Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2000, Page 32
44
MÁNUDAGUR 13. MARS 2000
, Tilvera X>V
Kambanklúbbur
» Listaklúbbur Leikhúskjallarans
verður helgaður Oss moröingj-
um eftir Guðmimd Kamban í
kvöld. Fjallað verður um
Kamban sjálfan, sýnd brot úr
sjónvarpsmynd Viðars Víkings-
sonar um kappann og leikin
atriði úr sýningu Þjóðleikhúss-
ins á verkinu. Húsið verður
opnað kl. 19.30 og dagskráin
hefst klukkutíma síðar.
Pjass__________________________________
■ KVARTETT SUNNU Á SÓLONI Sunna Gunn-
laugsdóttír djasspíanisti mun leika með kvart-
ett sínum, skipuðum Tony Malaby á saxófón,
Drew Gress á bassa og Scott McLemore á
trommur á djassklúbbnum Múlanum kl. 21 en
Múlinn hefur aðsetur í Sölvasal á Sóloni ís-
^ landus. Miðaverð 1000 kr., 500 fýrir nemend-
ur og eldri borgara.
Fundir
B HINSEGIN FRÆÐI Dr. Robert J. Hill heldur
fyrirlestur kl. 12 í dag I stofu 101 í Odda um
hinsegin fræði á vegum Félags sam- og tvíkyn-
hneigðra stúdenta og Rannsóknarstofu í
kvennafræðum. Fyrirlesturinn fjallar um þessi
fræði eins og þau eru stunduð ú Bandaríkjun-
um en einnig mun dr. Hill fjalla um rannsóknir
sinar á reynslu kynskiptinga. Þær snúa að körl-
um sem hefur verið hreytt í konur og hvernig
þeim tekst að aðlaga sig kvenhlutverkinu.
■* ■ FORELDRAHÚSIÐ Hverjir hafa aðgang og
afskipti af unglingunum okkar? Svona
verður Sþurt í Foreldrahúsinu, Vondarstræti 4b
(bakhús), kl. 20.30 í kvöld. Sú sem reynir að
svara þessu er Sigrún Hv. Magnúsdóttir
félagsráðgjafi. Hún mun fara yfir mikilvægi
þess að þekkja vini, foreldra, kennara, þjálfara
og aðra þá sem unglingurinn umgengst. Hún
mun gera tilraun til að varpa Ijósi á „nýja"
unglingamenningu og fjalla um fýrstu einkenni
fíkniefnaneyslu og hvernig foreldrar geta tekið
á henni. Öllum er velkomið að hlýða á Sigrúnu
og það kostar 500 kr. inn.
B TÆKIFÆRIÁ NETINU Félag háskólakvenna
stendurfýrirtveggja daga námskeiði undir heit-
inu: Ný tækifæri á Internetinu. Fyrri dagurinn
er í dag og hefst námskeiðið kl. 17 í Verzlunar-
skóla íslands og stendur til 19.30. Námskeið-
ið er öllum opið og nánari upplýsingar veitir for-
maður félagsins: Geirlaug Þorvaldsdóttir.
**- i
Leikhús________________________________
• B ÞREK OG TÁR Leikfélag Menntaskólans að
Laugarvatni sýnir leikritið Þrek og tár eftir
Ólaf Hauk Símonarson kl. 21 á Flúðum. Þetta
leikrit er ef tilvill mörgum kunnugt eftir að það
gerði það gott í Þjóðleikhúsinu 1995 við miklar
vinsældir. Um 50 manns koma að sýningunni
á einn eða annan hátt. Tónlist spilar allstóran
þátt í uppfærslu sem þessari og sér Malcom
Holloway um hljómsveitastjórn og útsetningu
tónlistar.
B BAT OUT OF HELL Loftkastalinn kynnir
gamanleikrit sem er byggt á lögum E. Jim
Steinman og Meatloaf. Sýningin kallast BAT
OUT OF HELL og hefst klukkan 20. Sími í miða-
sölu er 552 3000.
Krár___________________________________
B FUSION Á OAUKNUM Gaukur á Stöng
verður vettvangur beyglaðra bræðingstóna þeg-
ar hljómsveitin Fusion mætir á svæðið. Með-
limir eru þeir Jói Ásmunds, Eyþór Gunnars,
Jóel Páls og Jól Hjöll. . Þetta er gæðaband
sem er alveg þess virði að leggja hlustir við.
Þrír þeirra eru tilnefndir á ÍTV og það hlýtur að
segja manni eitthvað um gæði tónlistarinnar
sem mun liöa út úr hljóðfærum þeirra. Bein
sending á www.xnet.is
B LÉTIIR TÓNAR Á NAUSTINU Naustið býður
matargestum sínum upp á Ijúfa kvöldstund í
koníakstofunni vjð Vesturgötu. Söngkonan og
píanóleikarinn Liz Gammon léttir fóiki melting-
>- una með Ijúfum tónum.
B PÍANÓTONAR Á CAFÉ ROMANSi Breski
píanóleikarinn Frankie Hame hamrar á píanó-
ið á Café Romance í Lækjagötunni. Drengur-
inn er í góðri æfingu því hann situr hvert kvöld
við þetta sama píanó og spilar eins og hann
eigi lífið 'eysa._______________________
Sjá nánai: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
ungar ug clllllt6“,
Leikkonurnar Linda Ásgeirsdóttir og Edda
Björg Eyjólfsdóttir (forsíðustúlka síöasta
Fókuss) voru glaölegar á Borginni.
Bíógagnrýni
Reffilegir og ánægöir meö útkomuna
Björn Jörundur Friöbjörnsson, Róbert Arnfinnsson og Ólafur Darri
Ólafsson voru ánægöir og áttu inni fyrir því. Þeir þykja hafa staöiö sig
vel í Fíaskó, Róþert sem afinn og þeir Björn Jörundur og Ólafur Darri
sem keppinautar um hjarta heimasætunnar.
Baldur Stein-
grímsson, 95 ára
gamall íbúi við
Skeggjagötu í
Reykjavík sem
gengur í hádeginu í
mat á Droplaugar-
stöðum, eins og við
sögðum frá á fostu-
dag, flutti suður á
Vifilsstaði árið 1927 en ekki árið
1923 eins og missagt var á föstu-
dag. Baldur kynntist verðandi eig-
inkonu sinni einmitt á Vífilsstöð-
um þar sem hún var aðstoðarráðs-
kona en hún hét Mar-
grét Símonardóttir.
Regnbogirtn/Bíóhöiiin/Laugarásbíó - Ströndin: + j m
Tveir frá sama rakara
Ragnar Bragason leikstjórí geislaöi
eftir hlýjar viötökur áhorfenda. Hér
klappar hann á bakiö á Hallgrími
Helgasyni, ríthöfundi og myndlistar-
manni, sem veröur aö bíöa fram aö
páskum eftir aö fá úr því skoriö
hvernig áhorfendur taka 101 Reykja-
vík, sem gerö er eftir bókinni hans.
Vel lukkað
Baldur Steingrímsson:
Suður 1927
Aðalleikkona í annað sinn
Þaö gæti einhver haldiö aö
Raskó væri fyrsta aðalhlut-
verk Silju Hauksdóttur í
bíómynd en svo er ekki.
Hún lék annaö aöalhlut-
verkiö í Draumadísum,
einni minnst sóttu íslensku
myndinni. Hér brosir hún
fullviss þess aö Fíaskó
hljóti ekki sömu örlög. Meö
henni eru þær Birna Anna
Björnsdóttir og systir Silju,
Arna Hauksdóttir.
DV, VIK I MYRDAL:_________________
Ingólfur Sæmundsson, faðir
Finns seðlabankastjóra, býr við
Víkurbraut í Vík í Mýrdal. í öll-
um snjóganginum í vetur hefur
Ingólfur átt erfitt með að moka
snjó af gangstéttinni heilsunnar
vegna. Hann segist þó lítið hafa
mokað í vetur af því að það
komi alltaf engill á morgnana og
engillinn sé oft búinn að moka
stéttina þegar hann kemur á
fætur. Engill þessi mun vera
Guðjón Þorsteinsson sem einnig
býr í Vík. -SKH
Ný íslensk kvikmynd, Fíaskó
eftir Ragnar Bragason, var
frumsýnd í Háskólabíói á föstu-
dagskvöldið og var henni vel
tekið af gestum. Á eftir flykktust
frumsýningargestir og aðstand-
endur myndarinnar niður á
Borg þar sem myndin og mann-
lífið var krufið til mergjar og
mörgu spaklegu rennt niður með
góðum veitingum.
Leiklist eöa hestar?
Baltasar Kormákur og
Hinrik Ólafsson eru
þáöir ágætir leikarar og
miklir hestamenn.
Það er því Ijóst aö
þeir eru aö ræöa um
annaöhvort leiklist
eöa hesta - en hvort
vitum viö ekki.
Engillinn kemur
á morgnana
DV-MYND SIGURÐUR KARL HJALMARSSON
Búiö aö moka stéttina
Ingólfur Sæmundsson í Vík klappar
niöur lausan snjóinn svo hann geti
gefiö smáfuglunum korn. Eins og
sjá má er engillinn búinn aö koma
þennan morguninn og moka
gangstéttina.
Það gengur bara betur næst
Leonardo DiCaprio og Virginie Ledoyen.
Leonardo er þakþokaferðalangur á þvælingi um heiminn og burt frá sjálfum
sér. Hann hittir franskt þar og verður skotinn í stelpunni.
Það verður að segjast eins og er,
bæði Trainspotting gengið og Leon-
ardo skella harkalega til jarðar með
þessu verki sem er sérlega óspenn-
andi della klædd í íðilfagrar umbúð-
ir. Ekki vantar áreynsluna en það er
eins og allir aðilar hafi sannfært
sjálfan sig um að allt væri í himna-
lagi en enginn haft fyrir þvi að
spyrja lykilspuminga um erindi og
sögu sem væri þess verð að segja.
Þessvegna fáum við haug af óspenn-
andi klisjum um paradísarmissinn
innra sem ytra og marflatar persón-
ur sem hafa ekkert annað að gera en
busla í sjónum og reykja hass. Yfir
og allt um kring glymur svo þreyt-
andi og andlaust popp, birtingar-
mynd alls þess sem þetta fólk þykist
vera að flýja. Hér er sumsé bæði ver-
ið að reyna að hirða kökuna og
snæða hana, en þetta er ekki einu
sinni skemmtilega ósvífið heldur
bara skelfilega leiðinlegt.
Leonardo er semsagt bakpoka-
ferðalangur á þvælingi um heiminn
og burt frá sjálfum sér. Hann hittir
franskt par og verður skotinn í
stelpunni, platar þau síðan með sér
á þessa meintu paradísareyju eftir
að hafa fengið um hana ábendingu
frá einhverjum leiðinda rugludálli. í
þessari paradís eru allir að skemmta
sér og hafa það huggulegt en svo
Ásgrímur
Sverrisson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
þegar upp kemst að Leonardo hefur
sagt fleiri vitleysingum frá staðnum
er hann settur í að losna við þá.
Þetta finnst honum ekkert skemmti-
legt og grípur til sinna ráða.
Ég kaupi ekkert af þessum þvætt-
ingi. Leonardo er fínn leikari en
treður hér marvaðann. Trainspott-
ing strákamir eru einnig athyglis-
verðir kvikmyndagerðarmenn en
svo virðist sem þeim liggi mikið á
að koma með smell eftir skellinn
Life Less Ordinary. Þeim verður
ekki kápan úr því klæðinu og í
rauninni er lítið við þetta að bæta
nema „það gengur bara betur næst“
(vonandi).
Ásgrímur Sverrisson
Lefkstjóri: Danny Boyle. Handrit: John
Hodge. Kvikmyndataka: Darius Khondji
Tónlist: Angelo Badalamenti. Aðalhlut-
verk: Leonardo Di Caprio, Virginie
Ledoyen, Tilda Swinton.