Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2000, Page 2
2
MÁNUDAGUR 13. MARS 2000
I>V
Fréttir
Verkfallsboðun hjá VMSÍ:
Klofningur vegna
Flóabandalagsins
- tveir greiddu atkvæði gegn tillögu á formannafundi
Á formannafundi Verkamannasam-
bands íslands á laugardag var ákveðiö
að halda til streitu atkvæðagreiðslu á
meðal félagsmanna aðildarfélaga um
boðun verkfalls.
Atkvæðagreiðsla varðandi verkfalls-
boðunina er þegar hafin og að sögn
Bjöms Grétars Sveinssonar, formanns
VMSÍ, verður talið 21. mars. Ef ekki
semst, mun verkfall VMSÍ skella á
klukkan 24.00 þann 30. mars.
Kalla átti saman saminganefnd sam-
bandsins í dag, en engar formlegar við-
ræður hafa verið í gangi á milli vinnu-
veitenda og VMSÍ. Mikil óánægja ríkir
innan raða VMSÍ-manna með þann
samning sem Flóabandalagið ætlaði að
undirrita á hádegi í dag. Miðað við við-
brögð forystumanna VMSÍ, þá hyggj-
ast menn þar á bæ ekki sætta sig við
þann grunn sem miðað er við í samn-
ingum Flóabandalagsins. Ber mikið á
milli þess samnings og krafna VMSÍ.
Þvi er eins víst að það stefni í mikla
hörku.
Ágreiningur var um tillögu að álykt-
un sem borin var upp á formannafundi
VMSÍ á laugardag þar sem hörð gagn-
rýni er á þau félög sem stóðu að Flóa-
bandalaginu. Samkvæmt heimildum
Fnjóskadalur:
Skemmdarverk
DV. AKUREYRI:__________
Skemmdarverk var unnið á snjóblás-
ara í eigu Vegagerðarinnar um síðustu
helgi en blásarinn hafði verið skilinn
eftir yflr helgina við brúna á Fnjóská á
þjóðvegi 1. Snorri Guðmundsson á verk-
stæði Vegagerðarinnar á Akureyri segir
augljóst að einhver hafi hellt vatni á vél
blásarans. Þegar vélin var síðan gang-
sett bræddi hún samstundis úr sér.
„Þetta er ljótt skemmdarverk en það
komu yflr 20 lítrar af vatni af vélinni.
Þetta er geysilegt tjón, viðgerð kostar
hundrað þúsunda króna og svo þurfum
við að kaupa vinnu utan frá á meðan
viðgerð fer fram á blásaranum," sagði
Snorri. -gk
DV greiddu tveir atkvæði gegn
tillögunni, þeir Þórður Ólafsson
í Þorlákshöfn og Einar Karlsson
í Stykkishólmi.
I ályktuninni kemur fram að
fundurinn lítur mjög alvarleg-
um augum á þær fullyrðingar
sem settar hafa verið fram um
aðskilnað Flóabandalagsfélaga
við VMSÍ. bent er á að það hafi
verið ákvörðun Flóabandalags-
ins að segja skilið við önnur fé-
lög VMSÍ í kjarasamningagerð-
inni sem nú stendur yfir. Þetta
hafl félög bandalagsins undir-
Forystumenn.
Hervar Gunnarsson, varaformaöur VMSÍ, og
Björn Grétar Sveinsson, formaöur VMSÍ,
ræddu yfirstandandi kjarabaráttu á fundi
forystu sambandsins í gær.
strikað með því að taka ekki þátt í um-
ræðum og afgreiðslu kjaramála á þingi
sambandsins á sl. hausti. í ályktun
fundarins er sagt að ekki verði annað
ráðið en að félögin innan Flóabanda-
lagsins hafi þegar við upphaf undir-
búnings kjarasamninga verið búin að
taka þá ákvörðun að fara út úr VMSÍ.
Hið eina sem komið hafi í veg fyrir þá
framkvæmd væri sú staðreynd að það
leiddi af sér úrsögn um leið úr Alþýðu-
sambandi Islands. Formannafúndur-
inn iýsti yflr fullum stuðningi og
trausti á Bjöm Grétar Sveinsson, for-
mann VMSÍ. -HKr.
DV-MYND S
Skátar í Kópavogi lentu í volki
Ólafur Gunnarsson og Heiödís Gunnarsdóttir úr Hjálparsveit skáta í Kópavogi duttu útbyrðis þegar þau voru aö æfa
björgun úr sjó um helgina. í miöri æfingu festist gúmbátur þeirra í þeygju og sigldi í hringi á miklum hraöa. Þau
misstu viö þaö jafnvægiö. Bæöi voru í flotþúningum og gátu synt í land. Lögregla fór út á öörum báti og tókst aö
stöðva hringsólandi bátinn meö því aö kasta teppi í skrúfuna.
Þatttakendur i leiklistarhatiö.
Aðstandendur þeirra verka sem sýnd verða á fyrstu íslensku leiklistarhátíö-
inni, Á mörkunum, samankomnir á sviöi lönó í gær.
Leiklistarhátíð í fyrsta sinn
Sjálfstæðu leikhúsin kynntu í
gær dagskrá Á mörkunum, fyrstu
íslensku leiklistarhátíðina sem
haldin hefur verið hér á landi. Há-
tiðin byrjar í september og mun
standa í sex vikur. Á hátíðinni, sem
er hluti af Reykjavík menningar-
borg 2000, verða sett upp sex ný is-
lensk leikverk. Leikverkin sem val-
in hafa verið á dagskrá hátíðarinn-
ar eru: Dóttir skáldsins eftir Svein
Einarsson, Háaloft eftir Völu Þórs-
dóttur, Tilvist (samið af þátttakend-
um í sýningunni), Trúðleikur eftir
Hallgrím H. Helgason, Sólarlitlir
dagar eftir Benóný Ægisson og Vit-
leysingamir eftir Ólaf Hauk Símon-
arson.
Þátttaka í hátíðinni var opin öll-
um leikhópum innan Bandalags
atvinnuleikhópa. Var auglýst eftir
þátttöku á meðal leikara, leikstjóra,
leikskálda og rithöfunda og bárust
49 umsóknir. -hlh
Pólförunum miöar hægt en örugglega:
Ánægðir að vera
komnir af stað
- mættu sænskum ferðafélaga á heimleið
íslensku pólfararnir, Ólafur Örn
Haraldsson og Ingþór Bjarnason
hafa nú lagt að baki rúma 8 km af
þeim 770 sem þeir hyggjast ganga i
pólfórinni. Þeir lögðu upp í ferðina
frá Ward Hunt-eyju í fyrradag. Veð-
ur hefur verið stillt en frost um 40"C
og alskýjað. Pólfararnir mættu í
gær einum Svíanna sem lögðu upp í
pólfór með sömu flugvél og þeir.
Hann var á heimleið vegna kals á
höndum og getur því ekki tekið
frekari þátt í pólferð félaga sinna.
Flugvél frá flugfélaginu First Air
verður send á móti honum og kem-
ur honum undir læknishendur.
Bjartsýnin allsráðandi
Svæðið sem Ólafur og Ingþór eru
staddir á nú er mjög erfitt yfirferð-
ar. Sleðarnir sökkva aðeins í djúpan
og þungan snjóinn og ryðja snjó á
undan sér. Þetta hefur verið pólfor-
unum til nokkurs trafala og segja
þeir færið hafa verið nokkru verra
en þeir gerðu ráð fyrir. Þeir lögöu
þó lengri vegalengd að baki í gær en
búist var við þar sem þeir gengu
fram á svæði þar sem vök hafði ver-
ið í ísnum. Vökina haiði lagt og var
hún greiðfær yfirferðar. Pólfararnir
voru alls á göngu í fimm tíma í gær
en kuldinn hamlaði lengri útivist.
Þeir eru þó bjartsýnir og segjast
ánægðir að vera loks komnir af stað
eftir langan undirbúningstima og
óþreyjufulla bið. -HG
Samið við stjörnur
Verið er að ganga
frá samningum við
þekktar erlendar
kvikmyndastjömur
um að leika í kvik-
myndum á vegum
nýs kvikmyndafýrir-
tækis Friðriks Þórs
Friðrikssonar og Sig-
urjóns Sighvatssonar. Fyrirtækið er
með fjögur verkefni í vinnslu og munu
þau kosta alls milljarð í framjeiðslu.
Stöð 2 sagði frá.
Frystingu átti að kynna
Vilhjálmur Bjamason, adjunkt í
fjármálum við Háskóla íslands, telur
að verðbréfamiðlarar hefðu átt að upp-
lýsa kaupendur hlutabréfa í deCODE
genetics um að sala á þeim yrði fryst í
kjölfar þess að fyrirtækið sótti um
skráningu á verðbréfamarkaði. RÚV
sagði frá.
Tvær bílveltur
Tvær bílveltur urðu á höfuðborgar-
svæðinu í gær, en hálka var talsverð
og veður frekar slæmt. I báðum tilvik-
um var um jeppa að ræða og urðu bU-
veltumar á Höfða annars vegar og við
Kópavogsbrú hins vegar. Ekki urðu al-
varleg meiðsli við þessi óhöpp, en að
sögn lögreglunnar vora farþegar í bfl-
beltum og því fór betur en áhorfðist.
Lágt fasteignaverð
Framboð á fasteignum á ísafirði og
nágrannasveitarfélögum er mun meira
en eftirspum og era dæmi um að sölu-
verð þeirra sé einungis 60% af bygg-
ingarkostnaði. Fasteignaverðið er
hæst á ísafirði en mun lægra annars
staðar. RÚV greindi frá.
Kvikmyndastjörnur velkomnar
Smári Geirsson,
forseti bæjarstjómar
Neskaupstaðar, segir
að sér litist vel á að
Sigurjón Sighvatsson
hafikeyptjörðíHell-
isflrði. Smári segir
að Sigurjón mætti
gjaman bjóða fræg-
um kvikmyndastjömum með sér aust-
ur þegar hann dvelur í flrðinum. Sjón-
varpið greindi frá.
Reykjavík kynnt
Seljendur íslandsferða leggja
áherslu á að kynna Reykjavík sem
menningarborg ársins í Evrópu og
markaðssetja landið á öðrum árstíma
en aðatferðamannatímanum á stærstu
ferðakaupstefnu í heimi sem stendur
nú yfir f Berlín. RÚV greindi frá.
Hmm prósenta kostnaður
Helgi Seljan, framkvæmdastjóri Ör-
yrkjabandalagsins, segir að kostnaður
bandalagsins við auglýsingar fyrir sið-
ustu kosningar hafi numið tæpum
fimm prósentum af heildarútgjöldum
þess. Auglýsingamar hafa valdið hörð-
um deilum milli Davíðs Oddssonar og
Garðars Sverrissonar, núverandi for-
manns Öryrkjabandalagsins. Sjón-
varpið greindi frá.
Ingi R. Helgason látinn
Ingi Ragnar Helgason hæstaréttarlög-
maður er látinn. Hann lést á fóstudag-
inn á 76. aldursári sinu. Ingi tók virkan
þátt í stjómmálum, m.a. með Samein-
ingarflokki alþýðu - Sósíalistaflokknum
og síðar með Alþýðubandalaginu.
Skoða þarf lög
Valgerður Sverris-
dóttir viðskiptaráð-
herra segir að skoða
þurfi sérstaklega
samkeppnislögin
áður en til þess komi
að Landsbankinn og
íslandsbanki verði
sameinaðir. Mark-
aðshlutdefld sameinaðra banka yrði 50
til 60%. RÚV sagði frá. -KJA