Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2000, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2000, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 37 DV Tilvera Labrador Dagur „Nýbreytnin felst fyrst og fremst í því að margir imgir og efnilegir leikstjórar taka sig sam- an og búa til eitt sterkt fyrirtæki í stað þess að vera að pukrast hver í sínu horni,“ segir kvik- myndaleikstjórinn Stefán Ámi Þorgeirsson, einn aðstandenda kvikmyndgerðarfyrirtækisins Labrador sem formlega var ýtt úr vör með veisluhöldum á laugar- daginn. Sigurjón Sighvatsson, stórmógúll í kvikmyndagerð vest- an Atlantshafsála, mætti í sam- kvæmið og hvatti ungu ljónin til dáða. Auk Stefáns standa að Labrador samstarfsmaður hans, Sigurður Kjartansson, Styrmir Sigurðsson, Fíaskóleikstjórinn Ragnar Bragason, Dagur Kári Pét- ursson og félagamir Eiður Snorri og Einar Snorri. Hollywood um Svíþjóð „Fókusinn er fyrst og fremst aug- lýsingar og hugmyndin er sú að herja fyrst á auglýsingamarkaðinn hér heima en síðan að færa okkur yfir á auglýsinga- og myndbanda- markaðinn á Norðurlöndunum. Labrador er á sama tíma hálfgerður leikvöllur því hérna gefst okkur tækifæri til að vera svolítið skap- andi og framleiða það sem við vilj- um í frístundum," segir Stefán. ^gurjón Sigfwcitsson kvikmyndaframleiöandi gekk fram fyrir skiöldu or> ú skyröi bjortuhliöarnará starfsgrein sinni fyrir gestum i Labradorveislunn Stefan Arm Þorgeirsson og Ragnar „Fíaskó“ Bragason fylgdust þolinmóöir meö. Stórskotalið í hvíldarstöðu Andrea Róbertsdóttir, Linda Björk Árnadóttir í Crylab og Katrm Pet- ursdóttir fylgdu Labrador úr hlaöi.. DV-MYNDIR HARI Horfst í augu við framtíðina Börkur Arnarson, Styrmir Sigurösson, Stefán Árni Þorgeirsson, Dagur Kári Pétursson, Guðjón Hauksson, Siguröur Kjartansson og Freyr Einarsson fögnuöu stofnun kvikmyndaversins Labrador á laugardaginn. Stefán segir þá félaga reyndar þegar vera farna að vinna fyrir er- lenda viðskiptavini. „Við erum að gera tónlistarmyndband fyrir Svia. Það er kannski vegna þess að flestir sænsku leiksstjórarnir eru famir til Hollywood þar sem spútnikleik- stjórarnir þessa dagana eru einmitt Svíar, margir hverjir. Eins höfum við Sigurður unnið dálítið í Banda- ríkjunum en við gerðum Levi’s-aug- lýsingar fyrir Ameríkumarkað. Evr- ópskir leikstórar njóta meðbyrs í Bandaríkjunum um þessar mundir. Ameríka er að að kalla á nýja og ferska sýn á eigin þjóð og það er því alls ekkert fjarlægt að fara að vinna á alþjóðlegum vettvangi," segir Stef- án Ámi Þorgeirsson óhikað. -GAR íris Stefanía, afburðanemandi í norsku: Líður miklu betur í Noregi en hér „Ég vissi að ég væri góð í norsku en bjóst samt aUs ekki við að fá þessi verðlaun. Ég skrifaði ritgerðina mér til skemmtunar og sagði þar frá vinum mínum og skólalíflnu í Bergen þegar ég var ellefu ára,“ segir íris Stefanía Skúladóttir, afburðanemandi í norsku við Laugalækjarskóla. Það er Farestveitsjóðurinn, kenndur við hjónin Einar og Guð- rúnu Farestveit, sem árlega veitir einum nemanda í 8. bekk grunn- skólans verðlaun fyrir bestu rit- gerðina á norsku. Verðlaunin, sem voru tvær bækur og 80 þúsund krónur, ætlaðar til Noregsferðar, voru afhent á fostudaginn að við- stöddum öllum nemendum skól- ans. „Það var mjög gaman að fá verðlaunin og ég held að skólafé- lagamir hafi líka verið glaðir því það var geflð frí hálftíma fyrr en vant er,“ segir íris Stefanía. Ekki mun heldur standa á írisi Stefaníu að nýta ferðastyrkinn. „Um leið og sumarfríið byrjar þá ætla ég til Bergen. Þar ætla ég að heimsækja vinkonu mína og skemmta mér í nokkrar vikur. Mér líður nefnilega miklu betur í Noregi en hér. Unglingamir eru , DVWYND E.ÓL. íris Stefanía Skúladóttir „Þaö var mjöggaman aö fá verölaunin og ég held aö skólafélagarnir hafi líka veriö glaöir því þaö var gefiö frí hálftíma fyrr en vant er." allt öðru vísi þar en hér og miklu meira um að vera. Héma heima eru allir alltaf að horfa á sjónvarp- ið eða þá á leiðinni í bíó. Síðasta sumar var ég í Noregi í nokkrar vikur og horfði þrisvar sinnum á sjónvarpið, og þá til að fylgjast með fréttum af sólmyrkva. Krakk- arnir í Noregi eru duglegri að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera; fara i gönguferðir, hjólaferð- ir, synda í vötnum eða bara vera saman úti I náttúrunni,“ segir íris Stefanía. Norskan er íris Stefaníu töm því hún bjó fyrstu sex ár ævi sinnar í Noregi. Síðan flutti hún þangað aftur i eitt ár þegar hún var ellefu ára. Hún sleppur því við að læra dönsku en sækir þess í stað kennslustundir í norsku ásamt sjö öðrum nemendum. „Ég næ ágæt- um hreim í dönsku en að öðru leyti kann ég ekki mikið í henni. Hins vegar finn ég lítinn mun á hugsa og tala norsku og íslensku. Það er hið besta mál því ég gæti vel hugsað mér að setjast að í Nor- egi síðar meir,“ segir norskuverð- launahafinn íris Stefanía Skúla- dóttir. -aþ Haukur Dalmar Almenn ánægja meö viötaliö handan móöunnar miklu. DV lesið í himnaríki - og í helvíti líka „Ég var beðinn, um að skila kveðju til ykkar á DV frá heilagri Margréti Maríu. Hún var mjög ánægð með fréttina sem birtist í gær um eitur- lyflavandann," sagði Haukur Dalmar forstöðumaður Lækningareglu heil- agrar Margrétar Maríu á Skúlagötu 61, og átti þar við viðtal sem birtist við hann í blaðinu í gær þar sem sagði að vonlaust væri að gera ísland að eiturlyfjalausu landi árið 2003 þar sem eiturbirgðir í landinu dygðu fram til ársins 2006. „Við fórum yfir við- talið í morgun, ég og Margrét María, auk nokkurra framliðinna lækna og það var almenn ánægja með þetta,“ sagði Haukur Dalmar. - Er DV þá líka lesið í helvíti? „Þar er einnig fylgst meö fréttum og DV lesið eins og annað," sagði Haukur. -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.