Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Síða 15
FTMMTUDAGUR 30. MARS 2000
15
DV
Hagsýni
Hljómtækjasamstæður á óskalista margra fermingarbarna:
Fasteignamat
• Ath. Tilboðin gilda til 19.4. 2000.
Verðbréf í gjafapakka fermingarbarna:
Engin fermingarbréf til
Verðbréf eru tímanna tákn í
gjafaflóði ferminganna. Afi og
amma geta þannig átt það til að
gauka verðbréfum að bamabam-
inu í von um að slík gjöf geti komð
að góðum notum síðar, þegar farið
er í framhaldsnám, stofnað er
heimili eða þegar bílprófið er tek-
ið. Síðan fá fermingarböm tölu-
vert af peningum í gjafir og þá
nærtækt að fjárfesta í verðbréfum.
Verðrbréfamiðlarar þekkja vel
þessa þróun en segjast ekki gefa
aðrar ráðleggingar vegna ferm-
ingarbama en annarra visðkipta-
vina. Mikilvægt sé að dreifa áhætt-
unni. Annars segja þeir eignartím-
ann ráða nokkru um ráðlegging-
arnar. Ef ætlunin sé að eiga bréfin
stuttan tíma mæla þeir með verð-
bréfasjóðum sem byggja þá á
skuldabréfaeign. Það sé örugg fjár-
festing þar sem áhættan sé lítil. Sé
hins vegar ætlunin að eiga bréfin
til lengri tima, 3-4 ár eða lengur,
komi sjóðir með méiri hlutabréfa-
eign heldur til greina.
„Við gerum fólki alltaf grein fyr-
ir að verðbréf eru áhættufjárfest-
ing, geta bæði hækkað og lækkað,"
sagði verðbréfamiðlari við DV og
bætti við: „En það er ekki neitt
sem heitir fermingarbréf á sama
hátt og fermingarstæður og slikt.
Það gildir það sama um fermingar-
bömin og aðra viðskiptavini."
Verðbréfamiðlari sagði að ferm-
ingarbörn væru sum hver mjög
meðvituð um verðbréf og þekkti
dæmi þess að þau óskuðu sér
hlutabréfa í ákveðnum fyrirtækj-
um. Það þætti spennandi að eiga í
ákveðnu fyrirtæki.
„En svo eru þeim líka gefin hluta-
bréf í einstökum fyrirtækjum. Þá
ráða stundum hiutir eins og að afi
eða amma hafi unnið hjá fyrirtæk-
inu eða tilfinningaleg rök. Það er
ekki nema gott eitt um það að segja
en áhættan getur auðvitað verið
meiri,“ sagði verðbréfamiðlari.
Verðmæti eigna er metið á
tvennan hátt, með fasteignamati
og bmnabótamati. Fasteignamat á
samkvæmt lögum og reglum að
mæla verðmæti fasteigna og mið-
ast þá við líklegt söluverð eignar-
innar á frjálsum markaði. Hins
vegar sjá velflestir að fasteignamat
er mun lægra en söluverð eigna í
dag. Fasteignamat er notað til
grundváUar þegar sveitarfélög
leggja á fasteignagjöld, eins og
fasteignaskatt, vatnsgjald, lóðar-
leigu o.fl. Þá notar ríkið fasteigna-
matið til að ákveða eignaskatt,
erfðafjárskatt o.fl. Þinglýsingar-
gjöld eru einnig greidd af fast-
eignamati eins og það er við þing-
lýsingu kaupsamnings eða afsals.
Hin seinni ár er fasteignamat
einnig notað sem viðmiðun við
veðsetningu.
Á felgunni
Árviss törn í umfelgunum og
jafnvægisstiilingum er í nánd en
bíleigendum er gert að skipta yfir
á sumardekkin 15. apríl. Þessu
fylgja útgjöld sem má hæglega
sleppa ef keyptur er aukaumgang-
m- af felgum. Þannig getur bíleig-
andinn átt bæði sumar- og vetrar-
dekk á felgum. Nægir þá að tjakka
bílinn upp á planinu heima og
skipta sjálfur. Miðað við verð á
umfelgun og jafnvægisstillingu get-
ur kostnaður vegna felgnanna skil-
að sér aftur á rúmum 2 til 3,5
árum.
RB-rúm
5000 kr. fermingargjöf
Dóttirin ánægðari með
venjuleg hljómtæki
- segir Björgvin Gunnarsson. Betri ending og meiri hljómgæöi
Vill heldur gefa „venjuleg hljómtæki '
Björgvin Gunnarsson viö „venjuleg hljómtæki í versluninni Reynisson&Blöndal viö Skipholt. Þau kosta um 80 þúsund.
Hann segir að ekki aðeins sé ending „venjulegra“ hljómtækja yfirleitt betri en htjómtækjastæönanna í víðum skilningi
heldur sé fólk meö allt önnurgæöi í höndunum.
Fermingar eru komnar á fullt
með tilheyrandi gjafaflóði. Ferm-
ingarbömin fá orðið afar veglegar
gjafir þó misjafnt sé hvað er i tísku
frá ári til árs. Hljómtækjasamstæö-
ur hafa þó lengi verið þungamiðja
fermingagjafaflóðsins sem veltur
yfir börnin. Verð þeirra er breyti-
legt, getur verið á bilinu 30-60 þús-
und, allt eftir umfangi stæðnanna
og fjölbreytileika í samsetningu. En
þó hljómur þessara hefðbundnu
fermingarstæðna, þar sem öll tæki
eru í sömu einingu, hafi batnaö eitt-
hvað með árunum eiga þær langt í
land þegar kemur að hljómgæðum.
Breytingamar snúa aðallega að alls
kyns tískufyrirbærum eins og kara-
oke, sem sést þó varla lengur,, jug“-
Lán í óláni
Björgvin fermdi dóttur sina í
fyrra. Hún hafði óskað sér að fá
hljómtækjasamstæðu í fermingar-
gjöf og fyrir valinu varð viðurkennt
merki í þeim bransa. Eftir rúman
mánuð bilaði stæðan hins vegar.
Varð þá að samkomulagi við versl-
unina, sem einnig selur „venjuleg"
hljómtæki, að hún fengi slík tæki í
staðinn fyrir stæðuna.
„Hún fann strax mikinn mun og
varð mun ánægðari. Hún hlustar
mikið á tækin, finnur að það sem
áður gat verið hávaði er nú meiri
tónlist. Það má segja að þessi tæki
eldist mun betur en hin og hlustun-
arþolið verður meira. Það var eigin-
lega lán í óláni að stæðan bilaði. Ef
Kostir og gallar
Margir eru eflaust sammála
Björgvini meðan aðrir hrista höf-
uðið með efasemdasvip. En tökmn
kosti og galla hvors möguleika um
sig.
Kostir samstæðunnar eru m.a
þeir að hún er yfirleitt ódýrari úr
verlsuninni, getur verið meira fyr-
ir augað, mörg tæki fást i einum
pakka, þau eru afar auðveld í upp-
setningu þar sem snúruvesen er í
lágmarki og þau eru samkvæmt
nýjustu tísku.
Gallamir eru hins vegar mála-
miðlanir vegna lágs framleiðslu-
kostnaðar sem koma niður á gæð-
um. Ef einn hluti stæðunnar bilar,
t.d. geislaspilarinn, verður öll
„Það er ekki bara að endingin sé
betri heldur er fólk með allt önnur
gæði í höndunum. Aðalmálið er jú
það sem kemur út úr hátölurunum,
tónlistin. Hún verður ekki til með
tískusveiflum í hönnun, ljósasjói,
, jug“-hnöppum eða öðru sem kemur
hljómnum ekkert við. Enda sýnir
það sig yfirleitt að þegar tækin hafa
verið notuð lengi eru bara notaðir
19 hnappar," segir Björgvin Gunn-
arsson, foreldri og áhugamaður um
hljómtæki.
takka og alls kyns nöfnum yfir
bassahljóminn. Vekur það spum-
ingar um hvort tugum þúsunda sé í
raun betur varið í „venjuleg" hljóm-
tæki þar sem magnari/útvarps-
magnari og geislaspilari eru hvor í
sínu boxi með tilheyrandi hátölur-
um. Margir sjá ofsjónum yfir því að
velja saman stök tæki en verslanir
bjóða yfirleitt upp á tilbúna pakka
stakra tækja á mismunandi verði.
fólk fer að kaupa hljómtæki fyrir
bömin er peningunum mun betur
varið í aðskilin tæki. Þau eru
kannski dýrari í innkaupum en yf-
irleitt mun langlífari og því ódýrari
þegar upp er staðið. Það er fúlt fyr-
ir foreldra að þurfa kannski að
leggja út fyrir öðrum græjum eftir
nokkur ár. Svo má ekki vanmeta að
krakkamir leggja töluvert upp úr
því að tækin séu boðleg og endist,“
segir Björgvin.
stæðan að fara í viðgerð. Stæður
bjóða vissulega upp á tengingar
við önnur tæki, en spuming er
hvort gæði þeirra njóta sín þá til
fulls.
Kostir við aðskilin tæki eru yfir-
leitt meiri hljómgæði. Samsetning-
armöguleikar eru fleiri. Ný tækni í
í afspilun er engin hindrun þvi
auðvelt er að tengja ný tæki við. Ef
eitt tæki bilar eða veröur úrelt má
fá annað í staðinn án þess að farga
öllu saman eins og ef um sam-
stæðu í einum kassa er að ræða.
Þá er ónefnd betri ending, bæði
með tilliti til tækjanna sem slíkra
og hljómgæða.
Ókostur aðskilinna tækja þykir
yfirleitt verðið, snúruvesen, sem
þó er sáraeinfalt mál, og útlit, sem
ekki er alltaf samkvæmt nýjustu
tísku.
-hlh
Bíl stolið
rUIjÉS
Þessum bíl var stolið af 3R bílasölunni aðfaranótt 23. mars.
Ef einhver hefur séð til þessa bíls (TH-596) og eða veit hvar hann
er niðurkominn þá vinsamlegast hafið samband við Toyota umboðið
í síma 563 4400 eða 563 4450.
Stærð 90x200
Kr. ?>47Ö00.
Nú 29.000
Stærð 100x200
Kr. 7/8:600.,
Nú 33.000
Stærð 105x200
Kr. I i .fiSO.
Nú 36.550
Stærð 110x200
Kr. 42:900
Nú 37.900
Stærð 115x200
Kr. -+4.980
Nú 39.980
Stærð 120x200
Kr. 40:910
Nú 41.910
Dalshrauni 6
220 Hafnarfirði
sími 555 0397
fax 565 1740.