Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2000, Side 4
4
Fréttir
MÁNUDAGUR 13. MARS 2000
DV
Formbreytingar hjá orkufyrirtækjum:
Aðskilnaður fram-
leiðslu og flutnings
- samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins
Á næstunni er ráðgert að stjórnar-
menn stærstu orkufyrirtækja í land-
inu haldi til Brussel og Norðurland-
anna til að kynna sér nánar tilskip-
anir Evrópusambandsins um orku-
flutning ásamt sölu og dreifingu raf-
magns. Ástæðan er sú að um áramót-
in 2001-2002 ganga i gildi reglur sem
krefjast aðskilnaðar þessara þátta
sem tryggi aðgengi annarra en einok-
unarfyrirtækja að netunum.
Tilskipanir Evrópusambandsins
gera það að verkum að aðskilja verð-
ur m.a. í rekstri Landsvirkjunar
framleiðslu frá orkuflutningslínum
og dreifikeríi. Ekki er talið ólíklegt
að stofnað verði sérstakt fyrirtæki
um orkuflutninginn, sem verður þó
eftir sem áður að langstærstum hluta
í eigu Landsvirkjunar. Eftir 2002 eiga
utanaðkomandi orkuframleiðslu-
fyrirtæki að hafa jafna möguleika á
að njóta aðgengis að orkuflutnings-
línum í samkeppni við orkufram-
leiðslu Landsvirkjunar. Ekki liggur
þó ljóst fyrir hvort selja verður ein-
stakar virkjanir undan Landsvirkjun
til að tryggja eðlilega samkeppni
samkvæmt tilskipunum Evrópusam-
bandsins. Slíkt er hins vegar talið ill-
framkvæmanlegt. Iðnaðarráðherra
mun væntanlega leggja fram frum-
varp um þessi mál og verður það
kynnt þinginu fyrir vorið.
-HKr.
Hálka olli
hörðum
árekstri
Harður árekstur varð rétt við
Höfðabakkabrú síðdegis í gær. Blint
var á veginum þegar óhappið varð og
mikill skafrenningur. Ökumenn og
farþegar bílanna sem rákust á sluppu
án teljandi meiðsla en allir voru í
beltum. Lögregla telur að betur hafi
farið en áhorfðist en mikil hálka var
á veginum þegar óhappið varð. Bif-
reiðamar voru illa skemmdar eftir
áreksturinn og þurfti að fjarlægja
aðra þeirra með krana. Umferð tafð-
ist talsvert um tima fyrst eftir slysið
en komst aftur i eðlilegt horf skömmu
síðar. -HG
Dúnverð féll um helming á Japansmarkaði:
Er aftur að þokast upp á við
Jónas Helgason, bóndi í Æðey, tók
við formennsku Æðarræktarfélags ís-
lands sl. haust á 30 ára afmæli félags-
ins. Hann segir að nú sé örlítið að rofa
til eftir samdrátt og verðfall á Japans-
markaði.
„Það hefúr verið örlítill sölusam-
dráttur og verðlækkun siðustu misseri
vegna fjármálahrunsins í Asíu. Stærsti
hluti dúnframleiðslunnar frá íslandi
fer til Japans og efnahagsástand þar
ræður því mikið gangi mála hjá okkur.
Niðursveifla þar skilar sér strax í
minni sölu hjá okkur. Það má segja að
verð hafi lækkað um helming frá því
sem.það komst hæst 1997 er kílóið fór
í 60 þúsund krónur í örstuttan tíma. Þá
segir Jónas Helgason, æðarbóndi í Æðey
hafði verðið verið á uppleið frá
kreppu á undan sem hófst
1991. Var það í kjölfar verð-
bréfahruns í Japan og sú
kreppa varð mikið lengri og
dýpri en nú síðast. Eftirspum-
in er því aðeins byrjuð að
aukast aftur og þá eru líkur til
að verðið fari að þokast upp á
við þegar lengra líður á árið.“
- Liggja menn með miklar
birgðir?
„Það held ég sé ekki veru-
legt. Dúnframleiðsla á síðasta
ári var minni vegna veðráttu
og fleiri þátta. Þá má nefna að
alit að 25% færri fuglar skil-
næstu uðu sér
DV-MYND HKR.
Jónas Helgason,
bóndi í Æðey
„íslendingar
skila um 75% af
dúnframleiöslu
heimsins. “
i varp sl. vor og einnig að fugl-
ar afræktu hreiður, hættu að
liggja á. Menn giska á að
ástæðan sé lítið æti og hugs-
anlega að loðnuganga hafi
ekki skilað sér að vestan."
- Hversu stórir eru Is-
lendingar í heimsfram-
leiðslunni?
„íslendingar skila um
75% af dúnframleiðslu
heimsins. Japanir kaupa
langmest af framleiðslunni
og Þjóðverjar hafa lengi
verið sterkir líka. Þjóðverj-
ar keyptu mikið af okkur
áður og seldu áfram til Jap-
ans en nú eru þau viðskipti milli-
liðalaus beint frá okkur.“
- Hvað eru margir framleiðendur
hér á landi?
„Ég gæti trúað að það séu um 400
jarðir sem hafa einhveija dúntekju en
tæpir 300 félagar eru í Æðarræktar-
félagi íslands. Ég hreinsa dún sjálfur
fyrir fólk og minnsti skammtur sem ég
hef verið að skila er 302 grömm. Sjálf-
ur fæ ég um 70 kg í bestu árum en það
sveiflast geysilega eftir veðráttu. Það
þarf ekki nema gott rok fyrripartinn í
júní þá fjúka þó nokkuð mörg prósent
út í buskann,“ sagði Jónas æðarbóndi,
sem vakir yfir um fjögur þúsund
hreiðrum í Æðey á sumrin. -HKr.
DV-MYND ARNHEIÐUR
Iris Edda Heimisdóttir
íþróttafélagið Keflavík
íris Edda
Heimisdóttir
íþróttamaður
ársins
DV, SUDURNESJUM:____________
íris Edda Heimisdóttir, sund-
drottning úr Sandgerði, var valin
íþróttamaður síðasta árs hjá Kefla-
vík, íþrótta- og ungmennafélagi, á
aðalfundi félagsins nýlega.
íris Edda, sem er 16 ára gömul,
hóf síðasta ár á því að slá stúlkna-
met í 200 m bringusundi. Þá sigraði
hún í 20Q m sundi á sterku alþjóð-
legu móti í Lúxemborg. Hún var
valin til þátttöku á Smáþjóðaleikun-
um þar sem hún sigraöi einnig í 200
m. Nú síðast í byrjun desember náði
íris Edda þeim stórglæsilega ár-
angri að verða Norðurlandameistari
unglinga i 200 m bringusundi. Alls
bætti íris Edda tíu íslands- og
stúlknamet og varð nífaldur íslands-
meistari á árinu. -A.G.
Bílslys í Þjórsárdal:
Slasaðist í
jeppaferða-
lagi
Sjúkraþyrla Landhelgisgæslunn-
ar var kölluð út í gærmorgun til að
sinna slasaðri stúlku í Þjórsárdal.
Stúlkan var ásamt fleirum í jeppa-
ferðalagi á leið í sundlaugina sem er
fyrir ofan Ásólfsstaði. Vegurinn
sem liggur til sundlaugarinnar er
ekki ruddur á veturna og mjög erf-
iður yfirferðar um þessar mundir,
enda snjóþungt á svæðinu. Stúlkan
sat í aftursæti bilsins og kastaðist
upp í loft á bifreiðinni þegar hún
hristist til á veginum en hún var
ekki í bílbelti. Stúlkan kvartaði um
mikil eymsli í hálsi og baki eftir at-
burðinn og því taldi lögregla óráð-
legt að keyra hana til baka. Sjúkra-
þyrla var þá kölluð á vettvang og
flutti hún stúlkuna á Sjúkrahús
Reykjavíkur til aðhlynningar. -HG
Vedríð í kvöld___________ g Solargangur og sjávarföll | Veðríð á morgun
y* -5°
< ~ '2'«-
-2*7 iio
.-1°
V* Or'
* -8”
* -í
Hægir og kólnar
Stormur veröur í dag eða meira en 20 m/s á
miöhálendinu. SV 15-20 m/s og él sunnan-
og vestanlands, en 10-15 m/s og víöa
léttskýjað á Nnoröausturlandi og Austfjörðum.
Á Miöhálendinu er gert ráð fyrir SV 18-23
m/s meö éljagangi og skafrenningi. Kólnandi
veöur og hægir með kvöldinu, víöa vægt frost
i nótt og á morgun.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólariag i kvöld 19.24 19.07
Sólarupprás á morgun 07,48 07.34
Síödegisflóö 24,24 04,57
Árdegisflóö á morgun 00,24 04,57
Bkýrmgar á yeðurtáknum
J^VINDÁTT 10°4_HITI “á -10° NVINDSTYRKUR Xrontr I metrum á sekóndu f HEIÐSKÝRT
-$3 o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ AISKÝJAÐ
SKÝJAD
W Q
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
Q 9 Í* ==
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
lIiffetiRlr J.ýjrh.i.u
Sýnum fyrirhyggju
Enn er hálka á vegum víða um land og
ófærö hefur verið á mörgum fjallvegum.
Þannig hefur veriö veruleg hálka á milli
Raufarhafnar og Þórshafnar og einnig
um Brekknaheiði og heiðar á
Vestfjörðum. Þaö er því enn full þörf á
aö sýna fyrirhyggju varöandi feröalög
um landiö, þó sæmilega greiöfært sé
um helstu aöalleiöir vegakerfisins.
Vlða bjart veður
Búist er viö vestan- og norðvestanátt á landinu á morgun. Dálítil él verða
á annesjum vestanlands og viö norðausturströndina. Annars verður
úrkomulaust og víöa bjart veöur.
DEKÍS
Vindur: J <0 ó 8-13 mMf VQ Hiti 1° til -5” Vindun J J-—•, 10-15 m/& «£> l Hiti O" til -4° Vinduri Vfj) / " ' ' / , 10-15 m/i” w Hiti 0° tii -5°
Sunnan- og suövestanátt 8-13 m/s meö slyddu eöa Vestan- og suövestanátt, 10-15 m/s og slydduél Austan- og noröaustanátt
rignlngu um sunnan- og vestanlands, en 8-10 meö rigningu sunnanlands,
vestanvert landlö, en og víöast úrkomulaust en snjókomu eöa slyddu
úrkomulítlö fyrir noröan og austanlands. um noröanvert landiö.
austan. Hiti 1 til 5 stig. Hitl 0 til 4 stig. Hltl 0 til 5 stig.
AKUREYRI úrkoma 5
BERGSTAÐIR snjókoma 1
BOLUNGARVÍK snjóél -1
EGILSSTAÐIR 5
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 4
KEFLAVÍK snjóél 0
RAUFARHÖFN alskýjaö 3
REYKJAVÍK snjóél 0
STÓRHÖFÐI úrkoma 0
BERGEN alskýjaö 4
HELSINKI léttskýjaö 0
KAUPMANNAHÖFN alskýjaö 3
OSLÓ léttskýjað 2
STOKKHÓLMUR 3
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 7
ÞRÁNDHEIMUR snjókoma -2
ALGARVE skýjaö 17
AMSTERDAM skýjaö 10
BARCELONA léttskýjað 20
BERLÍN alskýjaö 2
CHICAGO heiöskírt -6
DUBLIN skýjað 8
HALIFAX rigning 0
FRANKFURT rigning 9
HAMBORG skýjaö 6
JAN MAYEN skafrenningur -3
LONDON skýjaö 11
LÚXEMBORG skýjað 6
MALLORCA skýjað 23
MONTREAL þoka -3
NARSSARSSUAQ léttskýjað -15
NEWYORK rigning 6
ORLANDO þokumóða 19
PARÍS hálfskýjaö 11
VÍN skýjaö 7
WASHINGTON rigning 8
WINNIPEG léttskýjað -13
■aT«M^WÆWagilkW».!^aWIHW.’|.Hi