Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2000, Blaðsíða 13
13
MÁNUDAGUR 13. MARS 2000______________
DV
ísraelskur rabbíni:
Útlönd
Afsökun páfa
ekki nægjanleg
Jóhannes Páll páfi baðst í gær í
Péturskirkjunni í Róm fyrirgefning-
ar á syndum kaþólsku kirkjunnar.
Bað páfi um fyrirgefningu vegna
meðferðar kaþólsku kirkjunnar á
gyðingum, frumbyggjum, konum og
minnihlutahópum.
„Við fyrirgefum og við biðjumst
fyrirgefningar," sagði páfi í bæn
sinni í gærmorgun.
Er páfi nefndi gyðinga minntist
hann ekki sérstaklega á helfórina. í
síðustu viku höfðu ítalskir gyðingar
hvatt páfa, sem heimsækir Jerúsal-
em síðar i þessum mánuði, að nefna
sérstaklega helfórina í messunni.
Helsti rabbíni gyðinga í ísrael,
Meir Lau, lýsti í gær yfir ánægju
sinni með fyrirgefningarbeiðni páfa
vegna synda kaþólsku kirkjunnar.
Lau kvaðst hins vegar vonsvikinn
yfír að páfi skyldi ekki hafa farið
nánar út í þau illvirki sem framin
Jóhannes Páll páfi
Páfi baöst í gær fyrirgefningar á
syndum kaþólsku kirkjunnar.
voru í garð gyðinga. Kvaðst Lau
vonast til að páfi myndi bæta úr því
í heimsókn sinni til ísraels.
Páfagarður hafði árið 1998 beðið
gyðinga fyrirgefningar á því að kaþ-
ólikkar skyldu ekki hafa verndað þá
í Þýskalandi undir stjórnartíð nas-
ista.
í bænunum, sem lesnar voru í
Péturskirkjunni í gær, var minnst á
margvíslegar ofsóknir gegn minni-
hlutahópum, þar á meðal gegn
sígaunum. Fulltrúar samkyn-
hneigðra höfðu beðið um að ofsókn-
ir vegna kynhneigðar fólks yrðu
sérstaklega nefndar en páfi varð
ekki við þeirri ósk.
Fyrirgefningarmessan var liður í
hátíðahöldum kaþólsku kirkjunnar
vegna árþúsundamótanna.
Messunnar var beðið með eftirvænt-
ingu og mesta forvitni vakti fyrir-
gefningarbeiðnin til gyðinga.
Hashim Thaci
Óformlegur leiötogi Kosovo ávarp-
ar flóttamenn.
Leiðtogi Kosovo
viðriðinn glæpi
Hashim Thaci, óformlegur leið-
togi Kosovo, er á kafi i fjárkúgun-
arstarfsemi og öðrum afbrotum.
Þetta er fullyrt í skýrslu Samein-
uðu þjóðanna, SÞ, sem danska
blaðið Politiken hefur undir
höndum. Skýrslan er svo umdeild
að Bandaríkjamaðurinn James
Covey, sem starfar á vegum Sam-
einuðu þjóðanna, hefur stöðvað
hana til þess að Thaci verði ekki
fordæmdur á alþjóðavettvangi, að
því er Politiken greinir frá.
5 þúsund manna sveit Thacis
er sögð leggja undir sig eignir
manna, innheimta ólöglega skatta
og hrekja fólk úr híbýlum sínum
svo eitthvað sé nefnt. Sveitin
nýtur fjárhagsstuðnings SÞ
Ganga til stuönings Haider
Lögreglan í Berlín beitti háþrýstidælum í gær til aö stööva óeiröir er fjöldi
manna réöst á nýnasista sem efndu til fjöldafundar til stuönings Jörg Haider,
leiötoga Frelsisflokksins í Austurríki, og nýrri ríkisstjórn Austurríkis.
Intffl « •»
kelutBJfWtrfíbsíW114'1
orktdeérsðaio í
bítitjafnlTíai***'*'1’'11
ir.Hil!eWor steiBein'* o& íoU ^
tíkainíafl þwtoasi.
Ilií > ÚTHSID > SHERPR ‘
HREIN ORKfl!
Leppin er bragðgóður svaladrykkur
sem hentar öllum aldurshópum
i> Leppin inniheldur engan hvítan sykur og engin rotvarnarefni
Orkan í Leppin er öðruvísi samsett en orka í hefðbundnum orkudrykkjum.
Leppin er ekki orkuskot í líkingu við suma drykki sem byggjast mest
á örvandi efnum og einföldum kolvetnum (ein- og tvísykrum). Orkan í
Leppin er raunveruleg og langvarandi, hún hefur jákvæð áhrif á ein-
beitingu og minnkar líkur á þeim óþægilegu sveiflum t blóðsykri sem
gera fólk yfirspennt og kraftlaust á víxl.
t> Engin örvandi efni er að finna í Leppin
Engin örvandi efni svo sem koffein eða guarana er að finna í Leppin.
Taugakerfi margra, ekki síst barna og unglinga, bregst oft illa við þeirri
spennu sem örvandi efni magna upp. Þeir sem neyta drykkjarins finna
fljótt að örvandi efni eru með öllu óþörf því Leppin veitir orku sem er
ánægjuleg og notadijúg.
Sykurinnihald í Leppin er aðeins einn níundi hluti þess sykurmagns
sem er að finna í sætum gosdrykkjum. Einn helsti tilgangur Leppin er
að halda magni blóðsykurs jöfnu. Jafnvægi blóðsykurs slær á löngun
í sælgæti.
Allir geta neytt þessa svalandi drykkjar til að bæta athyglisgetuna
og viðhalda orku í lengri eða skemmrl tíma.
Skoda Octavia, f.skrd. 14.07.1998,
bsk., 5 dyra, ekinn 41 þ. km, grár.
Verð kr. 1.190.000.
Kia Shuma, f.skrd. 28.10.1999,
ssk., 4 dyra, ekinn 5 þ. km, fjólublár.
Verð kr. 1.380.000.
MMC Space Wagon, f.skrd. 17.09.1996,
ssk., 5 dyra, ekinn 38 þ. km, dökkblár.
Verð kr. 1.580.000.
MMC Lancer, f.skrd. 21.01.1999,
bsk., 4 dyra, ekinn 17 þ. km, grár.
Verð kr.1.340.000.
Skoda Felicia pickup, f.skrd. 01.06.
1999, bsk., 3 dyra, ekinn 6 þ. km, hvítur.
Verð kr. 890.000.
MMC Pajero 3500 bensín, f.skrd. 12.02.
1998, ssk., 5 dyra, ekinn 53 þ. km,
dökkgrænn. Verð kr. 3.400.000.
VW Caravelle TDi, f.skrd. 05.01.1999,
ssk., 4 dyra, ekinn 26 þ. km, grænn.
Verð kr. 3.260.000.
Range Rover 2,5 dísil, f.skrd. 19.09.
1997, ssk., 5 dyra, ekinn 43 þ. km, grænn.
Verð kr. 3.650.000.
Borgartúni 26, símar 561 7510 & 561 7511
úrval Hð-faVa bíla af öllom s+aröom og gcröowi /
Margar bifreiðar á söluskrá
okkar er hægt að greiða með
Visa eða Euro raðgreiðslum