Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2000, Page 26
34
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000
Tilvera
I>V
*
í
t
>
Friðrik prins
bordaði ísbjörn
Friðrik Danaprins er sannkall-
að ofurmenni. Ekki einasta
þrammar hann um ísauðnir
Grænlands með nokkrum félög-
um sínum heldur er hann farinn
að leggja sér ísbjamarkjöt til
munns. Það gerðist fyrir stuttu,
i 36 stiga gaddi. Grænlenskir
veiðimenn skutu bangsa og mat-
reiddu fyrir hans konunglegu
hátign. Friðrik hefur hins vegar
ekkert látið hafa eftir sér um
hvemig ísbjarnarsúpan bragðað-
ist, að því er danska blaðið
Billed Bladet greinir frá. Ekki
leikur þó vafi á að hann fékk
næga orku úr matnum. Ekki
veitir nú sjálfsagt af.
Jackson hættir
viö Varsjárf erö
Fölleiti popparinn Michael
Jackson hefur aflýst fyrirhug-
aðri heimsókn sinni tÚ pólsku
höfuðborgarinnar Varsjár.
Ástæðan mun vera sú að viðræð-
ur um að byggja skemmtigarö
þama austur frá fóru út um þúf-
ur. En eins og allir vita er
Jackson mikill aðdáandi
skemmtigarða og annars sem
börn hafa gaman af en fullorðn-
ir helst ekki. Michael er þó ekki
búinn að gefa upp alla von enn
og vonandi rætast óskir hans.
Mikkinn vill
leika við Kötu
Michael Douglas vill ólmur
leika á móti unnustunni,
Catherine Zetu Jones, í væntan-
legri kvikmynd, Traffic, sem
fjallar um hörkulegan heim
fíkniefnasmygls. í þessu tilviki
er um að ræða smygl á heróíni
og kókaíni til Bandaríkjanna frá
Mexíkó. Ef af verður koma
skötuhjúin þó til með að vera
hvort í sínu liðinu. Michael leik-
ur yfirmann baráttunnar gegn
fíkniefnum en Katazeta leikur
blóðþyrsta eiginkonu helsta
fikniefnabarónsins.
Idag er útgáfudagur á geisla-
plötu með tónlistinni úr
Englum alheimsins en óhætt
er að segja að sjaldan eða aldrei
hafi íslensk kvikmyndatónlist vak-
ið jafnmikla athygli og hrifningu.
Á plötunni er að finna kvikmynda-
tónlist Hilmars Arnar Hilmarsson
ásamt lögum með Sigurrós. Um er
að ræða einstaklega heilsteypta
plötu þar sem kvikmyndatónlist
Hilmars Amar rennur vel saman
við áhrifamikinn og tilfinninga-
þrunginn flutning Sigurrósar,
meöal annars á Bíum bíum
bambaló. Hilmar Örn Hilmarsson
er þekktasta kvikmyndatónskáld
okkar íslendinga og hefur á síð-
ustu árum lítið sem ekkert gert af
því að koma fram opinberlega,
heldur sig í upptökuverum þar
sem hann kann best við sig. Hann
ætlar að bregða út af vananum og
koma fram á tónleikum sem
haldnir eru í tilefni útgáfu plöt-
unnar i Menntskólanum við Sund
í kvöld:
„Þetta veröur alveg ný reynsla
fyrir mig.“ segir Hilmar Örn.
„Eins og gefur að skilja er ekki
hægt að flytja tónlistina eins og
hún heyrist í kvikmyndinni, þá
þyrfti íjölda hljóðfæraleikara með
mér. Það sem ég mun gera er að
flytja tónlistina á einfaldan hátt.
Með mér kemur fram Einar Már
Guðmundsson og mun hann flytja
við tónlistina texta úr Englum al-
heimsins. Sigurrós mun svo bland-
ast inn í okkar flutning og taka
siðan við.“
Mikill aðdáandi Sigurrósar
Hilmar Örn hefur samið tónlist
við myndir Friðriks áður, meðal
annars við Börn náttúrunnar og er
samstarf þeirra orðið langt og far-
sælt: „Það var eiginlega Friðrik
sem átti þá frábæru hugmynd að
fá Sigurrós til að vera með í tón-
listinni við Engla alheimsins og
það þurfti ekki að sannfæra mig
um ágæti þeirrar hugmyndar. Ég
er einn helsti aðdáandi Sigurrósar
og tel það sem hún er að gera eitt-
hvað það mest spennandi í músík,
ekki bara hér á landi heldur í öll-
um heiminum og það lá fyrir að
þessi stemning og áferð sem þeir
skapa í tónlist sinni myndi henta
mjög vel í myndina eins og komið
hefur fram. Það liggur við að ég
segi að tónlist þeirra í myndinni
komi beint úr himnaríki."
Hilmar Örn segir það skelfilega
tilhugsun að koma fram opinber-
lega: „Ég hef ekki komið fram i sjö
ár. Minn staður er stúdióið og þar
Gæti vel hugsað mér að
starfa með John Woo
- segir Hilmar Örn Hilmarsson sem kemur fram á tónleikum í kvöld
vil ég vera og ég dauðsé eftir að
hafa samþykkt að koma fram á
tónleikunum í kvöld.“
Hilmar Örn Hilmarsson er
fyrsta og eina tónskáld okkar ís-
lendinga sem eingöngu vinnur við
gerð kvikmyndatónlistar: „Ég hef
ekki gert neitt annað í mörg ár.
Auk tónlistarinnar við Engla al-
heimsins hef ég á síðasta ári
samið tónlist við Ungfrúna góðu
og Húsið, færeysku myndina Bye,
Bye Bluebird, sem vann til verð-
launa fyrir stuttu, og seint á síð-
asta ári samdi ég tónlist við
finnska kvikmynd sem heitir
Geography of Fear. Þessa stundina
er ég að vísu ekki að vinna að
kvikmyndatónlist heldur er ég að
vinna með Einari Emi Benedikts-
syni og Sigtryggi Baldurssyni að
plötu. Við lögðum upp með að gera
danshæfa tónlist en það er aldrei
að vita hvar við endum.“
Ættjöröin togaði í mig
Hilmar Örn bjó í Danmörku í
fimm ár en ákvað að koma heim síð-
astliðið haust: „Það má segja að ætt-
jörðin hafi togað í mig í dálítinn
tíma: Ég var í raun kominn í góða
stöðu í Danmörku þar sem ég hafði
nóg að gera og var í góðum sam-
böndum og þó ég sé kominn heim þá
held ég þeim samböndum, það eru
vissir leikstjórar sem ég hef unnið
með og mun vinna með áfram. Þeg-
ar ég fór utan var allt umhverfi til
starfa í stúdói nánast á frumstigi
hér á landi miðað við hvað var í
boði ytra. Með aukinni tækni og sér-
staklega tölvunni hefur þetta allt
breyst hér á landi og er ég með betri
aðstöðu heima hjá mér en hægt var
að finna fyrir svona sjö árum og svo
er Kjartan Kjartansson með eitt
besta hljóðver sem hægt er að hugsa
sér.“
Hilmar Öm er orðinn þekkt kvik-
myndatónskáld í Evrópu, en gæti
hann hugsað sér að vinna í banda-
rískum kvikmyndum: „Jú, það gæti
orðið spennandi, en ég hef ekkert
sérstaklega verið að hugsa um það.
Það hafa komið fyrirspumir og get
ég nefnt sem dæmi að John Woo
hafði áhuga á samstarfi við mig en á
þeim tíma gekk það ekki upp, en ég
væri meira en til í að vinna með
honum, ég er mikill aðdáandi Hong
Kong hasarmynda og þar hefur eng-
inn gert betur en Woo svo það er
aldrei að vita nema ég stykki um
borð hjá honum ef aðstæður bjóða
upp á það.'
-HK
Robbie í gröfina
Bretar vilja ekki
lengur láta leika sorg-
armarsa viö útfarir
sínar. Helst vilja þeir
verða lagðir til hinstu
hvílu við tóna
Robbies Williams,
nánar tiltekið lagiö
Angels.
Sumir hafa tekið
fram að þeir vilja láta
leika lag Celine Dion,
My Heart Will Go on,
úr kvikmyndinni
Titanic. Enn aðrir
vilja láta leika lag
Frank Sinatras, My
Way, eða lag Bette
Englasöngur
Bretar vilja láta teika lag
Robbies Williams, Angels,
viö jaröarfarir.
Midler, Wind beneath
My Wings, að því er
kemur fremur fram á
vefsíðunni Dotmusic.
Þeim, sem vilja láta
leika popplög við jarð-
arfarir sínar hefur
fjölgað mjög eftir and-
lát Díönu prinsessu
árið 1997. Við útför-
hennar lék Elton John
sérstaka útsetningu af
laginu sínu, Candle in
the Wind, með heitinu
Goodby England’s
Rose. Vöknaði þá
mörgum Englendingn-
um um augu.