Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
Fréttir DV
Mosfellingar utan nefndar sem leggur til risasameiningu á höfuðborgarsvæðinu:
Eins gott að afnema
sveitarstjórnarstigið
- og afhenda ríkinu allt, segir forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar
„Þessar tillögur koma vægast
sagt á óvart enda var ekkert samráð
haft við okkur. Við áttum engan
fulltrúa í þessari nefnd,“ segir
Jónas Sigurðsson, forseti bæjar-
stjórnar Mosfellsbæjar, um hug-
myndir nefndar sem leggur til að
sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu
verði eitt eða tvö. Tillögumar hafa
fengið dræmar undirtektir og meðal
þeirra sem lýst hafa harðri and-
stöðu við þær eru Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri í Reykja-
vik, og Sigurgeir Sigurðsson, bæjar-
stjóri á Seltjarnarnesi.
Jónas segir það koma Mosfelling-
um mjög á óvart að tillögumar birt-
ist þeim með þessum hætti. Hann
segir Mosfellsbæ bjóða að mörgu
leyti upp á betri lífskjör en önnur
sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu
og engin ástæða sé fyrir þá að sam-
einast.
„Við rekum ákveðna fjölskyldu-
stefnu og bjóðum meðal annars upp
á lægri leikskólagjöld. Þá er hitun-
arkostnaður lægri hjá okkur vegna
hagstæðra samninga við Veitustofn-
anir Reykjavíkur. Við stefnum að
því að Mosfellsbær verði fjöl-
DVWND
Enga risasameiningu
„ Við stefnum aö því aö Mosfellsbær veröi fjölskylduparadís og til aö svo megi
veröa ætlum viö aö stjórna okkar málum sjálf, “ segir Jónas Sigurðsson.
skylduparadís og til að svo megi
verða ætlum við að stjórna okkar
málum sjálf,“ segir Jónas.
Hann segir að með sameiningu af
þeirri stærð sem verið er að leggja
til sé allt eins gott að leggja niður
sveitarstjómarstigið.
„Við erum sjöunda stærsta sveit-
arfélagið á landinu og fullfær um að
stjórna okkar málum sjálf. Þá er
mikilvægt að stjórnsýslan færist
ekki frá íbúunum. Nálægðin er mik-
ill kostur og sjálfstæði í öllum mála-
ílokkum er mikilvægt. Með sveitar-
félagi af þeirri stærðargráðu sem
verið er að leggja til er eins gott að
leggja niður sveitarstjórnarstigið og
afhenda ríkinu öll völd,“ segir
Jónas sem segist hlynntur samstarfi
í sem flestum málum eða jafnvel
sameiginlegri yfirstjórn.
„Ég get fallist á þær hugmyndir
sem fram hafa komið um að sameig-
inleg yfirstjórn yrði á öllu höfuð-
borgarsvæðinu. Þar yrði þó að kjósa
beinni kosningu og vera skilgreint
ákvörðunarstig. Aðalatriðið er að
við viljum ráða okkar málum sjálf
en ekki týnast í risastóru sveitarfé-
lagi,“ segir Jónas. -rt
Afnám skattfrelsis forseta íslands beinir athyglinni víðar:
Fjolbreytt friðindi Islendinga
- gagnrýni á sjómenn og starfsmenn sendiráða
A skv, ákvörðun Kjaradóms 16. des. 1999. Ýmis fríðmdi ekki innifalin, s.s. undanþága frá greiðslu vsk. o.fl.
i> skv. tölum Frjálsrar verslunar 1999. MánaðaHaun ekkl Uinifa&n né önnur fríðindi.
C miðað við greiðslu staðgreiðslu, greiðslu hátekjuskatts og að frádregnum persónuafslættí. Ýmis fríðindi, s.s. rísna,
ekki innifalin.
D fóst mánaðaríaun skv. uppl. utanrikisráðuneytís, auk staðaruppbótar skv. tölum Frjálsrar verslunar 1999. Ýmis fríðindi,
s.s. rísna, ekki innifalin.
í kjölfar þess að Alþingi sam-
þykkti að afnema skattfríðindi for-
seta Islands og maka hans á dögun-
um hefur komið upp nokkur um-
ræða um skattfríðindi íslendinga.
Fjölmargir virðast njóta fríðinda
umfram aðra og ekki virðist vel séð
að rætt sé um það.
Samkvæmt heimildum DV munu
laun forseta íslands þurfa að hækka
upp í tæpar 1.100.000 krónur þegar
skattfrelsi hans verður afnumið í
haust til að hann haldi sömu kjör-
um. Inni í þessu er ekki meðtalin
undanþága hans frá greiðslu virðis-
aukaskatts, tolls og annarra fríð-
inda en ef það væri tekið með í
reikninginn mætti fastlega gera ráð
fyrir að laun hans færu nálægt
einni og hálfri milljón króna. Mán-
aðarlaun forseta eru í dag 615.940
krónur samkvæmt úrskurði Kjara-
dóms frá því í desember i fyrra.
Auk þessarar beinu krónutölu hefur
hann dágóða búbót af niðurfellingu
virðisaukaskatts en þegar nýju lög-
in taka gildi þann 1. ágúst missir
hann þau fríðindi. Forsetinn heldur
aftur á móti ýmsum fríðindum, s.s.
embættisbústaðnum og rekstri
hans, risnu sinni, afnotum af bif-
reiðum og rekstri þeirra, auk ann-
arra hlunninda.
Skattfrjálsa staðaruppbótin
Sendiherrar og starfsmenn sendi-
ráða tilheyra hópi fjölmargra ís-
lendinga sem njóta skattfríðinda á
einn eða annan hátt. Samkvæmt
www.romeo.is
Stórglæsileg netverslun!
Frábært verð!
Ótrúleg tilboö!
upplýsingum frá Stefáni Skjaldar-
syni, starfsmannastjóra í utanríkis-
ráðuneytinu, eru mánaðarlaun
sendiherra 319.188 krónur. Þeir hafa
þó ofan á það 460 þúsund krónur á
mánuði í staðaruppbót sem er skatt-
frjáls. Jafngildir þessi upphæð um
800 þúsund krónum á mánuði ef
tekjumar væra skattskyldar, að því
er fram kom í Frjálsri verslun á síð-
asta ári. Þetta jafngildir þvi að
sendiherrar hefðu rúmlega 1.100
Lögreglunni í Reykjavík var til-
kynnt um mann sem beraði sig fyr-
ir konu á bílastæði við öskjuhlíð
skömmu eftir hádegi í gær.
Konan var við Hlíðarfót á malar-
bílastæði að tala i GSM-síma þegar
þúsund krónur í mánaðarlaun ef
skattfríðindi þeirra væru afnumin
en laun þeirra hækkuð til að þeir
héldu sömu kjörum. Á móti kemur
þó að staðaruppbót sendiherra er aö
hluta til ætluð til að mæta kostnaði
sem fylgir embættinu eins og DV
greindi frá í fyrradag. Þá er litið á
laun sendiherra sem heildarlaun
fjölskyldu þar eð ekki er ætlast til
að makar stundi aðra vinnu. Sendi-
herrar fá þó risnu greidda í hverj-
hún sá manninn. Maðurinn er tal-
inn vera um þrítugt og var hann
með skíðagleraugu.
Maðurinn var flúinn þegar lög-
reglan kom á staðinn.
-SMK
um mánuði sem er ætluð m.a. til
veisluhalda fyrir gesti og nemur
hún um 50 til 150 þúsund krónum á
mánuði.
Þarna er þó ekki allt talið því
sendiherrar fá frítt húsnæði, frían
bU, frían síma og geta pantað vin og
matvæli úr tollvöruverslunum eða
heUdsölum. Þeir þurfa þó að standa
straum af kostnaði við að halda
sendiherrabústaðnum við og i þannig
standi að hægt sé að halda veislur í
honum. Starfsmenn sendiráða fá
einnig hlutfaU af flestum þeim hlunn-
indum sem sendiherrar fá.
Umdeildur sjómannaafsláttur
Sjómenn eru þriðji aðilinn sem
gagnrýndur hefur verið fyrír skatta-
hlunnindi sín. Pétur H. Blöndal al-
þingismaður hefur lýst því margoft
yfir að forsendur fyrir sjómannaaf-
slættinum séu löngu brostnar og
hann eigi að afnema hið fyrsta. Sjó-
menn fá 671 krónu í sjómannaafslátt
á dag og ef þeir eru lögskráðir í 250
daga á ári fá þeir afsláttinn greidd-
an alla daga ársins. Þeir sem það
gera fá því í það heila 245.000 krón-
ur í skattaafslátt yfir árið sem slag-
ar langleiðina upp í persónuafslátt-
inn. Þá þekkjast þess dæmi að
skráningin teljist vafasöm og
greindi DV t.d. frá því fyrir
nokkrum misserum, þegar 30
manns voru lögskráðir á lóðsbátinn
Haka í Reykjavíkurhöfn en margir
þeirra stigu varla um borð nema
nokkrum sinnum á ári. Samkvæmt
heimildum DV er her manna enn
skráður á Haka og er þar um að
ræða búbót fyrir skrifstofumenn
jafnt og þá sem stunda siglingar
innan hafnar og utan.
Ekki má gleyma starfsmönnum
alþjóðastofnana sem greiða alls eng-
an skatt en þaö er ákveðið sam-
kvæmt alþjóðasamningum. Pétur H.
Blöndal sagði í DV á þriðjudag að
afnema þyrfti þessi fríðindi og ekki
skipti öllu þó þetta væri ákveðið af
alþjóðasamningum. íslendingar
kæmu að gerð slíkra samninga og
ættu að beita sér gegn svona ákvæð-
um. -hdm
Öskjuhlíð
Dóni með skíðagler-
augu beraði sig
.......HtV Umsjón:
BöfSnr Rristjánsson
netfang: sandkorn@ff.is
Framsóknardúsa
Það er engu lík-
ara en stefnt sé að
kosningum á næst-
um mánuðum af
hálfu stjórnar-
flokkanna. Breytt
kjördæmaskipan
setur þar strik í
reikninginn.
Þannig keppast
sjálfstæðismenn í
Suðurlandskjördæmi hinu nýja um
toppsætið og tjalda opinberum
framkvæmdum til að auka
vinslældir sínar. Framsóknarmenn
virðast líka komnir í startholurn-
ar. Kristinn H. Gunnarsson af
Vestfjörðum hefur flutt tillögu um
að flytja höfuðstöðvar Byggðastofn-
unar í útibúið á Sauðárkróki.
Bændur telja tillöguna enga tilvilj-
un þvi stór-Vestfjarðakjördæmi hið
nýja mun ná suður í Hvalfjörð og
yfir vestanvert Norðurland að
auki. Vestfirðingar fá jarðgöng í
Dýrafjörð, Vest-Norðlendingar fá
Byggðastofnun og þá er bara
spurningin um Vestlendinga...
Flott auglýsingabrella
Ástþór Magn-1
ússon þykir nú I
verulega líklegur |
til að koma með j
framboð á lands-
vísu gegn sitj-
andi forseta. I
Munu ekki
ómerkari menn
en Sverrir I
Stormsker vera
að hjálpa Ástþóri að vinda upp
driffjöðrina í kosningavélinni. Ef
allt smellur saman, þá má trúlega
vænta tíðinda í dag. í kosningabar-
áttunni ætti Ástþór að njóta mikill-
ar athygli, enda aðeins við einn
frambjóðanda að kljást. Þykir ill-
gjörnum tungum augljóst að
sniðugra auglýsingaplott hafi ekki
verið fundið upp á síðari árum.
Allir fjölmiðlar muni þannig
galopnast fyrir boðskap Friðar 2000
i ómældar klukkustundir og ríki og
sveitarfélög þurfa að punga út ein-
um 40 milljónum vegna kosning-
anna...
Skutull hljóp meira
Glöggir
ísfirðing-
ar veittu
eftirtekt
umfjöll-
un um
rækju-
togar-
ann
Skutul sem hljóp í meðfórum
manna úr 793 brúttólestum i 19 er
skipsnafnið var endurvakið í litl-
um bát vestra. Þetta mun vera hin
mesta vitleysa, því Skutull hljóp
enn meira. Það var nefnilega ekki
Stundvís ÍS sem Halldór Jónsson
og félagar keyptu, heldur mun bát-
urinn hafa heitið Fundvís ÍS.
Hann er ekki 19 bróttólestir að
stærð, heldur aðeins um 6 tonn.
Skutull, fyrrum stolt rækjuveið-
anna fyrir vestan hefur þvi hlaupið
um heil 787 brúttólestir en ekki
774, - og er orðinn að trillu...
Ekki vitur
Össur Skarp-
héðinsson, ný-1
lega kjörinn for-
maður Samfylk-
ingarinnar, hjó á
báðar hendur í [
DV-yfirheyrslu á I
dögunum. Sá
hann lítt eftir |
leiðindaskjóöum I
á borð við Stein-
grím J. Sigfússon og fleiri fyrrum
félaga sem nú tilheyra Vinstri-
grænum. Þá sagðist Össur ekkert
óttast á pólitískum vettvangi í sinu
nýja embætti. Pálmi Jónsson á
Sauðárkróki orti af þessu tilefni:
Össur sætan sigur vann
syngur hress og glaður.
Sá sem ekkert óttast kann
er ekki vitur maður.