Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Side 15
14
FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
19
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjölfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aóstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þvcrholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyrl: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Fllmu- og plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverö 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabðnkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Samfglkingin hjamar við
Skoðanakönnun DV um fylgi flokkanna, sem birtist i
blaðinu í dag, sýnir umtalsverða sveiflu frá síðustu könn-
un blaðsins um áramót. Samfylkingin eykur mjög fylgi
sitt frá þeirri könnun, eða um rúmlega 10 prósentustig, frá
15,5 prósenta fylgi í 25,6 prósent. Fylgið í skoðanakönnun-
inni nú er komið mjög nærri kjörfylgi Samfylkingarinnar
sem var 26,8 prósent. í þingflokki Samfylkingarinnar eru
17 þingmenn en þeir væru 16 miðað við könnunina.
Hin stóra sveiflan í könnuninni er á fylgi Sjálfstæðis-
flokksins. Flokkurinn hefur mælst með mikið fylgi í und-
anförnum skoðanakönnunum. í síðustu könnun DV var
fylgi hans 51,6 prósent eða hreinn meirihluti. í könnun-
inni nú mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 40,6 prósenta
fylgi eða 11 prósentustigum minna en í síðustu könnun.
Fylgi flokksins nú er hið sama og kjörfylgi hans í þing-
kosningunum í fyrra en það var 40,7 prósent.
Aðrar sveiflur í könnuninni eru mun minni. Framsókn-
arflokkurinn fer aðeins niður á við miðað við siðustu
könnun og Vinstrihreyfmgin - grænt framboð bætir held-
ur við sig. Frjálslyndi flokkurinn er á svipuðu róli og var.
Fylgishreyfingin í könnuninni er því afar afgerandi frá
Sjálfstæðisflokknum yfir á Samfylkinguna.
Samfylkingin hefur átt undir högg að sækja allt frá
kosningum og raunar voru kosningaúrslitin mörgum
sameiningarsinnanum á vinstri væng stjórnmálanna von-
brigði. Hinir bjartsýnu úr þeirra hópi væntu fylgis sem
væri nær þriðjungi en fjórðungi. Með þessari skoðana-
könnun réttir Samfylkingin þó verulega úr kútnum.
Sé skýringa leitað á fylgisaukningu Samfylkingarinnar
er nærtækast að álíta að mikil umræða að undanfornu um
málefni fylkingarinnar og væntanlegan stofnfund í mai
komi þar til góða. Hugsanleg formannsefni Samfylkingar-
innar hafa verið í fréttum og vangaveltur um það hverjir
gæfu kost á sér. Þegar allt útlit var fyrir að Össur Skarp-
héðinsson yrði sjálfkjörinn gaf Tryggvi Harðarson, bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði, óvænt kost á sér. Það framboð var
tvímælalaust jákvætt fyrir Samfylkinguna. Flokksmenn fá
kost á að velja á milli manna. Formannskosning á stofn-
fundi er flokknum vítamínsprauta og nauðsyn þótt skoð-
anakönnun DV í gær bendi til þess að Össur sigri Tryggva
næsta örugglega.
Óljósara er hvað veldur svo miklu fylgistapi Sjálfstæð-
isflokksins. Fylgi hans mælist yfirleitt meira í könnunum
en kosningum. Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, deildi að vísu við Jóhönnu Sigurðardóttur,
þingmann Samfylkingarinnar, og fleiri um fjármál stjórn-
málaflokka og sú deila leiddi til harkalegs orðaskaks mifli
hans og Garðars Sverrissonar, framkvæmdastjóra Ör-
yrkjabandalagsins, svo sem flestum er í fersku minni. Án
þess að mat sé lagt á málflutning þeirra eða málstað, og
raunar fullyrt að málflutningur forsætisráðherra beindist
ekki gegn öryrkjum, kann þó að vera að sumir líti svo á.
Sú afstaða getur hafa mælst í skoðanakönnuninni.
Staða Framsóknarflokksins hlýtur að vekja ugg meðal
forráðamanna flokksins. Flokkurinn tapaði verulega í kosn-
ingunum, missti 3 þingmenn og hefur verið á niðurleið í
skoðanakönnunum. Miðað við könnunina nú hefur flokkur-
inn tapað 5,9 prósentustigum frá þingkosningunum í fyrra.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð má hins vegar vel
við una og festir sig betur í sessi en áður. Fylgi flokksins
nú er 18,4 prósent miðað við 16,8 prósent í síðustu könn-
un. Flokkurinn hefur tvöfaldað fylgi sitt frá kosningum en
þá fékk hann 9,1 prósent - og þótti gott.
Jónas Haraldsson
DV
Skoðun
Kjarasamningur - smánarsamningur
„Athyglisvert er að formaður Varðar, Margeir Pétursson, stórmeistari í skák, sagði
nýverið í sjónvarpsþœtti að þeir atvinnurekendur sem ekki gcetu greitt hœrra kaup
en 90 þús. kr. œttu ekkert erindi í atvinnurekstur. “ - Samtök atvinnulífsins
á morgunverðarfundi í des. sl.
Sú deila sem upp er kom-
in milli Verkamannasam-
bands íslands, VMSf og
Flóabandalagsins er harm-
leikur fyrir viðkomandi
launþegafélög. Þeir menn
sem taka að sér forustuhlut-
verk innan félaga Alþýðu-
sambands fslands verða að
skilja hvaða ábyrgð þeir
bera gagnvart félagsmönn-
um sinum við gerð kjara-
samninga og ekki siður
samábyrgð og samvinnu
innan VMSÍ og ASÍ. Ef sam-
staðan brestur eins og nú hefur gerst
og aðildarfélögin koma að samnings-
borði Vinnuveitendasambandsins í
þremur fylkingingum skaðar það
fyrst og síðast hagsmuni og samn-
ingsgerð ailra launþega innan ASÍ.
Sundrung og slakur árangur
Fulivíst má telja að þessi sundrung
eigi stærstan þátt í þeim slaka árangri
sem náðst hefur í launa- og kjaramál-
um undanfarin ár og engin breyting
til batnaðar er sýnileg í yfirstandandi
samningum. Sé litið á þessa þróun í
sögulegu samhengi virðist vanta hæf-
ari forustumenn hin síðari ár tU að
leiða baráttumál verkalýðshreyfingar-
innar og skilgreina betur
þau nýju viðhorf sem tækni-
vætt þjóðfélag býður upp á.
Þau miklu og sterku áhrif
sem Hannibal Valdimarsson,
Bjöm Jónsson, Eðvarð Sig-
urðsson og Guðmundur J.
Guðmundsson höfðu sem
forustumenn innan laun-
þegahreyfingarinnar á sín-
um tíma eru ekki lengur tU
staðar.
Þeir voru óumdeUdir for-
ingjar og baráttuþrek og
eldmóður einkenndu störf
þeirra í hvívetna. Þeir voru líka virt-
ir sem frumherjar í sköpun margra
þeirra réttindamála sem launþegar
búa við í dag. Þáttur þessara manna
og þeirra nánustu samherja innan
verkalýðshreyfingarinnar verður
kannski aldrei metinn að verðleik-
um af nútímamönnum fyrir land og
þjóð, en ætti þó að geta verið núver-
andi forustumönnum launþegahreyf-
ingarinnar a.m.k. ákveðin hvatning
og leiðsögn um þann baráttuanda,
dugnað og framsýni sem tU þarf tU
að ná góðum árangri.
Smánarsamningur
Þessir menn eru mér ofarlega í
huga þegar svonefnt Flóabandalag er
enn einu sinni að ganga tU samninga
með verðbólguvofu Vinnuveitenda-
sambandins að leiðarljósi. 90 þúsund
kr. lágmarkslaun eftir nærri 4 ár er
smánarsamningur og forustumönn-
um bandalagsins tU vansæmdar fyrir
sína umbjóðendur. Athyglisvert er að
formaður Varðar, Margeir Pétursson,
stórmeistari í skák, sagði nýverið í
sjónvarpsþætti að þeir atvinnurek-
endur sem ekki gætu greitt hærra
kaup en 90 þús. kr. ættu ekkert erindi
í atvinnurekstur. Ríkisstjórnin var
líka fljót að stinga snuði upp í for-
kólfa Flóabandalagsins með að skatt-
leysismörk hækki örlítið og tekjur al-
mannatrygginga hækki um nokkur
hundruð krónur í takt við laun. Rík-
isstjómin myndi athuga en engu lofa
um lægra skattþrep á lægstu laun.
HvUík rausn eða hitt þó heldur!
Vonandi verða þessir samningar
kolfelldir af félagsmönnum viðkom-
andi félaga. Á bak við þá upplausn
og ringulreið, er rikir innan félaga
ASÍ, er ekki að vænta neinna raun-
hæfra kjarabóta. Það er ekki í sjón-
máli í dag.
Kristján Pétursson
Burt með leynd og mismunun
Starfsemi stjómmálaflokka er
einn af homsteinum lýðræðisins og
það skiptir máli að reyna að tryggja
möguleika þeirra til að vera óháðir
hvers konar þrýstingi hagsmunaað-
ila. Stærsta hættan er á sviði fjár-
málanna.
Reglur til varnar
Að peningar séu afl þeirra hluta
sem gera skal er ekki bara klisja,
heldur sannleikur í mörgum tilvik-
um. Þess vegna hefur víðast hvar i
svokölluðum siðmenntuðum löndum
þótt ástæða til að setja ákveðnar
reglur til að koma í veg fyrir að fjár-
sterk fyrirtæki geti keypt sér fyrir-
greiðslu og velvild stjórn-
málaflokka og einstakra
stjórnmálamanna. Þessar
reglur eru ekki alltaf sú
hindrun sem þeim er ætlað
að vera eins og dæmin
sanna m.a. í Þýskalandi
um þessar mundir, en þær
koma a.m.k. að notum þeg-
ar upp kemst um misferli
og grafast þarf fyrir um
málið.
Hér á landi er ekki jafn-
hægt um vik og víða ann-
ars staðar af þeirri ein-
fóldu ástæðu að hér gilda engin lög
né reglur um starfsemi stjórnmála-
Kristín
Haildórsdóttir
fyrrv. alþingiskona
flokka. Þeir eru bókhalds-
skyldir og þar með upptalið.
Nokkrir flokkanna hafa
brugðist við kröfum nútím-
ans og opinberað reikninga
sína. Kvennalistinn varð á
sínum tíma fyrst stjómmála-
hreyfinga til að opna sitt
bókhald upp á gátt og leggja
fram reikninga yfirfama af
löggiltum endurskoðanda og
nú hafa nokkrir flokkanna
bókhald sitt opið að meira
eða minna leyti.
„Fyrirtœkin fá frádrátt vegna slíkra framlaga og
greiða þar með minna til samneyslunnar og þau geta
mismunað eftir geðþótta án þess að viðskiptavinir
þeirra hafi hugmynd um því þessi framlög koma
hvergi framlög koma hvergi fram.“
Sjálfstæöismenn á mótí
A.m.k. einn stjómmálaflokkur hef-
ur aldrei léð máls á því að opna bók-
hald sitt né fallist á þörf fyrir lög eða
reglur um fjárreiður stjórnmála-
flokka. Það er Sjálfstæðisflokkurinn
sem í krafti valds og stærðar hefur
árum saman komið í veg fyrir lög-
gjöf um þessi efni. Hans er ábyrgðin
og skömmin. Kosningabarátta og
önnur stjórnmálastarfsemi verður
sífellt dýrari í nútíma þjóðfélagi.
Stjórnmálaflokkar sækja fé til félaga
og stuðningsmanna og fá framlög úr
ríkissjóði. Og fyrir nokkrum árum
var sett það ákvæði í skattalög að
fyrirtæki gætu dregið framlög tO
stjómmálastarfsemi frá skattstofni.
Sá stuðningur er ekki öllum jafnauð-
sótt mál, þótt nokkur dæmi séu þess
að fyrirtæki hafi þá reglu að styðja
alla stjómmálaflokka jafnt án þess
að ætlast til nokkurs í staðinn.
Þau fyrirtæki eru þó miklu fleiri
sem mismuna flokkunum gróflega og
afgreiða slík mál með eigin hags-
muni í huga. Og nýlega kom berlega
i ljós hvemig forsætisráðherra lítur
á málið en hann átti stærstan þátt í
að koma fyrrgreindu ákvæði inn í
skattalögin,. Hann telur stjómmála-
mönnum ekki sæmandi að gagnrýna
fyrirtæki sem veitt hafa flokki þeirra
fjárstuðning!
Í þágu lýðræðls
Það er mikil rangtúlkun sem oft
heyrist, og kom síðast fram í laugar-
dagspistli DV 18. mars, að framlög
fyrirtækja séu á einhvem hátt sann-
gjamari gagnvart skattgreiðendum
en bein framlög úr ríkissjóði. Því er
í raun þveröfugt farið. Fyrirtækin fá
frádrátt vegna slíkra framlaga og
greiða þar með minna til samneysl-
unnar og þau geta mismunað eftir
geðþótta án þess að viðskiptavinir
þeirra hafi hugmynd um því þessi
framlög koma hvergi fram.
Réttast væri að afnema þetta
ákvæði skattalaganna og leggja ein-
faldlega meira fé úr ríkissjóði til
stjómmálastarfs í landinu. Slík fram-
lög eru opinber og augljós og deilt út
eftir ákveðnum reglum sem reyndar
þarf að endurskoða. Burt með leynd,
makk og mismunun. Það er í þágu
lýðræðisins að styrkja starfsemi
stjómmálaafla með opnum og aug-
ljósum hætti og koma eins og unnt er
í veg fyrir ítök og þrýsting fjár-
sterkra fyrirtækja og einstaklinga.
Kristín Halldórsdóttir
Með og á móti
r, ;§é|1 '•
Farsímanotkun í akstri
Vil sjá kannanir á slysatíöni
„Ég hefði lítið
við farsímann að
gera ef ég má ekki
nota hann í bíln-
um minum. Það er
einmitt þá sem maður þarf á
farsímanum að halda, ekki á
skrifstofunni eða heima held-
ur þegar maður er á ferðinni.
Ég er reyndar hlynntur hand-
frjálsum búnaði í umferðinni
en spyr um leið hvort það séu
einhverjir ökumenn sem halda báð-
um höndum um stýrið hvort sem er?
Eru þeir sem ekki eru að tala í síma
ekki að fikta í útvarpinu, borða eða
gera eitthvað annað með annarri
hendinni? Er eitthvað verra að tala í
farsíma í bílnum en að vera að tala
við samferðafólk sitt og jafnvel snúa
sér við til að horfa á það í aftursæt-
inu? Ég tala nú ekki um það ef mað-
Steinbergur
Finnbogason
fasteignasali.
ur er með böm í bílnum.
Maður horfir allavega beint
fram þegar maður er að tala í
símann en er ekki alltaf lít-
andi til hliðar eða aftur fyrir
sig. Það væri gaman að sjá
haldbæra könnun á slysa-
tiðni í umferðinni sem hægt
væri að rekja beint til far-
simanotkunar áður en það
verður ákveðið að banna far-
símanotkun í bílum.“
Ökumenn úti á þekju
„Ég tel fyllilega
tímabært að
skerpa ákvæði um-
ferðarlaga þess
efnis að menn eigi
ekki að vera að sinna öðru
samtímis akstri. Það er því
skoðun mín að við ættum að
fylgja þeim þjóðum þar sem
sett hafa verið ákvæði í lög
sem banna notkun farsíma í
akstri öðmvísi en að í bílnum
sé svokallaður handfrjáls bún-
aður sem gefur ökumönnum tækifæri
til að tala í símann og hafa samtimis
báðar hendur á stýri. í Noregi varð
þetta skylt frá og með 15. mars sl. og
áðúr hötðu sams konar reglur verið
settar m.a. í Danmörku, Austurríki,
Sviss, á Ítalíu, Spáni og í Portúgal. ís-
lendingar eru almennt hlynntir regl-
um sem þessum og vitna ég þar m.a.
til könmmar sem tveir félags-
fræðingar, sem þá vom við
nám í félagsvísindadeild Há-
skólans gerðu árið 1998 en þar
kom fram að 81,5% aðspurðra
vildu takmarka farsímanotk-
un ökumanna, þar af vildu
0,4% banna hana algjörlega.
Daglega verðum við vör við
ökumenn sem aka um götur
með óeðlilegum hætti og oftar
en ekki er orsökin sú að þeir
eru að tala í simann og gjör-
samlega úti á þekju í akstrinum.
Spurningin er því ekki hvort heldur
hvenær við takmörkum þessa vit-
leysu. Þessir ökumenn valda slíkri
hættu í umferðinni að ekki er unnt að
sætta sig við það. En þrátt fyrir að
þetta sé enn ekki komið í lög þá hvetj-
um við alla bílasímaökuþóra til þess
að fá sér handfrjálsan búnað strax.“
Oli H.
Þórðarson
framkvæmdastjóri
Umferöarráós
Margir telja að farsímanotkun í umferöinni sé hættuleg og vilja banna hana alveg eða takmarka hana með lögum eins og mörg nágrannalönd okkar hafa gert.
Uirimæli______________j
Deilur orsaka verkföll
„Hvaða rök geta verið fyrir verkfóll-
um nú? Varla telja forystumenn félag-
anna, að hagur atvinnufyrirtækjanna
á landsbyggðinni sé annar og betri en
á höfúðborgarsvæðinu? Líklegasta
skýringin felst í þeim deilum, sem ver-
ið hafa innan VMSÍ og hátt hefur bor-
ið í fjölmiðlum. En það er ekki boðleg
ástæða fyrir verkfóllum, sem aðeins
veikja efnahag verkafólks og atvinnu-
fyrirtækjanna sem það starfar hjá.“
Ónafngreindur leiöarahöfundur
Mbl. 23. mars.
Farsæll ferill í fluginu
„Það sem ég hefði
viljað sjá er að menn
fari að nota þotur í
innanlandsfluginu.
Flugfélag íslands verð-
ur með Fokker-vélam-
ar að minnsta kosti
næstu tvö ár, en ég tel
að menn verði að fara að skoða þotuflug
í fullri alvöru. Enda er það spennandi
möguleiki að geta verið 20 mínútur á
milli Reykjavíkur og Akureyrar."
Þórólfur Magnússon flugstjóri í viötali
viö Dag 23. mars.
Tveggja flokka kerfi
Tryggvi Harðarson
segir í viðtali við
Mbl. 23. mars, að
samsteypustjómar-
fyrirkomulagið hafi
gert það að verkum
að stjómmálaflokkar
hafi oft og iðulega
þurft að slá af stefnumálum sínum. -
„Tveggja flokka kerii skapar þannig
kjósendum skýra valkosti. Annað-
hvort era þeir að kjósa yfir sig jafn-
aðarmenn til þess að stýra landinu
eða þeir eru að færa hægri mönnum
völdin. Ég held það sé af hinu góða að
hafa skýrari valkosti, hvað það varð-
ar.“
Úr viðtali viö Tryggva Haröarson,
bæjarfulltr. í Hafnarfirði.
Leifsstöð hf.?
„Það er að okkar
mati vel skoðandi að
fara þessa leið, sér-
staklega ef hægt er
með því að ná betri
árangri í rekstri. Við
teljum það ekki endi-
lega vera í verkahring
ríkisins að standa fyrir þessum rekstri.
Við höfum ekki tekið afstöðu til þess
hvort selja eigi hlut ríkisins að hluta
eða öllu leyti eftir hlutafélagsvæðingu.
Það þarf aö skoða málið vandlega i
heild áður en slík ákvörðun yrði tekin.
Margrét Frfmannsdóttir í Degi 23.
mars um umdeilda há-effun
flugstöðvarinnar.
Kaos í Kosovo
Það blasir við, ári eft-
ir upphaf stríðs NATO
gegn Serbíu, að ekkert
hefur áunnist, annað en
að friða samvisku um-
heimsins, sem sjón-
varpsmyndir öngruðu.
Bandaríkjamenn óttast
nú mjög að ný átök séu í
uppsiglingu og farið er
að bera á tali um að
forða bandarískum her-
mönnum frá Kosovo sem
fyrst. Stríð í formi tölvu-
leikja, eins og gegn írak,
er vinsælt og magnar upp þjóö-
arstoltið, en raunverulegt stríð, þar
sem menn eru drepnir í alvöru, er
hættuspil fyrir bandaríska póli-
tíkusa á kosningaári.
Aðaláhersla stjórnar Clintons nú
er á því að halda ástandinu í Kosovo
utan dagskrár fjölmiðla, svo að það
spilli ekki fyrir atkvæðaöflun í kosn-
ingabaráttunni. En nú er orðið tví-
sýnt um að það takist. Frelsisher
Kosovo, KLA, var stofnaður til að
hrekja alla Serba frá Kosovo og sam-
eina héraðið Albaníu. KLA starfar
enn af krafti, þrátt fyrir yfirlýsingar
um að hann skuli lagður niður. Ein
grein hans heijar nú á Serba í Pres-
evodal innan Serbíu sjálfrar. KLA vill
innlima þetta svæöi líka i ríki sitt.
Yfirvofandi er að bandaríski her-
inn dragist inn í þau átök. Það er
einmitt ætlun KLA, sem vill nota
NATO og einkum Bandaríkin til að
ná markmiðum sínum og reynir að
koma af staö nýju stríði. - Ástandið
er komið úr böndunum.
vitað að KLA hefur verið fjár-
magnaður með eiturlyfia-
smygli um Albaníu, hvítri
þrælasölu og annarri skipu-
lagðri glæpastarfsemi víða um
Vestur-Evrópu, einkum í
Þýskalandi og Frakklandi. í
lofhemaðinum voru KLA-
menn gerðir að hetjum, sem
vondir Serbar væru að of-
sækja. Menn eru að verða
raunsærri núna. Það eina sem
heldur aftur af NATO að flýta
sér burt er tilhugsunin um
hæðnishlátur Milosevics og
hans manna í Belgrad.
Illir kostir
Hið eina raunhæfa í stöðunni er
að skipta Kosovo. Serbar gætu þá
sameinað nyrsta hlutann Serbíu, en
Albanar stofnuðu ríki, sem mundi
væntanlega renna saman við Alban-
íu fyrr eða siðar. En þetta stríðir
gegn grundvallarsjónarmiðum bæði
NATO og SÞ. Allt frá Jaltaráðstefn-
unni 1945 hafa öll landamæri verið
óumbreytanleg. Ef breyta hefði mátt
landamærum hefði Bosníudeilan
Gunnar
Eyþðrsson
blaöamaöur
aldrei orðið það sem hún varð, en
lausnin fólst í því að kalla
landamærabreytingarnar öðrum
nöfnum.
Kosovomálið er ennþá erfiðara
viðfangs en Bosnía, þvi að þróunin í
nágrannalöndunum veltur á því sem
gert verður í Kosovo. Um friðsam-
lega sambúö ólíkra menningarhópa
getur ekki orðið að ræða. Sagan sýn-
ir aö slík sambúð hefur hvergi tekist
nema í innflytjendaríkjum eins og
Bandaríkjunum eða Kanada. Ef ný
Albanía verður til í Kosovo ógnar
það öllum stöðugleika, ekki síst í
Makedóníu og í Grikklandi, og býð-
ur heim hættunni á ennþá fleiri
Balkanstríðum.
Engin önnur leið er til en leyfa Al-
bönum að stofna sitt ríki og Serbum
að innlima sinn hluta. Þetta verður
látið heita einhverjum dulnefnum.
En engin dulnefni geta hulið þá stað-
reynd að NATO og SÞ eru ráðþrota
og eiga ekki annarra kosta völ. Og *■
ekkert fiölmiðla- eða áróðursfár er
nógu hávært til að yfirgnæfa hæðn-
ishlátur Milosevics.
Gunnar Eyþórsson
Stjórnleysi
Enginn stjórnar Kosovo og ástand-
ið þar er á flestöllum sviðum ennþá
verra en það var fyrir lofthemaðinn
gegn Serbíu. Albanar hafa hreinsað
brott flestalla Serba til Norður-
Kosovo og Serbiu, en frumskilyrði
eðlilegs lífs vantar, rafveitur nær
óvirkar, vatnsveitur sömuleiðis, al-
menningsamgöngur í molum.
Engir peningar eru til, engir sjóð-
ir til að greiða laun, engir bankar,
engin lögregla, engin skipuleg
heilsugæsla, ekkert virkt dómskerfi,
m.ö.o. ekkert rikisvald. í þessu tóma-
rúmi ríkir skálmöld og ógnaröld, þar
sem enginn er óhultur og eðlilegt líf
er óhugsandi. Vopnaðir glæpahópar
ráða því sem þeir vilja, morð og rán
eru daglegt brauð og borgaramir eru
vamarlausir, þrátt fyrir 37 þúsund
manna herlið NATO, að nafninu til í
umboði SÞ.
Aðildarríki NATO eru treg til að
ausa fé í Kosovohítina og þær utan-
aðkomandi stofnanir sem þar eru
skortir allt til alls. Lengi hefur verið
„Albanar hafa hreinsað brott flestalla Serba til Norður-
Kosovo og Serbíu, en frumskilyrði eðlilegs lífs vantar,
rafveitur nœr óvirkar, vatnsveitur sömuleiðis,
almenningsamgöngur í molum. “