Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2000, Síða 30
34
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
Tilvera
Nafn: Gísli Marteinn Baldursson
Aldur: 28 ára
Starf: Umsjónarmaður Kastljóss
Samninga-
viðræður
við Guðjón
Þórðarson
Klukkan er 11 að morgni. Hvar
ertu og hvað ertu að fara að gera?
„Ég er staddur í Sjónvarpshúsinu og
þarf að undirbúa Kastijósþáttinn í
kvöld. Eftir það reikna ég með að fara
beinustu leið heim.“
í hvaða fllk klæddirðu þig fyrst í
morgun? „Ég man ekki hvort það
voru sokkamir sem eru í bresku
fánalitunum eða stuttermabol-
ur. Ég er mikiii stutterma- ^
bolamaður og ef ég
man rétt þá
er bolurinn
sem ég
klæðist í
dag merkt-
ur flugfélag-
inu Saudia
Airlines."
Kanntu á ryksugu og þvottavél?
„Ég kann á hvort tveggja en sem bet-
ur fer þarf ég aldrei að ryksuga því
það eru engin teppi á heimilinu. Ef í
harðbakkann slær þá ræð ég við að
setja í þvottavél en sú kunnátta nær
ekki öllu lengra."
Það eru fimm mínútur í
heimsendi. í hvem myndirðu
hringja? „Fimm mínútur eru ekki
langur tími en ætli ég myndi ekki
hringa í foreldra mína og systur. Síð-
an myndi ég að sjálfsögðu hringja í
Spilafélagið Mána.“
Þú verður að eyöa 100
milljómnn í dag -
hvað myndirðu
kaupa?
„Ég
myndi
byrja á að fá
mér skárri bil en þann sem ég á í
dag. Síðan myndi ég kaupa góða utan-
landsferð fyrir fjölskylduna. Ætli ég
myndi svo ekki fá einhverja af þess-
um frábæru verðbréfaráðgjöfúm okk-
ar í Kastljósi til að ráðleggja mér
hvemig ég á að eyða afganginum."
í' AJÍæaW.,‘vrw< V® RÆaBffT" TiLif
*í • •/-’ '• "7
*■'r'~-- vvPmw- •> X tsmlA
Þingholtsstræti 29a
„Eitt glæsilegasta hús bæjarins, hefur allt til aö bera, “ segir einn fasteignasali. „Myndi fá kaupanda þess vegna fyrir 100 milljónir, “ segir annar.
Stærð: 474 fermetrar.
Brunabótamat: 51,2 milljónir króna.
Eigandi: Reykjavíkurborg.
Óþekktur aðili sem vill kaupa Þingholtsstræti 29a kastar stríðshanskanum:
100 milljónir á borðið
- ákvörðun borgarinnar um sölu að vænta á næstu vikum
Búist er við geysihörðum slag ef
og þegar Reykjavíkurborg selur
húsið Esjuberg að Þingholtsstræti
29a. Þar hefur aðalsafn borgarbóka-
safnsins verið frá því 1954 en safnið
verður flutt úr húsinu í júlí i sum-
ar. Esjuberg er eitt altilkomumesta
einbýlishús Reykjavíkur og telja
margir það fegursta hús borgarinn-
ar.
Aö sögn ónefnds fasteignasala
hefur hann þegar kaupanda sem
reiðbúinn er að greiða að minnsta
kosti eitt hundrað milljónir króna
fyrir eignina og meira ef þörf kref-
ur. Sá er hins vegar áreiðanlega
ekki sá eini sem gimist þetta svip-
fagra hús og má því reikna með
kapphlaupi fyrirtækja og fjár-
sterkra einstaklinga ef kemur að
sölu hússins.
DV leitaði til nokkurra fasteigna-
sala og baö þá aö nefna þau íbúðar-
hús á höfuðborgarsvæðinu sem
þeim finnst bera af öörum fyrir sak-
ir glæsileika. Myndir af hluta þeirra
húsa sem nefnd voru ásamt upplýs-
ingum um eigendur þeirra, stærð og
brunabótamat fylgja hér á opnunni.
Obenhaupt stórkaupmaður
Smáhöllin að Þingholtsstræti 29a
er 474 fermetrar að stærð og stend-
ur á 1196 fermetra eignarlóð. Húsið
er steinsteypt, tvær hæðir og kjall-
ari.
„Esjuberg var reist árið 1916 af
Obenhaupt stórkaupmanni. Einar
Erlendsson teiknaði húsið. Lengst
af bjó þar fjölskylda Ólafs Þ. John-
sonar, stofnanda heildverslunarinn-
ar Ó. Johnson & Kaaber. Borgar-
sjóður keypti húsið árið 1952 og að
loknum breytingum opnaði bóka-
safnið þar í janúar 1954,“ segir á
heimasíðu borgarbókasafnsins um
Þingholtstræti 29a. Húsið þykir af
mörgum ástæðum henta illa fyrir
starfsemi safnsins og verður hún
því flutt niður á Tryggvagötu 15, þar
sem borgarskjalasafnið og ljós-
myndasafn Reykjavíkur eru fyrir.
Borgaryflrvöld í vafa
Jón Björnsson, framkvæmda-
stjóri þróunar- og fjölskyldusviðs
Reykjavíkurborgar, segir enga
ákvörðun hafa verið tekna um fram-
tíð Þingholtsstrætis 29a en að ýmsar
hugmyndir séu á lofti. Jón segir
þannig enn tfi skoðunar hvort borg-
in nýti húsið sjálf áfram eða hvort
það verði selt. Hann á von á ákvörð-
un í málinu fljótlega.
„Það verður að gerast fyrr en
seinna. Ég á von á því á næstu vik-
um að menn stígi í einhvem fót með
það. Ég geri ráð fyrir að ákvörðun
um sölu yrði lögð fyrir borgarráð,"
segir Jón.
Jón segir að þó að Esjuberg sé
bæði myndarlegt og sögufrægt hús
hafi það verið nýtt sem bókasafn
áratugum saman og breytt í því
skyni. „Það er því líklegt að það
þyrfti að breyta miklu innanstokks
tfi að gera það í stakk fyrir nýja
notkun. Það þaríhast þónokkurrar
viðgerðar, bæði að utan að innan.
Flutningur safnsins hefur verið það
lengi í farvatninu að menn hafa
ekki verið að leggja í dýrt viðhald
með starfsemi bókasafns í huga,“
segir hann.
Að sögn Jóns hefur það ekki kom-
ið til tals að setja skilyrði um notk-
un Esjubergs ef af sölu hússins
verður. „Umræðan er ekki á því
stigi en ef ákveðið yrði að selja
myndu menn sjálfsagt velta slíku
fyrir sér,“ segir Jón. -GAR
Þú verður að yfirgefa landið á
stundinni. Hvert færirðu? „Það er
ekki spuming að ég færi til London.
Hún er einfaldlega skemmtilegasta
borg í heimi.“
Hver er undarlegasta flíkin f
fataskápnum þfnum? „Fyrir utan
skrautlegan flota af sokkum þá held
ég að það hljóti að vera sundbolurinn
sem mér áskotnaðist þegar ég vann í
laugunum fyrir nokkrum árum. Bol-
urinn, sem er frá 1940, er blár og hvít-
ur, með þverröndum. Hann nær líka
niður á mið læri og er með ermum.
Ég nota þessa flík nokkuð oft en þó
ekki í almenningssundlaugum."
Hvað dreymdi þig í nótt? „Það er
svo einkennilegt en mig dreymdi að
ég stæði í miklum samningaviðræð-
um við Guðjón Þórðarson. Ég vildi
ólmur fá hann í Kastljósið og ef ég
man rétt þá féllst hann á það.“
Sulunes 15
Jón Tryggvi Kristjánsson, löggiltur endurskoóandi, býr í þessu húsi sem
manna á meöal mun ganga undir nafninu Southfork.„Mjög iburöarmikiö og
vel búiö hús þótt sumir vilji meina aö þaö líkist engu ööru fremur en rjóma-
tertu, “ segir fasteignasali. Girt er í kringum húsiö meö svartri oggylltri girö-
ingu. „Þetta er óskaplega mikiö blúnduverk en menn taka sér sunnudagabíl-
túra til aö skoöa þetta, “ segir fasteignasalinn.
Eigandi: Jón Tryggvi Kristjánsson.
Stærö: 460 fermetrar.
Brunabótamat: 57 milljónir króna.
„Aberandi failegt. Einstaklega glæsilegt, finlegt og viröulegt einbýlishús viö
sjávarsíöuna. Frábær eign, “ segir fasteignasali. Þetta hús teiknaöi Halldór H.
Jónsson og byggöi sjálfum sér.
Eigandi: Margrét Garðarsdóttir.
Stærö: 392 fermetrar.
Brunabótamat: 29,3 milljónir króna.