Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 Skoðun I>V Fasteignasalarnir hafa ráöið ferðinni um verðhækkanirnar Þeir skoöa íbúöirnar og veröleggja eöa ýta undir háa veröiö til aö sammælast seljandanum meö væntingarnar. Ibúðaverð hækkar ekki endalaust Spurning dagsins Heldurðu að það verði verkföll? Sveinn Þröstur Þormóðsson: Já, þaö myndi ég halda. Magnús Freyr Hlynsson bílasali: Ég hef bara ekki hugmynd um þaö. Sverrir Örn Sverrisson nemi: Nei, ég held aö samningar náist. Þaö er til nóg af peningum. Eva Hrönn Björnsdóttir nemi: Nei, ég býst ekki viö því. Ólafur Kári Júlíusson nemi: Ég spái því, já. Einar Sigurjónsson bílstjóri: Já, ég á von á því. Valdimar Guömundsson skrifar: Það er furðulegt að húseignir og íbúðir skuli hækka í verði svo sem dæmin sanna, og það algjörlega af tilefnislausu. Skortur á lóðum skýr- ir ekki verðhækkanir eins og ein- hverjir fasteignasalar sem komu fram í Kastljóssþætti Sjónvarps í vikunni vildu meina. Sá sjónvarps- þáttur var þó fróðlegur fyrir margra hluta sakir. Þar sátu tveir fasteigna- salar og einn ungur og væntanlegur íbúðarkaupandi. - Þarna var mikið djúp staðfest. Annars vegar fulltrú- ar fasteignamarkaöarins og hins vegar dæmigerður fulltrúi þess al- mennings sem kaupir sér íbúö í fyrsta sinn. Fasteignasalamir ruddu út úr sér upplýsingum sem almenningur hef- ur keypt til þessa: að markaðurinn ráði fasteignaverðinu, sem eru hel- ber ósannindi. Fasteignasalarnir Katrín Gunnarsdóttir skrifar: Sl. þriðjudag voru tvær fréttir í sama fréttatíma sem vöktu athygli mína. Annars vegar frétt um að Ör- yrkjabandalagið ætlar ekki í mál við forsætisráðherra vegna um- mæla hans um auglýsingar banda- lagsins fyrir kosningar sl. vor og hins vegar afar jákvæð frétt þess efnis að ríkisvaldið hafi gengið frá samningi við aðstandendur lang- veikra barna um verulega aukinn stuðning þeim til handa. Maður spyr sig í ljósi þessara frétta hvort allt sé í óskaplega fínu lagi hjá ör- yrkjabandalaginu. Ég man eftir téðum auglýsingum „Þeir skoða íbúðirnar og verðleggja eða ýta undir háa verðið til að sammœl- ast seljandanum með vœntingarnar. “ hafa ráðið ferðinni um verðhækk- animar. Þeir skoða íbúðimar og verðleggja eða ýta undir háa verðið til að sammælast seljandanum með væntingamar. Þetta hef ég sjáifur reynt sem seljandi íbúðar. Hvað er svo markaðurinn í þessu tilfelli nema seljendur og umbjóðendur þeirra, fasteignasalarnir? - Og íbúð- ir á Reykjavíkursvæðinu hækka og hækka í verði. En hverjir geta keypt ef verðið heldur áfram að hækka? Verða til meiri peningar hjá þeim sem kaupa? Verða lán íbúðalánasjóðs „Birting auglýsinganna nú á dögunum var í raun stað- festing á því hve pólitískar þœr voru. Þegar maður sér þær í dag er maður svo innilega sammála öllu sem þar kemur fram. “ sl. vor þegar fólk var spurt hvort það ætlaði að kjósa óbreytt ástand og biskupinn, landlæknir og fleiri aðilar tjáðu sig um málið. Við erum öll sammála um að bæta kjör ör- yrkja og barátta þeirra tekur aldrei hærri með hækkandi verði? Munu ungir kaupendur fyrstu íbúðar geta staðið við afborganir með hækkandi vöxtum og því viðbótarkraðaki sem á afborganir hlaðast; „afborgun verðbóta" (sem er hæsti liðurinn), „verðbótum vaxta“ og „tilkynning- ar- og greiðslugjaldi" og allt hleðst á sérhverja afborgun? - Kostnaðarlið- um sem eru líklega ólöglegir ofan á allt annað ef á það væri látiö reyna fyrir Evrópudómstól. En íbúðaverð hækkar ekki enda- laust, því ef „markaðurinn ræður“ þá syngur hann sitt siðasta innan skamms. Eða jafnskjótt og fólk finn- ur aö það kemur ekkert í budduna t.d. úr yfirstandandi samningum. Ef einhver „ræður“ í raun markaðin- um þá er það þessi margnefndi al- menningur. Það verður því hún „fröken Neyð“ sem mun sjá um lækkun fasteignaverðs. Liklega á næstunni, og alveg hjálparlaust. enda. En eitt þurfa þeir sem samtök- unum stýra að hafa í huga; blandið aldrei pólitík í baráttu ykkar, hvetj- ið aldrei fólk á einn eða annan hátt rétt fyrir kosningar hvemig verja eigi atkvæðinu. Birting auglýsinganna nú á dög- unum var í raun staðfesting á því hve pólitískar þær voru. Þegar mað- ur sér þær í dag er maður svo inni- lega sammála öllu sem þar kemur fram. Málið er bara að hughrif kosningabaráttunnar eru ekki til staðar nú eins og þá. Áð manni læð- ist sá grunur að forsvarsmenn lang- veikra barna hafi unnið heima- vinnu sína betur og markvissar en stjórn Öryrkjabandalagsins. Mismunandi baráttuaöferðir Dagfari Meö lögum skal land byggja „Ríkissaksóknari er ekki að sækja útgerðarmennina til saka heldur verja kvótakerfið. Og þar sem ríkissaksóknari er að verja kvótakerfið segir hann að Hœstiréttur eigi ekkert með að kveða upp dóma í málinu vegna þess að það er stórpólitískt.“ Málflutningur i svokölluðu Vatneyrarmáli fór fram í fyrradag. Þar eru útgerðarmenn sóttir til saka fyrir brot á kvótalögunum eft- ir að héraðsdómur Vestfjarða sýkn- aði þá í janúar. Sagði héraðsdómur að kvótalögin brytu í bága við stjómarskrána. Útgerðarmennim- ir hefðu ekki verið bundnir afla- takmörkunum fiskveiðistjórnunar- laganna þar sem hún stæðist ekki jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Meint brot ákærðu fólust hins vegar í því að hafa gert út Vatneyri BA til veiða í febrúar 1999, án þess að skip- inu fylgdu veiðiheimildir. Dagfari.á, eins og væntanlega fleiri, erfitt með að komast tU botns í þessu máli. En flýtur meðan ekki sekkur. í raun eru það ekki útgerðarmennimir sem eru fyrir rétti, þessir uppreisnarseggir sem sögðu sægreifunum stríð á hendur. Sigldu tU veiða á skipi sem haföi leyfi tU veiða í atvinnuskyni en engar veiðiheimUdir. Nei, þaö er kvótakerfið sem er fyrir rétti. Ríkissaksóknari er ekki að sækja út- gerðarmennina tU saka heldur verja kvótakerfið. Og þar sem ríkissaksóknari er að verja kvótakerfið segir hann að Hæstiréttur eigi ekkert með að kveða upp dóma í málinu vegna þess að það er stórpólitískt. Stórpóltitísk mál séu á sviði Alþingis og þar eigi að taka á þeim vanda sem felst í því að kvótalögin brjóta í bága við ákvæði stjómarskrár- innar um atvinnuréttindi manna. Hlutverk Hæsta- réttar væri takmarkað í þessu efni. Þó útgerðar- menn séu ákærðir fyrir brot á lögum er samt ekki hægt að dæma í máli þeirra þar sem það er ekki á sviöi dómstóla heldur Alþingis. Útgerðarmennirnir fóru á sjó í þeirri vissu að nytjastofnar á íslandsmiðum væru sameign þjóðarinnar og vitnuðu þar í 1. grein kvótalaganna. Lög- spekingar fuUyrða hins vegar að með þessari gein laganna sé ekki verið að veita þjóðinni einkaeign- arrétt á ftskinum í sjónum. Hann væri í raun aimennur og þessi margfræga grein því einskis virði. Útgerðarmennirnir fóru á sjó í fuU- vissu um þá vitleysu að þeir ættu fiskinn í sjónum eins og segir I lög- unum. En þar sem brot þeirra varð- aði við lög sem stangast á við stjórn- arskrá lýðveldisins er ekki hægt að kveða upp dóm yfir þeim í Hæstarétti. Vitleysan í lögunum gerir að verkum að ekki er tekist á um sekt þeirra eða sakleysi heldur tUveru kvótakerfis- ins. Með lögum skal land byggja en ólögum eyða. Og þar sem ólögin ráða og menn fá ekki reynt á stöðu sína fyrir dómstólum þar sem málin eru stórpóli- tísk er Dagfara skapi næst að pakka niður og halda suður á bóginn, tU Kanaríeyja Davíð Oddsson og Garðar Sverrisson Þeir rugla öryrkjana meö ruglinu Þeir rugla öryrkjana Sverrir Bjarnason skrifar: Þeir Davíð Oddsson forsætisráð- herra og Garðar Sverrisson hjá Ör- yrkjabandalagiinu eru búnir að rugla öryrkja svo í ríminu að hluti þeirra hefur ekki þolinmæði lengur aö sitja undir öUu ruglinu og hafa sagt sig úr bandalaginu. Er hægt að lá þeim það? Og er hægt að lá sjón- varpsáhorfendum að loka þegar fréttamenn koma enn með þetta rugl sem „fréttir"? Helgi Seljan ætti nú að taka þessa menn undir arm- inn og bjóða þeim upp á heitt súkkulaði á Café París og boða fréttamenn á staðinn til að taka mynd af handtaki ársins. Davíð gæti laumað undirrituðu loforði sínu í lófa Garðars í leiðinni um ríf- legt átak í málefnum öryrkja á yfir- standandi þingi. Húsavík markar stefnuna Flugi þangaö er nú endanlega lokiö. Innanlandsflug med tapi Stefán Stefánsson skrifar: Á meðan því er lýst yfir að innan- landsflugi sé lokið tU og frá Húsavík, les maður hugmyndir um „stórkost- lega möguleika" í miUUandaUugi um AlexandersflugvöU á Sauðárkróki! Það er ekkert leyndarmál að innan- landsflug er rekið með tapi og ekki verður aftur leitað tU stjómvalda eða bæjarfélaga um frekari stuðning. Fáir vilja búa á landsbyggðinni, jafn- vel ekki á Húsavík í aliri sumarfeg- urðinni. Einangrunin er of mikU. AUt stuðlar að afnámi innanlands- flugs fyrr en síðar, nema tU þéttbýl- ustu bæjanna. Treysta verður á sam- göngur á landi í framtíðinni. Verkamannasambandið fundar Gengst þaö undir þakkargjöröina hjá Samtökum atvinnulífsins? Allt stefnir í verkföll Ásgeir Magnússon skrifar: Ég sé ekki betur en að verkfóU séu í augsýn eftir að sundur skUdi með Flóabandalaginu og VMSÍ. Það var engin von tU þess að hinir lægst launuðu í VMSÍ gætu gengist undir þá óvæntu þakkargjörð sem forysta Flóabandalagsins átti með Samtök- um atvinnulífsins. Það er eins og aUt ætli að verða að vopni þeirra samtaka gegn launþegum á þessu tímamótaári þegar loks mátti þó vænta lausnar á áratuga vesöld í launamálum verkafólksins á íslandi. Að bíða í þrjú og hálft ár eftir að ná 91.000 kr. er með ólíkindum. PV Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangið: gra@ff.is. Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11, 105 ReyKJavik. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.