Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2000, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000
11
DV
Fréttir
DV+1YND DANÍEL ÓLAFSSON
Byrjað á blokk
Þessi mynd var tekin af fyrstu framkvæmdum viö nýja fjölbýlishúsiö á Akranesi, á sex hæöum, en fram til þessa hafa
menn oftast byggt lægra og þetta er fyrsta fjölbýlishúsiö sem rís á Skaganum í næstum tvo áratugi.
Loksins fjölbýli á
Skaganum
- breyttar þarfir og kröfur í kjölfar íbúafjölgunar
DV. AKRANESI:_________________________
Framkvæmdir eru hafnar við bygg-
ingu sex hæða fjölbýlishúss við Jaðars-
braut 25 á Akranesi. í húsinu verða 22
íbúðir. Óvenjulegt er að svo stór fjöl-
býlishús rísi á Akranesi. Það er Tré-
smiðjan Akur ehf. á Akranesi sem
byggir húsið en það fyrirtæki hefúr
starfað i 40 ár og hefúr verið leiðandi í
byggingariðnaði á Akranesi.
Bygging fjölbýlishúsa hefur í gegn-
um tíðina verið snar þáttur í starfsemi
fyrirtækisins og er þetta tólfta fjölbýl-
ishúsið sem það byggir. Mikiil eftir-
spum hefur verið eftir blokkaríbúðum
í kjölfar íbúafjölgunar á Akranesi enda
hefur ekki verið byggt fjölbýlishús á
annan áratug.
Nýja fjölbýlishúsið er skammt frá
miðbæ Akraness og er stutt í alla al-
menna þjónustu. Skóli og íþróttahús
eru i næsta nágrenni. Frábært útsýni
til allra átta verður frá húsinu austur
að Akrafjalli og Esjunni, til vesturs að
Snæfellsjökli og suður yfir Faxaflóann
til Reykjavíkur.
Verð íbúðanna er mismunandi, 3
herbergja 97,8 fermetra íbúð á fyrstu
hæð kostar 11,5 miiljónir en á þeirri
sjöttu 12,3 milljónir, 4 herbergja 127 fm
íbúð kostar á annarri hæð 13,8 m.kr.
og á þeirri sjöttu 14,4 m.kr.
-DVÓ
[ | 111111 |i 1 1 II
liill iiiliiiiii I llp ■ lililf III
1 t t
II íf
-iJ EE intTinffrlf Ffiir J: t
LL
~l_j LE ii I
-1 EC 11 r
i 1 11 1 [|
Svona veröur það
Þannig kemur suövesturhliö nýja fjölbýlisshússins að líta út samkvæmt teikn-
ingu Magnúsar Ólafssonar.
Verkalýðsfélagið Báran-Þór:
Meinum það sem við segjum
„Með því að samþykkja boðun
verkfalls sýnum við fram á að við
ætlum okkur að fylgja fast eftir þeirri
kröfú okkar að fólkinu á lægstu laun-
unum verði sýnd sú virðing sem það
á skilið,“ segir í áskorun almenns fé-
lagsfundar verkalýðsfélagsins Bár-
unnar-Þórs sem haldinn var á Sel-
fossi nýlega. Fundurinn skorar á
verkafólk um allt land að taka þátt í
atkvæðagreiðslu félaga Verkamanna-
sambands íslands og Landssambands
iðnverkafólks um boðun allsheijar-
verkfalls frá og með 30. mars næst-
komandi.
“Það er komið að þeirri stund að
við verðum að sýna samstöðu um
okkar rétt. Við verðum að sýna fram
á að við meinum það sem við segjum
þegar við forum fram á leiðréttingu
launa okkar,“ segir í áskoruninni.
-JBP
Grjóthálsi 1 • Sími söludeildar 575 1210
www.bl.is