Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2000, Blaðsíða 28
36
MIÐVKUDAGUR 15. MARS 2000
Tilvera
DV
í f iö
Zj t i r< V 1 N N IJ
Jagúar á
Gauknum
Fönkiö á Gauknum veröur það
mikið að fólk mun ferðast í tíma
og rúmi en samt sitja kjurt.
Stórhljómsveitin Jagúar mun sjá
fyrir framandi tónum og ekki
slá af fyrr en veraldarsagan hef-
ur verið skoðuð á sem flestan
hátt.
Klúbbar
■ 360- A VEITINGAHÚSINU 22 Neöanjaröar-
techno mun flæða um 22 á Laugarvegi 22, í
kvöld þegar Dj Bjössi og Dj Exos snerta plötu-
spilarann. Kvöldiö er annaö kvöldið í mánaðar-
legum uppákomum undir heitinu 360' sem ger-
ast alltaf um miðjan mánuðinn.
Leikhús
■ GULLNA HLH)H> Gulina hliöiö eftir Davíö
Stefánsson verður sýnt í Þjóðleihúsinu. Leik-
stjóri er Hilmir Snær Guönason, tónlist er eftir
Pál ísólfsson og meðal leikara eru Edda
Heiörún Bachman, Pálmi Gestsson, Guörún S.
Gísladóttir og Erllngur Gíslason. Gullna hliðiö
er álitið eitt af gullmolum íslenskrar leiksögu
og sagan um kerlinguna sem ferðast með sálu
karls síns svíkur engan. Því miður kemstu ekki
á þessa sýningu því það er uppselt en miða-
pantanir eru í síma 5511200.
■ LEIKIR Hádegisleikhúsiö í lönó sýnir verkið
Leikir eftir Bjarna Bjarnason í leikstjórn Stef-
áns Karls. Sýningin hefst klukkan 12 og þaö
eru nokkur sæti laus. Pöntunarsími 530 3030.
■ SJEIKSPÍR Maraþonsýningin Sjeikspír eins
og hann ieggur sig hefst klukkan 20 og það
verður rennt yfir Sjeikspírverkin á aðeins 97
mínútum og geri aðrir betur. Leikstjóri er Bene-
dikt Erlingsson og leikendur Halldóra Geir-
harösdóttir, Halldór Gylfason og Friörik Frið-
riksson. Ekta klassík i hreinum Bónusumbúð-
um og þeir sem nenna ekki að lesa meistarann
sjálfan græða slatta. Þetta er fjórða kortasýn-
ing en sími í miðasölu er 530 3030.
Fundir
RÍKI OG KIRKJA RÆDD í BORGARNESI
Málfundur um samband ríkls og kirkju verður
haldinn á Hótel Borgarnesi. Þessi fundur er
haldinn í tengslum viö kristnihátíö í Borgar-
fjaröarprófastsdæmi og framsögu mun dr.
Gunnar Kristinsson sjá um og andmælandi
hans verður Möröur Árnason, íslenskufræðing-
ur og varaþingmaður.
■ IKjjFARELPDR KYNNINOARFVNP Kynn-
ingarfundur verður á ITC Fifu á Digranesvegi
12, Kópavogi. Stefna ITC er að byggia upp ein-
staklinginn, þjálfa hann í samskiptum, tjáningu
og félagsstörfum og búa hann undir að grípa
tækifæri sem bjóðast. Fundurinn hefst kl.
20.15.
■ SAMFYLKINGIN OG VIRKJANIR Fundur um
stefnu í virkjanamálum veröur haldinn á veg-
um málefnahóps Samfylkingarinnar í Reykja-
vík um umhverfismál. Alþingismaðurinn Sig-
hvatur Björgvinsson mun fara yfir þá stefnu
sem ríkistjórnir hafa farið eftir á undanförnum
árum. Fundurinn er haldinn í Alþýðuhúsinu,
Hverfisgötu 8-10, 2. hæð og hefst kl. 20.00.
■ SAMFYLKINQIN 00 VIRKJANIR Málefna-
hópur Samfylkingarinnar i Reykjavík um um-
hverfismál heldur fund kl. 20 á 2. hæö Alþýðu-
hússins, Hverfisgötu 8-10. Fundarefni er
stefna i virkjunarmálum og mun Sighvatur
Björgvinsson alþingismaöur taka til máls.
Fundurinn er öllum opinn.
■ SÓKN GEGN SJÁLFSVÍGUM Ekki þjást i
þögninni, þú hefur bara eitt líf svo leyfðu Sókn
gegn sjálfsvígum að hjálpa þér. Stuðnings-
hópur hittist alltaf á miðvikudögum kl. 20 að
Héðinsgötu 2. Lífiínan er opin allan sólarhring-
inn, simi 577 5777.
■ UNGVERSKT MENNINGARKVÓLD Félagiö
Island Ungverjaland efnir til menningarkvölds
á veitingastaðnum Sóloni Islandus. Tveir kórar
koma fram og flytja fjörug ungversk lög. Þá sýn-
ir Þór Halldórsson litskyggnur frá ferðalagi sínu
um Ungverjaland. Skemmtunin hefst klukkan
20.30 og er aðgangur ókeypis.
Sjá nánar: Líflð eftir vinnu á Vísi.is
Vatnsfjarðarprestakall aflagt:
900 ára sögu er lokið
- ekki hægt að hafa presta yfir engu, segir sr. Baldur Vilhelmsson
Séra Baldur Vilhelmsson, fyrr-
verandi prófastur í Vatnsfirði við
ísafjarðardjúp, lét af prestsskap fyr-
ir aldurs sakir um síðustu áramót.
Hann er jafnframt síðasti starfandi
prestur i Vatnsfirði en ákveðið hef-
ur verið að leggja prestakallið nið-
ur. Þar með lýkur 900 ára setu
prests á staðnum.
„Ég hef lifað tímana tvenna því
ég kom i Vatnstjörð 1965 og þá var
búið á flestum bæjum. Þama var
héraðsskóli sem ég studdi því ég var
sóttur til kennslu í 15 ár og var
skólastjóri annað slagið," sagði
Baldur Vilhelmsson.
„Síðan kann ég þessa þróun utan
að, ef þróun skyldi kalla, eða þessa
afturför, skulum við segja. Ég hef
svo dundað mér við það að rekja
ættir þessa fólks - alivel, aftur í tím-
ann.
- Er ekki sorglegt að horfa á
þessa hnignun?
„Jú, það er það. Bæði með Vatns-
fjörð sérstaklega og almennt hvað
mér viðkemur sem kom þarna ung-
ur maður. Við samþykktum það í
haust, bæði ég og aðrir, að leggja
prestakallið niður. Ég sem prófastur
gekk svo frá því. Auðvitað hlaut
þetta að enda svona fyrst engin
byggð er. Það er ekki hægt að hafa
embættismenn, eins t.d. og presta -
yfir engu. Þaö bara passar ekki í nú-
tímann og hefur aldrei passað.
Þannig lögðust Jökulflrðir af og
Grunnavík og Aðalvík, en ég átti
þess kost í nokkur ár að koma
reglubundið í þessar kirkjur. Þá fór-
um við á skipum frá ísafirði og það
var ljómandi gaman.“
900 ára saga
- Hvenær hefst kirkjusaga Vatns-
fjarðar?
„Það veit enginn með vissu.
Áreiðanlega hafa staðarhaldarar þó
haldið prest frá því um 1100. Hann
hefur sjálfsagt verið menntaður frá
kaþólskri kirkju. Kirkjan sem ég
son forseti
kom í Djúp-
ið, að hann
minntist á
það sem
rétt mun
vera að ég
er fyrsti
þjónaði var byggð árið 1912. Þar
áður stóð gömul og vegleg kirkja,
skal ég segja þér, í kifkjugarðinum.
Hún var innan um sig, sem kallað
er, skrýdd góðum klæðum og full af
góðum gripum. En, góði besti, þetta
er komið á Þjóðminjasafnið, eða
týnt, eða komið til Dana sem réðu
hér. Það gleymist fólkinu að við
vorum bara dönsk nýlenda til
skamms tíma. Meira að segja
var kommgsveiting á Vatns-
firði fram eftir allri öldinni
sem leið og nokkrum öðr-
um stöðum. Það var kon-
ungsveiting vegna þess að
þeir treystu ekki íslend-
ingum til þess, en nú fer
þetta fram í íslenskum
höndum."
Fyrsti maðurinn beint
frá prófborði
- Lýkur þá með þér 900
ára sögu prests í Vatnsfirði?
„Já, það er alveg rétt.
Vatnsfjörður var eftirsótt
brauð og prestar fengu
hann ekki fyrr en tiltölulega
aldurhnignir menn. Ég man
þegar Ásgeir Ásgeirs-
maðurinn sem kemur beint frá próf-
borði.
Blessaður vertu, svo byggði ég
þetta upp. Bæði er kirkjan komin í
gott horf og kirkjugarðurinn, eins
og allir vita. Menn hafa minnst á
það við mig hvað garðurinn er
snyrtilega hlaðinn," segir Baldur en
harm hafði veg og vanda af því að
hlaða upp gamla kirkjugarðinn á
staðnum.
Eins og kringum skepnur!
„Mér leiddist að sjá þetta girt
með gaddavír - eins og kring-
um skepnur! Þá komu í ljós
fomminjarnar gömlu norðan-
vert við garðinn. Þetta er virki
Þorvaldar Vatnsfirðings á
þeirri þrettándu. Það er Ijóst
að þeir höfðu virki í kringum
eða við garðinn. Og það eru göng
í Vatnsfirði sem á eftir að grafa
upp, alveg eins og í Skálholti og á
Hólum. Því Þorvaldur hljóp auðvit-
að í kirkju þegar að honum var
sótt af ofbeldismönnum vestur á
fjörðum, eins og Hrafni Svein-
bjamarsyni á Eyri,“ sagði sr. Bald-
ur Vilhelmsson.
-HKr.
Séra Baldur Vilhelmsson, fyrrverandi prófastur í Vatnsfirði.
„Mér leiddist aö sjá þetta girt meö gaddavír - eins og kringum skepnur!“
Unnið að endurgerð Tynesarhúss:
Ættarsetur Tynesanna
verður fært í fyrra horf
Frá því á síðasta sumri hefur ver-
ið unnið að endurgerð svokallaðs
Tynesarhúss á Siglufiröi. Þarna er
um að ræða timburhús sem byggt
var árið 1905 og stendur við aðalgöt-
una í bænum. Húsið er tvær hæðir
ásamt risi og undir því steyptur
kjallari. Hvor hæð er um 140 fer-
metrar að grunnfleti. Ole Tynes sem
húsið er kennt við var norskur og
flutti til Siglufjarðar í tengslum við
síldveiðamar. Hann efnaðist vel á
síldinni og gat því búið flottar en al-
menningur sem á þessum ámm bjó
almennt í torfhúsum. Hann rak um
árabil hótel i hluta hússins.
Það var snemma á síðasta ári sem
átta einstaklingar í Siglufirði stofn-
uðu félagið Græna húsið ehf. sem
hefur það að markmiði að endur-
gera húsið og koma því í sama horf
og það var upphaflega. Þetta gera
þeir í samvinnu við Húsfriðunar-
nefnd ríkisins en hönnun verksins
er gerð af Teiknistofunni Skóla-
vörðustíg 25.
Ólafur Kárason byggingameistari
hefur umsjón meö framkvæmdinni.
Hann sagði aðspurður að langt kom-
ið væri að endurnýja húsið að utan.
Búið er að endurnýja þak, skipta
um glugga og veggjaklæðningu. Á
næstunni verða settar nýjar úti-
hurðir og inngangar lagfærðir. í
sumar er svo ætlunin að múra kjall-
araveggi og lagfæra umhverfi húss-
ins. Varöandi frágang innan er ekki
Gamla skiltið - Pnvat Hotel
Smiöirnir Björn Ingimarsson og Ólafur Kárason meö gamla
skiltiö af húsinu. Á því stendur Prívat Hotel.
búið aö taka ákvörðun. Ólafur
segir að ekki liggi enn fyrir
hvaða starfsemi verði í húsinu
og innrétting þess ráðist af því
þegar þar að kemur. Hins vegar
sé verið að skoða ýmsa áhuga-
verða hluti varðandi nýtingu
þess í framtíðinni.
-ÖÞ
DV-MYNDIR ÖRN ÞÓRARINSSON
Ættarsetur á Sigló
Tynesarhús í Siglufiröi,
heimili norska síldar-
spekúlantsins sem var
ættfaöir Tynesanna,
meöal annarra Óla
Tynesar og bróöur hans,
Ingva Hrafns Jónssonar.