hegðun þeirra á dansgólfmu þegar Lue Bega ómar úr hátölurunum. , cr jwö" ivalur ao Íg frarf ohW torfa á þetta folk,“ sfcRir HelöíV ikssoij- oöru nafm htiKtdi, tti meö sOlglúrAUííul S}allúna 'S f Ó k U S 10. mars 2000 16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.