Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 2
2 _____________FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 Fréttir I>V Móttaka erlendra flóttamanna: „Rasismi" ekki rótgróinn hér - hefur þó frekar vaxið í seinni tíð, segir Páll Pétursson félagsmálaráðherra Vandlega hefur verið valið í þá hópa flóttamanna sem hingað koma, sérstak- lega hin síðari ár. Félagsmálaráðuneyt- ið hefur komið mjög við sögu vegna móttöku flóttamanna ásamt stjómum þeirra sveitarfélaga sem taka við þeim, flóttamannaráði og Rauða krossi ís- lands. Reynt hefur verið að velja bama- fjölskyldur og þá jafnframt þá sem era verst staddir. „Það hefur verið virkilega ánægjulegt að starfa að þessu. Verkefnið hefur ver- ið mjög skemmtilegt og gengið vel,“ seg- ir Páll Pétursson félagsmálaráðherra. Páll Pétursson, félagsmálaráð- herra „Þaö hefur veriö virkilega ánægju- legt aö starfa aö þessu. “ Þátttaka Islands í striðinu skapaði vanda -Hafa komið upp einhverjir árekstr- ar á milli þessara hópa og Islendinga? lap „Ég veit bara ekkert dæmi þess að það hafi komið upp lögreghimál. Það var reyndar eitt vandamál sem upp kom og var dálítið sárt. Það var þegar Atlantshafsbandalagið réðst á Serba. Þetta fólk tók það ákaflega nærri sér að íslendingar væru orðnir þátttakend- ur í stríðinu. Þegar ísland er orðið að- ili stórveldanna í árás á þeirra þjóð þá skapaði það verulegt óöryggi og mik- inn óhug hjá flóttafólkinu. Því fannst það allt í einu vera í óvinalandi sem í sjálfu sér var kannski ekki óeðlilegt." Stuðningur við flóttamenn: Islenskunámið er lykilatriði Hólmfríður Gísla- dóttir, deildar- stjóri hjá RKÍ „Þetta er fólk sem okkur ber skylda til aö sinna og aö- stoöa sam- kvæmt alþjóöa- samningum. “ Hólmfríður Gísladóttir hefur mikið fengist við málefni flóttamanna hjá RKI. Hún segir að flóttamönnunum frá Júgóslavíuríkjum hafi yfírleitt vegnað vel hér á landi og hafi flestir lært góða íslensku. Hún segir íslenskunámið lyk- ilatriði í velgengni þessa fólks. Þar sé einnig mikilvægt að íslendingar hjálpi fólkinu við að tileinka sér íslenskuna með þvi að tala við það. Siglfirðingar: Erum vel í stakk búin Siglfirðingar hafa nú óskað eftir að taka á móti erlendum flótta- mönnum og hyggjast skipa sér þar með í sveit nokkurra annarra sveit- arfélaga á landsbyggðinni sem slíkt hafa gert. Flest bendir til að þeim verði að ósk sinni og þangað komi 20-25 manna hópur frá ríkjum fyrr- um Júgóslavíu i júni. Guðmundur Guðlaugsson, bæjarstjóri á Siglufirði, segir þá enn ekki búna að fá formlegt svar um að þeirra boði verði tek- ið. Segir hann að þeir fái nán- ar að vita um þetta 24. eða 25. ......... mars. „Við höfum hafið þann undirbún- ing að ræða við þá aðila sem að mál- inu ynnu ef gengiö yrði til viðræðna við okkur. Það er gert í ljósi þess að á sínum tíma vora ekki allir á eitt sáttir um móttöku flóttamanna. Það eru miklu jákvæðari viðbrögð i samfélaginu nú en þá komu upp.“ - Hvað um húsnæði og atvinnu? „Við eigum von á að auðvelt reynist að útvega húsnæði ef til þess kemur. Móttakan verður með sama hætti og hjá öðram sveitarfé- lögum sem hafa verið að taka við flóttamönnum. Við lærum af þeirra reynslu. Atvinnuástandið er þokkalegt. Þó ákveðinn hópur hafi verið á at- vinnuleysisskrá, þá er ákveðinn Qöldi með skerta starfsorku, en á sama tíma vantar fólk t.d. í iðnaðar og vélastörf. Við teljum því að við séum vel í stakk búin til að taka við fólki og Siglfirðingar era þekktir fyrir að taka vel á móti gestum," sagði Guðmundur Guðlaugsson bæj- arstjóri. -HKr. Guðmundur Guð- laugsson, bæjar- stjóri á Siglufirði „Þaö eru miklu jákvæöari viö- brögö í samfélag- inu nú en áöur. “ Stuðníngsfjölskyldur vekja at- hygll erlendis Við komu Víetnamanna 1979 var íyrst byijað á þeirrri athyglisverðu nýjung að mynda stuðningsfjölskyldur til að hjálpa flóttafólkinu að komast inn í samfélagið. Úr þeim stuðnings- fjölskyldum eru enn virkir sjálfboða- liðar sem stutt hafa við bak flótta- manna alla tíð síðan. Þetta mynstur hefúr síðan verið þróað áfram með þátttöku sveitarstjóma víða um land og RKÍ. Síðustu árin hefúr slík aðstoð verið mjög öflug og gefið góða raun. Hefur það hjálpað mikið til við aðlög- un fólks að samfélaginu og vakið mikla athygli víða um heim. Segja má þó að vísir að slíku fyrirkomulagi hafi fyrst verið tekinn upp þegar flótta- mennimir 52 frá Ungverjalandi komu hingað 1956. Margt af því fólki fór til is- lenskra fjölskyldna sem tóku það að sér. Erfitt fyrir fólk af tónmála- svæðum Hólmfríður segir engan mun á gengi flóttamanna af asískum upprana og annarra, að öðra leyti en því að þeir komi frá tónmálasvæði. Víetnamska þyki t.d. með erfiðari tungumálum að læra og fyrir fólk frá slíku tónmála- svæði sé óskaplega erfitt að læra upp- byggingu evrópskra mála. Hólmfríður segir kennslu Vietnam- anna hafa tekist ágætlega. Hins vegar hafi það gerst að þeir vilji gleyma tungumálinu vegna þjálfunarleysis. Þetta fólk búi flest í hjónaböndum við sína samlanda og noti sitt tungumál heimafyrir eins og eðlilegt sé. Það sé því undir vinnustað og kunningjum komið hvemig íslenskunni er við haldið. Margir hafi fest í vinnu þar sem ekki reynir nema á takmarkaðan orða- forða. Hún segir aðlögun þessa fólks að íslensku samfélagi þó eðlilega. -HKr. Utlendinga- hatur ekki algengt - Finnið þið fyr- ir mótlæti íslend- inga gegn þessu aðflutta fólki? „Það hefúr ver- ið mjög lítið. Það hefúr þó frekar vaxið í seinni tíð. Sem betur fer var „rasismi" ekki inngróinn hér. Ný- lega hef ég þó farið að heyra um það. Ég hef verið að spyrja útlendinga sem hér eru bú-______________________ settir, þó ekki úr þessum hópi flóttamanna, um útlend- ingahatur og aðkast. Það virðist ekki vera algengt en hefúr komið fyrir og helst þegar atvinnuleysi hefúr verið.“ Hólmfríður Gísladóttir, deildarstjóri hjá RKI, tekur að mestu undir orð Páls Péturssonar og segir árekstra flótta- manna við íslenskt samfélag ekki meiri en en við má búast. „Enn vantar upplýsingar um íslenskt samfélag á er- lendum málum og sitthvað fleira get- um við bætt. En í heildina séð hefúr gengið mjög vel. Flóttamenn eru þó auðvitað með for- tíð. Þess vegna erum við að veita þeim sérstaka aðlögun að þjóðfélaginu. Þetta er fólk sem okkur ber skylda til að sinna og aðstoða samkvæmt alþjóða- samningum. Vegna sinnar fortíðar fær það þessa forgangsmeðferð. Því er ekki að neita að það er með í farteskinu lífs- reynslu sem flestir vildu vera án,“ seg- ir Hólmfriður. -HKr. Glaðbeittlr samningsaðllar Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnarfiröi, haföi ástæöu til aö gleöjast í gær þegar hann undirritaöi samning um leigu og þjónustu leik- og grunnskóla í Hafnarfiröi. Hafnarfjarðarbær semur um einkaframkvæmd við grunn- og leikskóla: Vatnaskil í opinberum rekstri Hafnarfjarðarbær gekk í gær frá samningi um einkaframkvæmd við grunnskóla í Áslandi og leikskóla við Háholt. Það var Magnús Gunn- arsson bæjarstjóri sem ritaði undir samninginn og telur hann að um vatnaskil sé að ræða í opinberum rekstri sveitarfélags á húseignum, búnaði og stoðverkefnum við leik- og grunnskóla. Samningsaðilar um leigu og þjón- ustu leikskóla við Háholt eru auk Hafnarfiarðarbæjar Istak og Nýsir, en um grunnskóla í Áslandi Hafnarfiarð- arbær og FM-hús ehf. Samningsfiár- hæð um leikskólann er rúmar 20 milljónir króna en rúmar 98 milljónir um grunnskólann í Áslandi. Er þarna um að ræða leigugreiðslu á ári fyrir leigu húsnæðis og lóðar, viðhald hús- næðis og lóðar, ræstingu og þrif hús- næðis, umsjón húsnæðis, húsgagna og búnaðar i eigu verksala, umsjón lóðar, sorphirðu, öryggisgæslu, orku og viðhald húsgagna og búnaðar. Er talið að framkvæmdin sé um 15-17% ódýrari vegna grunnskólans en ef bærinn hefði sjálfur staðið að henni en lítið sem ekkert græðist vegna leikskólans. Leikskólinn verður tilbú- inn í byrjun næsta árs en fyrsti áfangi grunnskólans verður tilbúinn í ágúst 2001. -hdm HBl Varaformannskjör í dag hefur 26 manna landsstjóm Framsóknarflokks- ins verið boðuð til fundar. Aðalefni fundarins í dag er undirbúningur flokksþingsins í haust, en varafor- mannskjör þar mun setja nokkum svip á starfsemi flokksins næstu mánuðina. Nokkrir eru líklegir kandídatar í stað Finns Ingólfssonar: Hjálmar Árnason, Kristinn H. Gunnarsson, Siv Frið- leifsdóttir auk Guðna Ágústssonar og Valgerðar Sverrisdóttur. Dagur greindi frá. Flugbrautum lokaö Annarri aðalbraut Reykjavíkur- flugvaliar hefur verið lokað fram á haust vegna viðgerða. í ágúst verð- ur báðum aðalbrautunum lokað og verður þá eingöngu flogið til og frá Keflavíkurflugvelli. RÚV greindi frá. Fjárfesting vannýtt Mörg hundruð milljóna króna fiárfesting í Aðaldalsflugvelli ásamt mannvirkjum verður vannýtt stór- an hluta ársins ef Mýflug hættir áætlunarflugi. Fundað var um mál- ið í gær. Stöð 2 greindi frá. Dæmdar 3 milljónir Hæstiréttur íslands dæmdi í gær Sigrúnu Jónsdóttur 3 milljónir króna í bætur því hús sem henni var selt árið 1996 reyndist ónýtt vegna veggjatítluplágu. Gunnar G. Schram lagapró- fessor segir óum- deilt að Hæstiréttur hafi vald til að dæma lög ógild telji hann þau brjóta í bága við stjómar- skrána og það hafi hann alloft gert. Þá skipti engu þótt deilumálið sé pólitískt. RÚV greindi frá. Nýr vegur Leiðin milli Sauðárkróks og Reykjavíkur styttist um tæpa 30 kílómetra með nýjum heilsársvegi yfir Þverárfiall. Fyrsti áfanginn verður boðinn út í mánuðinum. Stöð 2 greindi frá. Mótmælastaða Viðskiptabann á írak er ofarlega á baugi þessa dagana en tillaga um end- urskoðun bannsins var flutt á þingi í gær og hefur Ást- þór Magnússon viðrað í tölvupósti hugmyndir um mótmælastöðu gegn banninu fyrir utan heimili utanrík- isráðherra. Dópveisla stöðvuð Starfsfólk á hóteli í Reykjavík fann í nótt grunsamlega lykt frá einu herbergja hótelsins og kallaði til lögreglu. í ljós kom að í herberginu stóð yfir dópveisla og handtók lögreglan fimm manns á staðnum. Á þeim fannst eitthvert magn fikniefna, en fimmmenningamir biðu yfirheyrslu í fangaklefa í morgun. Ríkið endurgreiði Hæstiréttur hefur dæmt ríkið til að endurgreiða Dreifingu ehf. 9,5 milljónir vegna ofgreidds jöfnunargjalds á innfluttar franskar kartöflur á árunum 1988-1994. -hdm/gk Getur ógilt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.