Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
Fréttir
Ríkislögreglustjóri neitar Landssambandi lögreglumanna um afrit af bréfum:
Formaður þrætir
fýrir eigin skrif
- þar sem hann segir mönnum ekki skylt að gera grein fyrir „áhugamálum'
Ríkislögreglustjóri ritar langt bréf
þar sem hann vill bera til baka frétt
DV um að meint stríð sé á milli
Landssambands lögreglumanna og
embættis ríkislögreglustjóra.
Þama stangast á fullyrðingar ríkis-
lögreglustjóra við efni bréfs sem
Landssamband lögreglumanna
sendi lögreglumönnum nýverið.
Umrædd frétt er byggð nær orð-
rétt á bréfi stjómar LL til lögreglu-
manna sem ríkislögreglustjóri
virðist ekki hafa fengið að sjá, en
DV hefur undir höndum.
Virðist bréfið bera það með
sér að ekki ríki mikill kær-
leikur á heimilinu.
Jónas Magnússon, formað-
ur Landssambands lögreglu-
manna, sendi bréf í líkum dúr og
ríkislögreglustjóri og fárast út af
frétt DV. Umræddur Jónas kann-
ast þar ekki við ýmis atriði í frétt-
inni sem þó eru byggð á hans eigin
bréfi sem hljóðar svo, og er ritað til
lögreglumanna 15. mars 2000:
Stjórn Landssambands lögreglu-
manna hefur á fundi sínum í dag
m.a. fjallað um skyldu lögreglu-
manna til þess að skýra lögreglu-
stjóra frá því, hyggist hann taka við
launuðu starfi, ganga i stjórn at-
vinnufyrirtækis eða stofna til at-
vinnurekstrar. Með hliðsjón af
því eyðublaði
sem dreift hefur verið til
lögreglumanna og gerir
m.a. ráð fyrir tilkynn-
ingu um ólaunað auka-
starf hefur stjómin leit-
að lögfræðiálits. Stjóm-
in beinir þeim tilmælum
til lögreglumanna að:
Þeir sem hafa með
höndum launuð auka-
störf, sitji í stjórn at-
vinnufyrirtækja, reka eða
hyggjast
vcrt cr að vekja aihygíí s hefja
rekstur
eigin
fyrir-
tækis og hafa
ekki fengið til þess leyfi
viðkomandi lögreglustjóra,
skili inn tilkynningu þar
um án tafar.
Þeir sem þegar hafa til-
kynnt lögreglustjóra um launað
aukastarf og ekki verið bannað að
Bréf til lögreglumanna. stunda það, skrifi honum bréf í
ne hvflir hví plchi hverju vitnað er m upphaflegrar
„...Og nvuir pvi e/c/a SU tilkynningar og hvenær hún fór
skylda á lögreglumönnum fram.
að geragrein fyrir „áhuga- Ekki iagastoð
málum“ sínum.“ Ekki verður séð að lagastoð sé
J*jóm IX hefur rikiriöfrtcghif1 jó.» «m
tógíCglunanra í »ð íknhtoTu LL I®‘“^ U suifuotM itclur ekki að
hann i*Tur nduð ammkunum ^ ^ ^
ieti rikíslðBicgluajóraMOg þyiykk. mðfcUiciKa ZZZZJZZLm
Jónas
Magnússon.
Kannast
ekki við eig-
ið bréf.
U ti þwnuw ftnifc. i tma'ft
fyrir tilkynninga-
skyldu um „ólaunuð
störf* og hvílir því
ekki sú skylda á lög-
reglumönmun að gera
grein fyrir „áhuga-
málum“ sínum.
Neitað um afrit
Stjórn LL hefur
ýmsar athugasemdir
við framgang máls
þessa en vert er að
vekja athygli lög-
reglumanna á að
skrifstofu LL berast
ekki umburðarbréf
ríkislögreglustjóra þar sem hann
hefur neitað samtökunum um af-
rit þeirra. Skrifstofan hefur ekki
aðgang að innra neti ríkislög-
reglustjóra og því ekki möguleiki
á að afla þaðan gagna.
Ríkislögreglustjóra verður ritað
bréf í framhaldi af þessum fundi, í
hverju gagnrýni stjómar á fram-
kvæmd og túlkun þessara mála
verður tíunduð.
Með félagskveðju.
Stjóm LL. JM/- -HKr.
(Millifyrirsagnir og leturbreyt-
ingar eru blaðsins)
Ríkislögreglust j óri:
Kannast ekki við stríðið
Á blaðsíðu 2 í DV í dag, 22. mars
2000, birtist frétt með fyrirsögninni „í
stríði við ríkislögreglustjóra". Fram
kemur í greininni að stjórn Lands-
sambands lögreglumanna (LL) hafi
„leitað eftir lögfræðiáliti vegna til-
kynningaskyldu ríkislögreglustjóra
vegna aukastarfa lögreglumanna“.
Jeifnframt kemur fram að stjórn fé-
lagsins hafi fundað um þá kröfu ríkis-
lögreglustjóra að lögreglumenn sem
hafa með höndum launuð aukastörf,
eða sitji í stjómum fyrirtækja, eða
hyggist hefja rekstur eigin fyrirtækja
án þess að hafa fengið til þess leyfi
viðkomandi lögreglustjóra, tilkynni
það án tafar. í greininni kemur og
fram að stjóm LL telji að ekki sé laga-
stoð fyrir tilkynningaskyldu um
„ólaunuð störf ‘ og því hvíli sú skylda
ekki á lögreglumönnum að gera grein
fyrir „áhugamálum" sínum.
Vegna fréttar DV vill ríkislögreglu-
stjórinn taka fram að með bréfi, dags.
10. maí 1999, í framhaldi af beiðni
dómsmálaráðuneytisins, fól embættið
laga- og umsagnarnefnd ríkislögreglu-
stjórans að gera tillögur að almennum
reglum um hvaða aukastörf lögreglu-
manna teljist heimil samkvæmt 32. gr.
lögreglulaga nr. 90/1996, en í lagaá-
kvæðinu er fjallað um aukastörf lög-
reglumanna. Þá er kveðið á um auka-
störf opinberra starfsmanna í 20. gr.
laga nr. 70/1996, um réttindi og skyld-
ur starfsmanna ríkisins. Laga- og um-
sagnarnefnd ríkislögreglustjóra er
skipuð lögfræðingunum Ólafi K.
Ólafssyni, sýslumanni, sem jafnframt
er formaður, Birni Jósef Amviðar-
syni, sýslumanni og formanni Sýslu-
mannafélags íslands, Arnari Guð-
mundssyni, skólastjóra Lögregluskóla
ríkisins, Jón H. B. Snorrasyni, sak-
sóknara efnahagsbrotadeildar ríkis-
lögreglustjóra og Herði Jóhannessyni,
yfirlögregluþjóni lögreglustjóraemb-
ættisins í Reykjavík Með bréfi, dags.
2. febrúar sl. óskaði laga- og umsagn-
amefnd eftir því við ríkislögreglu-
sjóra að öllum lögreglustjórum yrði
ritað bréf þar sem óskað yrði eftir því
að allir starfandi lögreglumenn í land-
inu fylltu út ákveðið eyðublað sem
nefndin halði útbúið. Þetta var gert
með bréfi ríkislögreglustjóra þann 22.
febrúar sl. og eru tilkynningar frá lög-
reglumönnum þegar farnar að berast.
Þessi málsmeðferð er í fullu samræmi
við ákvæði 32. gr. lögreglulaga og 20.
gr. starfsmannalaga og því fráleitt að
um lögleysu sé að ræða, eins og hald-
ið er fram í frétt DV og byggt á áliti
stjórnar Landssambands lögreglu-
manna.
í umræddri frétt er talað um að
stjóm landssambandsins vekji athygli
lögreglumanna á því að ríkislögreglu-
stjóri hafi neitað samtökum þeirra
um afrit af eyðublaði sem hann hefur
dreift til lögreglumanna með fyrr-
greindri kröfu. Einnig bendir stjómin
á að LL hafi ekki aðgang að innraneti
ríkislögreglustjóra og hafi því ekki
möguleika á að afla þaðan gagna.
Embætti ríkislögreglustjóra á ekki
gott með að átta sig á hvaðan þessi
vitleysa kemur enda er heimildar-
maður DV ekki nafngreindur. Lands-
samband lögreglumanna hefur ekki
óskað eftir því við embætti ríkislög-
reglustjórans aö fá afhent nefnt eyðu-
blað né heldur sent embætti ríkislög-
reglustjóra nokkurt erindi varðandi
umburðarbréf sem hér er fjallað um
og varðar aukastörf lögreglumanna.
Ríkislögreglustjóra er því fýrirmunað
að átta sig á hvaða stríð á að vera í
gangi á milli embættisins og lands-
sambands lögreglumanna. í þessu
sambandi er einnig rétt að taka fram
að allir lögreglumenn á landinu, þar
með taldir stjómarmenn í Landssam-
bandi lögreglumanna, hafa aðgang að
innranetsvef ríkislögreglustjórans,
þar sem öll umburðarbréf era birt
jafnóðum og þau eru send út. Þetta
fyrirkomulag er búið að vera við líði
síðan í júní 1999, en þá sendi ríkislög-
reglustjóri öllum lögreglustjórum
bréf þar sem innranetið var kynnt og
áhersla lögð á aðgengi allra lögreglu-
manna að því og þeir hvattir til að
kynna sér umburðarbréfin. Ríkislög-
reglustjóra er ekki kunnugt um ann-
að en að allir lögreglumenn hafi að-
gang að innranetinu með einhverjmn
hætti. Það erindi sem hér er til um-
fjöllunar er á innranetsvefnum, svo
og nefnt eyðublað.
Ríkislögreglustjóri,
22. mars 2000.
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR LOKAGJALDDAGI INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000,00
1980 í. fl. 15. 04. 2000 kr. 506.928,10
* Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 24. mars 2000
SEÐLABANKIÍSLANDS
Ktt Umsjón:
Haukur L. Hauksson
netfang: sandkorn@ff.is
Stéttaskipting
Steinunn
Ólina Þor-
steinsdóttir
upplýsti
óvart í Sjón-
varpinu um
stéttaskipt-
inguna inn-
an leikara-
stéttarinnar
þegar hún
: sagði sem
svo að leik-
ari á Akureyri sem missti samning
við húsiö og yrði lausráðinn færð-
ist við þaö upp um eina deild í
virðingarstiganum. Mátti skilja
ummælin á þann veg að leikarar
skiptust í fjórar deildir. í 1. deild
væru leikarar við Þjóðleikhúsið,
leikarar við LR væru í 2. deild, at-
vinnulausir leikarar og lausráðnir
í 3. deild og fastráðnir við Leikfé-
lag Akureyrar í 4. deild...
Hvers vegna hvað?
Einn
vandi við is-
lenska um-
ræðu er sá
að ekki er
rætt efnis-
lega um
deiluefni
heldur
frekar
hvers
vegna ein-
hver sagði
eitthvað, hvað viðkomandi gangi til
og er þá oftast gerður upp illur
ásetningur. Þannig er lenska að
stunda orðhengilshátt og deila um
tittlingaskít sem ekki kemur mál-
inu viö. Ófáum finnst þetta tilfellið
þegar t.d. Jón Steinar Gunnlaugs-
son tekur til máls um kvótamálin,
þegar Kristján Ragnarsson tekur
til máls um bankasameiningu eða
þegar Davíð Oddsson talar um fá-
keppni á matvörumarkaði...
Hvað er heimspeki?
Þýðingar-
sjóður hefur
nú sent út
um borg og
bý loforð um
styrki af
ýmsu tagi.
Alls sóttu 28
aðilar um
þær 9 millj-
ónir króna
sem eru í
pottinum.
Meðal þeirra sem fá styrk er Jón
Viðar Jónsson leiklistargagnrýn-
andi. Hann fær 200 þúsund krónur
þar sem hann hyggst þýða Dauða-
dansinn eftir Strindberg. Það sem
vekur þó mesta athygli er að heim-
spekideild Háskóla íslands fær
sömuleiðis 200 þúsund kall til verk-
efnis sem ber heitið „Hvað er
heimspeki?" Heldur klént kynni
einhver að segja...
Séra Björn
Sandkorn
fjallaði í
vikunni um
það hvemig
Bjöm
Grétar
Sveinsson,
formaður
Verka-
manna-
sambands-
ins, talaði
látlaust í
gemsann sinn þar sem hann lá á
spítala. Og það þrátt fyrir að lagt
væri blátt bann við notkun slíkra
tóla á spítölunum vegna hættu á að
blaðriö í þau truflaði viðkvæm
lækningatæki. Þetta varð tilefni til
vísugerðar:
Þó læknar vorir landann hræði,
lítið gemsar skapa tjón,
í bæli sínu búa í næði
Bjöm Grétar og séra Jón.