Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
Skoðun X>V
Fylgistu með för
pólfaranna?
Arnbjörg María Danielsen nemi:
Já, þetta er ótrúlegt afrek hjá þeim.
Þvílíkur dugnaöur.
Henny María nemi:
Ekkert sérstaklega, bara svona aö-
eins í fréttum.
Kristín Þyri Þorsteinsdóttir nemi:
Já, aöeins, þetta er frábært hjá
þeim og ég vona bara aö þeim eigi
eftir aö ganga vel.
Ólafur Ingi Þórarinsson nemi:
Nei, ég hef ekki áhuga.
Ingólfur Sigurösson tónlistarmaöur:
Svona smávegis.
Auöunn Gestsson blaöasali:
Svolítiö en ekki mikiö, þetta er frá-
bært hjá þeim.
Þrátt fyrir lest kæmi hraðbraut til Suöurnesja
„Línulögn og staura eftir allri brautinni, vegna þess aö hatda veröur úti afiframboöi."
J ár nbraut ar dr aumar
Fólk grípur nú þá
hugmynd á lofti aö
leggja járnbraut á
Suðurnes. Málið er
þó alls ekki einfalt.
Þeir sem hafa notað
járnbrautir daglega í
mörg ár í útlöndum
sjá strax að fjöldann
til þess að nýta
brautina vantar, og
hér myndi ekki
verða um almenningssamgöngur að
ræða. Einungis tækifærissamgöng-
ur, sem byggjast á flugi frá Keflavík.
Því er forsenda um slika flutninga
firra.
Að svo miklu leyti sem slík járn-
braut yrði notuð vegna atvinnu-
sóknar, þá fer þessi braut ekki
þangað sem fólk þarf að fara, heldur
þarf þrjú farartæki, eitt að lestinni,
lestina og síðan frá lestinni. Einka-
bílar báðum megin borga sig ekki.
Þrátt fyrir lest kæmi hraðbraut til
Suðumesja. Ef við hefðum sex miUj-
„Að svo miklu leyti sem
slík járnbraut yrði notuð
vegna atvinnusóknar, þá
fer þessi braut ekki þangað
sem fólk þarf að fara, held-
ur þarf þrjú farartœki, eitt
að lestinni, lestina og síðan
frá lestinni.“
arða króna í járnbraut, þá höfum
við sex milljarða i hraöbraut innan
höfuðborgarsvæðisins. En það er
byggt af miklu fyrirhyggjuleysi
margra sveitarfélaga í samkeppnj.
Við hefðum sex milljarða umfram
venjulegar gatnaframkvæmdir.
Og hvaða braðbrautir þarf? - Frá
Keflavík inn á núverandi Reykja-
víkurflugvöll, með bókun í flug þar.
Þar kemur umferð frá Hafnarfirði
um Garðabæ, Kópavog, í Mjódd, um
Fossvogsdal og niður yfir Öskjuhlíð
inn að miðbæ og HÍ. Önnur braut
frá Mjódd niður að gömlu höfninni
i Reykjavík. Vesturlandsvegur yrði
hraðbraut vestan fyrir Mosfellsbæ
allt upp að göngum i Hvalfirði. Þá
hraðbraut úr Garðabæ yfir á Suður-
landsveg. Einnig hraðbraut úr
Kópavogi um Kringlumýri niður á
brautina til hafnarinnar. Þetta eru
brautir fyrir atvinnusvæði og al-
mennar samgöngur. - Ekki bara
tækifæri fyrir ferðamenn.
Við jámbraut myndi verða notað
rafmagn. Hvað þýðir það? Línulögn
og staura eftir albri brautinni, vegna
þess að halda verður úti aflfram-
boði. En hvað þá með rafbíla? Vand-
inn þar er aflframboð úr rafgeym-
um, sem enn er of lítið og dýrt. En
það leysist, vegna þess að þörfm er
brýn, eins og af dæminu hér sést.
AIls staðar er hægt að virkja orku,
en vandinn er að geyma hana til að
nota þegar þarf. Án þess að hafa
grandskoðað dæmið til fullnustu, þá
kemur járnbraut ekki til greina.
Þorsteinn
Hákonarson
framkvæmdastj.
skrifar:
Brottrekstrarsök til sjós - skaðabætur í landi
Guöm. Helgi Þörarínsson
vélstj. skrifar:_____________________
1 fréttum þann 20. þ.m. var sagt
frá uppsögn áhafnarinnar á Ófeigi
VE vegna þess að þeir kærðu þátt-
töku sína í kvótakaupum til Verð-
lagsstofu. - Kom þá í ljós að þeir
höfðu verið hlunnfamir um 800.000
kr. á fimm mánaða tímabili sl. árs.
Samt er bannað með lögum að
draga kvótakaup frá aflahlut sjó-
manna. Væri svo ruddalega komið
fram við fólk í landi fyrir að standa
á rétti sínum færi það i mál og fengi
greiddar skaðabætur. - En til sjós er
þetta bara svona!
„Haltu kjafti, hlýddu og vertu
góður“ ella hlýtur þú verra af - gild-
„Maður gœti haldið að
sumir útgerðarmenn héldu
að frjálst fiskverð þýddi að
nú réðu þeir hvað þeir
borguðu fyrir fiskinn. í
þeim tilvikum er menn
selja fiskinn á markað er
jafnvel verið að taka frá
fyrir kvóta. “
ir í þessu tilviki. Víst geta launakjör
stundum verið góð til sjós en það
sama á þá við um útgerðina. Þótt
menn hafi gott kaup réttlætir það
ekki lagabrot á þeim. Að búa við að
það sé brottrekstrarsök að verja
lagalegan rétt sinn þekkist ekki
meðal siðaðra þjóða.
Maður gæti haldið að sumir út-
gerðarmenn héldu að frjálst fisk-
verð þýddi að nú réðu þeir hvað
þeir borguðu fyrir fiskinn. í þeim
tilvikum er menn selja fiskinn á
markað er jafnvel verið að taka frá
fyrir kvóta. Og þar sem útgerð og
vinnsla er á sömu hendi þá ákveða
útgerðarmenn oft einhliða fiskverð-
ið eins og það komi sjómönnum
ekkert við. - En að menn sem vilja
verja rétt sinn séu reknir fyrir, það
er óverjandi.
Dagfari
Allir þekkja Tryggva
Tryggvi Harðarson mun lúta í lægra haldi
fyrir Össuri Skarphéðinssyni þegar talið verð-
ur upp úr umslögunum í póstkosningu um for-
mann nýs flokks Samfylkingarinnar. Og gott
betur. Össur mun bursta Tryggva í formanns-
kjörinu eins og skoðanakönnun DV, sem birt
var í blaðinu í gær, sýnir svart á hvítu.
En þar með er ekki sagt að Tryggvi þurfi að
örvænta. Og þó Tryggvi virðist vera að fórna
sér svo Samfylkingin þurfl ekki að láta það
vitnast að fyrsti formaður hennar hafi verið
kjörinn rússneskri kosningu þá er fórnin í
raun og veru engin. Eftir er fundarferð þeirra
félaga um allt land þar sem þeir munu viðra
skoðanir sinar. Síðan verður talið upp úr köss-
unum og landsfundurinn verður umlukinn
ákveðinni spennu þó kannanir sýni að Össur
geti þegar tekið tappann úr kampavínsflöskunni.
Tryggvi mun ekki snúa tómhentur heim heldur
verða hylltur sem sigurvegari; fyrir að forða
stofnfundinum frá ládeyðu rússneskrar kosning-
ar; fyrir að efla stjómmálaumræðu innan Fylk-
ingarinnar á fundum með mótframbjóðandanum
og síðast en ekki síst fyrir að forða Samfylking-
unni frá gleymsku. Framboð Tryggva mun beina
kastljósunum að Samfylkingunni fram á vorið og
rétta hlut hennar í dægurþrasi landans þar sem
Tryggvi mun ekki snúa tómhentur
heim heldur verða hylltur sem sigur-
vegari; fyrir að forða stofnfundinum frá
ládeyðu rússneskrar kosningar.
forsætisráðherra, Steingrímur Joð, Björn Bjama
og allir hinir ekki-Samfylkingarmennimir hafa
baðað sig í athyglinni. Stjómmálamaður án at-
hygli er dauður stjórnmálamaður og stjórnmála-
flokkur án athygli er dauður stjórnmálaflokk-
ur. Þetta veit Tryggvi og Dagfari veit það. En
Dagfari vissi ekki að Lúðvík vissi það ekki.
Framboð Össurar og síðan mótframboð
Tryggva hefur þegar rétt hlut Samfylkingarinn-
ar í skoðanakönnun DV þannig að nú fagnar
hún kjörfylgi. Með áframhaldandi athygli verða
ekki-Samfylkingarmennimir að hafa sig alla
við ef ekki á illa fyrir þeim að fara. Þó Tryggvi
tapi fyrir Össuri verður hann hylltur sem sig-
urvegari á stofnfundi Samfylkingarinnar. Hann
mun njóta þess hlutskiptis sem blasti við Lúð-
vik Bergvinssyni sem var svo grunnhygginn að
hugsa ekki lengra en nef hans nær og hætta
við að fara fram gegn Össuri. Sjálfskipað eftir-
litshlutverk Lúðvíks með nýjum formanni og
fyrrum yfirmanni sfnum í umhverfisráðuneyt-
inu getur að auki orðið til þess að kæfa ráðherra-
drauma hans um ókomna tfð. Ekki hjálpar því að
hann afsalaði sér þeirri athygli sem heldur líftór-
unni í stjórnmálamanni með framavonir. Tryggvi
mun hins vegar stökkva úr hafnfirsku bæjar-
málaþrasi í kastljós landsmálapólitíkunnar með
fundarhöld um allt land í veganesti. Allir munu
þekkja Tryggva en 15 mínútumar hans Lúðvíks í
Samfylkingunni eru liðnar. ^ |> .
Áheit - lifrar-
ígrædsla
Arndis Níelsdðttir hringdi:
Að áliðnu sfðasta
sumri var stofnaður
áheitareikningur f
Landsbanka íslands,
Sauðárkróki (01-
61057 1500) vegna
lifrarígræðslu Haf-
dísar Guðnadóttur
húsmóður sem átti
að fara utan til Kaup-
mannahafnar í að-
gerð innan tíðar. Síð-
an eru liðnir 8 mán-
uðir og enn bíður
Hafdís hér heima eft-
ir aðgerðinni. Nú sér þó fyrir endann
á biðinni en biðtíminn hefur verið
henni andlega og efnahagslega erfið-
ur. Það væri þvf vel þegið ef einhveij-
ir sæju sér fært að styðja Hafdísi með
fjárframlögum og fyrirbænum.
Hafdís
Guönadóttir,
Sauöárkróki
Fjárframtög og
fyrirbænir vel
þegnar.
Húftrygging fyr-
ir sjávarútveg
Sigurbergur skrifar:
Sagt er að Vatneyrardómurinn
svonefndi stefni allt í voða fyrir is-
lenskan sjávarútveg. Það hafí líka
neikvæð áhrif á hlutabréfamarkað
staðfesti Hæstiréttur undangenginn
héraðsdóm í málinu. Þetta hefur
m.a. forstjóri FBA staðfest. Annað
verður varla sagt en sjávarútvegur-
inn hafi þá eina húftryggingu að
Hæstiréttur fefli Vatneyrardóminn
úr gildi. Margir myndu hins vegar
vilja takast á hendur Kanaríeyja-
ferð í þessu árferði, en við skulum
vona að Hæstiréttur þekki sinn vitj-
unartíma gagnvart þjóðarbúinu.
Þaö má líka hafa borgarráösfundi
í Brussel.
Borgarsendi-
nefnd í Brussel
Guðbjðrg Gunnarsdóttir skrifar:
Fjölmenn sendinefnd frá Reykja-
vikurborg er sögð stödd í Brussel í
Belgíu til að kynna sér eitt og annað
sem fram undan er í Evrópusam-
bandinu. Ég fordæmi svona bruðl í
ferðalögum á kostnað okkar Reykvík-
inga. Fundir borgarráðs falla niður
og borgarstjórn er verklaus meðan á
ferðalaginu og hanastélsboðunum
stendur. Verst er að minnihluti borg-
arstjórnar er samansúrraður þessum
ferðum borgarstjóra og því fellur
gagnrýni af hans hálfu á aðra þætti
borgarrekstursins um sjálfa sig.
Hvað kostar svona kokkteilferð?
Kannski þorir minnihluti borgar-
stjórnar að upplýsa það?
Er biskupinn
í ógöngum?
Kristinn Sigurðsson skrifar:
Ég held að biskupinn hafi fram til
þessa verið farsæll í starfi og auk
þess vinsæll. Því miður finnst mér
þetta vera að breytast. Hann gerist
samt sekur um að taka þátt í norna-
veiðum gegn séra Gunnar Björnssyni
og sem fleiri landsmenn álíta með
ólíkindum. Enn hefur ekki verið
komið með það fram sem sr. Gunnar
á að hafa brotið af sér, utan hvað
hann vildi ekki sitja og starfa eins og
sóknarnefnd vildi. Er það glæpurinn?
Nú finnst mér að komið sé aö því að
biðja sr. Gunnar afsökunar.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst S netfangiö:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11,105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.