Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2000, Side 6
6
________MÁNUDAGUR 13. MARS 2000
Fréttir I>V
Kaup Húsavíkurbæjar á 3 milljóna króna hlut í Mýflugi dugði skammt:
Hættir flugi milli Húsa-
víkur og Reykjavíkur
DV, AKUREYRI:______________________
Mýflug hf. hefur ákveöið að hætta
áætlunarfluginu milli Húsavíkur og
Reykjavíkur og verða síðustu ferð-
imar farnar á morgun. Mýflug tap-
aði 9 mifljónum króna á flugleiðinni
árið 1998 og 27 milljónum á síðasta
ári.
Síðan áætlunarflugið var gefið
frjálst árið 1997 hafa þrjú félög reynt
fyrir sér á þessari flugleið en öll gef-
ist upp. Reinhard Reynisson segir
það skelfllegt ef ekki verður hægt
að halda fluginu áfram, og í raun-
inni snúist málið um það hvort
stjórnvöld vilji að sam-
göngur séu hluti af grunn-
þjónustustigi á landsbyggð-
inni. Aðspurður hvort það
þýði að hans mati að ríkið
eigi að niðurgreiða flugið
svaraði bæjarstjórinn því
þannig að ríkið greiddi
ferjurekstur á fleiri en ein-
um stað, og hann kannað-
ist ekki við að slíkt væri
kaflað niöurgreiðslur.
Bæjarráð Húsavikur
samþykkti á fundi fyrir
rétt rúmum mánuði að
Reynisson
“Skelfilegt að ekki
skuli vera hægt að
halda uppi flugi
hingað. “
kaupa hlutafé í Mýflugi
fyrir 3 milljónir króna og
var litið svo á að með þvi
væri verið að styrkja Húsa-
víkurflugið. Nýbúið er að
greiða helminginn eða 1,5
mifljónir króna. En ætlar
Húsavíkurbær að krefjast
endurgreiðslu þess íjár?
„Ég segi ekkert um það
annað en að þau gögn sem
lágu fyrir þegar þessi
ákvörðun var tekin voru
aflt öðruvísi en þau gögn
sem eru uppi á borðinu í
dag. Við munum skoða öll þessi
mál. Það sem skiptir hins vegar
mestu máli er að héðan verði hald-
ið uppi áætlunarflugi, annað er óá-
sættanlegt. Málið myndi e.t.v. snúa
eitthvað öðruvísi við ef komin væru
jarðgöng í gegnum Vaðlaheiði sem
myndi stytta leiðina til Akureyrar
um a.m.k. 15 mínútur og losa okkur
við akstur um fjallveg. Göngin í
Vaðlaheiði hafa komið til tals, m.a.
hjá núverandi iðnaðarráðherra,
enda er enginn fjallvegur hér á
landi fjölfamari utan Hellisheiðar
syðri." -gk
A dekurdegi í Bláa lóninu
Undirbúningur undir fegurðarsamkeppni Suðurnesja, sem haldin verður í Bláa lóninu 1. apríl, stendur nú sem hæst. Stúlkurnar sem taka þátt eru tíu talsins
af öllum Suöurnesjum. Þær heita Brynja Guðmundsdóttir, Jóhanna ingvarsdóttir, Elísabet Lovísa Björnsdóttir, Svala Björk Reynisdótlir, Sigríður Anna Ólafsdótt-
ir, Harpa Sif Sævarsdóttir, Sigrún Óiadóttir, Sóley Bára Garðarsdóttir, Margrét Sæmundsdóttir og Hildur Ingólfsdóttir.
Framkvæmdastjóri keppninnar er Guðbjörg Glóð Logadóttir.
ímyndarkönnun Frjálsrar verslunar:
Bónus hrapar í vinsældum
- brettum upp ermar, segir framkvæmdastjórinn
Bónus, sem verið hefur vinsælasta
fyrirtæki á íslandi undanfarin fimm ár
samkvæmt könnunum Frjáisrar versl-
unar, hefur hrapað í 5. sæti vinsælda-
listans eftir síðustu könnun EV. Sama
á við um aðrar matvöruverslanir und-
ir hatti Baugs. Þetta er eitt mesta fylg-
ishrun sem um getur i sögu þessara
kannana Frjálsrar verslunar. Bónus
átti vinsældamet fyrir tveimur árum
þegar um fjóröungur aflra svarenda í
könnun blaðsins sagði Bónus í mest-
um metum hjá sér. Nú hefur taflið snú-
ist við og óvinsældir Baugsverslana
hafa aukist verulega. Vinsældir Bón-
uss eru fjórum sinnum minni en fyrir
tveimur árum. Ritstjóri Frjálsrar
verslunar rekur ástæðuna til þess að
Bónusfeðgar hafl fengið orð á sig sem
kaupsýslumenn, fremur en vinir litla
mannsins, og kaup þeirra i fyrirtækj-
um eins og Samheija, veitingastöðum
og þátttaka þeirra í Orca-hópnum hafi
haft slæm áhrif á ímynd þeirra.
Lægsta verðið í tíu ár
„Þessi könnun segir okkur að við
þurfum að gera betur,“ segir Guð-
mundur Marteinsson, framkvæmda-
stjóri Bónuss. „Þessi niðurstaða er
ekki nógu góð því við viljum ná topp-
sætinu á ný. Ef ástæðan fyrir minni
vinsældum fyrirtækisins er sú að Bón-
usfeðgar hafa staðið í fjárfestingum
flnnst mér það mjög sorglegt. Þeir hafa
staðið fyrir meiri kjarabótum fyrir al-
menning en nokkur rikisstjóm eða
verkalýðsleiðtogi með þvi að lækka
matvöruverð. Mér finnst virkilega leitt
ef á að snúa baki við þeim þrátt fyrir
það. Menn mega heldur ekki gleyma
því að eftir þessi tíu ár er Bónus enn
með lægsta verðið á matvörumarkaði
og þá staðreynd ætlum við að nýta
okkur til að ná okkur aftur á strik.“
-HG
Námskeið
til aukinna ökuréttínda
hefjast vikulega
Sveigjanlegur námstími (áfangakerfi), próf á rútu, leigubíl, vörubíl og vörubíl
með tengivagni. Reyndir kennarar, góðir bílar, fullkomin aðstaða.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar.
3sl^
OKU
£KOUNN
IMJODD
Kennsla og skrifstofa: Þarabakka 3, Mjóddinni, Rvík, sími 567 0 300
• •
HHSÉ- Úmsjón:
Gylfi Kristjánssonnetfang:
sandkom@ff.is
Ætlar Þú?
Þá er Kristnihátíðarnefnd með
Júlíus Hafstein í fararbroddi búin
að gefa það út að von
sé á 75 þúsund
manns á Kristnihá-
tiðina á Þingvöllum í
sumar. Mörgum hef-
ur eflaust brugðið
við þessar fréttir,
a.m.k. þeim sem
ekki hafa áhuga á
að eyða heilli helgi í
júlí í það að skemmta sér
með biskupum, kirkjumálaráðherr-
um og fleiri fyrirmennum. Nú mun
sko í alvöru reyna á það hversu
sannkristin íslenska þjóðin er og
hversu tilbúin hún er að fagna af-
mæli kristnitökunnar hér á landi.
Kunningi Sandkomsritara sagðist
vilja veðja að hátíðargestimir á
Þingvöllum í sumar verði ekki
nema um 10 þúsund þrátt fyrir að
bílastæði verði fyrir 24 þúsund
bíla. Sagði hann einnig að flestir
þessara 10 þúsunda væru orðnir
svo gamlir að þeir ætluðu með
langferðabifreiðum á hátíðina.
Fyrir Viagra
Það mun hafa
verið fyrir daga
Viagra sem eftir-
farandi vísa varð
til en þannig var
að eldri maður
stóð undir hús-
vegg og sprændi.
Varð honum þá
að orði:
Fyrr var hann fullur af kjarna,
faöir allmargra barna,
en nú er hann hœttur aó haróna,
helvítis beiniö aö tarna.
Höfundur er ókunnur, en grunur
beinist að Hákoni Aðalsteinssyni.
Til í slaginn
Logi Ólafsson knattspymuþjáif-
ari var fljótur að svara kalli for-
ustumanna Knattspyrnusambands
íslands játandi þeg-
ar þá sárvantaði
þjálfara fyrir
kvennalandsliðið á
dögunum, en þetta
eru sömu mennirn-
ir og ráku Loga úr
starfi landsliðsþjálf-
ara karla fyrir
fáum árum. Fannst
mörgum að Logi heföi átt að svara
kaliinu á annan hátt. Hitt er að
það voru landsliðskonurnar sjáifar
sem hröktu fyrrverandi þjálfara úr
starfi þar sem þær neituðu næstum
allar að leika undir hans stjóm.
Slíkt mun vera einsdæmi og fyrst
knattspymuforustan hafði ekki
bein í nefinu til að svara knatt-
spyrnukonunum á viðeigandi hátt
verður fróðlegt að fylgjast með lið-
inu undir stjóm Loga í næstu leikj-
um. Svo skemmtilega vill til að
þeir eru gegn heimsmeisturum
Bandaríkjanna. Karlalandsliðið
okkar gerði jafntefli við heims-
meistarana, og við hljótum að gera
kröfur um að kvennaliðið sem tel-
ur sig hafa efni á að reka þjálfara
sinn geti gert það sama.
Úlfaldi úr...
Kona nokkur kom inn í verslun
og bað um brjóstahaldara. Af-
greiðslukonan
spurði hana
hvernig brjósta-
haldarinn ætti að
vera, hvort hún
vildi „Hjálpræð-
isherinn", „Ein-
ræðisherrann"
eða „Blaðamann-
inn“. Konugrey-
ið skildi þetta ekki alveg og fékk
þá skýringu samstundis að „Hjálp-
ræðisherinn" lyfti þeim fóllnu,
„Einræðisherrann" sanki að sér
eins miklu og hann gæti en „Blaða-
maðurinn“ gerði úlfalda úr
mýflugu.