Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Page 13
13 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000_____________________ DV__________________________________________________________________________________________________________________________Menning Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir Olíulitirnir kveikja á perunni DV-MYND ÞOK Daöi Guöbjörnsson býöur gesti velkomna í Stöölakot „Myndlista- og handíöaskólinn var á þeim árum mjög módernískur og þaö var slegið á þuttana á þeim sem unnu eins og ég. “ Daði Guðbjörnsson sýnir „sál- fræðipróf ‘ í Stöðlakoti næstu vik- ur. Þetta eru myndir gerðar með akrýllitum eða gvassi, litríkar og symmetrískar. „Þú manst eftir þessum próf- um,“ segir Daði glaðbeittur: „Sál- fræðingurinn setti blekklessu á blað, braut það saman og breiddi svo úr því aftur, síðan átti maður að segja hvað maður sæi út úr klessunni. Ég les ekki í klessuna heidur teikna myndina áfram,“ segir hann og bendir á fallega mynd með rauðum kjarna og svörtu i kring. „Ég kalla þessa mynd „Sjálfið" og hún er sál- könnun mín á sjálfum mér.“ Sjálf Daða er greinilega ástríðufullt, það beinlínis rýkur úr því. Súrrealisminn stóra stefnan Myndirnar eru flestar frá 1988 en hafa ekki verið sýndar fyrr. Daði segist ekki hafa þorað að sýna þær nýjar, þær féllu ekki í kramið þá að hans mati. En þær passa vel í litla herbergið með hvítmáluðu hlöðnu steinveggjun- um í Stöðlakoti, líklega hafa þær bara beðið þolinmóðar eftir þessu tækifæri. Uppi á loftinu eru sér- kennilegir skúlptúrar sem koma á óvart þvi Daði er ekki orðaður mikið við þrívídd. Þetta eru lítil verk og liggja laus á gólflnu og við spyrjum hvort hann sé ekki hræddur um að þeim verði rænt. „Ég yrði dauðfeginn því,“ seg- ir hann strax, „annars hendi ég þeim bara. Þetta eru auka- pródúkt hjá mér, málaralistin er grunnurinn og olíulitirnir kveikja virkilega á perunni hjá mér,“ segir hann um leið og hann tyllir ljósaperu ofan á eitt verk- ið. Innst á loftinu situr gylltur api inni í þykkum hring af salti. - Hver er hann? „í barokklist er myndlistarmaðurinn táknaður með apa vegna þess að hann hermir eftir. Ég setti pensil í höndina á honum og málaði hann gyllt- an. Það passar við okkar tíma. Svo er hann inni i heilögum hring úr salti jarðar.“ í verkinu sameinast því hefðbundin tákn og persónuleg og Daði talar um súrrealismann sem hafi gefið listamönnum frelsi til að túlka á sinn hátt. „Súrrealisminn er í mínum augum stóra stefnan á 20. öldinni," segir hann. „En þegar ég var í námi var súrrealisminn úti. Myndlista- og handíðaskólinn var á þeim árum mjög módemískur og það var slegið á puttana á þeim sem unnu eins og ég. Þá átti maður að búa til eitt- hvað einfalt og stílhreint, eitthvað í ætt við þessa leiðinlegu sýningu í Nýlistasafninu núna,“ segir hann og skellir upp úr. „Hún er tómur formal- ismi, innsetningar og naumhyggja. Ég er alltaf jafnhissa á því hve mikið af peningum og orku er sett í svoleiðis hér á landi." Hverjir unnu ekki Daði segist ekki hafa lært að meta akrýl fyrr en hann fékk að mála vegginn á Kjarvalsstöðum fyr- ir fáeinum vikum. Þar nýttust kostir þess vel. Við erum sam- mála um að hugmyndin að láta hvern listamanninn af öðrum skapa verk á vegginn hafi verið snjöll. „Það lýsir ástandinu i listabransanum hér ágætlega," segir Daði, „það er svo fjölbreytt og skemmtilegt." - Þú ert ánægður með ástand- ið? „Ég er ánægður með listina en óánægður með listpólitíkina," segir hann. „Maður skilur ekki alltaf hvernig ákvarðanir eru teknar. Gott dæmi er Carnegie- sýningin sem nú er verið að und- irbúa i þriðja sinn. Hún átti upp- haflega að einskorðast við mál- verk en valið sem er verið að vinna að núna virðist benda til að hún sé strax farin að breytast í eitthvað annað. Og maður skil- ur ekki hvers vegna ein sýning mátti ekki einbeita sér að fígúra- tívu málverki. Af hverju þarf að fara með allt inn í einhvern formalisma og minímal konsept? Og ef við horfum á verðlaunahaf- ana á þessari sýningu þá er greinilegt að bankastjórarnir hafa ráðið hver fengi fyrstu verð- laun en listfræðingarnir hinum tveimur! Ég ráðlegg öllum að sjá þessa sýningu til að sjá hverjir unnu ekki!“ Daða þykir ekki allt skynsam- legt sem gert er i kynningu á ís- lenskri myndlist erlendis. „Það ætti að leggja meiri áherslu á það sem er vinsælt hér heima eins og gert er í bókmenntunum. Til dæmis tókst að smygla einni flgúratívri málverkasýningu til Spánar um árið og mér skilst að hún hafi vakið mun meiri athygli þar í blöðum og meðal listáhugamanna en aðrar sýningar sem áttu að vera miklu merkilegri." - Verður málverkið ofan á að lokum? „Gúnter Grass sem fékk nóbelsverðlaunin núna siðast sagðist hafa byrjað að skrifa um það leyti sem skáldsagan dó,“ svarar Daði. „Þegar ég byrjaði að mála fyrir tuttugu árum var málverk- ið búið að vera dautt í að minnsta kosti tuttugu ár. En menn geta skrifað skáldsögur þótt skáldsagan sé dauð og eins liflr málverkið." Sýning Daða er opin daglega frá 15-18 og stend- ur til 9 apríl. „Bach mótaði ákveðið form í tónsmíðum sem var alger bylting," svarar Óskar eftir stutta umhugsun. „Við getum borið þetta saman við byggingarlist og byrjað þar sem menn komast ekki hærra en upp í tvær hæðir. Svo gerist það að þeir komast inn í einhveija ákveðna hugsun og geta farið að búa til blokkir! Skilurðu? Það opnast sýn til allra átta eftir hans innlegg." Þótt einkennilegt kunni að virðast var um tíma eins og tónlist Bachs hefði dáið með honum. „Eiginlega heyrist enginn Bach í tæpa öld eftir að hann deyr. En,“ segir Óskar með áherslu, „þeir snillingar sem lifðu þá öld þekktu Bach og tóku mið af honum. Þá erum við að tala um Mozart og Beethoven. Bach var þeirra mað- ur og þeir byggðu á þvi sem hann hafði lagt til þó að verk þeirra séu mjög ólík hans.“ - Það merkilegasta við Bach er samt hvað tónlist- in hans er glaðleg, jafnvel hátíðleg kirkjumúsík. Hann er svo mikill poppari, segir blaðamaður. „Já, það er sving í honum, það er engin spuming," staðfestir tónlistarstjórinn. Við fáum Bach beint í æð allan sunnudaginn á Rás 1. íslenska Bachmessan hefst í Langholtskirkju kl. 11. Þar predikar sr. Jón Helgi Þórarinsson og kór og hljómsveit Langholtskirkju flytja kantötu Bachs nr. 147, „Hjarta, þankar, hugur, sinni“ sem samin er fyr- ir þennan dag. Stjómandi er Jón Stefánsson. ið upp á stutta gönguferð um elsta hluta Eyrarbakka með leiðsögn, ef veð- ur lofar. Orgeltónleikar Listvinafélag Hallgrímskirkju býður upp á orgeltónleika á sunnudaginn kl. 17. Þá leikur Douglas A. Brotchie organisti Háteigskirkju orgelverk eftir Messiaen, de Grigny, J.S. Bach, Jón Leifs og Þorkel Sigur- bjömsson. Á efnisskránni em m.a. Passacaglia í c-moll eftir Bach og fantasían Auf meinen lieben Gott eftir Þorkel Sigurbjömsson. Þjóðhátíðar- dagur Grikkja Þjóöhátíðardagur Grikkja verður haldinn hátíðlegur í Borgartúni 12, efstu hæð, annað kvöld. Snæddur verð- ur grískur matur, aðalræðismaður Grikkja á íslandi ávarpar samkomuna en aðalræðumaður kvöldsins er Þor- steinn Gylfason heimspekingur. Á eft- ir verður dans með grískum hætti. Áhugasamir Grikklandsvinir geta haft samband við Sigurð A. Magnússon eða Kristján Ámason bókmenntafræðing. Það er sving Þó að í ár séu liðin 250 ár síðan Johann Sebastian Gunnlaugur Blöndal: Louisa Matthíasdóttir 11 ára. Úr bókinni Louisa Matthíasdóttir (1999). Bamið: Ég I kvöld kl. 20 verður opnuð sýningin Sjónauki II: Barnæska í íslenskri myndlist í Listasafninu á Akureyri. Að þessu sinni tóku þrir starfsmenn Há- skólans á Akureyri, Chia-jung Tsai listfræðingur, Guðmundur Heiðar Frí- mannsson heimspekingur og Kristján Kristjánsson, prófessor í heimspeki, að sér að kanna hvort sömu tilhneiginga gætti við lýsingar á bömum i íslenskri myndlist og alþjóðlegri. Niðurstaða þeirra er að svo sé. Verkin á sýning- unni draga mörg hver upp hefðgróna og yfírborðskennda mynd af bömum, þar sem þau birtast ýmist sem tákn al- sakleysis eða sem holdlegar, allt að því dýrslegar verur með rumskandi kyn- ferðisylgju. Nokkur verk skera sig þó úr, að dómi gestarýnanna, fyrir skyggna og tæra sýn á bamæskuna. í Vestursal Listasafnsins getur svo að líta afrakstur af listrænni vinnu bama sem fengu það verkefni að lýsa sjálfúm sér í starfi og leik. Þessi sýn- ing, Bamið: Ég, skapar fróðlegt mót- vægi við Sjónauka II og geta áhorfend- ur velt fyrir sér hvort það séu bömin sjálf eða hinir fullveðja listamenn sem trúverðugar fangi ímynd bamæskunn- ar. Auk barnanna eiga 30 listamenn verk á sýningunni, m.a. Alfreð Flóki, Anna Líndal, Barbara Ámason, Birgir Snæbjöm Birgisson, Bragi Ásgeirsson, Erró, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hörð- ur Ágústsson, Jón Stefánsson, Jóhann Briem, Jóhannes S. Kjarval, Magda- lena Margrét, Muggur, Nina Tryggva- dóttir og Þórarinn B. Þorláksson. Listasaöiið á Akureyri er opið þrið.-fim. kl. 14-18, fós. og laug. kl. 14-22 og sun. kl. 14-18. Húsavemd Menningamefnd Sveitarfélagsins Árborgar stendur fyrir málstofu um húsavemd og skipulag á Eyrarbakka á morgun kl. 14 í samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka. Allir áhugamenn em velkomnir. Meðal frummælenda em Lilja Ámadóttir deildarstjóri, Jon Nordsteien arkitekt, Oddur Hermanns- son landslagsarkitekt, Stefán Öm Stef- ánsson arkitekt, Þorgeir Sigurðsson og Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og for- maður húsafriðunamefndar ríkisins. Að lokinni málstofúnni verður boð- Bach dó „spriklar hann ansi hressilega ennþá“, eins og Óskar Ingólfsson, tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins, orðar það. „Hann er einn af máttarstólpum kirkju- legrar tónlistar á Vesturlöndum, og ég fúllyrði að Lúterstrúin væri afskaplega rýr ef ekki kæmi til þessi stuðningur frá Bach - sem reyndar er fæddur í sama bæ og Lúter, Eisenach, bara tvö hundmð árum síðar.“ Á sunnudaginn verður Bach-dagur allan daginn hjá um fimmtíu útvarpsstöðvum um alla Evrópu, meðal annars á Rás 1. „Á þeim degi, 26. mars, send- um við út frá Evrópu ellefu tónleika, frá Austurríki, Tékklandi, Slóvakíu, Belgíu, Spáni og víðar,“ segir Óskar. „Það er mikið í þessa dagskrá lagt af hálfú EBU, Sambands evrópskra útvarpsstöðva, og hún er vandlega skipulögð þannig að hlustendur fái nokkra innsýn í líf og starf Bachs. Á fyrstu tónleikunum kl. 8 um morguninn sem koma beint frá Jakobskirkj- unni i Hamborg fá hlustendur til dæmis að heyra tónlistina sem Bach ólst upp við - meistara norður- þýska skólans, Buxtehude og fleiri." Bach fæddist 1685 og var af tónlistarfólki kominn í marga ættliði. Hann var jafovígur á veraldlega og andlega tónlist en allar stöður sem hann hafði vora undir væng kirkjunnar. Á þeim tíma þótti jafnsjálf- sagt að semja kantötu fyrir hveija messu og nú þyk- ir sjálfsagt að prestar semji ræður fyrir hveija messu og Bach var geysilega framleiðinn. „Auðvitað era verkin misjafnlega góð en handbragðið leynir sér Óskar Ingólfsson tónlistarstjóri „Auövitaö eru verkin misjafnlega góö en handbragðiö leynir sér aldrei. “ aldrei," segir Óskar. „Allt var skráð á nótur í hönd- unum og öll fjölskyldan hjálpaði tiL Bach skrifaði sjálfúr raddskrána og svo vora krakkamir settir I að setja partana út. Það kom sér vel hvað hann átti mörg böm!“ - Að lokum, Óskar, af hveiju er Bach svona stór ennþá? í Bach

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.