Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
Fréttir
I>V
íslendingur stýrir uppbyggingu flugmála í Pristína í Kosovo:
Pólitísk úlfagryfja
- ringulreið ríkjandi eftir stríðsátök
Mikiö uppbyggingarstarf
Á myndinni sést húsnæðið þar sem flugturninn í Pristína er til húsa nú. Haugurinn á innfelldu myndinni
var myndarlegur flugturn fyrir stríð.
íslenskur flugumferðarstjóri,
Hallgrimur • Sigurðsson, er nú
staddur í Kosovo þar sem hann
vinnur að því að koma koma flug-
vellinum í Pristína í lag eftir
stríðsátökin. Ekki er ofsagt að
flugvöllurinn hafi verið í rúst eftir
stríðið. Hallgrimur er eini íslend-
ingurinn sem vinnur að þessu
verkefni. Hann fór utan 1. mars sl.
og verður a.m.k. í tvo mánuði.
Nokkrir islendingar eru í Kosovo
við önnur störf.
„Samvinnan við rússnesku og
bresku hershöfðingjana gengur vel
og er skemmtileg," sagði Hallgrím-
ur þegar DV hafði samband við
hann úti í Kosovo. „En það verður
að segjast sem er að þetta er póli-
tísk úlfagryfja sem maður hrærist
í hérna. Ég er hér á eigin vegum
því þegar Sameinuðu þjóðimar
báðu mig að fara í starfið höfðu
þeir beint samband við mig en
fóru ekki í gegnum flugmálastjóm
né ráðuneytið."
Vérkefnið sem Hallgrímur vinn-
ur að er á vegum UNMIK (United
Nations Mission in Kosovo) „Hálf
flugstöðin hafði verið sprengd
burtu, flugtuminn þurrkaður út,
öll blindflugstæki ónýt, fjarskipta-
búnaöur ónýtur, sprengigígur í
flugbrautinni, og starfsliðið að
mestu horfið. Hér voru t.d. 15 flug-
umferðarstjórar fyrir stríð en eru
nú 2 eftir,“ sagði Hallgrímur.
Hallgrímur Slgurðsson
Byggir upp flugþjónustu í Pristína.
Alþjóöleg samvinna
„í fyrrahaust var byrjað að
fljúga med flóttafólk og almenna
farþega hingaö á völlinn eftir að
bráðabirgöaviðgerð hafði verið
gerð á flugbrautinni. Flugið var
háð alls kyns takmörkunum, t.d.
mátti eingöngu fljúga sjónflug og
að degi tfl. Mikil pressa var að
fljúga hingað og ekki alltaf fylgt
ströngustu reglum. Þessu lauk
með því að flugvél fórst hér í fjöll-
unum með 24 starfsmenn SÞ um
miðjan nóvember. í kjölfarið var
vellinum lokað fyrir borgaralegu
flugi og þess krafist að uppfylltar
yrðu fyllstu alþjóðlegu kröfur um
flug. Þetta varð til þess að SÞ gerðu
sér grein fyrir því að það yrði að fá
sérfræðing til að hjálpa þeim við
uppbygginguna. Þeir höfðu sam-
band við mig í desember og báðu
mig að taka starfið að mér.“
Hallgrímur vinnur í samgöngu-
ráðuneyti UNMIK sem fer með
eins konar rikisstjóm og vinnur
að því að byggja upp og koma mál-
um í eðlilegt horf aftur. Siðan eiga
heimamenn smám saman að taka
við stjóm aftur. KFOR (Kosovo
Forces), sem er í raun Nató, held-
ur uppi vömum í héraðinu og
ræður t.d. flugvellinum og loftrým-
inu. Rússneski herinn stjórnar
innri byggingu á flugvellinum en
breski herinn sér um flugumferð-
arstjómina.
Hallgrímur tók fram að Þorgeir
Pálsson flugmálastjóri og flug-
málastjórn standi mjög dyggilega
við bakið sér og láti sér í té alla þá
aðstoð sem þeir geti veitt, sem sé
ómetanlegt.
Hnefarétturinn ræður
„Ég hef kynnst allmörgum Al-
bönum hérna og rætt mikið við
þá,“ sagði Hallgrímur. „Á yflr-
borðinu era þeir frekar glaðlegir
og vingjamlegir. Margir hafa þó
misst ættingja og vini í stríðinu.
Þegar maður kafar dýpra finnur
maður mikinn sársauka og jafnvel
vonleysi. Héma í Pristína er nú,
að því talið er, 600 þúsund manns
en voru 250 þúsund fyrir stríð.
Flest þetta fólk kom frá þorpum í
nágrenninu sem voru gjörsamlega
lögð í rúst. Meirihlutinn er at-
vinnulaus. Serbarnir höföu þær
aðferðir aö annaðhvort keyrðu
þeir með jarðýtu á húshomin svo
húsin hmndu eða þeir settu log-
andi kerti upp undir rjáfur í þeim
og skrúfuðu siðan frá gaskútum í
kjallaranum. Þegar húsið fylltist
af gasi sprakk það í tætlur og
brann. Svona eru mörg þorp farin
og fólkið flúið, fyrst til fjalla og
siðan hingað til Pristína. Rafmagn
er mjög óöruggt hér og fer af fyrir-
varalaust í lengri eða skemmri
tima. Vatn höfum við kannski í
12-14 tima á sólarhring og ekki
alltaf heitt.
Umferðin er alveg hrikaleg. Hér
er allt fullt af bílum, hestvögnum
og hertækjum. Talið er að í borg-
inni séu núna um 250 þúsund bíl-
ar. Flestir eru stolnir fra Evrópu
s.s. Þýskalandi, Sviss o.s.frv. Nán-
ast engir bílar eru á númerum og
hér gilda engar umferðarreglur.
Einungis hnefarétturinn og frekj-
an kemur fólki áfram. Umferðar-
slys eru algeng og oft mjög alvar-
leg. í síðustu viku urðu tveir
árekstrar milli skriðdreka og
fólksbíla. í báðum tilvikum fóru
drekamir yfir bílana og lögðu þá
saman. í öðrum bílnum voru tveir
og létust báðir samstundis. í hin-
um voru líka tveir, annar slapp
með minni háttar meiðsli en hinn
slasaðist mjög alvarlega."
Sorp og flæklngshundar
„Nánast engin sorphreinsun er
í gangi. Sorpið hér er yfírgengi-
legt, allir bakgarðar og skúma-
skot full af rusli. Núna, þegar fer
að hlýna, gýs ömgglega upp ólykt.
Mengunin er lika mikil frá öllum
bílunum, svo og af kolum sem em
mikið notuð hér. Sumir íbúanna
reyna að brenna ruslinu í görðun-
um. Hér loga því oft eldar vítt og
breitt um borgina. Skyggnið er
stundum ekki nema nokkrir kiló-
metrar þó sól sé og heiðskírt. Al-
gengt er að fólk hérna kvarti yfir
því sem við myndum kalla
kverkaskít. Það stafar að sjálf-
sögðu aðallega af menguninni.
Hér er lika mikið af flækings-
hundum á götunum. Algengt er
að þeir haldi sig í smáhópum.
Þeir eru að mestu meinlausir því
þeir hafa nóg að éta í sorpinu. Á
flugvellinum vorum við í vand-
ræðum með þá og urðum að gera
átak til að útrýma þeim því þeir
þvældust um á flugbrautinni. Við
létum elda fyrir þá Chili con car-
ne med svefnlyfi í. Þegar þeir
sofnuðu svo greyin vom þeir sótt-
ir og svæfðir endanlega med lyfj-
um.“
-JSS
DVWYNDIR HALLGRÍMUR SIGURÐSSON
Leifar stríösátaka
Þarna má sjá leifarnar af serbneskri eldsneytisstöö rétt hjá flugvellinum. í forgrunni er ósprungin sprengja.
Wk* • Umsjón:
Reynir Traustason
notfang: sandkom@ff.is
Vel merktur þingmaður
Það vakti
nokkra athygli
þegar Ingþór
Bjarnason,
fyrrverandi
pólfari, til-
kynnti að hann
væri á heim-
leið. Ekki
vakti þó minni
athygli að
Ólafur Örn
Haraldsson, fyrsti þingmaður
Framsóknarflokksins í Reykjavík
og talsmaður pólfaranna, kom
fram merktur FBA og Útilífi í
bak og fyrir. Eins og kunnugt er
eru Gaumsfeðgar eigendur Útilífs
og stórir hluthafar í FBA. Menn
veltu því þess vegna fyrir sér
hvort nesti pólfaranna væri frá
Pizza Hut...
Ungfrúíslandpunkturiss
Ekki er langt
liðið frá því
Linda Pé
barðisér á
brjóst og tfl-
kynnti að hún
hefði fengið
umboð fyrir
Ungfrú heim
og hún myndi
halda öðru-
vísi og nútíma-
lega fegurðarsamkeppni með því
frumlega nafni Ungfrúlsland.is.
Keppnin var þó ekki meira .is en
svo að þremur sólarhringum eftir
keppnina var ekkert um úrslit
hennar á heimasíðunni ungfruis-
land.is - bara um forsölu að-
göngumiða. Bíða menn nú bara
eftir þvi að Linda Pé krýni sig
forsetiíslands.is...
Banka, takk
Eftirherman
/insæla Jó-
bannes Krist-
jánsson frá
Brekku á Ingj-
aldssandi, er
kominn á fulla
ferð eftir erfið
veikindi. Jó-
hannes hefur
sérstakt dálæti
á því að herma
eftir framsóknarmönnum. Hann
lýsti því ágætlega á dögunum
hvers vegna Finnur Ingólfsson
varð seðlabankastjóri. Þannig var
að Finnur varaformaður átti er-
indi inn á skrifstofu Halldórs Ás-
grímssonar formanns á aðvent-
unni. Þar sem Finnur stendur
fyrirvaralaust og án þess að berja
að dyrum framan við formanninn
segir sá síðamefndi með þunga:
„Viltu ekki banka, Finnur". Svar-
ið kom um hæl: „Jú, Seðlabank-
inn væri fínn.“ Og það varð
ljós....
Lítill lækur
Bergvíkur-
lækur nefnist
sakleysisleg
spræna sem
fellur niður
hliðina við
svínabúið
Stjömugrís á
Vallá á Kjalar-
nesi. í mikl-
um leysingum
getur lækuri
sá ama orðið að fmssandi stór-
fljóti sem engu eirir. Það gerðist
einmitt í rigningunum um dag-
inn. Þá voru lætin svo mikil að
honum dugði ekki farvegurinn til.
Ruddist hann með látum í gegn-
um svæði ofan við svínabúið. Þar
náði hann í slatta af svína- og
grislingahræjum á ýmsum aldri,
sem flutu í loftköstum til sjávar.
Uppi varð fótur og flt, enda bann-
að að halda heimagrafreiti af
þessu tagi. En lækurinn, sem aft-
ur er orðinn lítinn og penn, er nú
aldrei kallaður annað en Galta-
lækur.