Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
Fréttir
DV
Afmælisveisla viðskiptaráðherra á Grenivík:
Greiddi flug og gistingu
fyrir afmælisgestina
- kom í stað sumarferðar, segir ráðimeytisstjóri
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaö-
ar- og viðskiptaráðherra, bauð öll-
um starfsmönnum ráðuneyta
sinna í fimmtugsafmæli sitt á
Grenivík um síðustu helgi og lét
ráðuneytið borga. Um var að ræða
flug og gistingu norður á Akureyri
og fengu makar starfsmanna 50
prósenta afslátt. Samkvæmt al-
mennri verðskrá kostaði þetta upp-
átæki ráðherrans skattgreiðendur
um 300 þúsund krónur. í ráðuneyt-
um Valgerðar Sverrisdóttur starfa
30 manns.
„Það voru 14 starfsmenn sem
þáðu boðið og 10 makar,“ sagði
Þorgeir Örlygsson, ráðuneytis-
stjóri Védgerðar, í gær. „í stað
þessarar ferðar felium við niður
Afmælisbarniö á Grenivík
Frítt fyrir starfsmenn - hálft fyrir maka og ráöuneytiö borgar.
sumarferð starfsmanna sem farin
hefur verið hér á hverju ári eins og
í öðrum ráðuneytum og reyndar
víða í fyrirtækjum úti í bæ þannig
að þetta kemur út á eitt,“ sagði
Þorgeir Örlygsson sem neitaði því
spurður hvort ráöherrann hefði
boðið fleirum í fimmtugsafmæli
sitt á kostnað ráðuneytisins.
Mikið fjölmenni var í afmælis-
veislu Valgerðar Sverrisdóttur á
Grenivík og starfsmenn hennar og
makar aðeins hluti þess fjölda.
Þeir gistu í sveitagistingu miðja
vegu milli Grenivíkur og Akureyr-
ar aðfaranótt síðastliðins sunnu-
dags að veisiu lokinni og héldu við
svo búið heim. -EIR
Holur eftir vetur
Margir bílar fengiö þyngri högg en þeir þola viö akstur á
ósléttum götunum.
Malbikið á leið í holurnar:
Ekki katastrofa
segir yfirverkfræðingur gatnamálastjóra
„Götumar í höfuðborginni koma
verr undan snjó núna en áður og
skiptir þar mestu snjór og þíða á
víxl, saltið, snjóruðningur og síðast
en ekki síst stóraukin umferð,“
sagði Guðbjartur Sigfússon, yfir-
verkfræðingur gatnamálastjóra í
Reykjavík, um holumar sem nú líta
dagsins ljós í gatnakerfinu eftir að
snjóa leysti. „En þetta er engin kata-
strofa,“ sagði yfirverkfræðingurinn
þó svo að margir eldri bílar hafi
fengið þyngri högg en þeir þola við
akstur á ósléttum götunum.
Menn gatnamálastjóra bíða nú
eftir malbiki frá malbiksstöövum
sem hafa ekki framleitt neitt i vetur
og hefja viðgerðir á götunum strax í
næstu viku. í ár er gert ráð fyrir að
malbikað verði í Reykjavík fyrir 250
miiijónir króna.
-EIR
Tvö innbrot í tölvukerfi Iðnskólans í Reykjavík:
Beinn aðgangur
að nektarmyndum
- settur inn á heimasíðu - þrjóturinn ófimdinn
Notendum tölvukerfis lönskólans í Reykjavík brá
heldur en ekki í brún þegar þeir klikkuöu á nýja liti
á heimasiöu skólans. Sú aögerö skaut þeim beint
inn á djarfar myndir úr Playboy. Viö athugun reynd-
ist hafa verið brotist tvisvar inn á kerfiö.
Tvisvar sinnum var
brotist inn í tölvukerfi
Iðnskólans I Reykjavík
fyrr í þessum mánuði.
Ekki er vitað hver eða
hverjir voru þar að
verki. Engar stórfelld-
ar skemmdir voru
tmnar á kerfinu en það
varð þó seinvirkara
eftir seinna innbrotið.
Bæði innbrotin áttu
sér stað sömu helgina.
Árvökulir notendur
tóku eftir þvi að átt
hafði verið við heima-
síðu Iðnskólans eftir
næstsíðustu helgi.
Búið var að setja nýja
liti inn á forsíðu henn-
ar. Þegar smellt var á
þá fór notandi beint
inn á nektarmyndir úr
tímaritinu Playboy. í
seinna skiptið sem brotist var inn var
m.a. átt við skrár sem stýra netsam-
bandi skólans út á við og innan kerf-
isins. Eftir þessar aðgerðir varð kerf-
ið miklum mun hægvirkara en það
hafði verið áður. Auk þess sem menn
urðu varir við breytingar á tölvukerf-
inu barst skólanum bréf frá tölvufyr-
irtæki sem benti á aö ekki væri allt
með felldu með kerfið.
Eftir því sem DV kemst næst hefur
stjómendum skólans ekki tekist að
láta rekja innbrotið. Kennaramir em
mjög óánægðir með framgang þeirra í
málinu. Kom sú óánægja berlega
fram þegar málið var rætt á kennara-
fundi í síðustu viku.
Ágúst B. Karlsson, aðstoðarskóla-
meistari Iðnskólans, vOdi ekki tjá sig
um málið við DV aö öðm leyti en því
að þetta hefði oröið til þess að sérfræð-
ingar hefðu verið fengnir til að taka
kerfið í gegn. „Fyrst einhver komst
inn varð að skoða það mál til að koma
í veg fyrir að hægt væri að endurtaka
leikinn. Sú skoðun fór fram strax helg-
ina eftir innbrotin."
-JSS
Hvatníng til sparnaðar
Ríkisstjórnin stefnir aö því aö frádráttarbær heildariögjöld til lífeyrissparnaöar
geti numiö allt aö 20 prósent af launum. í smíöum er frumvarp þessa efnis.
Þetta kom fram í ræöi Davíös Oddssonar forsætisráöherra á ársfundi Seöla-
banka í gær, þar sem þessi mynd var tekin. Fremstur á myndinni er hinn
nýi seölabankastjóri, Finnur Ingólfsson.
Bati á 8 fingrum
Hjúkrunarkona sem annast hefur
Ingþór Bjamason pólfara í Resolut í
Kanada telur að hann muni ná fullum
bata á öllum fmgmm, nema löngu-
töng hægri handar. Óttast er að hann
muni missa hold af þeim fmgri. Ing-
þór þurfti að hætta leiðangrinum á
Norðurpólinn vegna kals. Stöð 2
greindi frá.
Jafningi í London
Leikhópurinn „Á
semmni" sýnir Hinn
fullkomna jafningja
í London vikuna
26.-31. apríl. Á
ensku heitir verkið
The Perfect Equal.
Þegar sýningum lýk-
ur í London heldur
leikhópurinn aftur heim og setur sýn-
inguna upp að nýju í íslensku óper-
unni, en síðast varð að hætta sýning-
um fyrir fullu húsi. Höfundur verks-
ins, þýðandi og eini leikarinn er Fel-
ix Bergsson.
Óvíst um lækkun
OPEC-ríkin hafa samþykkt að auka
olíuframleiðslu sina um 7% og er
vonast til að þetta leiði til lækkunar á
heimsmarkaði, en ákvörðunin mun
þó ekki skila sér í eldsneytislækkun
hérlendis á næstunni þar sem birgða-
verð í mars var hærra en í febrúar.
Sagði í fréttum Stöðvar 2 að bensín-
verð myndi líklega hækka á næstu
dögum um 2-3 krónur á lítra.
Ólögmæt uppsögn
Settur mennta-
H málaráðherra, Geir
H. Haarde, hefur
Ít *m 1 kveðið upp úrskurð
wm um að uppsögn
» M Hrafns Sigurðsson-
H ar, Qármálastjóra
W y Æm yið Þjóðminjasafn
-----íslands, hafi verið
ólögmæt. í úrskurðinum er lagt fyrir
þjóðminjavörð að semja við Hrafn um
bætur-vegna starfsloka hans. RÚV
greindi frá.
Nýtt safnahús
Föstudaginn 31. mars verður skrif-
að undir samninga vegna byggingar
nýs safnahúss að Görðum á Akranesi.
Flug í Keflavík
Innanlandsflug til og frá Reykjavík
mun flytjast til Keflavíkur í tvær vik-
ur í sumar, þar sem Reykjavíkurflug-
velli verður lokað vegna fram-
kvæmda. Stöð 2 greindi frá.
Ingvar hættir
Ingvar Ásmunds-
son, skólameistari
Iðnskólans í Reykja-
vík, hefúr óskað eft-
ir lausn frá embætti
skólameistara vegna
veikinda frá og með
I. apríl næstkom-
andi. Menntamála-
ráðherra hefur fallist á lausnarbeiðni
Ingvars en gert hefur verið sérstakt
samkomulag um að hann sinni ráð-
gjafarstarfi um iðnmenntun á fram-
haldsskólastigi þegar hann nær fullri
heilsu á ný. Ágúst B. Karlsson er að-
stoðarskólameistari Iðnskólans i
Reykjavík.
„Góðkunningi" í innbroti
Lögreglan í Reykjavík handtók í
morgunsárið „góðkunningja" sem
reyndi innbrot í Drauminn við Rauð-
árstíg. Segja má að „draumurinn" hafi
snúist upp í martröð vegna þess að
maðurinn var staðinn að verki. Hann
reyndi að komast undan á hlaupum en
var gómaður og hafði í fórum sínum
verkfæri sem gjaman eru notuð við
innbrot. -hdm/JSS/-gk