Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2000, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000
11
PV
Utlönd
Færeyingar geta staðiö á eigin fótum:
Lögmaður vill viðræð-
ur fyrir opnum tjöldum
Anfinn Kallsberg, lögmaður Fær-
eyja, skrifaði Poul Nyrusmussen,
forsætisráðherra Danmerkur, bréf
í gær þar sem hann sagði Dani hafa
svo misnotað og rangtúlkað trúnað-
arupplýsingar í sjálfstæðisviðræð-
unum i síðustu viku að Færeying-
ar óski eftir því að framhald við-
ræðnanna fari fram fyrir opnum
tjöldum. Af sömu ástæðu ætlar lög-
maðurinn að gera opinbera i dag
tillögu færeysku landstjómarinnar
um ný tengsl milli landanna sem
kynnt var á samningafundinum á
fóstudag.
í bréfinu segist Anfinn Kallsberg
hafa orðið mjög hissa eftir fundinn
á fostudag þegar danskir og fær-
eyskir fjölmiðlar birtu upplýsingar
frá danska fjármálaráðuneytinu.
Samkvæmt þeim upplýsingum á
færeyska landstjómin að hafa lagt
til að fjárhagsstyrkur Dana til Fær-
eyinga yrði afnuminn á 50 til 80 ára
tímabili.
Lögregla í
New York skaut
óvopnaðan
innflytjanda
Efnt hefur verið til mótmæla
daglega síðan lögregla í New York
skaut til bana óvopnaðan innflytj-
anda frá Haiti fyrir utan bar sið-
astliðinn fimmtudag.
Lögmenn lögreglumannsins,
Anthonys Velazquez, sem skaut
innflytjandann, segja að hleypt
hafi verið af óvart. Sjónarvottar
segja það ekki rétt.
Lögreglumaðurinn, sem var í
borgaralegum klæðum, tók þátt í
aðgerð gegn flkniefnaneytendum.
Hann ávarpaði innflytjandann,
Patrick Dorismond, og spurði
hvar hann gæti keypt maríjúana.
Eftir eitthvert orðaskak skaut lög-
reglumaðurinn Dorismond.
„Ég skil ekki hvemig óvopnað-
ur maður, sem ekki hafði áhuga á
viðskiptum með fíkniefni, skuli
hafa látið lífíð,“ sagði presturinn
A1 Sharpton sem tekið hefur þátt
í mótmælunum. Fullyrt er að lög-
reglumaðurinn sé fljótur að reið-
ast og sé haldinn fordómum gegn
blökkumönnum.
Óskarsstyttur fundnar
Lögreglan hefur endurheimt tugi
stotinna óskarsverðlaunastyttna.
Andað léttar:
Stolnar óskars-
styttur fundnar
Lögreglan i Los Angeles hefur
handtekið tvo menn sem grunaðir
eru um að hafa stolið 55 óskarsverð-
launastyttum. Mennimir störfuðu
báðir hjá fyrirtækinu sem sá um að
flytja styttumar frá framleiðandan-
um í Chicago til Hollywood.
Fimmtíu og tvær styttur fundust
i ruslagámi við verslun í kóreska
hverfi Los Angeles. Maðurinn sem
fann styttumar lét fjölmiöla vita
fyrst og lögregluna svo. Lögreglan
hefur lítið sagt um hvemig tví-
menningamir skipulögðu ránið.
Anflnn Kallsberg
Færeyski iögmaðurinn skrifaði
danska forsætisráðherranum bréf.
„Þetta er til mikils skaða fyrir
væntanlegar samningaviðræður og
ég get ekki túlkað þetta öðru vísi en
að danska stjómin vilji ekki virða
óskir Færeyinga um að þetta verði
trúnaðarmál," segir Anfinn kalls-
berg í bréfinu til danska forsætis-
ráðherrans.
Tveir danskir sérfræðingar í
efnahagsmálum Færeyja segja að
eyjarskeggjar þoli vel að beinn fjár-
styrkur Dana verði afnuminn á
þremur til fjórum árum, eins og
Poul Nymp sagði að raunin yrði ef
Færeyingar vildu sjálfstæði. Sér-
fræðingamir segja við Jyllands-
Posten að Færeyingar muni fmna
fyrir þvi en ekki á afgerandi hátt.
„Að sjálfsögðu getur færeyskt
efnahagslíf staðið á eigin fótum inn-
an fjögurra ára. Færeyingar munu
finna fyrir sjálfstæði í buddunni
sinni en ekki afgerandi. Eyjamar
eru nú í hópi 15 ríkustu þjóða heims
en detta niður í 25. til 30. sæti,“ seg-
ir Martin Paldam, hagfræðiprófess-
or við Árósaháskóla.
Hann og Christian Schultz, hag-
fræðiprófessor við Kaupmannahafn-
arháskóla, eru sammála um að ekki
sé betri tími fyrir Færeyinga til að
öðlast sjálfstæði en einmitt nú þar
sem efnahagur Færeyja standi svo
traustum fótum.
„Það er enginn vafi á að þeir muni
finna fyrir þessu. En á síðustu árum
hafa Færeyingar lækkað skuldir sín-
ar um tíu milljarða íslenskra króna.
Erlendar skuldir landsins voru því
við árslok komnar niður í ekki neitt.
Tekjuafgangur rikissjóðs var svo
tæpir tíu milljarðar á árinu 1999,“
segir Christian Schultz.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
lýsti því yfir á Alþingi í gær að ís-
lensk stjómvöld væm reiðubúin að
liðka fyrir samningaviðræðum Fær-
eyinga og Dana ef aðilar fæm fram
á það en íslendingar myndi ekki
hafa frumkvæði þar um.
Englandsdrottning heimsækir andfætlinga
Elísabet Englandsdrottning brosti breitt viö komuna í vatnsíþróttamiðstöðina á ólympíuleikasvæöinu í Sydney í Ástrai-
íu í morgun, þrátt fyrir vætuna. Hópur manna var þar saman kominn til aö fagna drottningu sem er í sextán daga op-
inþerri heimsókn til Ástralíu. Drottning hefur tólf sinnum áður heimsótt andfætlinga.
Nýr formaöur kristilegra
Angela Merkel er prestsdóttir og
eðlisfræðingur frá A-Þýskalandi.
Merkel tilnefnd
formaður kristi-
legra demókrata
Stjórn Kristilega demókrata-
flokksins ákvað í gær að tilnefna
Angelu Merkel, núverandi aðalrit-
ara flokksins, í embætti flokksfor-
manns. Ekki verður um mótfram-
boð að ræða á þingi flokksins í apr-
íl og er því víst að Merkel verður
flokksformaður.
„Þetta er alveg ótrúlegt. Þetta
sýnir að konur eru líka fólk,“ sagði
Merkel á fundi með fréttamönnum.
Hún hét því að hreinsa til eftir
Helmut Kohl, fyrrverandi kanslara
Þýskalands, og gera flokkinn bar-
áttuhæfan á ný. Merkel er
prestsdóttir frá A-Þýskalandi og er
eðlisfræðingur að mennt.
Cherie Blair
Breska forsætisráöherrafrúin hvetur
tii lagabreytinga til að jafna stööu
samkynhneigöra og kvenna.
Cherie berst fyr-
ir homma og rétt-
indum kvenna
Cherie Blair, eiginkona Tonys
Blairs, forsætisráðherra Bretlands,
hvatti í gær til lagabreytinga til að
auka réttindi samkynhneigðra og
kvenna. í ávarpi á ráðstefnu lög-
manna sagði breska forsætisráð-
herrafrúin að umræðunni um hvort
samkynhneigð pör ættu að njóta
sömu réttinda og gagnkynhneigö
hjón væri ekki lokið. Cherie hvatti
einnig til breytinga á vinnulöggjöf-
inni til að hjálpa konum við að sam-
eina vinnu og fjölskyldulif. Sagði
hún nauðsyn á sveigjanlegum
vinnutíma og betri bamagæslu.
Kominn a þing
og styður Bush
John McCain settist aftur í öld-
ungadeildina á Bandaríkjaþingi í
gær í fyrsta sinn frá því að baráttu
hans fyrir að hljóta tilnefningu sem
forsetaframbjóðandi repúblikana
lauk. Lýsti McCain yfir stuöningi
við George Bush, ríkisstjóra Texas.
„Ég hef alltaf sagt að ég myndi
styðja frambjóðanda flokksins og ég
ætla að gera það,“ sagði McCain við
fréttamenn. Hann lagði þó áherslu á
að hann myndi ekki láta af umbóta-
stefnu sinni. Hann myndi ekki
svíkja þær milljónir sem treystu á
hann og stefnu hans. McCain dró
sig í hlé 9. mars síðastliðinn, tveim-
ur dögum eftir mikinn ósigur í for-
kosningum í 16 ríkjum. McCain var
hvattur til að bjóða sig fram fyrir
þriðja flokkinn en hann ætlar ekki
að yfirgefa Repúblikanaflokkinn.
John McCain
Öldungadeildarþingmaðurinn lýsti í
gær yfir stuðningi viö Bush.
EVRÓPA
BÍLASALA
Faxafen 8
Sími 581 1560
Fax 581 1566
tákn um traust
Hyundai Starex H-1 4x4 dísil, sk. 01/00,
ekinn 6 þús. km,
vetrardekk/sumardekk,
7 manna,
snúningsstólar.
Nýr bíll.
Verð 2.450.000.
Áhvilandi hagstætt bílalán.
www.evropa.iswww.evropa.is