Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2000, Qupperneq 11
11
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
PV_________________________________________ Útlönd
William Cohen, landvarnaráðherra Bandaríkjanna, í Tokyo:
Lífverðir höfða mái
Þrír lífvarða
Salvadors Allendes,
fyrrverandi forseta
Chile, höfðuðu i
gær mál gegn
Augusto Pinochet,
fyrrverandi einræð-
isherra. Málið fjall-
ar um dráp 34 líf-
varða við valdaránið 1973 þegar
Pinochet komst til valda. Alls hafa
nú 74 mál verið höfðuð gegn einræð-
isherranum fyrrverandi.
Skotárás á heimavist
Nemandi í heimavistarskóla í
Brannenburg í Þýskalandi skaut og
særði kennara sinn og siðan á sjálf-
an sig. Upp hafði komist um
hassneyslu nemandans og átti að
vísa honum úr skóla.
Fundu vopn hjá Albönum
Bandariskir friðargæsluliðar í
Kosovo hafa fundið vopn, skotfæri
og einkennisbúninga hjá albönsk-
um skæruliðum á landamærum
Kosovo og Serbíu.
Jens Stoltenberg
Nýr forsætisráöherra Noregs kynnir
stjórn sína í dag.
Kjósendur í Nor-
egi vara Jens
Stoltenberg við
Norskir kjósendur vara Verka-
mannaflokkinn við sama dag og
Jens Stoltenberg kynnir nýja stjórn
sína. Samkvæmt skoðanakönnun
hefur fylgi flokksins minnkað um
4,7 prósentustig í mars. Nýtur
Verkamannaflokkurinn nú fylgis
30,2 prósenta kjósenda.
Kristilegi þjóðarflokkurinn hefur
hagnast mest á stjómarskiptunum í
Noregi. Er fylgi flokksins nú 17,1
prósent og hefur aukist um 6,7 pró-
sentústig. Bondevik, fyrrverandi
forsætisráðherra, nýtur samúðar
kjósenda. Fylgi Vinstriflokksins
hefur aukist úr 3,2 prósentum i 5,6.
Framfaraflokkurinn tapar fylgi,
hlýtur nú 16,9 prósent en var með
19,5.
Norskir stjórnmálaskýrendur
segja að ekki komist stöðugleiki á í
stjórnmálum Noregs fyrr en nýja
stjómin hefur starfað um skeið.
Leyniskyttur gera árás
Rússneskum hermönnum tókst
að sigra tjsetsjenska uppreisnar-
menn í Komsomolskoje. Uppreisn-
armenn gáfust hins vegar ekki upp
því leyniskyttur urðu eftir sem
gerðu Rússunum lífið leitt. Átök
héldu áfram við Sjaro-Argun.
Bin Ladin fársjúkur
Sádi-arabíski hryðjuverkaleiðtog-
inn Usama bin Ladin á ekki langt
eftir, að þvi er tímaritið Asiaweek í
Hong Kong heldur fram. Er hryðju-
verkaleiðtoginn, sem er í felum i
Afganistan, sagður nýmaveikur.
Atlaga gegn fjölmiðlum
Útlit er fyrir að 68 sjónvarps-
stöðvar og 168 útvarpsstöðvar í
Serbíu neyðist til að loka á næst-
unni vegna nýrra laga um greiðslu-
skyldu fyrir sendingar. Yfirvöld
neita að þau séu að þagga niður í
gagnrýnisröddum.
Hrósar Króatíustjórn
George Robert-
son, framkvæmda-
stjóri Atlantshafs-
bandalagsins, hrós-
aði í gær nýrri
stjóm Króatíu.
Króatar þurfa þó að
uppfylla viss skil-
yrði áður en þeir
geta tekið þátt í friðarsamstarfi.
Kínverjar ekki um það
bil að ráðast á Taívan
3 ára í gini tígrisdýrs
Tígrisdýr í Texas i
Bandaríkjunum beit af handlegg 3
ára drengs sem stakk handleggnum
í búr dýrsins. Læknar í Houston í
Texas gerðu að sárum drengsins.
Gjafir á trúarhátíö
Suha Arafat, eiginkona Yassers Arafats, forseta Palestínumanna, kom færandi hendi í gær þegar hún heimsótti
samtök munaöarleysingja á Gazasvæöinu. Suha færöi þar börnum píslarvotta Intifada-uppreisnarinnar gegn
ísraelsmönnum gjafir, eins og siður er viö upphaf Eid al-Adha trúarhátíðar múslíma.
William Cohen, landvarnaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í morg-
un að leyniþjónusta bandaríska
hersins 'hefði ekki séð neitt sem
benti til að Kínverjar hefðu uppi
áform um að ráðast á Taívan. Árás-
in væri að minnsta kosti ekki yfir-
vofandi. Kínverjar hafa haft í hótun-
um við Taívana að undaníomu
vegna forsetakosninganna þar á
morgun.
„Það sem við sjáum aftur á móti
er orðaskak," sagði Cohen á fundi
með fréttamönnum í Tokyo í morg-
un.
Cohen hvatti Kínverja og Taívana
til að láta af orðaskakinu. Hann
sagði að ef áframhaldandi hemaðar-
uppbygging Kínverja ógnaði Taívan
myndi það aðeins auka þrýstinginn
í Bandaríkjaþingi á að selja Taí-
vansstjórn meiri vopn.
Cohen minnti á að þegar Taívan-
ar héldu fyrstu lýðræðislegu for-
Kosningafundur á Taívan
Lien Chan, forsetaframbjóöandi
stjórnarflokksins, hvetur sína menn.
setakosningamar sínar fyrir fjórum
árum hefðu Kínverjar haldið heræf-
ingar á Taívansundi. Stjórnvöld í
Peking væru nú að reyna að hafa
áhrif á niðurstöðu kosninganna
með orðum en ekki gjörðum.
Zhu Rongji, forsætisráðherra
Kina, varaði Taívana við því á mið-
vikudag að kjósa ekki yfir sig for-
seta sem vildi algjört sjáifstæði eyj-
arinnar. Zhu sagði að fyrr myndu
Kínverjar gera inmás en leyfa Taív-
an að öðlast sjálfstæði.
Stjómarflokkurinn á Taívan,
gamli flokkur þjóðernissinnans
Sjangs Kaís-sjeks sem flúði til Taí-
vans þegar kommúnistar komust til
valda í Peking 1949, leggur allt i söl-
umar til að halda völdum. Auglýs-
ingaspjöld með myndum af varafor-
seta landsins og forsetaframbjóð-
anda, Lien Chan, eru um ailt. En
Chan þykir hins vegar litlaus
stjórnmálamaður.
Helstu keppinautar varaforsetans
eru Chen Shui-bian, frambjóðandi
stjórnarandstöðunnar, og James
Soong sem yfirgaf stjórnarflokkinn
til að bjóða sig fram sem óháður.
En þrátt fyrir að stjórnarflokkur-
inn hafi kostað miklu til í kosninga-
baráttunni er alls óvíst að honum
takist að halda völdum. Hinir fram-
bjóðendurnir hafa meðal annars
reynt að færa sér í nyt ásakanir á
hendur stjórnarflokknum um spill-
ingu.
Chen Shui-bian, sem margir telja
að muni fara með sigur af hólmi,
hefur heitið því að verði hann kjör-
inn forseti muni hann setja á lagg-
irnar nefnd til að rannsaka mikil
auðæfi stjómarflokksins.
Varaforsetinn leggur áherslu á
það í boðskap sínum að hann sé eini
frambjóðandinn sem geti tryggt að
deilan við Kínverja fari ekki úr
böndunum og til átaka komi.
IS-21 Er glæsilega hönnuö hljómtækjastæða. Framúrstefnuleg
og kraftmikil meö 2 x 100 W útgangsmagnara, Power Bass
hátalara, funky blá baklysing, einingar sem auðvelt er aö taka
i sundur, gegnsætt lok fyrir CD-spilara og allt þaö sem þú vilt
hafa i alvöru hljómtækjastæöu, og meira til!
aðfiins ;.