Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Qupperneq 11
11
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
Útlönd
Tony Blair og Cherie
Cheríe leiö vel í gær að sögn
talsmanns forsætisráöherrans.
Ekki stöðugar
fréttir af Cherie
Talsmaður Tonys Blairs, forsætis-
ráðherra Bretlands, tilkynnti í gær
að ekki yrðu veittar stöðugar fréttir
af líðan eiginkonu forsætisráðherr-
ans, Cherie, sem á von á fjórða
barni þeirra hjóna innan nokkurra
daga. Cherie leitaði til sjúkrahúss á
miðvikudagskvöld vegna verkja en
henni leið vel í gær. Fjöldi frétta-
manna og ljósmyndara hefur beðið
dögum saman við bústaö forsætis-
ráðherrahjónanna og sjúkrahús
þeirra.
Hörmungarástand yfirvofandi vegna stríðs Erítreu og Eþíópíu:
Tónleikar til heiöurs páfa
Jóhannes Páll páfi hlýöir á tónleika á áttræöisafmæli sínu í gær. Yfir 7
þúsund prestar, biskupar og kardínálar fögnuöu afmælinu viö hátíöarmessu.
Sprengingin 1 Hollandi:
Leitað að eigendum
flugeldasmiðjunnar
Dómsmálayfirvöld í Hollandi hafa
gefið út handtökuskipun á hendur
eigendum flugeldasmiðjunnar í
Enschede sem sprakk um síðustu
helgi með hörmulegum afleiðingum.
Mennimir liggja undir grun um
að hafa brotið settar reglur um
geymslu flugeldanna.
„Við erum enn að leita að þeim.
Við vitum ekki hvar þeir eru,“
sagði talsmaður hollenska dóms-
málaráðuneytisins við sjónvarpið.
Lögreglan rannsakar nú hvort
reglur um geymslu flugeldanna hafi
verið brotnar og hvort kveikt hafi
verið í smiðjunni.
Tuttugu manns að minnsta kosti
týndu lífl í sprengingunni og elds-
voða sem fylgdi í kjölfarið, um 950
slösuðust og um 400 heimili eyði-
lögðust. Borgaryfírvöld segja að
smiðjan hafi haft öll tilskinin leyfi.
Leitað eftir sprenginguna miklu
Sérfræöingar í Enschede i Hollandi
leita aö líkamsleifum i bílflökum.
• Komin ný sending af Aerosoles.
• Herraskór.
• Margar nýjar tegundir.
Áður aðeins f tískublöðum,
nú fáanlegir í
VétiM
Kringlunni • S. 553-2888
valmiki@skor.is
skor@skor.is
Miklar hörmungar eru yfirvof-
andi í Erítreu þar sem hundruð þús-
unda manna hafa lagt á flótta undan
sókn eþiópíska hersins inn í landið.
Þá ógna þurrkar milljónum manna
til viðbótar.
Embættismenn í Eritreu sögðu í
gær að meira en hálf milljón manna
hefði farið á vergang undanfarna
viku vegna endumýjaðra bardaga i
tveggja ára landamæradeilu Erítreu
og Eþíópíu, sem eru meðal fátæk-
ustu landa heimsins. Eþíópar hafa
náð vesturvígstöðvunum á sitt vald
og lagt undir sig bæinn Barentu.
Starfsmenn hjálparstofnana
sögðu að stríðið hefði gert þeim
erfitt fyrir að dreifa matvælum til
þurfandi og svo kynni að fara að
gefendur sneru við þeim baki.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði að landamærastríð landanna
Leitað frétta af stríöinu við Eþíópa
Tveir erítreskir hermenn hlusta á útvarpiö og fylgjast meö gangi bardaganna.
tveggja væri glórulaust og að áfram
yrði haldið að reyna að koma á
friði.
„En stjómvöld í Erítreu og Eþíóp-
íu verða fyrst að átta sig á því að
þau eru ekkert að gefa eftir þótt þau
hætti þessari sjálfseyðileggingu.
Það er ekki heigulsháttur að gefa
þjóðunum kost á framtíð, það er til
merkis um heilbrigða skynsemi og
hugrekki," sagði Clinton.
Bandarískur embættismaður
sagði að þurrkarnir nú gætu skapað
verra ástand en var í hungursneyð-
inni miklu í Eþíópíu á árunum 1984
til 1985 þegar um sjö milljónir
manna áttu um sárt að binda.
Núna vofir hungur og sjúkdómar
yfir átta milljónum manna í Eþíóp-
íu. Tvisvar sinnum fleiri í þessum
heimshluta hafa orðið fyrir barðinu
á þurrkunum og stríðsátökunum.
Þúsundir kvenna seld-
ar á uppboði í ísrael
AtROSOtfS
mm
Stærð 36-41,
litur gylltur,
verð 4900.
Stærð 36-41,
litur svartur,
Stærð 36-41,
litir svartur, blár,
verð 5900.
Stærð 36-41,
litir svart, gyllt,
Ijósgrátt, dökk-
grátt.brúnt,
verð 4900.
Stærð 36-41,
litir turquoise,
gyiit,
appelsínugult,
verð 3900.
Stærð 36-41,
litur svartur,
verð 5900.
Þúsundir kvenna, flestar frá
Rússlandi og öðrum fyrrverandi
lýðveldum Sovétríkjanna, eru á
hverju ári sendar til ísraels þar sem
þær eru seldar á uppboði og haldið
fongnum i vændishúsum. Þær sem
kvarta undan meðferðinni eru
myrtar eða setja fjölskyldur sínar í
hættu. Þetta fullyrða
mannréttindasamtökin Amnesty
Intemational í skýrslu sem kynnt
var i gær. ísraelska lögreglan og
Yosi Beilin, dómsmálaráðherra
ísarels, staðfesta innihald
skýrslunnar. Rússneska maflan er á
bak við þrælasöluna.
14 k. guil,
ekta perla
Verð aðeins 5.900
Sendum myndalista
<@utl
(dfyöllin
Laugavegi 49
Sími 551 7742
Hálf milljón manna á
vergang á einni viku