Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Blaðsíða 9
9 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 DV Þetta helst mnmmmaEm H El LDAR VIÐSKIPTI 908 m.kr. - Hlutabréf 409 m.kr. - Ríkisvíxlar 196 m.kr. MEST VIÐSKIPTI ©SÍF 97,0 m.kr. © Marel 33,9 m.kr. © Landsbankinn 29,1 m.kr. MESTA HÆKKUN ©Skýrr 7,92% © Nýherji 5,26% ©SÍF 5,05% MESTA LÆKKUN © Marel 6,56% ©Olíufélagið 6,25% © Þorbjörn 6,25% ÚRVALSVfSITALAN 1.748 - Breyting © 0,98% Lækkanlr í gær Almennt lækkuðu hlutabréf í verði í gær. Bréf Eimskip lækkuðu um 3,53% og vegur sú lækkun þyngst í lækkun Úrvalsvísitölunn- ar. Hins vegar voru aðeins 17 m. kr. viðskipti þar að baki. Miklar sveifl- ur voru í gengi SH í gær og á tíma- bili nam lækkunin 17%. Stutt er í að uppgjör SH verði birt og kunna þessar sveiflur að skýrast af ólíkum væntingum um afkomu félagsins á síðasta ári. isrannsaami síbastlibna 30 daga 933.705 © Össur © Marel 759.946 ©FBA 721954 © Opin kerfi © Landsbanki 721110 652.698 1 'O síbastlibna 30daga © ísl. hugb.sjóöurinn 77% © Össur 71% © Pharmaco 46% | O Skýrr hf. 43% © Rskmarkaöur Breiðafjarðar hf. 37 % mmwwm o síbastlibna 30 daga © Opin kerfi -69% © Samvinnuf. Landsýn -22% © Loðnuvinnslan hf. -21% © Tangi -17% © Þorbjörn -17% Vextlr hækkaðlr í Evrópu I gær hækkaði Seðlabanki Evr- ópu stýrivexti sína úr 3,25% í 3,5%. Nær samstundis tók gengi evru gagnvart dollar að lækka. Rétt fyrir tilkynninguna var gengi evru gagn- vart dollar 0,9695 en fór í 0,9670 fyrstu mínútumar eftir að tilkynn- ingin barst. Líklegt er að vísitala ís- lensku krónunnar hækki lítiliega vegna minnkandi vaxtamunar í kjölfar þessara breytinga. Þetta gæti valdið þvi að Seðlabanki fslands þurfi að hækka vexti til að halda gengi krónunnar sterku og spoma þannig gegn verðbólgu. liyA-it1! 11 HIdow jones 10630,60 04,93% Snikke. 19566,32 Ol,63% BÉrisap 1458,47 ©4,76% F NASDAQ 4717,39 ©2,94% S^FTSE 6557,20 ©1,71% E5dax 7583,96 02,29% OCAC 40 6258,53 02,29% 17.3.2000 M. 9.15 : KAUP SALA I P--jlW>llar 73,330 73,710 BBpuwI 115,440 116,030 I+flKan. dollar 49,800 50,110 ! Dönsk kr. 9,5360 9,5890 fcÖNorskkr 8,7140 8,7620 SSsænsk kr. 8,4470 8,4930 H—ln. matk 11,9405 12,0122 B i i Fra. frankl 10,8231 10,8881 fl_Belg. franki 1,7599 1,7705 F8 Sviss. frankl 44,0700 44,3200 EShoIL gyllini 32,2160 32,4096 ^Þýskt mark 36,2991 36,5172 1 lit líra 0,036670 0,036890 sch. 5,1594 5,1904 r Port. escudo 0,3541 0,3562 [J_jSpá. peseti 0,4267 0,4293 ["•Ijep. yen 0,691800 0,696000 j jirskt pund 90,144 90,686 SDR 98,590000 99,180000 Hecu 70,9948 71,4214 Viðskipti Umsjón: Viðskiptabla&ið Minni fiskafli í febrúar - áfram slæm afkoma í loðnu þrátt fyrir aukinn afla Fiskaflinn síðastliðinn febrúar- mánuð nam 378 þúsund tonnum samanborið við 406 þúsund tonn í febrúar í fyrra. Mestu munar um 23 þúsund tonna samdrátt loðnu- afla, en botnfiskaflinn dróst saman um 4 þúsund tonn milli ára, sam- kvæmt upplýsingum Hagstofunn- ar. Fiskaflinn í janúar og febrúar á þessu ári var nokkuð meiri en á sama tímabili 1999, 586 þúsund tonn á móti 525 þúsund tonnum í fyrra. Það skýrist að langmestu leyti af auknum loðnuafla í janúar. í Morgunfréttum íslandsbanka F&M í gær segir að þrátt fyrir auk- inn loðnuafla er ekki búist við góðri afkomu af loðnuveiðum á þessari vertíð. Verð á afurðum er ennþá lágt og lítill hluti loðnunnar hefur farið í frystingu. Af einstökum botnfisktegundum var mestur samdráttur í veiðum á karfa, 2.500 tonn, ýsu, 1.100 tonn og grálúðu, 1.000 tonn. Þorskaflinn jókst hins vegar um rúm 500 tonn og ufsaafli um tæp 250 tonn. Fiskaflinn í janúar og febrúar var nokkru meiri nú en á árinu 1999, eða 586 þúsund tonn á móti 525 þúsund tonnum, sem skýrist að langmestu leyti af auknum loðnu- afla í janúar. Alls veiddust á þessu tímabili rúm 426 þúsund tonn árið 1999 en 493 þúsund tonn á þessu ári. Botnfiskaflinn dróst hins veg- ar saman mn rúm 4 þúsund tonn. Skel- og krabbadýraafli heldur áfram að dragast saman. f janúar og febrúar veiddust alls 5.127 tonn sem er minna en helmingur þess sem veiddist á sama tímabili árið 1997. Heildarafli Botnfiskafli Þorskur Ýsa Ufsi Karfi Annar botnfiskafli Sfid Loðna Skel og krabbad. Kolmunni Annar afli 1997 616.531 72.893 36.751 7.111 6.256 14.706 8.069 15.252 515.899 12.487 - - 1998 262.989 59.972 34.357 4.441 4.822 10.267 6.085 8.781 182.389 11.798 - 49 1999 525.263 74.852 44.235 7.811 4.713 10.862 7.231 17.727 426.084 5.999 550 51 2000 586.084 70.766 45.438 6.381 6.007 7.303 5.676 16.761 493.020 5.127 0 410 Össur hf.: Stuttar fréttir Skattalegur ávinningur kaupanna 2 milljaröar Með kaupum Össurar hf. á bandaríska stoðtækjafyrirtækinu Flex-Foot Inc. í Kalifomíu fylgir skattalegur ávinningur upp á tæp- lega 32 milljónir dollara eða sem samsvarar 2,2 milljörðum ís- lenskra króna sem Össur i Banda- rikjunum getur afskrifað jafnt og þétt næstu 15 árin. Viðskiptablaðið greinir frá þessu. Skattalegi ávinningurhm fylgir annars vegar Flex-Foot, samtals 28 Jón Sigurösson, forstjóri Óssurar. mflljónir doll- ara, og hins veg- ar dótturfyrir- tæki þess, Mauch Inc., samtals 3,9 mUlj- ónir doUara. Jón Sigurðsson, for- stjóri Össurar, segir í samtali við Viðskipta- blaðið að þessi skattalegi ávinningur helgist af ákvæði bandariskra skattalaga um svoköUuð „S-corporation“, en skattaleg afgreiðsla þeirra fer fram í gegnum hluthafa þeirra en ekki fyrirtækin sjálf. Bandarísk skatta- yfirvöUd leyfa því kaupendum þessara fyrirækja að afskrifa óefn- islegar eignir á 15 árum. Það jafn- gUdir að skattalegur ávinningur össurar næstu 15 árin sé nálægt 150 mUljónum króna ár hvert. Iðnaðarfyrirtækið Héðinn í Garðabæ: Færir út kvíarnar á erlendum mörkuðum Héðinn hf. í Garðabæ er gamalgrólð Iðnfyrirtæki á ísiandi Fyrirtækiö hefur veriö starfrækt frá árinu 1922 en nú er blásiö til sóknar á erlendum mörkuöum. Héðinn hf. hefur keypt 73% hlut í norska fyrirtækinu Peder Halvor- sen A/S Kjelfabrikk. Fyrirtækið framleiðir gufukafla og einnig ýmis tæki fyrir norska olíuiðnað- inn. Peder Halvorsen A/S er 150 ára gamalt og er annað af tveimur stærstu fyrirtækjum sinnar teg- undar í Noregi. Velta fyrirtækisins hefur verið 500-700 mUljónir ís- lenskra króna á ári sl. 4 ár. Héðinn og Peder Halvorsen hafa átt gott samstarf um árabU en Héð- inn hefur selt vörur fyrirtækisins á íslandi. Meðal viðskiptavina Peder Halvorsens í Noregi eru Aker, Norsk Hydro, StatoU, Kvæmer, Dyno Industrier og SheU Exploration Norway. Fyrirtækið er í Flekkefjord í Noregi en þar hafa íslendingar átt mikU viðskipti vegna smiða á fiskiskipum og bún- aði tengdum þeim. Héðinn hefur með höndum sér- hæfða þjónustu og viðgerðir á vél- búnaði fiskiskipa, smíði fiskimjöls- verksmiðja og búnaðar tU þeirra, málmsteypu og aðra krefjandi jámsmíði. Rekstur fyrirtækisins hefur gengið mjög vel undanfarin ár og það hefur skUað góðum hagn- aði. Undanfarið hefur fyrirtækið leitað markvisst að vaxtartækifær- um, bæði hérlendis og erlendis, er féUu vel að rekstri þess og mark- miðum. Starfsemi Peder Halvor- sens feUur vel að starfsemi Héðins og kaup á hlut i norska fyrirtæk- inu er liður í útrás Héðins hf. á er- lenda markaði. Velta Héðins hf. á síðasta ári var tæplega 900 mUljón- ir króna. Áætiuð velta fyrirtækj- anna beggja á þessu ári er um 1,4 mUljarðar króna. Héðinn hf. er skráð á Vaxtarlista Verðbréfaþings tslands. FBA Ráðgjöf sá um verðmat vegna kaupanna, áreiðanleika- könnun, leiddi samningaviðræður og hafði umsjón með aUri samn- ingagerð í samvinnu við Lög- mannsstofuna LEX. Jafnframt hef- ur FBA Ráðgjöf séð um að útfæra kaup lykUstjómenda Halvorsens á hlut í félaginu ásamt því að koma á ábatakerfi fyrir starfsmenn sem tryggir að hagsmunir starfsmanna og fyrirtækisins fari saman og sem minnst óæskUeg röskun verði á starfsemi félagsins. Marel hf. Hægari vöxtur á þessu ári Hörður Amar- son, forstjóri Marels, segir i Viðskiptablað- inu, aðspurður um skýringar á minnkandi hagnaði á siðari hluta ársins, að það beri að var- ast að draga of víðtækar álykt- anir út frá tölum sem taki aðeins tU sex mánaða tímabUs. EðlUegra sé að líta tU ársins enda sé eðlUegt að ákveðin sveifla sé í framlegð af verkum. Hörður Arnar- son, forstjóri Marels. Verri afkomu vegna iögboöinna öku- tækjatrygginga og meiri tjóna. S j óvá-Almennar Minnkandi hagnaður Hagnaður Sjóvár-Almennra trygginga hf. á síðasta ári var 346 milljónir króna samanborið við 464 mUljónir árið á undan og lækk- aði því um 25%. Hefur þá verið tekið tUlit tU afskrifta á kröfum, tekjiífærslu vegna verðlagsbreyt- inga og skatta. I frétt frá Sjóvá-Al- mennum kemur fram að minni hagnað megi fyrst og fremst rekja tU verri afkomu lögboðinna öku- tækjatrygginga vegna meiri tjóna. Innherjasvik Nítján mái skoftuö Viðskiptaráð- herra hefur svar- að fyrirspum Einars K. Guð- finnssonar al- þingismanns um hvaða tUvik um innherjavið- skipti hafi veriö tU meðferðar hjá Fjármálaeftirlit- inu og bankaeft- irliti Seðlabank- ans frá gUdis- töku laga um verðbréfaviðskipti á árinu 1996. I svari ráðherra kemur fram að frá gUdistöku laga nr. 13/1996, um verðbréfaviðskipti, hefur bankaeft- irlit Seðlabanka Islands og síðar Fjármálaeftirlitiö skoðaö 19 mál á grundveUi IV. kafla laganna. Flest mál voru skoðuð á árinu 1998, sam- tals átta. Fjögur mál vom skoðuð á árinu 1999, þar af er tveimur mál- um ólokið. Valgeröur Sverr- isdottir, iönaöar- og vlöskiptaráö- herra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.