Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
DV
Fréttir
Bændasamtökin hafna að upplýsa um greiðslumark bænda:
Leynd yfir 3,2 millj-
arða mjólkurkvóta
- skattgreiðendur borga brúsann en fá ekki að vita hverjum
Bændasamtök íslands hafa hafn-
að beiðni DV um upplýsingar varð-
andi mjólkurkvóta Guðnastaða i
Austur-Landeyjahreppi.
Landbúnaðarráðuneytið seldi
Guðnastaði fyrir tveimur árum á 2,4
milljónir króna og þá, eins og DV
greindi frá á miðvikudag, fylgdi
jörðinni 104 þúsund lítra mjólkur-
kvóti sem í dag er 23 milljóna króna
að markaðsvirði.
Samkvæmt heimildum sem DV
hefur aflað sér annars staðar frá er
mjólkurkvóti Guðnastaða nú hins
vegar 134 þúsund lítrar. Sjálfur mun
ábúandinn, á meðan hann var enn
leiguliði rikisins, reyndar hafa keypt
yfir 30 þúsund lítra að Guðnastöðum
til viðbótar við þann 70 þúsund lítra
kvóta sem býlinu var úthlutað við
upphaf kvótakerfisins. Samkvæmt
því mun ríkið ekki hafa átt tilkall til
nema 70 þúsund lítra en ekki allra
104 þúsund lítranna sem Guðnastað-
ir réðu yfir í maí 1998.
DV leitaði í nóvember 1999 til
Framleiðsluráðs landbúnaðarins
um upplýsingar varðandi greiðslu-
mark Guðnastaða á þeim tíma-
punkti sem ríkið seldi leiguliða sín-
um jörðina. Eftir að hafa ráðfært sig
við Tölvunefnd bárust upplýsing-
amar í febrúar sl. frá Bændasam-
tökunum en þau tóku við hlutverki
Framleiðsluráðs um áramót.
Úr vasa í vasa
Nú bregður hins vegar svo við að
Bændasamtökin neita að láta sams
konar upplýsingar af hendi varð-
andi núverandi kvótastöðu Guðna-
staða og bera fyrir sig túlkun sína á
sama áliti Tölvunefndar og áður var
grundvöllur þess að veita umbeðnar
Hver er þessi kýr?
Ríkissjóður ætlar að greiða 3,2 millj-
arða króna í styrki beint til mjólkur-
framleiðenda á þessu ári en ekki
fæst upplýst til hverra.
upplýsingar. Að sögn Bændasam-
takanna er munurinn sá að nú eru
Guðnastaðir í einkaeigu en voru
áður í eigu ríkisins. Sé þessi skiln-
ingur Bændasamtakanna réttur er
ljóst að samtökunum hafa orðið á í
messunni í febrúar sl. þegar kvóta-
staða Guðnastaða í maí 1998 var
upplýst, því þá, eins og fyrr segir,
átti ríkið aðeins um 70 þúsund lítra
kvótans en afganginn, ríflega 30
þúsund lítra, átti einkaaðili, nefni-
lega leigjandi jarðarinnar.
Greiðslumark i mjólk, eða svo-
kallaður mjólkurkvóti, felst í í fram-
leiðslurétti tiltekins magns mjólkur
gegn beinum greiðslum úr ríkis-
sjóði. Á árinu 2000 eiga þessar bein-
greiðslur að nema 3,2 milljörðum
króna en Bændasamtök íslands,
sem ein halda skrá yfir framlögin,
telja sig enga heimild hafa til að
upplýsa til hvaða mjólkurframleið-
enda þetta fé er greitt. -GAR
Austurland:
Enginn
leikaraskapur
„Það er svo undarlegt að þeir sömu
menn og eru að berjast hvað mest á
móti málinu eru jafnframt að bera það
út að hér séu miklir leiktjaldasmiðir á
ferð. Það er fráleitt, engum dettur í
hug að vera með leikaraskap í máli
þar sem fjárfesting getur orðið hátt í
200 milljarðar," sagði Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra í viðtali
við DV í morgun. Ráðherrann og Jón
Kristjánsson, formaður fjárlaganefnd-
ar Alþingis, fengu mikið lófaklapp í
Félagslundi á Reyðarfirði í gær. Þar
var fullt hús af áhugasömum fundar-
mönnum og ríkti þar mikill einhugur
um virkjana- og stóriðjumál.
„Það er ljóst að Austfirðingar hafa
haft áhyggjur af framvindu þessara
mála. Það skiptir miklu máli fyrir
landsfjórðunginn og landið í heild að
málið komist áfram. Unnið er af iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra að vinna
ásamt fjárfestum að því að undirbúa
yfirlýsingu um þetta mál og hún verð-
ur væntanlega gefin út á næstunni,“
sagði Halldór. Hann sagði að unnið
yrði áfram af fullum krafti að fram-
kvæmdum, vegagerö milli Eskifjarðar
og Reyðarfjarðar og að virkjunarstað.
-JBP
DV-MYND HELGI GARÐARSSON
Halldór messar
„ Við höfum fulla trú á því að fyrst rísi Kárahnúkavirkjun og Fljótsdalsvirkjun í framhaldi af því, en með tiltölulega lítilli miðlun viö
Eyjabakka, “ sagði ráðherrann.
34 ára Kópavogsbúi ákærður fyrir ítrekaðar falsanir á þýskum vörureikningum:
Svik með hátt í 40
Benza og glæsijeppa
- ríkislögreglustjóri krefst fangelsisrefsingar og endurgreiðslu 10 milljóna króna
Ríkislögreglustjóri fer fram á það
í umfangsmiklu skjalafalsmáli að 34
ára karlmaður úr Kópavogi endur-
greiði rikinu vel á annan tug millj-
óna króna með vöxtum fyrir að hafa
á árunum 1995-1996 flutt inn bíla
þar sem hann falsaði hátt í 40 vöru-
reikninga frá ýmsum bílasölufyrir-
tækjum í Þýskalandi.
Manninum er gefið að sök að
hafa komist hjá að greiða rétt um 10
milljónir króna í aðflutningsgjöld.
Þegar dómari spurði hann í gær um
afstöðu hans til þessara sakargifta
svaraði hann því til að hann kann-
aðist ekki við að hafa framið neitt af
þeim brotum sem talin eru upp í 11
blaðsiðna ákæruskjali á hendur
honum - hann neitar öllum sakar-
giftum.
Hér er um að ræða innflutning á
hátt í 30 Mercedes Benz bílum og
allmörgum jeppum á árunum
1995-6. Ríkislögreglustjóraembættið
hefur aflað sér vitnisburða hjá all-
mörgum bilasölum í Þýskalandi og
fengið gögn úr bókhaldi bílasala
sem áttu viðskipti við hinn ákærða
Kópavogsbúa.
Maðurinn keypti bilana gagngert
til að flytja þá til íslands og selja.
Þannig er honum gefið að sök
skjalafals með því að falsa vöru-
reikninga - gefa þannig upp mun
lægri upphæðir á kaupverði bílanna
en raunin var og komast þannig hjá
að greiða verulegar upphæðir í að-
flutningsgjöld.
Eitt dæmi um þetta - í hátt í 40
liða ákærunni - eru kaup á
Mercedes Benz 300 E árgerð 1992.
Seljandi var sagður Car Discount og
kaupverð á innflutningspappírum
með meintum fölsuðum vörureikn-
ingi 14.000 þýsk mörk. Samkvæmt
ákæru ríkislögreglustjóra og upp-
gefnum gögnum frá Autex GmBH
ytra var kaupverðið hins vegar
25.869 mörk. Þannig námu van-
greidd aðflutningsgjöld af þessum
eina bíl 216 þúsund krónum í virðis-
aukaskatt og 564 þúsund krónum í
vörugjald - samtals 780 þúsund
krónur. Meint vangoldin gjöld á
hverjum bíl af þeim hátt í 40 sem
um er að ræða eru að meðaltali á
þriðja hundrað þúsund krónur.
Sakborningurinn hefur haldið
sakleysi sínu fram við lögreglu og
síðan einnig fyrir dómi í gær. Sam-
kvæmt upplýsingum DV hefur hann
látiö í það skína að þeir aðilar ytra
sem gefið hafi upp hærra kaupverð
séu í raun að segja ósatt. Á þetta
mun reyna með frekari réttarhöld-
um sem þó er ekki reiknað með að
hefjist fyrr en í haust.
-Ótt
Œ
Dómurinn staðfestur
Hæstiréttur stað-
festi í gær dóm hér-
aðsdóms yfir Þór-
halli Ölver Gunn-
laugssyni og mun
hann því sæta fang-
elsisvist í 16 ár, en
til frádráttar kemur
óslitin gæsluvarð-
haldsvist frá 18. júli 1999. Þórhallur er
sakfelldur fyrir manndráp og þjófnað
með þvi að hafa veist að Agnari W.
Agnarssyni á heimili hans að Leifs-
götu og banað honum með hnífstung-
um og hafa síðan slegið eign sinni á
skartgripi sem geymdir voru á heim-
ili Agnars.
Árekstur á Selfossi
Einn maður var fluttur á heilsu-
gæsluna á Selfossi eftir árekstur í
gærkvöld. Tveir bílar rákust saman
í Langholti um klukkan 19.30. Öku-
maðurinn sem fluttur var á heilsu-
gæsluna var ekki mikið slasaður, en
báða bílana þurfti að flytja af slys-
stað með kranabifreið.
i hingað?
Talið er að vændi geti breiðst út á
íslandi frá Austur-Evrópu. Vændi
er nú vaxandi vandamál annars
staðar á Norðurlöndum og koma
margar af vændiskonunum þangað
frá Austur-Evrópu. Vændiskonum-
ar hafa komið til landanna bæði á
eigin vegum, sem og á vegum skipu-
lagðra glæpasamtaka. Sjónvarpið
greindi frá.
Fíkniefni finnast
Við húsleit í Hafnarfirði fann lög-
reglan 80 grömm af hassi og voru
fimm menn handteknir. Mennirnir
voru fluttir til yfirheyrslu á lög-
reglustöðina og viðurkenndu þeir
eign sína á eiturlyfinu. Þeim var
sleppt í nótt að yfirheyrslum lokn-
um. Rannsókn málsins er ekki lok-
ið.
Eldur í Eyjum
Éldur kviknaði í skúr á Skólavegi í
Vestniannaeyjum um klukkan 19.30 í
gærkvöldi. Greiðlega gekk að slökkva
eldinn, en upptök hans voru ókunn í
morgun. Skúrinn er gamall og ekki
voru nein verðmæti í honum. Lögregl-
unni var tilkynnt um ungling sem
sást hlaupa í burtu frá skúrnum.
100.000 í hækkun
Um 3.000 grunnskólakennarar,
eða um 3/4 allra félagsmanna í Fé-
lagi grunnskólakennara, tóku þátt í
viðamikilli könnun sem félagið
efndi til. Telja þeir til jafnaðar að
meðalgrunnlaun grunnskólakenn-
ara þurfi að hækka í um 235.000 kr.
á mánuði, en þau eru nú um 130.000
kr. RÚV greindi frá.
Ólögleg uppsögn
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm
héraðsdóms í máli Gunnars Þórs
Jónssonar gegn
Landspítala, há-
skólasjúkrahúsi.
Staðfest var sjúkra-
húsið hefði ekki ver-
ið réttur aðili til að
segja Gunnari upp
störfum og var upp-
sögn hans því ógild.
Landspítali, háskólasjúkrahús var
dæmt til að greiða Gunnari Þór
300.000 krónur i málskostnað fyrir
Hæstarétti.
Fákeppni á markaði
Haukur Þór Hauksson, formaður
Samtaka verslunarinnar, segir að
ástæðan fyrir því að vöruverð hefur
ekki lækkað til samræmis við gengis-
þróunina sé aðallega vegna þeirrar fá-
keppni sem ríkir á markaðinum.
Hann segir að samkeppni sé lítil
vegna þess að Baugur og Búr skipti
með sér markaðinum. -hdm/-SMK